Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1997, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 jjjV
„Ég vaknaði ekki fyrr en
klukkan var langt gengin ellefn. Þó
aðaldagurinn væri upprunninn
var ég búinn með mín helstu
verkefni. Ég sá því fram á
rólegheit fram eftir degi og lítið
annað en að fylgja hinum eftir.
Starf mitt í ferðinni fólst í aö
kynna okkur, auglýsa íslenska
partíiö og koma Palla á framfæri.
Það má segja áð síöastnefnda
verkefnið hafi verið áreynslu-
minnst því Palli er þannig að hann
kemur til fólksins en það ekki til
hans. Hann féll mjög vel í kramið
hjá öllum blaðamönnum og það
kom okkur vel og gerði vinnuna
auðveldari og skemmtilegri. Hins
vegar vildu blaðamannafundimir
dragast á langinn þar sem Palli
hafði svo mikið að segja.
Eftir að ég hafði komið mér á
fætur fór ég að hitta liðið þar sem
verið var að mála og laga hár fyrir
lokaæfinguna. Við sem vorum til
aðstoðar fengum að sjá fyrstu
lokaæfinguna en ekki aðra og
þriðju. Það var góður andi í
mannskapnum og ég gerði satt að
segja lítið annað en að spjalla og
flækjast fyrir. Það vildi svo vel til
að Brynhildur, vinkona Palla,
hafði komið til Dublin um
morguninn. Við skelltum okkur í
að prófa fjöll og tinda sem við
ætluðum að vera með úti i sal en
að því loknu fórum við í búðaráp í
bænum. Ég var með langan
innkaupalista fyrir vini og vanda-
menn og hafði ekki haft tíma til að
tæma hann.
Þegar viö vorum komin upp á
hótel eftir innkaupin var
mannskapurinn kominn af síðustu
lokaæfingunni. Það var ekkert
meira að gera svo það ákváðu allir
að safna kröftum fyrir kvöldið og
hvíla sig.
Eftir smá eftirmiðdagslúr fór að
komast hreyfing á fólkið.
Dagur í lífi Reynis Þórs Sigurðssonar, aðstoðarmanns Páls Óskars:
var stiarna kvöldsins
Það var haldið í
íþróttahúsi hjá
háskóla í
grenndinni.
Gríðarlegur
fjöldi fólks
haföi safnast
saman við
göngustiginn
að salnum.
Þegar við
komum
troðfullum af fólki og fylgjast með.
Hljómurinn var mjög góður og allt
gekk smurt fyrir sig. Kynnarnir
voru í gryjfú til hliðar við aðalsviðið
og þegar talningin hóst var hvítu
tjaldi rúllað niður úr loftinu og
tölunum varpað á það eins og á
slidesmyndasýningu.
Áæfingimum sem ég sá var ég
mikið að velta fyrir mér hvemig
þetta mundi allt ganga upp því það
var svo margt sem allir þurftu að
hafa á hreinu. Þess vegna var svo
gaman að sjá hve örugglega keppnin
rann áfram fram að síðasta
keppanda, okkar manni.
Ég þar f ekki að hafa mörg orð um
frammistöðu Palla, hann var frábær.
Eftir að öllu var lokið biðum við
frammi í anddyri eftir stjömunni
en þangað fóru allir
keppendur. Við þurftum að bíða
töluvert eftir honum því það vildu
allir tala við hann. Aðeins
sigurvegaramir vora ókomnir
þegar Palli kom loksins. Ég
notaði reyndar biðina til að
skipta um föt. Ég ætlaði
ekki í smóking í partíið.
Ino á
frekjunni
Aðalkeppnin átti að hefjast
klukkan átta að írskum tíma. Við
sem ætluðum að vera úti í sal
fengum ekki að fara baksviðs
meöal keppenda og urðum að vera
mætt klukkan sjö. Ég klæddi mig í
smóking og lagði glerfinn af stað.
Yfir á rauðu
Viö ókum í lögreglufylgd að
leikhúsinu. Það var alltaf gert ef
keppendur og þeirra lið átti að
mæta á tilteknum tíma einhvers
staðar. Það er sérstök tilfinning að
þykja svo mikilvægur að fá að fara
yfir á rauðu á öllum gatnamótum.
Palli og dansaramir ákváðu að
fara ekki fyrr en klukkan átta því
annars hefðu þau þurft að bíða svo
lengi í græna herberginu
baksviðs.
Við vorum mætt í
leikhúsið klukkan
19.40. Þá þurftum
við að ná í gjöf,
konfektkassa,
sem allir
gestir fengu
og síðan
að fara
inn f sal
og
finna
sætin
okkar og bíða þar til stóra stundin
rann upp.
Allt gekk upp
Ég hef oft séð Eurovision en það
var hreint út sagt
stórkostlegt að
sitja • í
salnum
Reynir Þór Sigurösson, aöstoöarmaður Páls Óskars, lýsir einum degi í ferðinni til Dublin.
á staðinn ætlaði allt um koll að
keyra. Liðið öskraði bara „Iceland,
Iceland“ og allir vildu heilsa Palla
og taka af honum myndir. Hann
v£ir stjama kvöldsins.
Einhverra hluta vegna vorum við
með færri miða í partíið en við áttum
að fá. Öryggisgæslan á staðnum var
mjög öflug og því stóðum við í miklu
stappi að koma öllu okkar fólki inn í
partíið. En það tókst að lokum með
frekjunni og má segja að reynslan úr
biðraðastappinu heima hafi komið
sér vel.
Sumir í fýlu
Við vorum um tvo tíma í
partíinu. Það voru allir mjög
hressir en það vakti athygli að
keppendur Rússa og Þýskalands
höfðu farið í fylu eftir keppnina og
mættu ekki. Sú þýska hafði átt von
á að verða önnur Celine Dion en
mistókst það gjörsamlega. Annars
er aldrei að vita hvað úr henni
verður. Það var annars gaman að
hitta fólkið í partíinu en
umhverfið var ekki spennandi.
Úr íþróttasalnum lá leiðin niöur
í bæ, á klúbb sem heitir The Pod.
Þar vom strákarnir úr Boyzone
með partí, þessir sem sáu um
milliatriðið í keppninni, fyrir
atkvæðagreiðsluna. Það var
reyndar búið að loka þegar við
mættum á staðinn en við fengum
að fara inn bakdyramegin. Við
vorum að skralla þama fram eftir
nóttu. Þegar út var komið var
erfitt að ná í leigubíl svo síðustu
metrar ferðarinnar heim á hótel
voru farnir í hestakeiru. Það var
notalegt. Klukkan var um hálfsex
þegar ég lagðist á koddann. Þetta
haföi verið langur og strangur
dagur og allir dauðþreyttir - en
sælir. Palli var jú stjama
kvöldsins."
Finnur þú fimm breytingar? 410
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er aö gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefúr
fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
Vertu ekki svona mikiil hugleysingi og kysstu hana Viggu frænku!
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og
sjöundu getraun reyndust vera:
Elísabet K. Grétarsdóttir, Hrefna Ásgeirsdóttir,
Laufásvegi 61, Þrastarhólum 8,
101 Reykjavík ' 111 Reykjavík
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 410
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík