Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Qupperneq 32
36 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 ískrandi illir „Fólk er fjúkandi reitt og ískrandi illir sjoðfélagar hafa haft samband við okkur. Þetta lífeyrisspamaðarform hefur ver- ið við lýði áratugum saman og þúsundir fólks stillt lífsmynstur sitt og væntingar á.“ Sigurður R. Helgason í DV Á hilluna „Það er spennufall núna. Nú tekur við langþráð sumarfrí og skórnir eru komnir á hilluna, ég er hættur." Eriingur Kristjánsson KA-mað- ur í DV Moldviðri „Það brennur vitanlega á okk- ur að upplýsa hvað gerðist. Ég skil hins vegar ekki þetta mold- viðri sem nú er þyrlað upp. Sjó- prófum er ekki lokið, það er dómarans að ákveða það en ekki Sjómannafélagsins eða sjóslysa- nefndar og ráðherrann hefur heldur ekkert yfir dómaranum að segja.“ Karl Arason, skipstjóri á Dísar- fellinu, við DV. Ummæli Leiðinlegur „Ég fékk stundum beint fram- an í mig frá fólki að þvi fyndist ég leiðinlegur og þátturinn enn þá leiðinlegri." Gísli Rúnar Jónsson í DV Flutt 49 sinnum „Allt mitt líf hefur einkennst af istöðuleysi. Ég er búinn að flytja 49 sinnum, fékk mjög slæmt uppeldi og leið mikið vegna uppeldisaðstæðna þegar ég var 6-16 ára.“ Sigurgeir Bergsson í Degi-Tím- anum. Fyrst var sett loft í dekk á reið- hjóli í febrúar 1888. Fyrst loft í dekk Nú þegar allar götur eru svo gott sem að verða auðar um allt land dregur fólk hjól sín út úr skúrum og geymslum. Til fróð- leiks skal það riíjað upp að upp- finningamaðurinn John Boyd Dunlop setti fyrstu loftfylltu dekkin á afturhjól á Edlin Qu- adrant-þríhjóli Johnnies sonar síns 28. febrúar 1888. Blessuð veröldin Minnsta hjól Heimsins minnsta hjól sem nothæft er til reiðar er með hjól- um sem eru 1,95 sentímetrar í þvermál. Sá sem smíðaði hjólið, Neville Patten frá Gladstone í Queensland í Ástralíu, hjólaði á smíðisgrip sínum 4,1 m 25. mars 1988. Jacques Puyoou frá Pau í Pyrénées-Atlantiques í Frakk- landi hefur smíðað 36 sentímetra tvímenningshjól sem hann og kona hans hafa notað. Pokusúld á vestan verðu landinu Um 500 km vestur af Skotlandi er nærri kyrrstæð 1035 mb hæð en 995 mb lægð við norðaustur Grænland hreyfíst austur. Veðrið í dag í dag verður suðvestan gola eða kaldi og viða þokusúld um suðvest- an- og vestanvert landið en þurrt og víða léttskýjað um norðaustanvert landið. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast norð- austan til. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðvestan gola eða kaldi. Þokusúld. Hiti um 7 stig. Sólarlag í Reykjavík: 21.02 Sólarupprás á morgun: 5.52 Síðdegisflóð í Reykjavík: 12.52 Árdegisflóð á morgun: 01.26 Veðriö kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaö 10 Akurnes léttskýjaö 4 Bergstaöir skýjaö 6 Bolungarvík alskýjað 7 Egilsstaöir skýjaö 8 Keflavíkurflugv. þoka 7 Kirkjubkl. skýjaö 6 Raufarhöfn hálfskýjaó 4 Reykjavík súld 7 Stórhöföi þoka 7 Helsinki hálfskýjaö 2 Kaupmannah. léttskýjaó 3 Ósló létttskýjaö 4 Stokkhólmur snjóél -1 Þórshöfn súld 7 Amsterdam skýjaö 6 Barcelona þokumóöa 10 Chicago heióskírt 3 Frankfurt skýjaö 5 Glasgow skýjað 7 Hamborg léttskýjaö 2 London skýjaó 7 Lúxemborg skýjaö 3 Malaga þokumoöa 11 Mallorca heiöskírt 5 París skýjað 7 Róm hálfskýjað 7 New York heiöskírt 7 Orlando rigning 17 Nuuk skafrenningur -7 Vín skúr á síð.kls. 3 Washington heiöskírt 8 Winnipeg snjókoma -0 Fyrirliði Islandsmeistara KA: Missti af 6 ára afmæli dótturinnar - Erlingur Kristjánsson leggur skóna á hilluna „Bæjarbúar fögnuðu vel og inni- lega og það var alveg frábær stemning héma í bænum á laugar- dagskvöld og reyndar fram á sunnudag. Þetta hefur verið upp og niður hjá okkur í vetur en samt vorum við með í baráttunni um deildai'bikarinn. Við verðskuldum íslandsmeistaratitilinn fyllilega, fyrirkomulagið er slíkt að það er ekki tilviljun hverjir standa uppi sem sigurvegarar," segir Erlingur Kristjánsson, fyrirliði Islands- meistara KA í handknattleik, en hann tók á móti bikarnum á Akur- eyri eftir að liðið lagði Aftureld- ingu í íjórða leik liðanna á laugar- dag. Maður dagsins Erlingur hefur verið í eldlín- unni með KA í áratugi, bæði í handbolta og fótbolta, og til marks um þáð rauf hann 500 leikja múr- inn með handknattleiksliðinu fyr- ir skömmu. Erlingur var fyrirliði knattspyrnuliðs KA sem varð ís- landsmeistari 1989. „Nú er komið nóg, ég er ákveö- inn í að hætta. Það mun alveg ör- Erlingur Kristjánsson. ugglega kitla mig rosalega að taka skóna fram að nýju í haust en maður verður að læra að lifa við það. Nei, ég hef ekki áður sagst ætla að hætta og ég ætla að standa við það.“ Erlingur segir erfitt að segja til um það á þessari stundu hvernig KA-liðið muni líta út á næsta timabili en hann efast ekki um að íslandsbikarinn skipti máli þegar farið verður út í að ráða þjáKara, halda þeim mannskap sem fyrir er og fá nýja menn í stað þeirra sem fara. „Það verða alitaf einhverjar breytingar á liðinu en ég á ekki von á öðru en að menn hafi metn- að til þess að spila fyrir félag eins og KÁ, félag sem vill vera í fremstu röð,“ segir Erlingur. Hann segir að nú fari eflaust að gefast tími fyrir ný áhugamál. Nú geti hann t.d. farið að huga að einu og öðru heima hjá sér. „Maður má þó ekki fara að vera of mikið að þvælast fyrir konunni. Til þessa hef ég ekki haft tíma fyr- ir dellu af einhveiju tagi en maður verður að reyna að flnna sér eitt- hvað að gera,“ segir Erlingur Kristjánsson. Sambýliskona Erlings er Karít- as Jónsdóttir og saman eiga þau Örnu Valgerði sem varð sex ára 10. apríl síðastliðinn. Pabbinn missti af afmælisveislunni vegna leiksins í Mosfellsbænum um kvöldið en það var strax fyrirgefið fyrst sigur vannst í leiknum. -sv Myndgátan Langafi og langamma Myndgátan hér aö ofan iýsir oröasambandi. Breiðablik varö íslandsmeistari í kvennaboltanum síðastliðið sumar. Nú stendur undirbúning- urinn fyrir fótboltann sem hæst og fróðlegt verður að sjá hvaða lið koma best undan vetri. Fót- bolt- inn fram- undan Nú þegar keppnistímabilinu er lokið í öllum innanhússbolta- greinunum fer margur að huga að knattspyrnunni. Undirbún- ingstíminn fyrir íslandsmótið stendur nú sem hæst en það hefst 19. maí. íþróttir Deildarbikarkeppni kvenna hefst með tveimur leikjum í kvöld en þá mætast Valur og Haukar kl. 18.30 og KR og Reyn- ir, S., kl. 20.30. Báðir leikirnir fara fram á Leiknisvelli. Riðla- keppnin í deildarbikarkeppni karla er langt komin. Bridge Sviinn Per Olov Sundelin fann nýja leið til þess að tapa impum í þessu spili sem kom fyrir á Forbo- boðsmótinu hollenska í sveita- keppni í síðasta mánuði. Sundelin, sem sat í austur, hafnaði í fimm hjarta samningi og þurfti að spila vel til að standa hann. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og enginn á hættu: * K94 * ÁKG72 4- ÁK * 543 Norður Austur Suöur Vestur 1 * dobl 1 * 2 4 2 4 3 •* 3 * 4 v 4 4 p/h dobl pass 5 * 4 7 * D83 4 G107654 * Á97 Sundelin fékk út lauftvistinn og hann stakk upp ás í blindum, lagði niður hjartaás og sá níuna koma hjá norðri. Síðan lagði hann niður ÁK í tígli og drottningin féll önnur. Sundelin sá nú að norður átti senni- lega skiptinguna 4-1- 2-6 svo hann svínaði nú hjartaáttu, tók tígulgos- ann og tíuna og henti báðum lauf- unum heima. Suður trompaði síð- asta tígulinn, spilaði spaðaásnum og meiri spaða, en Sundelin átti af- ganginn af slögunum. Vel spilað og Sundelin taldi að hann ætti varla að tapa á spilinu - eða hvað? Á hinu borðinu gengu sagnir þannig að norður opnaði á einum spaða (canapé - styttri litur sagður á und- an), austur doblaði, suður sagði 4 spaða, vestur fimm tígla sem austur hækkaði í sex. í þessari legu var ekki vandamál að vinna samning- inn og Sundelin tapaði 10 impum. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.