Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Síða 6
6
ÞRIÐJTJDAGUR 15. APRÍL 1997
Neytendur
DV
Mataræði landans
mjakast í hollustuátt
- segir Laufey Steingrímsdóttir, forstöðumaður Manneldisráðs
„Þarna er verið að
bera saman hvað fólk
notar mikla peninga í
vörurnar en ekki hve
mikið er borðað af
ákveðnum fæðutegund-
um. Raunar vitum við
að fólk hefur aukið
grænmetisneyslu sína
og þá hefur verð á
grænmeti lækkað mið-
að við niðurstöður Hag-
stofunnar," segir Lauf-
ey Steingrímsdóttir, for-
stöðumaður Manneldis-
ráðs, um nýja
neyslukönnun Hagstof-
unnar sem birt var á
föstudag. Neyslukönn-
unin var gerð árið 1995
og tóku 1375 heimili
með 4519 einstaklingum
þátt í könnuninni. í
liðnum grænmeti, kartöflur og aðrir
rótarávextir lækkar vísitölugrunn-
urinn úr 1,5 í 1,2 eða um 0,3%.
„Við höfum vísbendingar um að
mataræði landans mjakist í holl-
ustuátt. Sem betur fer hefur verð á
ávöxtum og grænmeti farið aðeins
lækkandi á liðnum árum en alls
ekki nógu mikið ef við eigum að ná
markmiðum Manneldisráðs um
aukna neyslu á þessum fæðuflokk-
um.“
Hefðin skiptir máli
Laufey segir að fleira komi til en
verð grænmetis þegar verið er fjalla
um grænmetisneyslu og hvemig
eigi að auka hana.
„Hefðin og menningin hefur mik-
ið að segja í matargerð fólks en
verðlagningin hefur sín áhrif. Fólki
finnst minna mál að kaupa kjöt háu
verði en þegar kemur að grænmet-
inu má það helst ekkert kosta. Mið-
að við tölur um verð og magn í út-
gjöldum heimilanna eru grænmetis-
kaupin ekki sá liður sem er að sliga
heimilin í landinu. Mér finnst um-
ræðan um grænmetisverð oft ósann-
gjörn því talað er um það þegar það
er hátt en minna þegar grænmetið
er ódýrt. Verðið á grænmeti þyrfti
að lækka því neikvæð umræða um
hátt verð dregur úr kaupum fólks.
Að leggja tolla og skatta á grænmeti
er þvert á markmið Manneldisráðs
um aukna neyslu á grænmeti. Til
þess að það sé samræmi í orði og
æði þá er lítið trúverðugt þegar rik-
isvaldið vinnur þvert á markmið
um aukna grænmetisneyslu. Það
hljómar líkt og læknir sem reykir."
Skyndibitarnir mishollir
Samkvæmt neyslukönnun Hag-
stofunnar hafa íslend-
ingar í auknum mæli
snúið sér að kaupum á
skyndibitum. Hvað
segir Manneldisráð
um hollustu skyndibit-
anna?
„Það er ákveðin til-
hneiging í þá átt að
skyndibitar séu óhollir
og helst vegna þess að
þeir eru almennt of
saltir. Næsta skrefið
væri að bæta úr þessu
því enginn stöðvar
þróunina í þá átt að
fólk fari að nota meir
og meir skyndibita.
Það þurfa líka að koma
kröfur um það frá
neytendum en ekki að
eitthvert yfirvald sé að
skipta sér af því.“
Neysla á pasta eykst
„Það sem er áhugavert er að
breyta þessum könnunum Hagstof-
unnar i magntölur en Manneldisráð
hefur tölur um heildarneyslu græn-
metis á hvem landsmann. Það má
sjá ýmsar breytingar á matarinn-
kaupum fjölskyldunnar út frá verð-
tölum í þessari könnun og til dæm-
is að fiskneysla hefur greinilega
dregist saman. Neysla á pasta hefur
aukist og þá aðallega á kostnað
kjöts og kartaflna."
-jáhj
Nýjar umbúðir Mjólkursamsölunnar:
Léttmjólkin í 1% lítra umbúðir
Mjólkursamsalan hefur sett á
markað nýjar l/2 lítra umbúðir fyr-
ir nýmjólk og von er á léttmjólk í
sams konar umbúðum um miðja
vikuna. Það hefur vakið athygli
neytenda að mjólk í nýjum umbúð-
um fæst ekki alls staðar.
„Að loknu verkfalli fór mjólk í
þessum nýju umbúðum í allar versl-
Von er á léttmjólk í nýjum 11/2 lítra
umbúöum í þessari viku. Gömlu
lítraumbúöirnar verða enn á
boðstólum en misjafnt er hvort
verslanir hafa aðstöðu til að bjóða
báðar þessar pakkningar vegna
þess að breyta þarf kælum verslana
til að geyma stærri fernurnar.
AUKIN OKURETTINDI
• leigubifreið • vörubifreib • hópbifreiö
Ökuskóli S.G. mun hefja námskeið til aukinna ökuréttinda
í Reykjavík 21. apríl nk. ef næg þátttaka fæst.
Ökuskóli S.G. hefur starfað rúm 4 ár og hefur á þeim tíma brautskráð um
750 nemenáur víðs vegar um landið við góðan orðstír.
- Ath! Seinasta námskeið fyrir sumarið.
Kennsla fer fram í húsnæði skólans að Suðurlandsbraut 16
Símar 581 1919
LEICUBIFREIÐ ■ VÖBUBIFBEIÐ - HÚPBIFBEID
og 892 4124
anir á höfuðborgarsvæðinu meðan
verið var að koma fyrstu mjólkinni
á markað á ný. Verslunareigendur
ráða því hins vegar hvað þeir vilja
og geta boðið sínum viðskiptavin-
um,“ segir Baldur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs Mjólkursamsölunnar. Hann
segir að nýju umbúðimar útheimti
breytingar i kælum verslana en í
mánuð fyrir verkfall hafi verslunar-
eigendum verið tilkynnt um nýjar
umbúðir og hvaða breytingar þyrfti
að gera. Það sé vilji Mjólkursamsöl-
unnar að nýmjólk og léttmjólk í nýj-
um umbúðum verði til sölu alls
staðar.
Lítraumbúöir áfram í boði
Aðspurður segir hann að 1!4 lítra
umbúðirnar eigi ekki að koma í
stað lítraumbúðanna, þær verði
áfram í boði. Samkvæmt könnun
vilji helmingur neytenda á höfuð-
borgarsvæðinu þær umbúðir. Sum-
ir hafi þó kvartað undan því hvað
sullist úr þeim við opnun en aðrir
geti mjög auðveldlega meðhöndlað
þær.
Að sögn Baldurs eru lítraumbúð-
imar mun ódýrari í framleiðslu en
nýju fernurnar og það sé ástæðan
fyrir því að mjólk í l'/2 lítra fernum
er hlutfadslega dýrari. Miðað við
kaup á 3 lítrum af mjólk kostar það
6 krónum meira að velja nýju um-
búðirnar miðað við leiðbeinandi
smásöluverð.
Baldur segir að undanrenna og
fjörmjólk hafi mjög litla markaðs-
hlutdeild, eða 8% hvor um sig, og
þvi sé ekki verið að huga að nýjum
umbúðum fyrir þær tegundir.
„Ætlunin er að auka fjölbreytn-
ina í mjólkurpakkningunum og það
er í athugun að bjóða upp á minna
en 1 lítra umbúðir í framtíðinni,"
segir Baldur Jónsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Mjólk-
ursamsölunnar. -jáhj
Dæmi um mynd af forsetahjónun-
um sem bæði er hægt að fá sér-
pantaöa hjá Ijósmyndara og einn-
ig endurgjaldslaust sem vegg-
spjald.
Forsetinn á
vegg
Almenningur getur nú fengið
mynd af forsetanum, forseta-
frúnni eða forsetahjónunum eftir
pöntun hjá ljósmyndaranum Sig-
urgeiri Sigurjónssyni. Valið
stendur um sjö myndir; forsetinn
í kjól og hvítu (brjóst- eða andlits-
mynd) einn eða með forsetafrúnni
í skautbúningi, forsetinn í jakka-
fötum einn eða með konu sinni í
dragt eða mynd af forsetafrúnni
einni klæddri skautbúningi.
Myndirnar eru fáanlegar í ýms-
um stærðum og kostar 18x24 cm
mynd 4.700 kr., 20x25 cm kostar
5.301 kr., 27x35 cm kostar 7.911
krónur og 30x40 kostar 9.937.
Myndirnar eru í fullkomnum ljós-
myndagæðum. Aðrar stærðir eru
fáanlegar og fer það eftir óskum
kaupandans. Algengt er að fyrir-
tæki og stofnanir kaupi slíkar
myndir.
Þeir sem engu vilja eyða en
vilja samt hengja forsetann og for-
setafrúna á vegg hjá sér geta feng-
ið veggspjöld endurgjaldslaust á
skrifstofu Forseta íslands að Sól-
eyjargötu 1. Veggspjöldin eru af
stærðinni 46x62,5 cm. Á forseta-
skrifstofu fengust þær upplýsing-
ar að það væri ekkert nýtt að gefa
veggspjöld af sitjandi forseta því
alltaf væri mikið spurt um slíkt,
sérstaklega af erlendum ferða-
mönnum. Hægt er að fá sendan
bækling með sýnishomum með
því að panta hann á skrifstofu
Forseta íslands. -jáhj
Varað við bit-
hringlum
Dönsku neytendasamtökin hafa
hvatt foreldra til að sýna aðgæslu
í kaupum á bithringlum fyrir
ungböm. Þetta kemur fram í Jyl-
lands-Posten sem segir að á
danska markaðnum sé þónokkuð
af hringlum sem ekkert erindi
eigi í munn barnanna og sumar
hverjar geti verið hættulegar.
Hættulegustu bithringlurnar
eru svo mjúkar
að auðvelt er
fyrir barnið að
troða þeim upp í
sig og alveg nið-
m- í kok. Gerist
það er hætta á
köfnun. Aðrar
geta verið fram-
leiddar úr svo hörðu plasti að það
brotnar í munninum og brotin
hrökkva ofan i hálsinn.
Einnig er varað við því að sum
plastefni geti innihaldið hættuleg
efni, svo sem PVC, sem er í mjúk-
um hringlum, en PVC er meðal
annars talið valda ófrjósemi.
Apótekiö löufelli líka
ódýrast
í grein um verðkönnun Sam-
keppnisstofnunar sem birtist í DV
á dögunum láðist að geta þess að
Apótekið Iðufelli er líka ódýrast
en sama verð er þar og í apótek-
inu á Smiðjuvegi. Þessi tvö apó-
tek bjóða afgerandi lægst verð á
þeim 32 lyijategundum sem kann-
að var verð á. Apótekin tvö voru
27 sinnum meö lægsta verðið.
Lyflabúð Hagkaups var næstlægst
og síðan Breiðholtsapótek. Kann-
að var verð í 30 apótekum á höf-
uðborgarsvæðinu. -jáhj