Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997
25
DV
5
NBA-DEIIDIN
Úrslitin í fyrrinótt:
Detroit-Chicago .........108-91
Mihs 29, Hill 27, Thorpe 14, Dumars
10 - Pippen 21, Jordan 18, Caffey 15.
Milwaukee-New Jersey .. 132-123
Robinson 25, Newman 20, Allen 18 -
Kittles 40, Gill 26, Jackson 24.
Houston-Seattle .........113-73
Drexler 20, Barkley 17, Maloney 15,
Elie 12 - Payton 22, Wingate 8.
LA Lakers-Utah ..........100-98
Shaq 39, Jones 20, Bryant 12 -
Stockton 30, Malone 26, Russell 8.
Golden State-Phoenix .... 97-105
Booker 16, DeClercq 14, Smith 13 -
Chapman 26, Johnson 26, Manning 18.
Úrslitin í nótt:
Miami-Minnesota.........87-95
Mouming 20, Hardaway 15 - Mar-
bury 17, K.Gamett 16, Porter 16.
Orlando-Detroit ........100-91
Hardaway 21, Seikaly 18, Armstrong
15 - Hunter 17, Mckie 16, Ratliff 14.
Philadelphia-Washington 110-131
Iverson 40, Stackhouse 24, Overton 13
- Howard 27, Webber 27, Murray 20.
Charlotte-Cleveland......94-82
Rice 25, Pierce 17, Curry 11 - Brandon
20, Sura 20, Mills 14.
Indiana-New York . (frl.) 110-107
Miller 24, D.Davis 23, Smits 21, Rose
20 - Starks 31, Ewing 26, Houston 14.
Chicago-Toronto.........117-100
Jordan 30, Pippen 19, Caffey 16, Kerr 11
- Stoudamire 29, Slater 17, Christie 15.
Dallas-LA Clippers........93-99
Bradley 32, Pack 18, Finley 13 -
D.Martin 21, Sealy 15, Vaught 14.
Denver-Golden State .... 93-103
McDyess 24, D.Ellis 24, Hammonds 19
- Mullin 20, Fuller 14, Marshall 13.
Sacramento-San Antonio 120-106
Richmond 33, Grant 20, Rauf 17 - Del
Negro 29, Johnson 19, Herrera 17.
Austurdeild:
Chicago 69 11 86,3%
Miami 59 20 74,7%
Atlanta 54 24 69,2%
New York 54 25 68,4%
Charlotte 53 26 67,1%
Detroit 52 27 65,8%
Orlando 45 34 57,0%
Washington 41 38 51,9%
Cleveland 40 39 50.6%
Indiana 39 40 49,4%
Milwaukee 31 47 39,7%
Toronto 28 51 35,4%
New Jersey 24 54 30,8%
Philadelphia 21 58 26,6%
Boston 14 65 17,7%
Úrslitakeppnin:
Chicago-Washingt./Clevel./Indiana
Miami-Orlando
New York-Charlotte/Detroit
Atlanta-Detroit/Charlotte
Vesturdeild:
Utah 60 18 76,9%
Seattle 54 25 68,4%
Houston 54 25 68,4%
LA Lakers 54 25 68,4%
Portland 46 33 58,2%
Phoenix 39 40 49,4%
Minnesota 39 40 49,4%
LA Clippers 36 43 45,6%
Sacramento 33 46 41,8%
Golden State 30 50 37,5%
Dallas 23 56 29,1%
San Antonio 20 58 25,6%
Denver 20 59 25,3%
Vancouver 13 67 16,3%
Úrslitakeppnin:
Utah- LA Clippers
Seattle/Lakers-Minn./Phoen./Portl.
Lakers/Seattle-Minn./Phoen./Portl.
Houston-Minn./Phoenix/Portland
Besta meöalskor í leik:
Michael Jordan, Chicago........29,7
Karl Malone, Utah .............27,6
Glen Rice, Charlotte...........26,8
Shaquille O’Neal, Lakers.......26,1
Mitch Richmond, Sacramento . . 25,8
Latrell Sprewell, Golden St....24,4
Hakeem Olajuwon, Houstson . . . 23,2
Allen Iverson, Philadelphia .... 23,0
Patrick Ewing, New York........22,3
LaPhonso Ellis, Denver.........21,9
Reggie Miller, Indiana.........21,7
Kendall Gill, New Jersey........21,7
Gary Payton, Seattle...........21,7
Grant Hill, Detroit ...........21,4
Glénn Robinson, Milwaukee ... 21,3
íþróttir
nick i-aiao, sigurveqarinn a us
Masters 1996, klæðir Tiger Woods í
græna jakkann, hiö fræga sigurtákn
motsins. Símamynd Reuter
Undrabarniö Tiger Woods:
„Hlýði alltaf
mommu
- sló öll met í sögu US Masters
Undrabamið Tiger Woods
sló öll met í fyrrinótt þegar hann tryggði
sér glæsilegan sigur á bandaríska meist-
aramótinu í golfi, US Masters.
Woods er aðeins 21 árs og er yngsti
sigurvegarinn í sögu mótsins. Hann var
12 höggum á undan næsta manni, Tom
Kite, sem er met, og náði jafnframt
lægsta skori í sögu mótsins, 270
höggum. Woods er enn fremur
fyrsti blökkumaðurinn sem fagnar
sigri á meistaramótinu. Sigurlaun
hans nema 34,5 milljónum króna.
Þessi ungi afreksmaður, sem hefur
unnið 4 af fyrstu atvinnumótum sínum, fer
ekki í launkofa með markmið sin.
„Ég stefni að sjálfsögðu að því að verða sá
besti. Ég veit að það er háfleygt takmark -
ef það tekst er það frábært, ef það tekst ekki,
þá reyndi ég þó,“ sagði Woods.
Bestu kylfingar heims hlóðu lofi á þennan
unga snilling sem spáð er glæstri framtíð.
Mai-gir telja að hann verði fljótt ósigrandi í
iþróttinni.
Jack Nicklaus, „gullbjöminn” gamalkunni,
setti sjálfur met með því að leika í 147. skipti
á Augusta National vellinum.
„Tiger er á annarri bylgjulengd en aðrir
kylfingar. Hann verður einráður á þessum
velli í mörg ár,“ sagði Nicklaus.
Nick Faldo, meistarinn frá 1996, var sá eini
sem gagnrýndi Woods og sagði að rauða golf-
skyrtan hans væri of áberandi.
Woods átti einfalt svar við því: „Mamma
segir að rautt sé minn litur. Ég hlýði alltaf
mömmu!“ Hann bætti við: „Þetta var ótrúleg
vika, alveg mögnuð."
Tom Kite lék á 282, Tom Watson 284, Paul
Stankowski og Costantino Rocca á 285 og Jeff
Sluman á 286 höggum. -VS
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt og fyrrinótt:
Miller gerði útslagið
- þegar Indiana lagði New York í framlengdum hasarleik
Indiana vann mikilvægan sigur á
New York, 110-107, í framlengdum
leik í nótt. Mikið gekk á, sex tækni-
víti voru dæmd í framlengingunni
og þá var Patrick Ewing miðherja
New York visað af leikvelli.
Reggie Miller var aðalmaður hjá
Indiana og hann gerði sjö dýrmæt
stig í framlengingunni. Með sigrin-
um eygir Indiana enn von um að
komast í úrslitakeppnina, þó liðið
standi höllum fæti í baráttunni við
Washington og Cleveland um átt-
unda sæti austurdeildar.
Orlando vann sinn fjórða leik í
röð og lagði nú hið sterka lið
Detroit, 100-91. Detroit náði sextán
stiga forystu í fyrri hálfleik en Or-
lando, með Penny Hardaway í aöal-
hlutverki, sýndi oft frábær tilþrif í
síðari hálfleiknum. Orlando mætir
grönnum sínum í Miami í úrslita-
keppninni og þar stefnir allt í stór-
skemmtilega leiki.
Langþráð hjá Jordan
Michael Jordan náði sinni fyrstu
„þrefóldu tvennu“ í fimm ár þegar
Chicago vann Toronto, 117-100.
Hann skoraði 30 stig, tók 11 fráköst
og átti 10 stoðsendingar.
LA Clippers tryggði sér sæti í úr-
slitakeppninni með sigri í Dallas.
Þetta er í fyrsta skipti í fjögur ár
sem Clippers kemst í sextán liða úr-
slitin og aðeins í þriðja skiptið á 18
árum. Möguleikarnir eru þó varla
miklir því Clippers mætir hinu
firnasterka liði Utah.
Hill var frábær í sigri Detroit
á Chicago
Grant Hill átti enn einn stórleik-
inn i fyrrinótt þegar Detroit malaði
meistarana frá Chicago með 17 stig-
um. Hill, sem var kjörinn leikmaður
vikunnar INBA í síðustu viku, náði
sinni tólftu „þreföldu tvennu“ á
tímabilinu, skoraði 27 stig, tók 12
fráköst og átti 10 stoðsendingar, og
var í fyrsta skipti í sigurliði gegn
Chicago. Detroit hafði nefnilega tap-
að 19 sinnum í röð fyrir Michael
Jordan og félögum. Úrslitin þýða að
Chicago getur ekki lengur jafnað
met sitt frá þvi í fyrra þegar liðið
vann 72 leiki af 82 í deildinni.
Grant Hill var frábær í sigurleik
Detroit gegn Chicago og skyggbi al-
gerlega á kónginn sjálfan, Michael
Jordan. Símamynd Reuter
„I haust hélt ég að það yrði erfitt
fyrir okkur að vinna 70 leiki á tíma-
bilinu og bjóst við því að tapa sex til
átta leikjum meira en í fyrra. Samt
eigum við enn möguleika á að ná
70,“ sagði Jordan eftir leikinn.
Shaq með flautukörfu og 39
stig gegn Utah
Shaquille O’Neal er heldur betur
kominn á ferðina með Lakers eftir
tveggja mánaða fjarveru vegna
meiðsla. Shaq skoraði 39 stig í sigri
Lakers á Utah, 100-98, og gerði sig-
urkörfuna um leið og leikurinn
rann út. „Þetta er fyrsta „flautukarf-
an“ mín á ferlinum,” sagði Shaq eft-
ir leikinn. Löng sigurganga Útah
var þarna rofin en liðið hafði unnið
15 leiki i röð.
Houston vann ótrúlega auðveldan
sigur á Seattle, með 40 stigum, en
liðin eru hnífjöfn í vesturdeildinni.
-VS
Shearer aftur sá besti
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle og enska landsliðsins, var í fyrra-
kvöld útnefndur leikmaður ársins í ensku knattspyrnunni annað árið i
röð í kjöri leikmannanna sjálfra. Aðeins Mark Hughes hefur áður hlotið
þennan titil tvisvar.
David Beckham, landsliðsmaðurinn ungi hjá Manchester United, náöi
einnig glæsilegri útkomu. Hann varð annar í kjörinu og var síðan út-
nefndur efiiilegasti leikmaðurinn.
Peter Beardsley, sóknarmaðurinn reyndi hjá Newcastle, fékk sérstök
heiðursverðlaun fyrir langan og glæsilegan feril. -VS
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er
afsláttur
af annarri auglýsingunni.
o\U nril/f hirr,jnt
Smáauglýsingar
550 5000