Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Qupperneq 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 íþróttir unglinga Úrslitakeppni íslandsmótsins í körfu 1997 - 8. flokkur: Grindavíkurliðið best - strákarnir unnu alla sína leiki í úrslitaviðureign í Hagaskóla amir í 2. sæti og kom það svolítið á óvart. Úrslit leikja KR-Grindavík........ 40-46 Tindastóll-Keflavík.. 40-37 Leiknir-Fjölnir..... 33-28 KR-Tindastóll....... 36-38 Grindavík-Leiknir . . 50-38 Keflavík-Fjölnir .... 38-35 Leiknir-KR............. 29-31 Keflavík-Grindavík.. 37-52 Fjölnir-Tindastóll. . . 29-42 KR-Keflavík............ 52-43 Tindastóll-Leiknir.. . 26-44 Fjölnir-KR............. 50-43 Keflavík-Leiknir.... 27-42 Grindavík-Fjölnir. .. 51-35 TindastóU-Grindavík 32-38 íslandsmeistari 1 8. flokki 1997: Grindavik ,Þrisvar sinnum íslandsmeistarar Jóhann Þór Ólafsson fyrir- liði 8. flokks Grindavíkur var að vonum mjög ánægður með frammistöðu liðsins: „Við sigruðum í öllum leikjum okkar og sönnuðum með því að við værum bestir. Þetta er þriðji íslandsmeist- aratitill okkar flestra en við göngum allir upp i 9. flokk eftir þetta leiktímabil og ætl- um við að æfa mjög vel á næsta leikári og stefnum á meistaratitil," sagði Jóhann. fslandsmeistarar Grindavíkur í 8. flokki f körfubolta 1997. Liðið er þannig skipaö, aftari röö frá vinstri: Ellert Magnússon, þjálfari, Jóhann Einarsson (9), Páll Pálsson (6), Ásgeir Ásgeirsson (7), Tobías Sveinbjörnsson (15) og Helgi Helgason (14). - Aftari röö frá vinstri: Ólafur Ólafsson, liösstjóri, (11), Reynir Hallgrfmsson (4), Matthfas Svansson (5), Jóhannes Ólafsson, fyrirliöi (3), Siguröur Ásgeirsson (12) og Hermann Sverrisson (10). - Á efri myndinni er fyrirliði Grindavfkurliösins, Jóhann Ólafsson, aö hampa hinum eftirsótta íslandsbikar. Flestir þessara stráka leika f 9. flokki á næsta keppnlstfmabili. DV-myndir Hson Úrslitakeppni íslandsmóts- ins í 8. flokki stráka í körfu- bolta fór fram í Hagaskóla 4. og 5. apríl. Það voru strák- amir úr Grindavík sem urðu íslandsmeistarar og tryggðu þeir sér titilinn með sigri gegn Tindastóli í úrslitaleik, 38-32, í bráðskemmtilegum leik og var staðan í hálfleik 21-13 fyrir Grindavík. Ljóst var á öllu að Grindavík var með besta liðið að þessu sinni, enda liðið skipað stórum og stæðilegum strákum sem kunna líka að spila góðan körfubolta. Stiga- hæstir í Grindavíkurliðinu urðu þeir Ásgeir með 13 stig og Helgi með 6 stig. í Tinda- stóli var stigahæstur Steinar með 10 stig og Gunnar með 6 stig. Leiknir, Reykjavík, stóð sig mjög vel og urðu strák- Leiknisstrákarnir komu á óvart og uröu f 2. sæti. Liöiö er þann- ig sklpaö, aftari röö frá vinstri: Baldur Kristjánsson, Siguröur Gfslason, Hallgrímur Tómasson, Hilmar B. Haröarson, Ragnar Ásgeirsson, Hjalti Vilhjálmsson, Skúli Auöunsson, þjálfari. Fremri röö f.v.: Marteinn Jóhannsson, Helgi Jóhannsson, Einar Örn Einarsson, Heimir Árnason, Ingólfur Pálsson og Óskar Guömundsson. Borðtennis unglinga: Sigurför landsliða Islands til Færeyja - unnu í öllum landsleikjunum nema þeirra yngstu Landslið íslands í borðtenn- is hélt til Færeyja, hér var um að ræða karla- og kvenna- landsliðin og þrjú unglinga- landslið. Karlaliðið sigraði 10-0 og var liðið skipað mjög ungum leikmönnum, þeim Guðmundi Stephensen, nýkrýndum ís- landsmeistara, Adam Haröar- syni og Markúsi Ámasyni. Kvannalandslið íslands sem er skipað þeim Evu Jó- steinsdóttir, nýkrýndum ís- landsmeistara, Lilju Rós Jó- hannesdóttur og Líneyju Ám- adóttir, sigraði einnig ömgg- lega, 10-0. Unglingalandsli&in Einnig voru leiknir þrir unglingalandsleikir og unnust allir nema í yngsta liðinu. - Unglingalandslið íslands, 16-18 ára, sigraði örugglega, 7-0, en liðið er skipað þeim Umsjón Halldór Halldórsson Ingimar Jenssyni, Kristni Bjamasyni og Ingunni Þor- steinsdóttur. Unglingalandslið íslands, 13-16 ára, sigraði einnig af miklu öryggi, 7-0, en liðið er skipað þeim Tómasi Aðal- steinssyni, Kjartani Baldurs- syni og Matthíasi Stephensen (11 ára). Tap hjá yngsta liöinu Unglingalandslið íslands, 12 ára og yngri, beið lægri hlut, 4-6, en liðið er skipað þeim Guðmundi Pálssyni, Vigfúsi Jósefssyni, Kristínu Bjama- dóttur og Halldóri Sigurðs- syni. Liðið lék vel og barðist af dugnaði, enda tapiö mjög naumt. Sigur í öllum opnu flokkunum í keppni í opnum flokkiun sigraði Guðmundur E. Stephensen og í opnum flokki kvenna vann Eva Jósteins- dóttir. í opnum flokkum unglinga sigraði Ingimar Jónsson í flokki 16-18 ára. í flokki 13-15 ára sigraöi Matthías Stephen- sen. í stúlknaflokki 13 ára og yngri vann Kristín Bjama- dóttir og í stúlknaflokki, 15-18 ára, sigraði Ingunn Þorsteins- dóttir. Frábærar móttökur í Færeyjum „Það er alltaf mjög gaman að koma til Færeyja og eins og venjulega voru móttökur frænda okkar alveg frábærar í alla staði og blátt áfram leik- ið við okkur allan tímann,“ sagöi Pétur Ó. Stephensen, stjómarmaður í Borðtennis- sambandi íslands. Landsllöiö 12 ára og yngri, tapaöi naumlega, 4-6, þrátt fyrir góöa baráttu, frá vinstri: Krístfn Bjarnadóttir, Guömundur Pálsson, Vigfús Jósefsson og Halldór Guömundsson. Unglingalandsliö íslands, 16-18 ára, stóö sig vel, frá vinstri: Ingimar Jensson, Ingunn Þorsteinsdóttir, Ingimar Jensson og Kristinn Bjarnason. A-landslið íslands í kvennaflokki sigraöi af öryggi f Færeyjum. Liöiö er þannig, frá vinstri: Eva Þorsteinsdóttir, Lfney Árnadóttir og Lilja Rós Jóhannesdóttir. A-landsliöiö f karlaflokki, frá vinstri: Markús Árnason, Adam Harðarson og Guömundur E. Stephensen. Hiö sigursæla landsliö ísiands, 13-15 ára, frá vinstri: Matthías Stephensen, Kjartan Baldursson og Tómas Aðalsteinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.