Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 1997 5 Fréttir Bílastæðaskortur hjá sendifulltrúum SÞ 1 New York: Bílstjórinn okkar á hrakhólum - segir fastafulltrúi íslands hjá SÞ í samtali við DV Aðalfundur Hólmadrangs: 50 milljóna tap DV, Hólmavik: „Það má segja að þessi bílamál séu orðin nokkuð erfið, það er margt fólk á Manhattan og lítið um bílastæði. Fastanefnd íslands hefur ekki enn sem komið er fengið út- hlutað bílastæði og þess vegna er bílstjórinn okkar á hrakhólum," segir Gunnar Pálsson sendiherra og fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum i New York Borgaryfirvöld og lögregla New Yorkborgar hafa undanfama mán- uði skorið upp herör gegn erlendum sendifulltrúum hjá SÞ og hafa mis- kunnarlaust skrifað sektarmiða á bíla þeirra sem lagt er ólöglega og innheimt vangreiddar stöðumæla- sektir og krafist greiðslu sektanna. Borgaryfirvöld hóta þvi að verði sektirnar ekki greiddar verði núm- erin klippt af bílunum sem og sér- stök merki á þeim sem gefa til kynna að bílarnir séu í eigu sendi- fulltrúa erlendra rikja sem njóta eiga friðhelgi sem diplómatar. Engar stöðumælasektir Þessar hertu reglur urðu að sögn Gunnars til þess að allsherjarnefnd SÞ fundaði um málið og í frétta- skeyti frá Reuter segir að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að nokkur atriði hinna nýju og hertu innheimtuaðgerða borgarinnar stangist á við lög og reglur um frið- helgi sendifulltrúa. SÞ hélt þá sérstakan fund með borgaryfirvöldum sem hétu því að úthluta fastanefndum aðildarríkja samtakanna fleiri bílastæðum. Hvort eða hvenær það næði fram að ganga kvaðst Gunnar í samtali við DV í gær ekki vita. Aðspurður hvort bíll íslensku sendinefndarinnar hefði fengið margar stöðumælasektir sagði Gunnar að svo væri ekki. „Við erum í hópi þeirra ríkja sem gera sér far um að virða lög og reglur og í þau fáu skipti sem við höfum feng- ið sektir höfum við greitt þær,“ sagði Gunnar. Rúta Rússanna dregin burt Samkvæmt fréttum Reuters eru það einkum ríki fyrrum Sovétríkj- anna sem hundsa allar sektarukk- anir borgaryfirvalda og í þeirra hópi eru Rússland, Úkraína og fleiri riki sem hafa ekki greitt þúsundir sektarmiða. Fulltrúi Rússlands, Al- exander Zmeeevsky, hafði forgöngu um að málið var tekið upp á fundi Gríðarlegur umferöarþungi er á Manhattan í New York. íslenska fastanefnd- in hjá Sameinuöu þjóöunum fær ekki bilastæði við aðalbygginguna frekar en margar aörar þjóðir. + Rauði kross íslands Aðalfundur Hafnarfjarðardeildar RKÍ verður haldinn kl. 17.30, þann 28. apríl að Bæjar- hrauni 2. Venjuleg aðalfundarstörf. allsherjarnefndar SÞ í síðustu viku en á meðan á umræðum stóð bárust fréttir inn á fundinn um það að lög- reglan væri að draga burt rútu rúss- nesku sendinefndarinnar fulla af farþegum og með bílstjórann við stýrið. Rútan hafði verið stöðvuð á sérmerktu stæði ætluðu erlendum sendifulltrúum framan við aðal- byggingu SÞ í New York. -SÁ Miklar fjárfestingar vegna fram- kvæmda við endurbætur á rækju- verksmiðju, byggingu 260 m2 frystigeymslu og erfiða stöðu rækjuvinnslunnar bar hæst í starfsemi Hólmadrangs hf. á Hólmavik á síðasta ári. Heildarvelta félagsins nam 738 milljónum króna og var það sam- dráttur um 11% frá árinu á undan. Skýrist það að hluta af 3ja mánaða vinnslustöðvun á sl. hausti meðan unnið var við kerfisbreytingu í sambandi við vinnsluna og mikilli verðlækkun rækjuafurða fyrri hluta árs. Um 50 milljóna króna tap varð á rekstri félagsins á árinu sem er nær eingöngu af taprekstri í rækjuvinnslunni. -GF Stjórnin heimilistæki standa undir nafni! BRÆÐURNIR VtSA EURO og VISA raðgreiðslur Lágmúla 8 • Sími 533 2800 -fetiframar Umboðsmenn: Reykjavik: Hagkaup. Byggt & Búið, Kringlunni.Magasín. BYKO. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfirðinga, Borgamesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni E. Hallgrímsson, Grundarfirði.Versun Einars Stefánssonar, Búöardal. Heimahornið, Stykkishólmi. Vestflrðlr: Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvfk.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð.Sauðárkróki.KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. KEA Siglufirði. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Lónið, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson.Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúösfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK Höfn. Suðurland: Mosfell, Hellu. Arvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík. Fjaröarkaup, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.