Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997
Fréttir
Mættu tveimur hettuklæddum ræningjum í stigagangi Suðurlandsbrautar 48:
Peningasendill 10-11
verslananna lá I blóði sínu
Þeir Sigurður Kjartansson bygg-
ingafræðingur og Hallgrímur Magn-
ússon læknir voru þeir sem komu
lögreglunni á sporið í ráninu á Suð-
urlandsbraut 48 í gærmorgun. Þeir
voru báðir að mæta í vinnu klukk-
an liðlega níu þegar tveir hettu-
klæddir menn urðu á vegi þeirra.
Sigurður og Hallgrímur hafa aðset-
ur á aimarri hæð hússins en Vöru-
veltan, skrifstofur 10-11 verslan-
anna, eru á þriðju hæð. Ránið átti
sér stað í stiganum á milli annarrar
og þriðju hæðar og höföu rænin-
gjamir beðið á stigapallinum á
þriöju hæð eftir starfsmanni 10-11
sem var með tösku með um 5 millj-
ónum króna í - þar af 2 milljónum í
reiðufé. Þegar peningasendillinn
kom upp stigann létu þeir til skarar
skríða, létu höggin dynja á mannin-
um, hrifsuðu töskuna af honum og
hlupu í burtu. Þeir mættu þá Sig-
urði og Hallgrími:
Ég var rændur - ég var
rændur!
„Þegar ég var að ganga að húsinu
komu tveir grímuklæddir menn
þjótandi út,“ sagði Sigurður í sam-
tali við DV í gær. „Ég hélt fyrst að
þetta væri grín. Síðan gekk ég áleið-
is upp stigann og heyrði einhverjar
stunur fyrir ofan. Þegar ég kom upp
lá ungur maður þar hálfvankaður
og það blæddi úr honum.“
„Hvað er að að ske?“ spurði ég.
„Það var ótrúlegur sprettur á
mönnunum sem ég gæti ímyndað
mér að væru á milli tvítugs og þrít-
ugs. Hins vegar sáum við aíveg
hvert þeir hlupu og vorum klárir á
að þeir kæmust ekki langt. Við
Hallgrímur rukum út í bílinn
minn og ókum upp Skeiðarvog og
inn Sólheimana til að reyna að
komast fyrir þá. Þar sáum við tvo
grunsamlega menn. Þeir voru þá
að stíga inn í bíl sem Hallgrímur
sá. Ég hringdi strax í lögregluna og
sagði að við hefðum séð menn sem
gætu tengst þessu ráni,“ sagði Sig-
urður.
Ótrúleg bíræfni
Hallgrímur og Sigurður náðu
skrásetningarnúmeri bílsins sem
var brún Mazda. Allt tiltækt lög-
regluliö var sent af stað til að leita
að bílnum og fannst hann rétt tæp-
um tveimur klukkustundum eftir
ránið.
Sigurður sagði að ræningjamir
tveir hefðu verið meðalmenn að
burðum og alls engir kraftakarl-
ar:
„Mér finnst þetta ótrúleg bí-
ræfni um hábjartan dag. En það
er skemmtilegt ef þetta á eftir að
ganga upp hjá lögreglunni," sagði
Sigurður um ránið sem kom hon-
um vissulega í opna skjöldu. ,
- eltu ræningjana inn í Vogahverfi
„Ég var rændur - ég var rænd-
ur,“ svaraði maðurinn. Hallgrímur
var kominn og við sáum að maður-
inn var þrælvankaður og blóðugur -
ið rétt á undan Sigurði:
„Þegar ég var að ganga inn í hús-
ið heyrði ég einhvem hávaða,"
sagði Hallgrímur við DV. „Síðan
að þetta væri eitthvert grín. Eftir
það sá ég á eftir þeim hlaupandi á
svakalegri ferð í átt að Gnoðarvog-
inum.“
þetta hlaut að vera alvara. Ég sagði
þá við Hailgrím:
„Við skulum reyna að ná í helvít-
is þrjótana."
Hallgrímurhafði komið inn í hús-
komu tveir menn stökkvandi hérna
niður stigann og ég mætti þeim. Ég
sá bara í augun á þeim. Ég vissi
ekki hvað var að gerast en ég var
ekkert skelkaður. Reyndar hélt ég
Ótrúlegur sprettur á ræn-
ingjunum
Sigurður segir að nú hafi at-
burðarásin orðið hröð:
Hallgrímur Magnússon læknir og Sigurður Kjartansson byggingafræðingur
sem ræningarnir flýöu.
benda í átt aö Gnoðarvoginum þangaö
DV-mynd S
Stuttar fréttir
j rödd
Ja FOLKSINS
904 1600
Á að breyta dagskrá sjónvarps
fyrir beinar íþróttaútsendingar?
Milljónum króna rænt af starfsmanni 10-11:
Tveir menn í haldi eftir ránið
- umfangsmiki leit að þriðja ræningjanum
en þar eru skrifstofur 10-11. Tveir
menn með lambhúshettu fyrir and-
liti réðust á starfsmann verslunar-
innar, sneru hann niður og börðu
og hrifsuðu af honum tösku sem
innihélt andvirði helgarsölu versl-
unarinnar sem nam milljónum
króna, bæði í reiðufé, ávísunum og
greiðslukortanótum.
Tveir menn komu hinum rænda
til hjálpar og eltu þeir síðan ræn-
ingjana sem komust undan. Rétt
eftir klukkan 9 var lögreglu til-
kynnt um ránið og hófst þá um-
fangsmikil leit. Bíllinn, sem þeir
eru taldir hafa verið á, fannst um
klukkan 11 á baklóð hússins Braut-
arholt 4. Eigandi bilsins var hand-
tekinn nokkrum mínútum síðar og
fundust um eitt hundrað þúsimd
krónur á honum.
í nótt var síðan annar maður
handtekinn í Grafarvogi, grunaður
um aðild að ráninu.
Rán þetta vekur óneitanlega upp
minningar um tvö rán sem framin
voru með svipuðum hætti í
Reykjavík og eru enn óupplýst.
Rán í útibúi Búnaðarbankans á
Vesturgötu og rán í Lækjargötu,
þegar ræningjar hrifsuðu peninga-
tösku, með miklum verðmætum í,
af starfsmanni Skeljungs. -RR
Brautarholtinu var lokaö skömmu fyrir hádegi í gær á meöan svæöiö var
fínkembt í leit aö ræningjunum. Skömmu áöur haföi einn maöur veriö
handtekinn. DV-mynd E.ÓI.
Tveir menn eru í haldi lögreglu,
grunaðir um að hafa rænt starfs-
mann 10-11 verslunarkeðjunnar í
gærmorgun. Eins manns er enn leit-
að í tengslum við ránið og stendur
yfir viðtæk leit að honum.
Mikiö liö lögreglumanna var kallaö
út tll aö leita aö ræningjunum. Hér
er lögreglan á vettvangi viö verslun
f Brautarholti. DV-mynd S
Ránið var framið um klukkan 9 í
gærmorgun á milli annarrar og
þriðju hæðar Suðurlandsbrautar 48
Vilja brjála sílamáv
Sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu vilja eitra fyrir sílamáv
með efni sem veldur honum tíma-
bundinni sturlun. RÚV sagði frá.
Engin kvótaleiga
Framkvæmdastjóri Sjómanna-
sambandsins segir að engir kjara-
samningar við sjómenn verði
gerðir nema fyrst verði tryggt að
kvótaleiga skerði ekki kjör
þeirra. RÚV sagði frá.
Fangi vill dagpeninga
Fyrrverandi fangi á Litla-
Hrauni hefúr höföað mál gegn
ríkinu til greiðslu dagpeninga fyr-
ir hluta þess tíma sem hann sat
inni. Fanginn rak bókhaldsþjón-
ustu í fangaklefanum og vill fá
dagpeningana fyrir þann tíma
sem hann stundaði þann rekstur,
þá sömu og fangar fá sem stunda
vinnu á vegum fangelsins. Al-
þýðublaðiö sagði frá.
Brotajárn til Spánar
3.000 tonnum af tættu brota-
jámi var skipað út til Spánar í
Straumsvík nýlega. Brotajámið
er aðallega komið frá gömlum bíl-
um. Morgunblaðið segir frá.
Sjóvá kaupir Ábyrgð
Sjóvá-Almennar hefur keypt
tryggingafélagið Ábyrgð sem
tryggt hefur bíla og aðrar eignir
bindindismanna um áratuga-
skeið. Ábyrgð var í eigu sænska
tryggingafélagsins Ansvar en rek-
ið síðustu árin undir handarjaðri
Sjóvár- Almennra. RÚV sagði frá.
Milljarðasamningur
íslenskt fyrirtæki, Lyfjaþróun
hf„ hefúr gert milljarða þróunar-
samning við bandarískt fyrirtæki
um að þróa áfram lyfjainngjöf
með nefúða í stað sprautu í
vöðva. Stöð 2 sagði frá.