Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1997, Síða 51
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997
Leam Neeson, írski hjartaknúsarinn, í nýrri mynd:
er kominn
„í Los Angeles fer fólk út að skokka
í tvo tíma á dag og heldur að það sé
gott fólk. Það er þá sem mann langar
til þess að kyrkja fólk,“ segir írski
leikarinn Leam Neeson sem er mörg-
um að góðu kunnur eftir leik sinn i
kvikmynd Spielbergs, Schindler’s
List. Fyrir hlutverk sitt í þeirri mynd
var hann tilnefndur til óskarsverð-
launa, Golden Globe- verðlauna og
BAFTA-verðlaunanna sem besti leik-
arinn.
Rétt nafn hans er William Neeson.
Hann fæddist 7. júní árið 1952 á Norð-
ur-írlandi og gekk í St. Mary’s
Teaching School. Eiginkona hans er
Natasha Richardson. Þau eiga strák-
ana Michael og Daniel Jack.
Neeson hóf feril sinn í kennslu í há-
skóla í Belfast og gekk síðan til liðs
við leikhúsið í Belfast þar sem hann
steig sín fyrstu skref á sviði. Hann lék
síðan í mörgum sjónvarpsmyndum og
seríum bæði í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Hann hefur leikið í yíir 20
kvikmyndum þó hann hafi ekki náð
neinni sérstakri frægð til að byrja
með. Hann hefur leikið á móti helstu
stórstjörnunum í Hollywood, eins og
Mel Gibson, Anthony Hopkins, Julie
Andrews, Mickey Rourke, Bob
Hoskins, Robert De Niro og Jeremy
Irons, svo eitthvað sé nefnt.
Styrkur boxarans
Neeson hefur til að bera þann styrk
sem einkennir norður- írskan strák
sem eitt sinn var boxmeistari. Fínleik-
ann og næmið hefur hann til að bera
vegna náms i klassísku leikhúsi í
Dublin’s Abbey Theater. Konur hafa
Liam Neeson í hlutverki uppreisnarforingans Michaels Ccilins í samnefndri
mynd Neil Jordans sem tekin verður til sýninga um helgina.
Vesaling-
arnir '
næstir
átt það til að falla fyrir kelt-
neskum sjarma hans og
meðal þeirra eru
Barbra Streisand, Jul-
ia Roberts, Sinead
O’Connor og Helen
Mirren.
Neeson steig sín
fyrstu skref og sló í
gegn á Broadway
árið 1993 í Önnu
Christine eftir Eu-
gene O’Neill. Hann lék
á móti leikkonunni
Natasha Richardson og
leikritið færði honum til-
nefningu tO Tony-verðlaun-
anna. Hann var talinn fram-
úrskarandi klassískur leikari
og hlaut aftur verðlaun fyrir
leik sinn í Ethan Frome eftir
Edith Wharton.
Næsta
verkefni
Liams
Neesons
er Vesal-
ingarnir
eftir Vict-
or Hugo.
Hvernig
höndlar
hann
Fann ástina
Ástarlíflð
blómstraði hjá
Neeson eftir
að Natasha
Ric-
hard-
son hreppti hann í hnapphelduna og
hann fékk hlutverk í Schindler’s List.
Eftir það fór stjarna hans að skína
skærar í Hollywood, sérstaklega eftir
Schindler’s List. Hann lék á móti
Jessicu Lange í Rob Roy og nú síðast
lék hann írskan uppreisnarmann í
Michael Collins sem tekin er til sýn-
inga um helgina.
Þar leikur hann uppreisnarforingj-
ann Michael Collins sem fæddist þeg-
ar hvorki var friður né frelsi á ír-
landi. Kvikmyndaleikstjórinn Neil
Jordan býst við að þetta verði stór-
mynd og mikilvægasta myndin sem
hann hefur gert. Jordan segir að eng-
inn leikari í heiminum komist með
tærnar þar sem Liam Neeson hafi
hælana. Hann var sá eini sem hefði
getað leikið þetta hlutverk, að sögn
Jordans. Að sögn Neesons hefur
margt gerst í lífi hans og Jordans þar
sem velgengni þeirra beggja hefur
vaxið að undanfórnu. Þeirra tími er
kominn eins og þar stendur, að sögn
Neesons.
frægðina? Að sögn eiginkonu hans
vaknar hann upp á hverjum morgni,
feginn því að keyra ekki vörubíl.
Neeson hefur frá árinu 1979 leikið í
fjölda misgóðra kvikmynda eins og
gerist og gengur með leikara áður en
þeir ná frægð. Hér á eftir fer upptaln-
ing á kvikmyndum sem hann hefur
leikið í: Pilgrims Progress, Krull, The '
Bounty, Lamb, The Mission, Duet for
One, Á Prayer for the Dying, Suspect,
Satisfaction, The Dead Pool, The Good
Mother, High Spirits, Sweet as You
Are, Next of Kin, Darkman, The Big
Man, Crossing the Line, Under
Suspicion, Shining Through, Hus-
bands and Wives, Leap of Faith,
Decetion, Ethan From, Schindler’s
List, Ruby Cairo, Nell, Rob Roy, Out
of Ireland, Lumiere et compagnie,
Before and After, Michael Collins, A
Leap of Fath, auk sjónvarpsmynda-
flokka og leikritahlutverka.
-em
‘A|h'..»>4W4
kvikmyndir
Leikstjóri í snjó
Scott Hicks, maðurinn sem
stýröi Geoffrey Rush til ósk-
arsverðlauna í myndinni Shine,
er mikið að hugsa um að taka
að sér að leikstýra Snow Fall-
ing on Cedars sem byggð er á
sögu eftir David Guerson. Hún
fjallar um japansk-amerískan
mann sem kemur fyrir rétt
vegna morðs. Réttarhöldin
eru miðpunktur myndarinn-
ar, auk eiginkonu þess sem
réttaö er yfir og blaðamanns
sem Qallar um málið og þekk-
ir eiginkonuna frá fyrri tíð.
Enginn samningur hefur verið
gerður við Hicks en sögusagnir
eru uppi um að það verði ekk-
ert mál að ganga frá samningi
við Universal Pictures.
Neeson í Star Wars
Liam Neeson hefur átt
nokkra fundi með George
Lucas og er stefnt að því að
hann leiki aðalhlutverk í
nýrri þriggja mynda röð Star
Wars. Þessar fréttir fást ekki
staðfestar hjá talsmanni
Lucasar en því er þó ekki
neitað að hann sé líklegur val-
kostur.
Tim Burton stýrir of-
urmenni
Mjög alvarlegar viðræður
eru í gangi um það að Tim
Burton (Beetlejuice, Batman)
ætli sér að leikstýra endurkomu
ofurmennisins Superman. Lítið
er vitað um viðræður milli <.
manna en Nicholas Cage mun
leika ofurhetjuna. Myndin hef-
ur hlotið nafnið Superman Re-
bom og mun Kevin Smith,
leikstjóri Clerks og Chasing
Amy, vera búinn að semja nýtt
handrit upp úr öðru eldra.
Þetta verður fyrsta sagan um
ofurmennið síðan 1987. Uppi
em sögusagnir um að þessi
Superman muni ekki fljúga.
‘ ’
í tilefni af 5 ára afmæli Krakkaklúbbs DV
bjóða klúbburinn og Stjörnubíó öllum
Krakkaklúbbsfélögum í bíó
á myndina Gullbrá og birnirnir þrír.
Krakkaklúbbssýningar verða alla (augardaga og sunnudaga í
apríl. kl. 15. Miðar verða afhentir á laugardögum hjá DV.
Þverholti 11. frá kl.11-15. Hverfélagi færtvo bíómiða.
Munið að koma með Krakkaklúbbsskírteinin.
. / i ^
msm
IJLUM!
Þeir sem geta ekki nýtt sér
bíómiðana fá í staðinn
gómsaetan Kjöríshtunk.
Ávísanir á Kjöríshlunkana
verða afhentar hjá
umboðsmönnum DV
um land allt.
Afhendingartími
á hverjum stað var
augtýstur [ DV
fimmtudaginn 10. apríl.
í BOÐI KRAKKAKLÚBBS DV 0G STJÖRNUBÍÓS
'X