Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Síða 31
39
JaAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997
| Samdráttur
ÍBandaríska flugfélagið USA-
irways hefur sagt upp hundruð-
um starfsmanna sinna og hætt
áætlunarflugi til Karíbahafsins
og Kanada frá Baltimore-Was-
hington flugvellinum.
1
!t
1
Breytingar fargjalds
Leiguhílar hafa aldrei þótt
ódýrir í Tokyo, höfuðborg Jap-
ans. Startgjaldið hefur verið um
370 krónur. Breytingar hafa
verið gerðar á fargjöldum
margi-a leigubílstjóra og start-
gjaldið lækkað um helming hjá
mörgum. Það gildir þó aðeins
fyrir styttri ferðir, undir tveim-
ur kílómetrum, en ef keyrt er
lengra verður fargjaldið enn
hærra en áður.
Ekki ensku, takk
Upplýsingar sem gefnar eru í
símaklefum í borginni Sjanghai
hafa hingað til verið á ensku.
Kínversk stjórnvöld hafa lagt til
að því verði breytt og frekar
verði notuð kínverska máflýsk-
an mandarín.
Umferðarvandræði
Umferð er svo mikið vanda-
mál í taílensku borginni Bang-
kok að fjöldi kvenna neyðist til
að ala börn í bifreið á leiðinni á
fæðingardeildina.
Á verkefnaskrá er að hressa vel viö nokkrar þekktar gönguleiðir fyrri tíðar með merkingum svo sem úr Steingríms-
firði norður í Árneshrepp yfir svonefnda Trékyllisheiði.
Strandasýsla:
Paradís náttúruunnenda
DV, Hólmavík:
Velgjömingur við gesti og gang-
andi er flestu dreifbýlisfólki í blóð
borinn. Sveitaheimilin voru lands-
byggðarhótel fyrri tíma og sagan
endurtekur sig jafnan. Strandamenn
voru engir eftirbátar annarra í þeim
efnum. Þeim hefur jafnan verið bor-
in vel sagan.
Nægir í því sambandi að nefna
frásögn meistara Þórbergs þegar
hann snemma á þessari öld lagði á
sig gönguferð úr nyrsta sveitarfélag-
inu, Árneshreppi, suður allar
Strandir í þeim tilgangi einum að fá
augum litið elskuna sina, heimasæt-
una á Bæ í Bæjarhreppi - ferð sem
var nokkur hundrað kílómetra og
tók hátt í hálfan mánuð. Þórbergur
gefur Strandamönnum þann vitnis-
burð að óvíða hafi hann þurft að
reiða fram gjald fyrir gistingu og
hvergi fyrir veitingar.
Heimili Strandamanna, ekki síst í
norðurhluta sýslunnar, voru og
skjólreitur margra hrakinna og
hrjáðra í misviðrasömum mannlífs-
heimi fyrri tíðar, sem lítt miskunn-
söm refsilög gerðu margan manninn
brotlegan við. Hinn langi armur
réttvísinnar náði síður þangað norð-
ur - samgönguleysið og einangrunin
var oft algjör. Þar geymir sagan
dulúðugar frásagnir um löngu liðna
atburði, sem stórbrotin náttúra kall-
aði fram, bæði hroll og unað þeirra
er upplifðu og á hlýddu og er svo
enn.
Aflan þennan hrikaleik, tign og
töfra og ekki síst skjólreitinn, vilja
Strandamenn með ferðamálasamtök
sýslunnar í broddi fylkingar, skapa
öllum þeim sem sækja þá heim.
Hafa þeir þegar stigið fyrstu skrefin
í þá veru.
Rómuð náttúrufegurð
Á sumri komanda verður eitt og
annað í boði sem markvert verður
að telja og áhugafólk um ferðaþjón-
ustu er að undirbúa. Náttúrufegurð
sýslunnar er rómuð ásamt lítt
snortnu umhverfí. Nánast eins og
paradís hverri mannssál sem útivist
þráir. Sérstök áhersla verður lögð á
að aflur viðgjömingur við ferða-
menn verði góður og í því sambandi
er stefnt að námskeiðshaldi í vor
fyrir leiðsöguaðila og þá sem gesta-
móttöku annast. Fyrir forgöngu
ferðamálafulltrúa Vestfjarða, Dorot-
hee Lubecki, fékkst lítils háttar
styrkur til námskeiðshalds, 50.000
kr.
Á verkefnaskrá sumarsins er m.a.
að hressa vel við nokkrar þekktar
leiðir fyrri tíðar með merkingum
svo sem úr Steingrímsfirði norður í
Árneshrepp yfir svonefnda Trékyll-
isheiði. Stefnt er að því að hlaða upp
ifla farnar og niður fallnar vörður á
þeirri leið og verður kunnáttumað-
ur fenginn til að leiðbeina um verk-
lag þeirrar vinnu. Þessi leið verður
svo merkt með viðarskiltum úr
rekaviði af Ströndum ásamt afleggj-
urum og útleiðum. Þetta verður
einn af valkostum fyrir gönguhópa
en teknar verða fyrir fleiri leiðir og
þær auðkenndar með sama hætti ef
efni og aðstæður leyfa. Hestaferðir
verða i boði en nokkrir aðilar, sem
þær hófu með skipulegum hætti sl.
sumar við vaxandi vinsældir, halda
þeim áfram og ef til vill bætast nýir
þar við. Boðið verður upp á skoðun-
arferðir á bátum til að líta á eyjar og
annnes. Þar er hugsað til náttúru-
perlunnar Grímseyjar á Steingríms-
firði með eitt stærsta lundavarp í
heimi og er áhugi á að koma á
hvalaskoðun og sjóstangaveiði.
Á fundinum lýstu aðilar, sem
undanfarin ár hafa unnið í hand-
verkshóp sem ber heitiö Stranda-
kúnst, áhuga á samstarfi við ferða-
þjónustuaðila en samstarf þessara
aðila hefur verið laustengt fram að
þessu. Allt efni sumardagskrár verð-
ur kynnt í atburðadagatali, sem er
nokkur nýjung í upplýsingamiðlun
hér á landi. Kynning með þessu
sniði kom fyrst fram hér á síðasta
ári og vakti verðskuldaða athygli.
Að því verki unnu ásamt öðrum
ungur þjóðfræðingur, Jón Jónsson,
og Rakel Pálsdóttir þjóðfræðinemi.
Framlag þeirra til eflingar ferða-
þjónustu í Strandasýslu naut styrks
úr nýsköpunarsjóði námsmanna og
Héraðsnefndar Strandasýslu. Starfs-
krafta Jóns munu ferðaþjónustuað-
ilar í sýslunni fá notið meginhluta
þessa árs við það er við kemur
skipulagi vinnunnar.
Guðfinnur
1 Samstarf
Belgíska flugfélagið Sabena
hóf reglubundið flug til Moskvu
þann 1. apríl síðastliðinn í sam-
starfi við breska flugfélagið
Virgin Express. Sabena áform-
ar einnig að hefja áætlunarflug
til Mallorca þrisvar i viku og
fjölga flugferðum til borganna
Prag og Búdapest. Sabena hefur
undanfarin ár átt í rekstrarerf-
iðleikum en virðist vera að
rétta úr kútnum.
Hugsanleg sátt
Flugmenn hjá bandaríska
flugfélaginu American Airlines
hafa undanfarnar vikur átt í
deilum við fyrirtækið vegna
launakrafna og verkfafl hefur
verið yfirvofandi. Náðst hefur
samkomulag um nýjan kjara-
samning en eftir er að bera
hann undir atkvæði félags-
manna sem eru 9.000 talsins. Ef
flugmenn fella samninginn gæti
komið til verkfalls í lok mánað-
arins.
Lá við árekstri
.
I síðasta mánuði lá við
árekstri tveggja stórra farþega-
þotna yfir La Guardia flugvell-
inum við New York. Flugum-
ferðarstjóra á vellinum er
kerrnt um tilvikið en vegna mis-
taka hans munaði ekki nema
rúmum 300 metrum að til
áreksturs kæmi. Þoturnar voru
frá bandarísku flugfélögunum
Delta og U.S. Airways.
Mikil farþegafjölgun
Flugfarþegum fjölgaði um
heil 6% á síðasta ári og hefur
fjölgunin sjaldan verið meiri
milli ára. Mest varð hún í Asíu
og á Kyrrahafssvæðinu. Þessar
tölur koma fram í skýrslu Al-
þjóða flugmálastofnunarinnar.
Flugfarþegar í fyrra voru rúm-
lega 2,5 milljarðar. O’Hare flug-
völlurinn við Chicago er sá
flugvöllur á jarðarkringlunni
sem tekur á móti flestum far-
þegum.