Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 27 <r Fréttir Sundmiöstöðin Keflavik: Björk syngur á Frelsum Tíbet DV, Akranesi: Tónleikamir Frelsmn Tíbet verða haldnir 7.-8. júní í sumar á Downing- leikvanginum á Randals Island í New York og mun Björk Guðmundsdóttir syngja þar 7. júni. Björk kom fram á þessum tónleik- um í fyrra, sem 50.000 manns sóttu, en nú verða tónleikamir haldnir á leik- vangi sem tekur 28.000 manns. Þann 7. júní munu koma fram A Tribe Called Quest, The Beastie Boys, Foo Fighters, Chaksam-Pa og Björk en þeir sem koma fram 8. júní eru meðal annars Radiohead og Patti Smith. Tónleikarnir á síðasta ári þóttu takast mjög vel og söfnuðust 800.000 dollarar til málstaðarins. -DVÓ Jóhann Freyr á skrifstofu sinni aö Bjólfsgötu 7. Þar eru og til húsa skrifstofur sýslumanns. Húsið var byggt 1907 og þar opnaði Stefán Th. Jónsson stór- verslun 5. október sama ár. Verslunin varð gjaldþrota 1930 og síöan hafa oft oröiö eigendaskipti. Nú er húsiö eign fjármálaráöuneytisins. DV-mynd Jóhann SeyðisQöröur: Starfsaðstaða toll- gæslunnar loks bætt DV, Seyðisfirði: Jóhann Freyr Aðalsteinsson er deildarstjóri í tollgæslunni á Seyðis- firði. Hann flutti hingað vorið 1990 en hafði áður starfað í tollinum á Keflavikurflugvefli í 5 ár. Aðstaðan til tolleftirlits hefur verið frumstæð og lítt viðunandi frá því að ferjusigl- ingar hófust fyrir 22 áriun. Lengi hefúr staðið til að bæta úr en málið dregist á langinn, ef til vill vegna þess hve húsnæðið er notað fáa daga ársins. Nú er þess aftur á móti skammt að bíða að hægt verði að sinna þess- um störfum á svo myndarlegan hátt sem verðugt og sjálfsagt er. Austfar, sem er með umboð fyrir Smyril Line, sem gerir út ferjuskipið Nor- rænu, er um þessar mundir að ljúka við byggingu á myndarlegu af- greiðsluhúsi á hafnarbakkanum. Þar fær Tollgæslan rúmgott hús- næði til leitar og tollafgreiðslu. Aflt með nýtískusniði. Þessi nýja aðstaða verður tekin í notkun á fyrsta komudegi Norrænu á þessu vori, 5. júní. Það er 15-20 manna hópur sem starfar við tolleft- irlitið við komu ferjunnar hverju sinni. Að sögn Jóhanns er þetta að mestu sama fólkið ár eftir ár og er því orðinn starfsvanur og samæfður hópur sem hefur líka tekist að vinna gott starf við bágbomar að- stæður. Viðhorfið gagnvart tollafgreiðslu hefur nokkuð verið að breytast á síðustu ámm. Almenn afgreiðsla er orðin léttari. Aflinu er fremur beitt gegn fikniefnum og stöðugt vaxandi þunga beint að þeim þætti tollgæsl- unnar. Allt er það í samræmi við þá stefnu sem stjórnvöld mótuðu á sl. ári. Jóhann segir að ekki verði þetta einungis þörf og fyrir löngu tima- bær andlitslyfting gagnvart þeim fjölda farþega sem til landsins komi árlega með ferjunni heldur geri þetta einnig starfsmönnum Toll- gæslunnar kleift að inna vandasamt starf sitt betur og markvissar af hendi. -J.J. Einkaklefi fyrir ASKRIFTARFERÐIR fatlaða DV, Suðurnesjum: „Klefinn eykur ýmsa möguleika hjá fótluðum og hvetur þá. Þetta er í raun bylting og ég veit ekki um svona klefa annars staðar hér á landi. Nú fær fólk að vera aðeins út af fyrir sig,“ sagði Jóhann Rúnar Kristjánsson, sem er fatlaður eftir bifhjólaslys, í samtali við DV, en ný- lega var tekinn í notkun einkaklefi í Sundmiðstöðinni í Keflavík. Að sögn Stefáns Bjarkasonar, íþrótta- og tómstundafufltrúa Reykja- nesbæjar, hefur verið nokkuð spurt mn möguleika á að fatlaðir gætu af- klæðst í sérklefa. Einnig hafa borist óskir um að hafa slíka klefa fyrir fólk sem hefúr lent í slysum og þarf á aðstoð að halda við að fara í sund. íþróttaráð mælti með því að hafa gufubaðsklefann utandyra, meðal Jóhann Rúnar, sem er fatlaöur eftir bif- hjólaslys, I sturtuklefa einkaklefans f Sund- miöstööinni í Keflavík. DV-mynd ÆMK annars vegna þess að töluverðar skemmdir höfðu komið í ljós á veggj- um þar sem einkaklefinn er nú stað- settur. Eftirlitsmaður fasteigna í bæjarfé- laginu og forstöðumaður, Jón Jó- hannsson, hafði veg og vanda af þess- ari framkvæmd. Þá hefur Jóhann Rúnar veitt aðstoð með því að renna hjólastól sinum í gegnum klefann og gert athugasemdir. Áætlaður kostn- aður er um 11-1200 þúsund krónur. „Þetta er gott framtak hjá þeim að koma upp klefanum og eiga þeir heiður skilinn. Aðgengi fyrir fatlaða í hjólastól i Sundmiðstöðinni er mjög gott og það besta á Suðurnesj- um. Ég tók einu sinni staðina út á Suðurnesjum og Sundmiðstöðin skaraði framúr. Það vantaði merkt skilti á bílastæðin fyrir fatlaða þeg- ar ég kom að skoða og taka út að- stöðuna hér en daginn eftir var það komið upp sem sýnir góð viðbrögð hjá forráðamönnum bæjarfélagsins," sagði Jóhann. ÆMK Vinriingur Einn heppinn askrifandi DV er dreginn út í viku hverri og hreppir ferð fyrir tvo til St. Petersburg Beach í Florida ásamt gistingu í eina viku. Sólarstundin nálgast Heppinn áskrifandi DV verður dreginn út næsta miðvikudag. Nöfn vinningshafa verða birt í DV-Ferðum í Helgarblaði DV. Ert þú heitur? Allir skufdlausir áskrifendur DV, nýir og núverandi, eru með í sólarpottinum. DV-Ferðir alla l laugardaga Alla laugardaga er umfjöllun í DV-Ferðum þar sem er að finna upplýsingar og vandaðar frásagnir um ferðalög innanlands og utan. Sólarhöfuðborg Flugleiða í ár. Sannkallaö ævintýri fyrir alla fjölskylduna. St. Peterburg Beach er einn vinsælasti áfangastaður sólþyrstra íslendinga í Florida. Þar bjóðast nær óteljandi tækifæri til hvers konar skemmtunar og útivistar, góðir gististaðir, yndisleg strönd, frábær aðstaða fyrir ferðamenn, þai sem allt er í boði, og hagstætt verðlag. íslenskur fararstjori verður á St. Petersburg Beach 27.5. - 2.9. í ferðum sem hefjast á þriðjudögurn og lýkur á mánudögum. FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi ■%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.