Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997
íþróttir
NM í bogfimi:
Leifur setti
íslandsmet
Leifur Karlsson hlaut brons-
verölaun og setti íslandsmet á
Norðurlandamóti fatlaðra í bog-
flmi sem ffam fór í Laugardals-
höllinni um helgrna.
Leifur hlaut 1.026 stig, tíu stig-
um minna en sigurvegarinn,
Roger Eriksson frá Svíþjóð. Ole
Christian Övly frá Noregi varð
annar með 1.032 stig. Rúnar Þór
Bjömsson varð flmmti í sama
flokki (Klass B, Olympic) með
988 stig.
Ester Finnsdóttir fékk brons-
verðlaunin í kvennaflokki (Klass
B) en hún hlaut 897 stig. Birthe
Mogensen frá Danmörku sigraöi
með 1.011 stig og Siv Thulin frá
Svíþjóð varð önnur með 1.000
stig.
-VS
Skvass:
^ Kim Magnús
íslandsmeistari
Kim Magnús Nielsen hélt upp-
teknum hætti og varð íslands-
meistari karla í skvassi um helg-
ina. Kim Magnús vann Albert
Guðmundsson, 3-0, í úrslitaleik í
Veggsporti á sunnudaginn.
Magnús Helgason vann Amar
Arinbjarnar, 3-2, í leik um
þriöja sætið.
Hrafnhildur Hreinsdóttir sigr-
aði Rósmundu Baldursdóttur,
3-0, í úrslitaleik í kvennaflokki
og Bára Björk Ingibergsdóttir
vann Aðalheiði Gestsdóttur, 3-1,
í úrslitum um þriðja sætiö.
Sigurvegarar yngri flokka
urðu Róbert Fannar Halldórs-
son, sem vann tvo aldursflokka,
Daníel Benediktsson, Ema Guð-
mundsdóttir, Elsa Rut Gylfa-
dóttir, Hólmfríður Pálmarsdóttir
og Þórður Gissurarson. í heldri-
mannaflokki, 35 ára og eldri,
sigraði Sigurður Árni Gunnars-
son.
Framfarabikarana fengu Dag-
ný Ólafsdóttir og Friðrik Ómars-
son. -VS
Borðtennis:
Guðmundur og
Lilja sigruðu
/Guðmundur E. Stephensen og
Lilja Rós Jóhannesdóttir úr Vík-
ingi sigmðu í meistaraflokkun-
um á Adidas-mótinu í borðtenn-
is sem fram fór í TBR-húsinu á
sunnudag.
Guðmundur vann Sigurð
Jónsson úr Víkingi í úrslitaleik
karla og Lilja Rós vann hina
gamalkunnu Ástu Urbancic í úr-
slitaleik í kvennaflokki.
Tómas Aöalsteinsson sigraði í
1. flokki karla, Vigfús Jósefsson í
2. flokki karla, Halldór Sigurðs-
son í byrjendaflokki og Pétur Ó.
Stephensen í eldri flokki karla
en þeir em allir úr Víkingi.
-VS
Noregur:
íslendingarnir
sátu á bekknum
Birkir Kristinsson og Ágúst
Gyífason máttu láta sér lynda aö
sitja á varamannabekk Brann
þegar liðið gerði jafntefli við
meistara Rosenborg á útivelli,
1-1, í fyrstu umferö norsku úr-
valsdeildarinnar í knattspymu á
sunnudaginn. Birki til huggunar
fékk markvörður Brann, Vidar
Bahus, lægstu einkunn leik-
manna liðsins í norskum blöð-
um. Önnur úrslit:
Stabæk-Lilleström............4-1
Haugesund-Tromsö.............1-1
Lyn-Kongsvinger..............1-2
Strömsgodset-Skeid...........4-0
Viking-Sogndal...............2-2
Boda/Glimt-Molde.........frestað
-VS
DV
Hermann og
Guðbjörg
þau bestu
í körfunni
Lokahóf körfuknattleiksmanna
var haldið um helgina. Hermann
Hauksson úr KR var kjörinn besti
leikmaðurinn í úrvalsdeildinni og
Guðbjörg Norðfjörð úr KR besti
leikmaðurinn í 1. deild kvenna.
Damon Johnson, Keflavík, var
valinn besti erlendi leikmaðurinn í
úrvalsdeildinni.
Friðrik Stefánsson, KFÍ, var
valinn besti nýliðinn og Þórunn
Bjarnadóttir úr ÍR efnilegust í
kvennaflokki.
Alexander Ermolinski, lA, var
útnefndur þjálfari ársins í karla-
flokki og Antonio Vaflejo, ÍR, besti
þjálfarinn í kvennaflokki.
Besti dómarinn í úrvalsdeild var
valinn Leifur Garðarsson úr Hauk-
um, efnilegasti dómarinn var kjör-
inn Sigmundur Herbertsson úr
Njarðvík.
-JKS
Handknattleikur:
Mihoubi
hættur
með Vai
- leikur með Alsír á HM
Alsírbúinn Aziz Mihoubi, sem lék með
Valsmönnum í 1. deildinni i handknatt-
leik í vetur, mun ekki leika með Hlíðar-
endafélaginu á næsta keppnistímabili.
Hann heldur af landi brott i vikunni en
hann hefur verið valinn i landsliðshóp Al-
sír sem tekm’ þátt í heimsmeistarákeppn-
inni í handknattleik í Japan í næsta mán-
uði.
Mihoubi, sem er örvhent skytta, stóð
sig vel með Valsmönnum í vetur og var
oftast markahæsti leikmaður liðsins.
Valsmenn söknuðu hans iflilega í leikjun-
um gegn Haukum í 8-liða úrslitimum en
hann gat ekki tekið þátt í þeim sökum
meiðsla.
Tvö 1. deildar lið hafa rætt við
hann
Mihoubi hefur ekki gert upp hug sinn
hvar hann leikur á næsta vetri en að
minnsta kosti tvö 1. deildar lið hér á landi
hafa sett sig í samband viö hann. -GH
Deildabikarinn í knattspyrnu:
Sex komin áfram
í úrslitakeppnina
Sex lið eru komin í úrslitakeppni
deildabikarkeppninnar í knatt-
spyrnu eftir leikina um síðustu
helgi. Það eru KR, FH, fA, Leiftur,
Fram og Skallagrímur. Þá eru Vals-
menn næsta öruggir en þeir mega
tapa fyrir Létti með þremur mörk-
um í síðasta leik sínum.
Staðan er þessi í riðlum keppn-
innar en nokkrar villur voru í stöð-
unum í blaðinu í gær:
A-riðill:
þrðttur, R. 4 3 1 0 15-4 10
Fylkir 4 2 1 1 9-9 7
Stjaman 4 2 0 2 17-8 6
Aftureld. 4 0 0 4 2-22 0
B-riðiU:
KR 4 4 0 0 14-0 12
FH 4 3 0 1 14-9 9
Keflavík 4 1 2 1 10-9 5
Þróttur, N. 4 1 1 2 6-12 4
Njarðvík 4 1 0 3 6-13 3
Sindri 4 0 1 3 4-11 1
C-riðiU:
Breiðablik 4 3 1 0 15-5 10
Víkingur, R. 3 3 0 0 6-2 9
iBV 3 2 1 0 13-1 7
Völsungur 4 1 0 3 4-12 3
Ægir 4 1 0 3 2-10 3
KS 4 0 0 4 4-14 0
D-riðUl:
ÍA 5 5 0 0 20-7 15
ÍR 3 1 0 2 8-6 3
Leiknir, R. 2 1 0 1 54 3
HK 3 1 0 2 8-9 3
Grindavík 2 1 0 1 4-6 3
Víkingur, Ó. 3 0 0 E-riðill: 3 3-9 0
Leiftur 5 4 0 1 23-4 12
Fram 4 3 1 0 11-3 10
KA 5 3 0 2 7-6 9
Haukar 4 1 1 2 6-10 4
Selfoss 3 0 0 3 2-12 0
Reynir S. 3 0 0 F-riðUl: 3 1-15 0
Skallagr. 4 4 0 0 13-5 12
Valur 4 3 0 1 \2-4 10
Léttir 4 2 1 1 10-10 7
Þór, A. 4 1 1 2 8-9 4
Fjölnir 4 1 0 3 6-15 3
Dalvík 4 0 0 4 3-11 0
I úrslitakeppninni er leikið í fjór-
um þriggja liða riðlum.
í 1. riðli verða sigurvegari A-
riðils, númer tvö í C-riðli og sigur-
vegari E-riöils, væntanlega Fram.
í 2. riðli verða KR, númer tvö í D-
riðli og væntanlega Skallagrímur.
í 3. riðli verða sigurvegari C-rið-
ils, númer tvö í E-riðli, væntanlega
Leiftur, og númer tvö í A-riðli.
í 4. riðli verða ÍA, FH og númer
tvö í F-riðli, væntanlega Valur.
-VS
Sænska knattspyrnan:
Elfsborg á toppnum
- Örgryte tapaði fyrir Gautaborg
Artur Takac, formaður tækninefndar smáþjóðaleikanna, og Bertis Muscat, úr tækninefndinn.i ræða við blaðamenn á fundi
sem undirbúningsnefnd smáþjóðaleikanna hélt í gær. DV-mynd ÞÖK
Smáþjóðaleikarnir 3.-7. júní á íslandi:
Metþátttaka
Það styttist óðum í smáþjóðaleikana
sem haldnir verða hér á landi í fyrsta
sinn dagana 3.-7. júní í sumar. Undir-
búningur leikanna hefur gengið mjög
vel og um helgina voru hér á landi all-
ir aðalfararstjórar þátttökuþjóðanna
auk alþjóða tækninefndar smáþjóða-
leikanna. Þeir skoðuðu mannvirkin
þar sem keppnin á að fara fram og
gengu frá ýmsum lausum endum varð-
andi keppnina.
Það er ljóst að metþátttaka keppenda
verður á leikunum en alls verða þeir
761. Erlendir keppendur verða 584,
þjálfarar og aðstoðarfólk eru 192, ís-
lenskir keppendur verða 177, íslenskir
þjálfarar og aðstoðarfólk eru 160, er-
lendir gestir og embættismenn verða
100, 70 erlendir blaðamenn hafa boðað
komu sína og dómaramir verða 70.
Landshlaup smáþjóðaleika
hefst 1. maí
Opnunarhátíð leikanna verður hald-
in á Laugardalsvelli mánudaginn 2.
júni og þar verður ólympíueldurinn
tendraður. Þann 1. maí hefst lands-
hlaup smáþjóðaleikanna. Hlaupið verð-
ur með kyndil 2.500 kílómetra leið um
landið og hlaupinu lýkur svo við Laug-
ardalsvöflinn þann 2. júní. Ungmenna-
samband íslands verður framkvæmd-
araðili hlaupsins í samvinnu við und-
irbúningsnefnd leikanna.
Smáþjóðaleikarnir eru íþróttaleikar
Evrópuþjóða sem hafa íbúatölu innan
við eina milljón og leikamir hér á
landi verða þeir sjöimdu í röðinni.
Átta þjóðir: ísland, Andorra, Kýpur,
Lichtenstein, Luxemborg, Malta,
Mónakó og San Marínó mun etja kappi
í tíu íþróttagreinum sem eru:blak,
borðtennis, fimleikar, frjálsar íþróttir,
júdó, körfúknattleikur, siglingar, skot-
fimi, sund og tennis.
Vemdarar leikanna verða tveir:
forseti íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, og Juan A. Samranch, for-
seti Alþjóða ólympíunefndarinnar, sem
kemur og fylgist með leikunum. -GH
DV, Svíþjóð:
Nýliðar Elfsborg, lið Kristjáns
Jónssonar, em í efsta sæti í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspymu ásamt
AIK þegar tveimur umferðum er
lokið. Elfsborg vann í gærkvöldi
útisigur á Vásterás, 0-3. Kristján
lék ekki með Elfsborg en Einar
Brekkan lék allan timann í
framlínunni hjá Vásterás.
Nýtt met hjá Ravelli
Rúnar Kristinsson og félagar
hans í Örgryte þurftu að sætta sig
við 2-0 tap gegn meisturunum i
Gautaborg og voru bæði mörkin
skoruð í síðari hálfleik. Rúnar átti
mjög góðan leik í fyrri hálfleik en
varð að fara meiddur af leikvelli
eftir 10 mínútna leik í síðari
hálfleik. Rúnar nældi sér í gult
spjald eftir viðskipti við
landsliðsmarkvörðinn Tomas
Ravelli sem sló nýtt met f gær með
því að leika sinn 410. leik í
úrvalsdeildinni.
Þriðji leikurinn í gær var
viðureign Trelleborg og AIK þar
sem AIK hafði betur, 3-0.
AIK og Elfsborg em með 6 stig í
efsta sæti en Örebro kemur þar á
eftir með 4 stig.
-EH
Eyjólfur Sverrisson skoraði síöara mark Herthu Berlín þegar liðið gerði jafntefli, 2-2, við
Oldenburg á útivelli í þýsku 2. deildinni í knattspyrnu á sunnudag. Eyjólfur kom Herthu yfir
á 53. mínútu, 1-2, en heimamenn, sem em nánast fallnir í 3. deild, náðu að jafna.
Hertha hafði unniö sjö leiki í röð en stigamissirinn þýddi að Kaiserslautem náði toppsætinu
á ný með 4-1 sigri á Leipzig. Kaiserslautem er með 48 stig og Hertha 47 en síðan kemur Wolfs
burg með 39 stig.
Mannheim vann dýrmætan sigur á Uerdingen, 1-0, og komst fjórum stigum frá fallsæti. Bjarki
Gunnlaugsson lék ekki með Mannheim þar sem hann tók út leikbann.
-VS
Eyjólfur skoraði en
Hertha féll af toppnum
23
Þórður Guðjónsson settur út úr hópnum hjá Bochum:
Skil ekki Toppmoller
- Qögur félög hafa sýnt Þórði áhuga
Þórður Guðjónsson var settur út
úr liði Bochum fyrir leik liðsins
við Dússeldorf í þýsku 1. deildinni
i knattspymu á sunnudag og er
ekki ánægður með sinn hlut.
„Ég á enn erfitt með að skilja
ákvarðanir Toppmullers, þjálfara
Bochum. Ég kom inn á sem vara-
maður gegn St. Pauli í síðustu viku
og stóð mig vel. Ég æfði síðan vel
en var síðan settur út úr 18 manna
leikmannahópi án nokkurra skýr-
inga og sat og horfði á leikinn við
Dússeldorf úr stúkunni,“ sagði
Þórður Guðjónsson.
Þórður í samtali við DV.
Hann hefur mikinn hug á að yf-
irgefa Bochum í sumar og segir að
ýmislegt komi til greina hjá sér.
„Það hafa fjögur félög sett sig í
samband við mig og óskað eftir því
að fá mig í sínar raðir þegar samn-
ingur minn rennur út þann 30. júní
næstkomandi. Ég get ekki skýrt frá
því á þessari stundu hvaða lið
þetta eru en tvö þeirra eru í þýsku
1. deildinni og tvö utan Þýska-
lands,“ sagði Þórður Guðjónsson.
-DVÓ/VS
„Helmingslíkur á að
ég geri samning"
- segir Konráð Olavsson sem er 1 skoðun hjá Niederwiirzbach
„Það má segja að það sé biðstaða
í þessu hjá mér. Ég æfði með liðinu
um helgina og get ekki sagt annað
en að mér lítist vel á klúbbinn og
þjálfarann. Forráðamönnum félags-
ins leist vel á mig og ég reikna með
að heyra frá þeim f vikunni hvað
þeir eru að spá. Það er að mörgu að
hyggja í þessu og ég er líka að stíla
inn á að geta stundað nám með
handboltanum. Ég met svona helm-
ingslíkur á því að ganga til liðs við
félagið," sagði Konráð Olavsson,
landsliðsmaður úr Stjömunni, við
DV í gærkvöldi en hann er þessa
dagana í skoðun hjá þýska úrvals-
deildarliðinu Niederwúrzbach.
Niederwúrzbach er í þriðja sæti
þýsku úrvalsdeildarinnar þegar
tveimur umferðum er ólokið og seg-
ir Konráð að mikill metnaður sé i
félaginu fyrir næsta keppnistímabil.
-GH
Handknattleikur:
Guðmundur endurráðinn
Guðmundur Guðmundsson hefur verið endurráðinn þjálfari 1. deildar
liðs Fram í handknattleik til næstu tveggja ára. Hann hefur stýrt Fram-
liðinu undanfarin tvö ár með frábærum árangri. Liðið vann 2. deildina i
fyrra og í vetur varð það í 5. sæti 1. deildar og komst f undanúrslitin i
úrslitakeppninni um meistaratitilinn.
Framarar hafa ennfremur gengið frá samningum við alla sína leik-
menn fyrir komandi tímabil. -VS
Handknattleikur:
Jón áfram með Valsmenn
Jón Kristjánsson verður áfram við stjómvölinn hjá 1. deildar liði Vals í hand-
knattleik. Að sögn Brynjars Harðarsonar, formanns handknattleiksdeildai- Vals,
verður gengiö frá samningi við Jón á næstu dögum. Brynjar, sem fljótlega læt-
ur af störfúm hjá Val, segist reikna með því að flestir þeir leikmenn sem léku
meö liðinu í vetur veröi áfram og stefiit sé að því styrkja hópinn. Líklegt er aö
Júlíus Gunnarsson komi heim frá Þýskalandi og þá eru iíkui’ á að Sigfús Sig-
urðsson kom til baka frá SelfossL -GH
Knattspyrna:
Nýsjálendingur til Blika
2. deildar lið Breiðabliks í knattspymu hefur gert samning við Cue
Bunce, 22 ára gamlan Nýsjálending. Hann er væntanlegur til landsins í
dag frá Bretlandi en hann hefur leikið með Preston í 2. deildinni.
Bunce er stór og stæðilegur vamarmaður sem leikið hefur með lands-
liði Nýja-Sjálands og hefur tvívegis verðið kosinn knattspymumaður árs-
ins þar í landi. -GH
Schmeichel úr leik?
Vænleg staða
hjá Wupptertal
Fátt getur nú komið í veg fyr-
ir að íslendingaliðið Wuppertal
leiki í þýsku úrvalsdeildinni í
handknattleik á næstu leiktíð
eftir að liðið sigraði Dússeldorf á
útivelli, 18-16, á sunnudaginn.
Wuppertal er stigi á undan Bad
Schwartau þegar tveimur um-
ferðum er ólokið.
Þeir Dagur Sigurðsson og
Ólafur Stefánsson hafa leikið
stórt hlutverk með liðinu í vetur
ásamt Rússanum Dmirti Fil-
ippov, sem lék með Stjömunni,
og Viggó Sigurðsson hefur hald-
ið vel utan um stjórnartaumana.
Á dögunum handsalaði Geir
Sveinsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins, samning við Wupp-
ertal og verður fróðlegt að fylgj-
ast með liðinu í úrvalsdeildinni
á næstu leiktíð.
-GH
Róbert og félagar
á leið niður
í 2. deildina
Það blasir hins vegar fall í 2.
deildina við Róberti Sighvats-
syni og félögum hans í Schutt-
erwald eftir að liðið tapaði fyrir
Grosswallstadt, 29-24, um helg-
ina. Róbert stóð fyrir sínu að
vanda og skoraði 5 mörk.
Schutterwald er í neðsta sæti
úrvalsdeildarinnar með 16 stig.
Liðið á tvo leiki eftir, gegn Gum-
mersbach heima og Kiel úti og á
aðeins tölfræðilega möguleika á
að halda sæti sínu.
Fredenbeck á möguleika
Fredenbeck, lið Héðins Gils-
sonar, berst einnig um að forðast
fall í 2. deild. Liðið er í næst-
neðsta sæti með 18 stig en á þrjá
leiki eftir. Annað kvöld mætir
liðið Gummersbach á útivelli og
með sigri eygir liðið möguleika á
að halda sæti sínu í úrvalsdeild-
inni. -GH
Svo kann að fara að danski
markvörðurinn Peter Schmeichel
leiki ekki meira með Manchester
United á þessari leiktíð. Meiðsli
hans eru talin alvarlegri en haldið
var í fyrstu og hefur hann misst af
tveimur síðustu leikjum liðsins,
gegn Dortmund og Blackburn
Rovers.
„Ég er mjög slæmur í bakvöðvun-
um og læknar hafa ráðlagt mér að
taka nokkrar vikur í frí til að fá mig
góðan. Það lítur út fyrir að ég geti
ekki leikið síðari leikinn gegn Dort-
mund,“ sagði Daninn við frétta-
menn í gær.
Munum reyna allt
„Við munum reyna að gera allt til
að fá Schmeichel góðan fyrir leik-
inn gegn Dortmund en það verður
mjög erfitt og í versta falli verður
hann frá út tímabilið," sagði Alex
Ferguson, stjóri Manchester United.
-GH
íþróttir eru einnig á bls. 24 og 25
íþróttir
Þrenna hjá Ronaldo
Ronaldo skoraði þrjú mörk
fyrir Barcelona þegar liðið sigr-
aði meistara Atletico Madrid,
5-2, í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu í fyrrakvöld.
Barcelona er í öðru sæti, sjö stig-
um á eftir Real Madrid.
Stórsigur Mexíkó
Carlos Hermosillo skoraði
þrennu fyrir Mexíkó sem vann
Jamaika, 6-0, í undankeppni HM
í knattspyrnu í fyrrinótt. Mexíkó
er þar með efst í úrslitakeppni
Mið- og Norður-Ameríku.
Evans vill Bilic
Ray Evans, knattspymustjóri
hjá Liverpool, hefur mikinn
áhuga á þvi að kaupa Króatann
Slaven Bilic hjá West Ham.
Evans telur Bilic toppvarnar-
mann sem myndi styrkja Liver-
pool-liðið mikið. Everton bauð
550 milljónir í Bilic í vetur en
talið er að Liverpool munu bjóða
enn meira.
Illgner bestur á Spáni
Bodo Illgner var um helgina
kosinn besti markvörðinn í
spænsku knattspyrnunni. 111-
gner hefur aðeins fengið á sig 24
mörk í 32 leikjum. Næstur í röð-
inni kom Jaques Songoo, mark-
vörður Deportivo La Coruna.
Bolton með takmark
Bolton, lið Guðna Bergssonar,
hefur sett sér takmark áður en
tímabilið verður úti. Það er að
ná 102 stigum sem yrði met í
sögu félagsins. Bolton mun í
haust flytja höfuðstöðvar sínar á
nýjan leikvang í Horwich.
Jafnt í Skotlandi
Kilmamock og Dundee Utd.
gerðu markalaust jafhtefli í undan-
úrslitum skosku bikarkeppninnar í
knattspymu í gær. Liðin verða því
að leika að nýju svo og Celtic og Fal-
kirk sem gerðu 1-1 í hinum undan-
úrslitaleiknum.
Anja verður kyrr
Danska handknattleikskonan
Anja Anderson hjá norska liðinu
Bakkelaget hefur hætt við að
fara til Spánar og leika þar með
Valencia. Anja snerist hugur um
helgina.
Ferð á Anfield Road
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn
hefur tryggt sér 30 miða á leik
Liverpool og Tottenham í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu
sem fram fer á Anfield Road i
Liverpool 3. maí. Því hefur verið
ákveðið að setja upp ferð á leik-
inn. Farið verður út snemma
dags þann 3. maí en leikurinn
fer fram síðdegis sama dag. Kom-
ið verður heim á sunnudeginum.
Verðið í ferðina er krónur 37.500,
innifalið er flug, gisting, rútuferðir
og miði á völlinn. Nánari upplýsing-
ar um ferðina fast hjá Úrval-Útsýn í
sima 569-9300.
Knattspyrnuskóli KB
Hinn vinsæli og virti knatt-
spymuskóli KBí Belgíu mun eins
og undanfarin ár bjóða upp á nám-
skeið fyrir 1316 ára drengi í sumar
eða dagana 24. maí til 31. maí. Þeir
sem hafa í hyggju að sækja nám-
skeiðið ættu að drífa í því að láta
skrá sig hjá íþróttadeild Úrvals-Út-
sýnar í síma 569-9300.
íkvöld
Deildabikar karla:
Grindavik-Leiknir, R. . . Hafn. 19.30
Deildabikar kvenna:
Valur-Haukar..........Leikn. 18.30
KR-Reynir, S..........Leikn. 20.30