Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997
Gísli Rúnar safnar kröftum eftir þættina á Stöð 2:
Næst er að ná 20
kílóunum af!
„Ég er eiginlega að saflia kröft-
um eftir veturinn, kominn á þenn-
an aldur. Þetta var krappur dans
og mikil keyrsla, kalla ég þá ekki
allt ömmu mína. Ætii ég fari ekki
bara að ná af þessum 20 kílóum
sem bættust á mig. Ég er að sækja
í mig veðrið í þeim efnum. Hef að
visu ekki stigið á vigt en finn það
á fotunum að ekki er allt með
felldu," sagði Gísli Rúnar Jónsson
leikari þegar helgarblaðið sló á
þráðinn til hans í vikunni til að
forvitnast hvað tæki við hjá hon-
um eftir skemmtiþættina á Stöð 2 í
vetur, Gott kvöld með Gísla Rún-
ari.
Hann sagði það ekki ljóst hvort
áframhald yrði á þáttunum næsta
vetur. Hann hefði ýmis önnur járn
í eldinum sem hann vildi ekki
uppljóstra að svo stöddu. Ekki
nema þá að hann myndi líklega
klára gamanleik sem væri í smið-
um hjá sér eða kíkja ofan í
frystikistuna og taka upp nokkur
óþýdd leikrit!
Hálf þjóðin horfði
Hann sagðist vera nokkuð ánægð-
ur með útkomuna í vetur á Stöð 2.
Vissulega hefði þátturinn verið um-
deildur en ekki hefði mátt við öðru
búast miðað við hvemig hann var
hugsaður.
„Rúmlega hálf þjóðin horfði á
þáttinn að jafnaði, hvort sem henni
líkaði betur eða verr. Það var mjög
ánægjulegt. Ég fékk stundum beint
framan í mig frá fólki að því fyndist
ég leiðinlegur og þátturinn ennþá
leiðinlegri. Það sagðist þó horfa á
þáttinn til að sjá upp á hverju ég
tæki. Mér finnst eftirsóknarvert að
hafa náð því. Upphaflega átti þáttur-
inn ekkert endilega að ganga svona
lengi,“ sagði Gísli Rúnar.
Hann vonaðist til þess að
sjónvarpsstöðvarnar tækju sig taki
núna, sérstaklega Sjónvarpið, og
fæm að framleiða meira af leiknu
íslensku efni. Mjög lítið sæist af
slíku efni i dag. Það væri af sem
ÖKisag
Rlóma-
sprautur
• Tertur með rjóma • Kökur með rjóma
•Kaffi meðrjóma 'ísmeðrjóma
(passar í allar gerðir)
Rjómasprautur og gashylki
(passar í allar gerðir)
áður var þegar Sjónvarpið á fyrstu eitt leikrit í hverjum mánuði. -bjb
ámnum var kannski að framleiða
Gísli Rúnar Jónsson er meö ýmis járn í eldinum eftir að skemmtiþættinum á
Stöö 2 lauk á dögunum. Hann hefur m.a. kíkt ofan í frystikistuna og tekiö upp
nokkur óþýdd leikrit! DV-mynd Hilmar Þór
POWER MACINTOSH, PERFORMA5260:1,2 GB harður diskur, 12 MB RAM, PowerPC 603e RISC - örgjörvi með 120 megariða
vinnslutíðni, 14 tommu (þumlunga) litaskjár með skuggasíu og 640x480 punkta skjáupplausn. 16 bita hljóðkerfi með innbyggðum víðóma
hátölurum, inn- og úttök fyrir hljóð. Tengist netkerfum auðveldlega. Afar létt er að auka möguleika hennar og gæða enn frekara afli.
Vinnslu- og leikjaforrit fylgja: Aladin, BOES, Descent, Full Thro., GME 1996, The Lion King, The Ultim., Toy Story, Claris Works.
Skipholti 21 • 105 Reykjavík • Sími: 511 5111
Tölvupóstur: info@apple.is
Slód: http://www.apple.is
...Power Macintosh 5
129.900
kr. stgr.
í tilefni 20 ára almælis Apple tölvunnar bjóðum við Power Macintosh
5260 á sérstöku hátíðarveroi. Þessi öfluga margmiðlunartölva kostar aðeins
129.900 kr!
Kíktu inn í verslun okkar að Skipholti 21 og kynnstu kostum
Power Macintosh vélanna - þú sérð ekki efitir því.
Apple-umboðið