Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1997, Page 36
FRÉTTASKOTID SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 Eldsvoði í Eyjafirði: Á fjórða tug nautgripa 1 drápust DV, Akureyri: Hún var óhugnanleg aðkoman í fjósinu að bænum Leyningi í Eyja- fjarðarsveit í nótt en elds varð vart þar í fjósinu og áföstu mjólk- urhúsi á fimmta tímanum. Það var húsfreyjan á bænum sem vaknaði og varð eldsins vör en fjósið er í um 50 metra fjarlægð frá bænum. Strax var kallað eftir aðstoð slökkviliðs frá Akureyri og hjónin á hænum fóru að huga að nautgripum í fjósinu sem reynd- ust allir dauðir á básum sínum. í flósinu voru 23 mjólkurkýr, 5 < *geldneyti og 6 kálfar og var ljóst af ummerkjum að dauðastríð dýr- anna hafði verið óhugnanlegt. Þau virðast hafa drepist af hita og við að fá yfir sig brennandi hluti úr þaki fjóssins. Kviður sumra þeirra var sprunginn og ljóst af aðkom- unni að þau hafa beðið kvalafull- an dauðdaga. Slökkvilið Akureyrar kom fljót- lega á vettvang en Leyningur er í tæplega 50 km fjarlægð frá Akur- eyri. Þá hafði reyndar horist að- stoð nágranna og slökkviliðs í '"sveitinni sem hafði yfir að ráða einni dælu. Með harðfylgi tókst að varna því að eldurinn kæmist í áfasta hlöðu og fjárhús. Húsráðendur í Leyningi treystu sér ekki til að ræða við fjölmiðla í morgun en líklegast er talið að eld- urinn hafi komið upp í mjólkur- húsinu og borist þaðan eftir lofti fjóssins sem er mjög illa farið. -gk Hveragerði: Tveir slösuðust í árekstri Mjög harður árekstur varð í Hvera- n"erði í gærkvöld. Sendibifreið var á ;ið út úr bilastæði hjá Blómaborg og beygði til suðurs. Þá kom fólksbifreið, sem ekið var á mjög miklum hraða, í norðurátt og lenti hún harkalega á sendibílnum. Ökumaður og farþegi úr sendibíln- um slösuðust og voru fluttir á sjúkra- hús á Selfossi. Meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg. Ökumaður fólksbílsins slapp svo til ómeiddur. Hann hefúr oft komið viö sögu lögreglu, sérstaklega vegna hraðaksturs. Báðir bílamir eru mikið skemmdir. -RR Lýst eftir konu Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Sigrúnu Kristinsdóttur, 24 ára gam- r:agjli mállausri konu, sem hvarf á töstudag. Ekkert hefur spurst til konunnar síðan. -RR 28 og 29 ára karlmenn nú í haldi vegna ránsins á Suðurlandsbraut í gær: Ræningjarnir reyndu að rota peningasendilinn - náðu samtals 7-8 milljónum króna, þar af tæpum 4 milljónum í reiðufé Samkvæmt upplýsingum DV náðu ræningjarnir á Suðurlands- braut í gær 7-8 milljónum króna, þar af tæplega 4 milljónum í reiðufé. 28 ára karlmaður var handtekinn í Grafarvogi í nótt grtmaður um aðild að ráninu og eru þá tveir af þremur grunuðum nú í haldi. Maður sem var handtekinn í Brautarholti í gærmorgun vegna ránsins er 29 ára og var hann dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti í janúar vegna smygls á tæpu einu kílói af amfetamíni í mörgæsarstyttu árið 1995. Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna hann hefur ekki hafið af- plánun. Starfsmaður 10-11, sem var rændur í gær, var margbarinn þegar tveir ræningjar réðust á hann í gærmorgun. Ræningjarnfr voru greinilega að reyna að rota hann til að hann gæti ekki veitt þeim eftirfor. Maðurinn fór á sjúkrahús í gær eftir ránið enda var hann beittur miklu ofbeldi - hann fékk þó að fara heim að lokinni aðhlynningu. Ljóst þykir að ef hann hefði ekki verið eins vel á sig kominn líkam- lega og raun ber vitni hefði senni- lega farið verr en ella. Hann var á leið að skrifstofu 10- 11 að Suðurlandsbraut 48 með uppgjör úr versluninni í Glæsibæ þegar ránið átti sér stað. Ræningj- amir biðu eftir honum á þriðju hæð hússins og stukku að honum í stiganum fyrir neðan og hófu að Mörgæsin er í vörslu fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík en hún var notuð til aö smygla amfetamíninui til landsins síðla árs 1995. Þessi mynd var tekin í gær. DV-mynd ÞÖK beita hann miklum barsmíðum. Létu þeir höggin stöðugt dynja á hnakka hans til að reyna að rota hann. Honum tókst hins vegar að standa orrahríðina af sér enda er hann vel á sig kominn. Hann meiddist einnig á brjósti en var mjög vankaður eftir höfuðhöggin. Atburðarásins var síðan mjög hröð eins og fram kemur í viðtöl- um DV í dag á bls. 2 við mennina sem óku ræningjana uppi. Hinir grunuðu ræningjar fóm inn í brúna Mazda-bifreið með númerinu R-80180. Lögreglan handtók eiganda hennar í Braut- arholti 4 tveimur klukkustundum síðar, 29 ára karlmann. Hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti i janúar. Dóminn fékk hann fyrir að senda tæpt kíló af amfetamíni til íslands í mörgæsarstyttu síðla árs 1995. Hann sendi síðan mann fýrir sig til að vitja efnanna á Tollpóststof- unni en sá var handtekinn. Mað- urinn viðurkenndi síðan að hafa ætlað amfetamínið, sem var að söluandvirði 7-8 milljónir króna, til sölu hérlendis. -Ótt Everestfararnir: Aftur í grunnbúðir íslensku Everestfaramir fá nú nokkurra daga hvíld eftir erfiðleika og áfóll síðustu daga. Litlu munaði að illa færi þegar tjaldið þeirra brann að mestu vegna gassprengingar í fyrrinótt. Þeim tókst að forða sér út úr tjald- inu og sluppu með að hár Hall- gríms Harðarsonar sviðnaði. ís- lendingamir notuðu restina af tjaldinu en urðu að mestu að sofa VE R ■11 úti undir bemm himni i um 20 gráða frosti og töluverðum vindi. Hópurinn var í 6.100 metra hæð i fyrrinótt og hélt síðan í gær upp í það sem þeir kalla búðir 2, í um 6.500 metra hæð. í dag var stefnan sett á að fara niður í grunnbúðir (5.300 metrar) til þess að hvíla sig í nokkra daga fyrir frekari átök. Þar er nóg til af aukabúnaði. Um þijár vikur era i það enn að reynt verð- m- við tindinn en DV mun segja reglulegar fréttir af fjallamönnunum nú þegar lokaspretturinn er að heíjast. -sv Talsverð jarð- skjálftavirkni „Það er talsverð virkni enn í gangi við Ölkelduháls norðan Hveragerðis. Stærstu skjálftarnir hafa í gærkvöld og í nótt verið um 1,5 á Richterkvarða. Frá miðnætti hafa verið mn hundrað skjálftar á svæðinu. Þetta getur færst í auk- ana á ný, það er alveg ljóst, en við fylgjumst vel með þessu ,“ sagði Barði Þorkelsson, jarðfræðingur á Veðurstofu íslands, við DV í morg- un aðspurður um jarðskjálftavirkn- ina. -RR L O K I Veðriö á morgun: Hiti allt að 15 stig Á morgun verður fremur hæg suðvestlæg og vestlæg átt. Áfram má reikna með þokusúld suðvest- an- og vestanlands, en annars staðar verður þurrt og allvíða létt- skýjað austan- og suðaustan til. Þar verður hitinn allt að 12 til 15 stig yfir hádaginn, en annars 4-8 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 Ingvar Helgason hf. Sævarluiföa 2 Sími 525 8000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.