Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Qupperneq 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 Sviðsljós Lærifeöur og nemendur í tískubransanum í New York héldu heljar mikla sýn- ingu um daginn og þar mátti m.a. sjá þennan forkunnarfagra kjól með út- skorinni herðaslá. Efnið í flíkunum er úr endurunnum plastflöskum. Sfmamynd Reuter Madonna lesin í háskólanum Þeir hafa löngum veriö frjáls- lyndir, Hollendingar. Nú ætlar háskólinn í Amsterdam aö bjóða nemendum sínum námskeið um amerísku kynþokkapoppstjöm- una Madonnu, tónlist hennar og annað sem henni við 'kemur. Fyr- irlestrar verða fjórar klukku- stundir á viku S tíu vikur þar sem verk Madonnu verða skoðuð og lesnar blaðagreinar um hana. Nú þegar hafa 63 skráð sig í kúrsinn. Kona Billys Bobs vill skilja Eiginkona kvikmyndaleikstjór- ans, leikarans og óskarsverð- launahafans Billys Bobs Thomt- ons hefur farið fram á skilnað frá manni sínum og ber við óbrúan- legum ágreiningi milli þeirra. Frúin fer fram á að fá forræði yfir bömunum tveimur. Svo vill hún fá framfærslueyri en ekki fylgir sögunni hvort hún óski eftir ósk- arsstyttunni líka. Miðvikudaginn 23. apríl mun aukablað um sumarbústaði fylgja DV. Karl á ástarfund með Camillu í Skotlandi Þeir sem hafa áhuga á aS koma efni í blaSiS hafi samband við Ingibjörgu ÓSinsdóttur, ritstjórn DV, í síma 550-5000. ATH. ! Bréfsími ritstjórnar er 550-5999. Þeir sem hafa áhuga á aö auglýsa í jaessu aukablaSiS vinsamlega hafi samband viS Gústaf Kristinsson í síma 550-5731. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 17. apríl. Karl Bretaprins hefur að undan- förnu undirbúið rómantíska dvöl með ástinni sinni, henni Camillu, í Skotlandi. Sjálfur mun hann dvelja í Balmoralkastala en hefur fengið inni fyrir Camillu hjá vinum ekki langt þar frá. Bresku slúður- Karl Bretaprins. blöðin segja að þetta verði fyrstu samverustundir þeirra síðan blöðin komust að því fyrir átta mánuðum að þau hefðu eytt helgi saman í Wales. Karl er nýkom- inn heim úr safaríferð um Kenýu í Afríku. Prinsarnir Vil- hjálmur og Harry voru með í ferð- inni og þótti föð- ur þeirra ánægju- legt að sjá hvað þeir skemmtu sér vel. Karl er sagð- ur yfir sig spennt- ur að fá að hitta Camillu. Hann hafði farsíma með sér til Afríku en þorði ekki að hringja þar sem hann er hættur að treysta símum, að því er haft er eft- ir vinum prinsins. BlaSiS verSur fjölbreytt og efnismikiS en í því verSur fjallaS um flest þaS sem viSkemur sumarbústöSum. TalaS verSur viS eigendur sumarhúsa, bent á skemmtilegar tómstundir í bústaSnum. Einnig verSur fjallaS um kostnaS viS byggingu sumarhúsa og hvar hægt er aS fá upplýsingar um lausar lóSir. Þá verSa ábend- ingar varSandi gróSursetningu og grasatínslu í kringum bústaSinn. Carolyn Bessette óhamingjusöm: Vegur aðeins 40 kíló Það hefur gengið nærri Carolyn Bessette að giftast eftirsóttasta piparsveini Bandaríkjanna, John F. Kennedy yngri. Samkvæmt fréttum bandarískra tímarita er Carolyn bara skinn og bein, föl og kinnfiskasogin. Carolyn er 1,80 m á hæð og vegur nú ekki nema 40 kíló. Gestum í samkvæmi í New York brá þegar þeir sáu Carolyn og ekki síst vegna þess að hún virtist eiga erfitt með að brosa. Mataræðiserfiðleikar hinnar nýgiftu Carolyn eru taldir stafa af ýmsu. Henni líður illa í sviösljós- inu og einnig vegna þess að ný- lega stóð hún eiginmanninn að því að hitta gömlu kærustuna sína, Daryl Hannah. Stórleikarinn leikur sér með tíu ára syni sínum: Harrison í drullumalli \, á brasilískri baðströnd Þeir innfæddu héldu að Harrison Ford og tíu ára sonur hans væru orðnir stjömuvitlausir. Feðgamir vom að drullumalla á brasilískri strönd fyrir skömmu og áður en varði vom þeir forugir upp fyrir haus, hárið uppsett í móhíkana- greiðslu, með aðstoð leirdrullunn- ar. Hollywoodleikarinn og fjölskylda hans, eiginkonan Melissa og áður- nefndur sonur, Malcolm, og dóttirin Georgia, dvöldu í nokkra daga á ferðamannastaðnum Lagoa de Lama Negra í Brasilíu þar sem sagt er að leirinn hafi lækningamátt. Ekki var hreystimennið þó þangað komið til að leita sér lækninga, heldur til að sitja fund bandarískra umhverfisvemdarsamtaka. „Harrison var aðalmaðurinn á fundinum og hann tekur samtökin og baráttumál þeirra mjög alvar- lega,“ sagði einn félagi leikarans í umhverfissamtökunum. ' Harrison Ford hvilir sig eftir drullumallið. „Hann var ekkert að leika neina stórstjömu og heimamenn voru stórhrifnir af honurn." Þar er Harrison Ford rétt lýst. Hann hefur leikið í sex af tíu tekju- hæstu kvikmyndunum í Hollywood og margir mundu ekki hika við að skipa honum í flokk ofúrstjama. Okkar maður hefur þó engan áhuga á að vera með hinu fræga liðinu í Hollywood. Nei, konan hans, sem reyndar skrifaði handritið að hinni hugijúfu ET á sínum tíma, og böm- in eiga hug hans allan. Hann tekur þvi undir með gamla íslenska slag- aranum, að vísu örlítið breyttum, og kyrjar: Því heima vil ég helst vera, ó, Melissa, hjá þér. Harrison neitar meira að segja að búa í Los Angeles, segir borgar- skrímslið alltof hættulegt, en dvel- ur þess í stað á stómm búgarði sín- um í Wyoming þá mánuði ársins sem hann er ekki við kvikmynda- tökur og sinnir náttúrunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.