Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Blaðsíða 8
Nautakjötssalat frá Taflandi 200 g nautalundir 1 salathöfuð LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 IDressing 2 msk. sítrónusafl 1 msk. fishsósa (Nuoc-mam) y2 msk. sojasósa V2 tsk. sykur Látið salatið standa í 20 mínútur Hrærið dressinguna saman. Skerið kjötið í mjög þunnar sneiðar. Hreinsið laukana og skerið þá í þunnar skífur á lengdina. Leggið helminginn af laukskífúnum við kjötið. Deil- ið chilinu og fjarlægið kjarnana. Skerið chili í þunnar skífur og blandið saman við nauta- kjötið. Hellið dressingu yfir kjötið og látið standa í 20 mínútur í kæliskápnum. Skolið saltathöfúðið og skerið það, takið utan af agúrkunni og skerið hana í skífur. Leggið salatblöðin ásamt agúrkunum á fat. ILeggiö kjötið ofan á ásamt því sem eftir stendur af vorlaukunum og berið fram. Mjög gott er að grilla kjötið áður en það er sett í salatið ef meiningin er ekki að borða það hrátt. Hægt er að milda dressinguna með hökkuðum ósöltuðum jarðhnetum. -em Taílenskur karríréttur Ikerinn Georg Páll Skúlason: Kjúklingur í hnetusmjörssósu Fiskur í karríi frá Sri Lanka 1 agúrka 4 vorlaukar 1 rauður chili fersk mynta eða ferskt koriander Karrímauk Matgæðingur vikunnar er Óskar Guð- jónsson saxófónleikari en hann hefur leik- ið með hljómsveitinni Mezzoforte til margra ára. Óskar hlaut einnig íslensku tónlistarverðlaunin 1997. Óskar ætlar að gefa uppskrift að taílenskum karrírétti og punjabi-brauði. 2 litlir laukar 6 hvítlauksgeirar 4 msk. skorið ferskt lemon grass 6 tsk. skorin fersk corianderrót 6 tsk. þurrkaður rauður chilipipar (hreinsið fræin innan úr) 1 tsk. rækjumauk (shrimp paste) 2 tsk. galangal duft 2 tsk. kaffir lime lauf 6 tsk. paprika 1 tsk. turmeric 1 tsk. cumin fræ 6 tsk. olía Setjið laukinn, hvítlaukinn og kryddið í matvinnsluvél og maukið. 300 g kartöflur 250-300 g gulrætur 200-300 g spergilkál y2 ferskur ananas 2- 4 msk. austurlensk fiskisósa 4 bollar kókosmjólk 3- 6 msk. sykur Afhýðið kartöflurnar og skerið í hæfilega stóra bita. Sjóðið í vatni í u.þ.b. 10 mín. Skerið gulrætumar, spergilkálið og an- anasinn í hæfilega stóra bita. Hitið olíu á pönnu og setjið karrímaukið út í. Setjið kartöflurnar, gulræturnar, spergilkálið og ananasinn á pönnuna og leyfið að steikjast í u.þ.b. 2 mín. Því næst skal hella fiskisósunni og kókosmjólkinni út í og látið suðuna koma upp. Leyfið þessu að malla í dálitla stund og sykrið eftir smekk. Agúrkusalat y2 agúrka 1-2 rauðlaukar jalapeno pipar eftir smekk Skerið agúrkuna og rauðlaukinn í sneið- ar. Skerið jalapeno piparinn eftir endi- löngu, hreinsið að innan og skerið í sneið- ar. Blandið saman í skál. Lögur: y3 bolli sykur % tsk. salt y, bolli hvítvínsedik Blandið öllu saman í lítinn pott. Hitið á plötu og hrærið þar til allt hefur leyst upp. Látið löginn að kólna og hellið yfir salatið. Skreytið með fersku coriander. Punjabi brauð 7 g smjör 1 tsk. sykur y2 bolli heitt vatn 3y2 bolli hveiti 2 tsk. sykur, (extra) y4 bolli hreint jógúrt y3 bolli heitt vatn, extra y2 tsk. ground cumin 1 egg, lítillega þeytt 60 g bráðið smjör 2 tsk. salt y2 bolli hreint jógúrt, extra 2 msk. birkifræ Blandið vel saman sykri, smjöri, vatni og y2 bolla af hveiti í litla skál. Breiðið yfir skálina og látið standa í 10 mín. á heitum stað. Setið restina af hveitinu og extra syk- urinn í stóra skál og búið til holu í miðj- una. Takið blönduna, sem búin er að standa, og hrærið út í. Bætið jógúrt, extra vatni, cumin, eggi, smjöri, sem búið er að bræða, og salti. Hnoðið deigið í u.þ.b. 7 mín. Setjið í stóra smurða lokaða skál og látið standa á heit- um stað í 45 mín. eða þar til deigið hefur tvöfaldast. Hnoðið deigið og skiptið í 8 jafha hluta. Búið til kúlur, breiðið yfir og látið standa i 5 mín. Búið til kringlótt brauð og smyrjið með extra jógúrtinu og stráið birkifræjunum yfir. Setjið á smurða ofnplötu og látið standa í 5 mín. Bakið i heitum ofni í 12 mín. eða þar til brauðin eru brún og stökk. Með því að bera brauð fram með þessum taílensku réttum hef ég brotið allar reglur í taílenskri matargerð en ég er bara svo mik- ifl brauðmaður að ég get ekki sleppt því. Ég mæli með basmatihrísgrjónum með þessum réttum og einnig er gott að hakka salthnetur í matvinnsluvélinni og strá yfir matinn. Ég skora á Hilmar Jensson gítarleikara. Óskari Guöjónssyni er margt annaö til iista lagt en tónlistin. DV-mynd Hilmar Þór Það er mjög skemmtilegt að prófa rétti frá hinum ýmsu þjóðlöndum. Það skemmtilega er að núorðið er oftast nær hægt að kaupa það sem til þarf í þessa skemmtilegu og óvenjulegu rétti. Fiskur í karríi er ekki al- gengur á Islandi en það er ekki úr vegi fyrir okkur íslendinga að læra að matbúa svolftið fleiri fiskrétti þar sem úrvals hráefni er tfl staðar. 300 g fiskflak (af rauðsprettu eða ýsu) 1 tsk. salt 1 tsk. gurkemeje 1 laukur 2 hvítlauksrif 1 tsk. ferskt, hakkað engifer 1 tómatur eða 2 msk. tómatpuré 2 msk. olía 1 msk. karrí 1 hnífsoddur chilipipar 1 dl. kókosmjólk í dós Skolið og þurrkið fiskflökin. Nuddið þeim upp úr salti og gurkemeje. Skerið í minni stykki. Takiö utan af laukn- um og skerið hann í smáabita. Blandið sam- an lauk, pressuðum hvítlauk, engifer og tómati í jafna sósu. Steikið fiskinn í lítifli olíu á pönnu þar til hann er gullinn og takiö hann síðan upp og haldið honum heitum. Svissið karríið í örlítilli olíu í potti og bætið sósunni, chili og kókosmjólk saman við. Lát- ið sósuna sjóða í nokkrar mínútur og hrærið í á meðan. Berið fiskinn fram með heitri sós- unni. Dreifið yfir fiskinn fersku hökkuðu koriander og berið fram með hrísgrjónum með rosiander og chutney. Ef karríið er sterkt borgar sig að sleppa chilikryddinu. í staðinn fyrir að steikja fískinn má gjarna láta hann sjóða með sósunni síðustu 2-3 mín- útumar. matgæðingur vikunnar ; ..” pönnu á rúmlega miðlungshita. Brúnið skorinn rauðlaukinn þar til hann er gullinbrúnn. Lækkið hitann, bætið við hnetusmjöri, sykri, season afl, chilidufti og kókoskremi. Hrærið í um leið og þetta er steikt í 1-2 mínútur. Takið af heitri plötunni. 3. Hitið 2 lítra af vatni og setj- ið örlítið salt, sykur og olíu út í. Setjið spínatið og vorlauk í sjóð- andi vatnið og sjóðið i 3 mínút- ur. Hellið vökva af og setjið grænmetið á fat. Brúnið og setj- ið kjúklingabrjóstið á pönnu (í olíu eða án) og snúið þar til það er steikt. Takið af pönnunni og setjið kjúklinginn ofan á spínatið og laukinn. Hellið hnetusósunni yfir. Gott er að bera fram hrísgrjón með réttinum og heitt snittubrauð. Uppskriftin er fyrir 4. -em Georg Páll Skúlason gefur skemmtilega upp- skrift. DV-mynd Sigrún Lovísa „Eg hef mikinn áhuga á mat- reiðslu og hef sótt námskeið f henni. M.a. góð námskeið hjá Tómstundaskólanum og á einu slíku í taílenskri matreiðslu fékk ég uppskriftina að kjúklingarétt- inum en forrétturinn varð til við grillið einn góðviðrisdag," segir Georg Páll Skúlason prentari sem er sælkeri vikunnar. Forréttur: Grillaðir sveppahattar með gráðosti. 20 ferskir sveppahattar 125 g gráðostur fersk steinselja Takið stilka úr sveppunum og skerið í smátt. Bræðið gráðost- inn og hrærið stilkana saman- við. Raðið sveppahöttunum á ál- bakka og setjið fyllingu í hvem og einn. Stráið steinselju yfir og grillið þar til sveppimir verða meyrir og mjúkir. Kjúklingarétturinn er eilítið flóknari en þó léttur i framkvæmd. 400-500 g kjúklinga- bringa, skor- in í sneiðar 2 hvítlauksrif 1 msk. smjör 250 g spínat (ferskt eða frosið) 1 rauðlaukur 3 msk. hnetusmjör 1 msk. season all krydd 1 sneið engiferrót 1 tsk. karrí 1/2 bolli rjómi eða mjólk lbúnt 1 msk. chilikrydd (duft) 1 msk. sykur 1/2 bolli kókóskrem (Coconut milk, Blue Dragon) eða mjólk 2 msk. jurtaolía. 1. Merjið engiferrót saman við hvitlauk, karríduft, rjóma og brætt smjör. Heflið þessu yfir kjúklinga- brjóstið og látið standa í 1 klst. í ísskáp. 2. Hitið olíuna í stórri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.