Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Blaðsíða 35
JLÞ*W LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997
Landsbankamótið 1997 :
bridge
76 einstaklingar hafa unnið meistaratitilinn á 49 árum
Einungis 76 einstaklingar hafa
náð þeim árangri að vinna íslands-
meistaratitilinn á þeim 49 árum
sem keppt hefir verið. Fimm bætt-
ust við í ár en frá upphafí hafa þess-
ir einstaklingar unnið oftast:
Stefán Guðjohnsen 12 sinnum
Einar Þorfinnsson 10 sinnum
Símon Símonarson 10 sinnum
Ásmundur Pálsson 9 sinnum
Eggert Benónýsson 9 sinnum
Hjalti Elíasson 9 sinnum
Jón Baldursson 8 sinnum
Hallur Símonarson 7 sinnum
Karl Sigurhjartarson 7 sinnum
Lárus Karlsson 7 sinnum
Einar, Eggert og Lárus eru látnir
fyrir nokkrum árum en hinir eru
flestir að reyna við einn í viðbót.
Eins og mönnum er í fersku
minni munaði einungis fjórum
vinnings- stigum á sveit Antons og
sveit Landsbréfa þegar mótinu lauk.
Landsbréf töpuðu 4 vinningsstigum
í einu spili á móti sveit Málningar
og því mætti setja málið þannig upp
að þeir hafi tapað mótinu á þvi.
Auðvitað er það nokkur einfóldun
en það er heldur ekki á hverjum
degi sem menn tapa 21 impa og 4
vinningsstigum á einu spili. Skoð-
um þetta mikla veltuspil!
N/N-S
* G87643
* 9
* ÁK10852
* Á
* D9872
4 -
* DG94
* 10873
* ÁK1043
* ÁKD1052
* 763
* D954
* -
♦ KG62
* G65
N
V A
S
í opna salnum sátu n-s Jón Bald-
Sveit Landsbréfa varð í öðru sæti. Talið frá vinstri: Ragnar Hermannsson,
Sverrir Ármannsson, Sævar Þorbjörnsson, Jón Baldursson og Björn
Eysteinsson.
ursson og Sævar Þorbjömsson en a-
v Hjálmtýr Baldursson og Baldvin
Valdemarsson. Sagnir tók fljótt af:
Norður Austur Suður Vestur
2* dobl 4« 6»
pass pass dobl
Allir pass
Vestur trúði ekki sinum eigin
augum þegar íjórir spaðar komu til
hans en ákvað að stökkva í sex
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
hjörtu. Sævar ákvað að útspilsdobla
þótt hann gæti varla átt von á öðr-
um slag eftir að hafa trompað lauf-
ið. Jóni var vorkunn að finna ekki
laufútspilið en hann spilaði tígli.
Þar með fékk Baldvin alla slagina.
Það voru 1310 til a-v.
í lokaða salnum sátu n-s Svavar
Björnsson og Steingrímur Gautur
Pétursson en a-v Björn Eysteinsson
og Sverrir Ármannsson. Nú var
sagnröðin ögn vísindalegri:
Norður Austur Suður Vestur
pass 2* 2* 4G
! 5* pass 6*
6* dobl Allir pass
Svavar gaf aðeins á tígulásinn og
fékk 1210 í sinn dálk. Raunar
tryggði hann góðan árangur spilsins
með því að segja fimm hjörtu, sögn
sem kom í veg fyrir að a-v gætu far-
ið í sjö lauf og unnið þau, hvað þá
fundið hjartalitinn.
En fyrir mestum vonbrigðum
urðu Páll Bergsson og Símon Sím-
onarson. Þeir sögðu og unnu sex
hjörtu dobluð með yfirslag en
komust að raun um að þeir höfðu
tapað 10 impum á því. Á hinu borð-
inu hafði Sigtryggur Sigurðsson
klifrað alla leið í sjö hjörtu, fengið
þau dobluð og unnið þegar norður
fann ekki laufútspilið.
skák
Stórmótinu í Dos Hermanas á Spáni lýkur í dag:
Kramnik vann Karpov og er í efsta sæti
- fjórir íslenskir stórmeistarar freista gæfunnar í Las Vegas.
Stórmótið i Dos Hermanas, nærri
Sevilla á Spáni, hefur unnið sér fast-
an sess sem eitt best skipaða skák-
mót ársins. Mótið í ár telst af 19.
styrkleikaflokki FIDE en sterkari í
stigum talið gerast mótin ekki. Fyr-
ir síðustu umferðina, sem tefld
verður í dag, var Rússinn Vladimir
Kramnik einn efstur.
Kramnik náði snemma foryst-
unni en þar skipti miklu vænn sig-
ur á Anatoly Karpov í 3. umferð.
Umsjón
Jón L. Árnason
Skákin var um margt dæmigerð fyr-
ir Karpov, að því undanskildu, að
nú sat heimsmeistarinn fyrrverandi
öfugum megin við borðið. Kramnik
tókst með öðrum orðum að leggja
Karpov í rólegri stöðubaráttu og
undir lok taflsins hafði Karpov
hrökklast með alla menn sína upp í
borð og mátti sig hvergi hræra. Kar-
pov hefur ekki tapað fleiri skákum
á mótinu en sótt í sig veðrið í síð-
ustu umferðum. I áttundu umferð-
inni vann Karpov enska stórmeist-
arann Nigel Short og náði að hífa
sig upp í deilt 3. sæti.
Staðan fyrir lokaumferðina er
þessi:
1. Vladimir Kramnik 5,5 v.
2. Viswanathan Anand 5 v.
3. -5. Anatoly Karpov, Veselin
Topalov og Judit Polgar 4,5 v.
6.-7. Valery Salov og Boris Gelf-
and 4 v.
8. Alexei Sírov 3,5 v.
9. Nigel Short 3 v.
10. Manuel Rlescas 1,5 v.
I 9. og síðustu umferð teflir
Kramnik við Topalov, Anand mætir
Júdit Polgar, Karpov teflir við Gelf-
and, Short við Sírov og Salov og
Illescas leiða saman hesta sína.
Hér eru tvær skákir frá mótinu.
Fyrst mikilvægur og eftirtektar-
verður sigur Kramniks gegn Kar-
pov og síðan laglegur sigur Shorts
gegn Illescas, sem sýnir að þótt ekki
gangi allt í haginn geta menn teflt
býsna skemmtilega.
Hvítt: Vladimir Kramnik
Svart: Anatoly Karpov
Nimzo-indversk vörn.
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 0-0 5. a3 Bxc3 6. Dxc3 b6 7. b4
Bb7 8. Bb2 d6 9. e3 Rbd7 10. d4
Eftir eilítið breytta leikjaröð er
komin fram þekkt staða í Nimzo-
indverskri vöm.
10. - Re4 11. Db3 a5 12. Be2
axb4 13. axb4 Hxal-i- 14. Bxal
Rdf6 15. 0-0 Dd7 16. b5 Ha8 17.
Bb2 c6
Svartur hefur þrengri stöðu og
freistar þess nú að losa um taflið.
18. bxc6 Dxc6 19. Hcl Rd7 20.
Rel Da4 21. Dxa4 Hxa4 22. f3
Ref6 23. Bdl Ha2 24. Rd3 Kf8 25.
Bb3 Ha8 26. e4 Rb8?
Hvítur bindur vonir sínar við
biskupaparið en nú opnast óvænt
færi sem Kramnik er ekki seinn að
nýta sér.
27. c5! bxc5 28. bxc5 dxc5 29.
Rxc5 Bc8 30. e5! Re8 31. Ba4 Rc7
32. Ba3 Kg8
33. Re4! Hxa4
Ef 33. - Rba6 34. Bd6 Ha7 35. Bb5!
og nú verður ekki ráðið við hótun-
ina 36. Bxa6 - svartur missir mann.
34. Hxc7 Ba6 35. Rc5!
Karpov kaus að gefast upp. Ef 35.
- Hxa3 36. Rxa6 og vinnur mann, því
að 37. Hc8 mát vofir yfir.
Hvítt: Manuel Illescas
Svart: Nigel Short
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4.
0-0 Be7 5. Hel d6 6. c3 0-0 7. d4
Bd7 8. d5 Rb8 9. Bxd7 Rbxd7 10.
c4 Re8 11. Rc3 g6 12. Hbl f5 13. b4
f4 14. a4 Hf7 15. Ba3 g5 16. Rd2
Ref6 17. f3 Hg7 18. Khl g4 19. De2
Kh8 20. Hecl Hg6 21. c5 dxc5 22.
bxc5 Bxc5 23. Bxc5 Rxc5 24. Rb5
b6 25. a5 De7 26. Rb3 gxf3 27.
gxf3 Rxb3 28. Hxb3 Hag8 29. Df2
Dg7 30. Hbbl Hg2 31. Dh4 Dg6 32.
Rc3
32. - b5! 33. Hel
Ef 33. Rxb5 þá 33. - Rxe4! og ekki
gengur heldur 33. Hxb5 Hgl+ og
mátar.
33. - b4 34. Re2 Rxe4! 35. fxe4
Hgl+!
- Og hvítur gafst upp. Eftir 36.
Hxgl Dxe4+ verður hann mát i
næsta leik.
ffflV
Hefur þú prófað
ostafylltu
pizzurnar?
Aöalfundur SameinaSa lífeyrissjóðsins
verður haldinn mónudaginn
28. apríl 1997 kl. 16.30.
að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38.
Dagskrá:
1997
| Venjuleg aSalfundarstörf samkvæmt
samþykktum sjóðsins.
j Tillögur til breytinga á reglugerS sjóSsins.
j Kynning á nýju lífeyriskerfi stéttarfélaga
og vinnuveitenda í Danmörku.
Onnur mál löglega upp borin.
H ASildarfélögum sjóSsins hefur veriS sent fundarbcS
og eru þau beSin aS tilkynna skrifstofu sjóSsins fyrir
25. apríl n.k. hverjir verSa fulltrúar þeirra á fundinum.
Allir sjóSfélagar eiga rétt til setu á fundinum meS tillögu
og málfrelsi. Þeir sjóSfélagar sem hyggjast nýta sér
þennan rétt eru beSnir aS tilkynna þaS skrifstofu sjóSsins
eigi síSar en 25. apríl n.k. og munu þeir þá fá
fundargögn viS setningu fundarins.
tiÉTillögur til breytinga á reglugerS liggja frammi
á skrifstofu sjóSsins frá 7. apríl n.k. og geta þeir sjóSfélagar
sem áhuga hafa á aS kynna sér þær fyrir fundinn,
fengiS þær á skrifstofu sjóSsins eSa sendar í pósti.
Frá og meS 22. apríl munu reikningar sjóSsins liggja frammi
á skrifstofu hans fyrir þá sjóSfélaga, sem vilja kynna sér þá.
Reykjavík, 2. apríl 1997
Stjórn SameinaSa lifeyrissjóðsins.
Suðurlandsbraut 30
108 Reykjavík
Sími 510 5000
Fax 510 5010
Grænt númer 800 68Ó5
Heimasí&a:
http://www.lifeyrir.rl.
Netfar
• \ •
oameinaöi
lífeyrissjóðurinn
lur er geymd-ir
Hönnun: Gísli B.