Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 9 Utlönd James McDougal, viöskiptafélagi Clintons, dæmdur í fangelsi: Véitti upplýsingar sem koma illa við forsetann James McDougal, fyrrum viö- skiptafélagi Bills Clintons Banda- ríkjaforseta, var dæmdur til þriggja ára betrunarhúsvistar fyrir hlut- deild sína i svokölluðu Whitewater- máli eftir að hann komst að sam- komulagi við saksóknara sem hann segir að kynni að koma forsetanum og eiginkonu hans illa. McDougal átti yfir höfði sér allt að áttatíu ára fangelsisdóm en hann var fundinn sekur um fjár- svik og samsæri í maí 1996. McDougal lét að því liggja við fréttamenn að hann hefði látið rannsóknaraöilum málsins 1 té upplýsingar sem gætu tengt Clint- on og Hiilary, eiginkonu hans, við Whitewater- hneykslið og hann hvatti alla til að fylgjast með frek- ari framvindu mála. „Ég mundi nú ekki éta hattinn minn upp á það,“ sagði McDougal þegar hann var spurður hvort hann teldi að Clintonhjónin yrðu hreins- uð af öllum áburði, eins og hann hélt fram við réttarhöldin í maí sið- astliðnum. George Howai'd dómari lagði til að McDougal fengi að sitja af sér dóminn á fangelsissjúkrahúsi vegna margvislegra kvilla sem hrjáöu hann. Hann dæmdi McDougal einnig í þriggja ára skil- orðsbundna refsingu en fyrsta ár hennar verður hann að dvelja í stofufangelsi. McDougal hefur ver- ið boðaöur í afplánun í júní en hann sagöist líklega mundu áfrýja dómnum. Kenneth Starr saksóknari fór fram á væga refsingu þar sem McDougal hefði veitt upplýsingar um margvísleg atriði, þar á meðal James McDougal, höfuðpaurinn í Whitewater-hneykslinu. Símamynd Reuter um hluti sem voru aðeins á mjög fárra vitorði. McDougal sagði dómaranum að hann tæki á sig fulla ábyrgð á glæp- um sínum og misgjörðum og að hann hefði ekkert sér til málsbóta. Hann hefur verið miðpunktur Whitewater- rannsóknarinnar frá því hún hófst en yfirvöld beindu sjónum sinum að honum þegar sparisjóður hans varð gjaldþrota árið 1989. Gjaldþrotið kostaði skatt- greiðendur á fimmta milljarð króna að núvirði. Frá því McDougal hóf samvinn- una við saksóknarann ku hann hafa staðfest fullyrðingar um að Clinton, sem þá var rikisstjóri í Arkansas, hefði þrýst á bankastjór- ann David Hale að veita Susan, eig- inkonu McDougals, ólöglegt 300 þúsund dollara lán. Reuter Fini loftpressur Traustbyggðar léttar og meðfærilegar Þegar gæðin skipta máli Skeifan 11 D • Sími 568 6466 Þúsundir manna í Bangladess, margir hverjir með risastyttur a herðunum, tóku þátt í skrúðgöngu í höfuðborginni Dhaka í gær til að fagna nýju ári þar- lendra. Samkvæmt tímatali Bengala er nú komið árið 1404. Sfmamynd Reuter Bretar heimta lausn á kvótahoppi - Qórðungur flotans í eigu útlendinga Sjávarútvegsráöherrar Evrópu- sambandsins, ESB, reyndu í gær að semja um minni niðurskurð á afla- heimildum en áætlað var. Sam- kvæmt fyrri áætlun átti að skera fiskveiðikvóta niður um 30 prósent. Bresk yfirvöld tilkynntu að þau myndu ekki samþykkja frekari nið- urskurð fyrr en fundin hefði verið lausn á svokölluðu kvótahoppi. Embættismenn Evrópusambands- ins sögðu að Frakkland og Þýska- land hefðu lagt til 15 prósenta há- marksniðurskurð á árunum 1997 til 1999. Lögðu ráðherrar ríkjanna áherslu á frekari niðurskurður væri óframkvæmanlegur. Framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins hafði upphaflega lagt fram tillögu um 40 prósenta niðurskurð á sex árum. Sjávarútvegsráðherra Bretlands, Tony Baldry, sagði að nauðsynlegt væri að finna lausn á kvótahoppinu, það er þegar skip frá öðrum aðildar- ríkjum Evrópusambandsins, einkum Spáni og Hollandi, eru skráð undir breskum fána og geta fengið breskan kvóta. „Þetta er fáránleg aðstaða. Fjórð- ungur breska fiskiskipaflotans er í eigu útlendinga og gerður út af þeim. Við erum reiðubúnir að berjast fyrir mikilvægum hagsmunum Breta í Evrópu,“ sagði Baldry. Hótaði Baldry að Bretar myndu hindra framgang ríkjaráðstefnu, sem beinist að endurskoðun stofnsátt- mála Evrópusambandsins og vonast er til að ljúki i júní, yrði ekki fyrst fundin lausn á kvótahoppinu. Emma Bonino, sem fer með sjáv- arútvegsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði vandann vegna kvótahopps ekki tengjast til- lögu sinni um niðurskurð. „Það er ekkert leyndarmál að það eru kosn- ingar i Bretlandi," tók hún fram. Reuter Umsóknir um sumardvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumariö 1997. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu félagsins þurfa að berast skrifstofunni, Húsi verslunarinnar, 8. hæð, í síðasta lagi miðvikudaginn 30. apríl 1997. Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum: Einarsstöðum á Völlum S-Múl. Flúðum Hrunamannahreppi Akureyri Húsafelli í Borgarfirði Ölfusborgum við Hveragerði lllugastöðum í Fnjóskadal Miðhúsaskógi í Biskupstungum Stykkishólmi Kirkjubæjarklaustri Auk húsanna eru tjaldvagnar leigðir til félagsmanna. Húsin og vagnarnir eru laus til umsóknar tímabilið 30. maí til 12. september. Úthlutunarreglur: Við þessa úthlutun byggist réttur til úthlutunar áfélagsaldri í V.R. að frádregnum fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur fást á skrifstofu V.R. og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu. Leigugjald: kr. 9.000,00 - 10.500,00 á viku í orlofshúsi kr. 7.000,00 - í tjaldvagni í 6 daga kr. 14.000,00 - í tjaldvagni í 13 daga Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir þurfa að berast skrifstofu V.R. í síðasta lagi 30. apríl n.k. Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi/tjaldvagni munu liggja fyrir 9. maí n.k. Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda má útfyllt umsóknareyðublöð í myndrita nr: 588 8356. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.