Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1997, Síða 50
ir
LAUGARDAGUR 10. MAÍ1997
58
Háskólabíó - Háðung ***
Mælskusnilld í Versölum
Hirðlífið í Versölum
á seinni hluta átj-
ándu aldar í Frakk-
landi, þegar Louis
XVI ríkti, er um-
gjörðin utan um
Háðung (Ridicule),
einstaklega frumlega
og skemmtilega
kvikmynd þar sem
tekist er á um hylli
konungs. Sá sem
hefur mælskulistina
á sínu bandi hefur
mikið forskot á aðra
og nýtur aðdáunar
annarra.
Verkfræðingurinn
Ponceludon de Mala-
voy, fátækur aðals-
maður, sem er aðal-
persóna myndarinn-
ar hefur þessa náð-
argáfu í ríkum mæli
og þessi náðargáfa
hefði átt að koma
honum til góða þeg-
ar-... hann leitar
áheyrnar hjá kon-
ungi með þá beiðni
sína áð hann fái að
veita úr mýrlendi við heimili sitt svo aðbúnaður fyrir vinnufólk hans veröi betri en mýr-
arkalda er algeng meðal fólksins. Malavoy kemst þó fljótt að því að enginn við hirðina
hefur áhuga á úrþótum og þrátt fyrir góðan talanda reynist það honum þrautin þyngri að
ná til konungs. Það er ekki fyrr en hin útsmogna og samviskulausa Madame de Blayac
gerir Malavoy að elskhuga sínum að hjólin fara að snúast. Malavoy tekur þátt í leiknum
um að koma sér í mjúkinn hjá kóngi en þegar hann tekur unga stúlku fram yfir
madömmuna er ekki von á góðu.
Það sem byrjar sem ósköp venjuleg búningamynd með uppskrúfuðum frönskum aðli
snýst fljótt upp í stórskemmtilega skopádeilu þar sem engum er hlíft. Snilldarlega skrifað
handrit ásamt sérlega skemmtilegum persónum gefa myndinni létt yfírbragð þar sem
húmorinn og rómantíkin nýtur sin vel innan um mikla spillingu. Búningar og förðun er
með miklum ágætum.
Margar persónur eru eftirminnilegar, til dæmis læknirinn Marquis de Bellegarde, sem
Jean Rochfort túlkar af snilld. Hann gerir sér grein fyrir að hann er ekki í fremstu röð í
mælskulistinni, en enginn rembist jafn mikið við að læra sniðugar orðhendingar. Þá
túlkar Fanny Ardant hina fláráðu de Blayac af stakri snilld. Það er eiginlega sama hvar
niður er borið, Háðung er skemmtileg og gefandi kvikmynd, er dálítinn tíma að taka við
sér en er einstaklega vönduð að allri gerð.
Leikstjóri: Patrice Leconte. Handrit: Remi Waterhouse. Kvikmyndataka: Thierry
Arbogast. Tónlist: Antoine Duhamel.
Aðalhlutverk: Fanny Ardant, Charles Berling, Bernard Giraudeau, Judith Godreche
og Jean Rocheford Hilmar Karlsson.
Regnboginn - Supercop ★★
Engar venjulegar löggur
Eftir að Jackie
Chan sló í gegn í
Bandaríkjunum í
fyrra með
Rumble in the
Bronx var farið
að dusta rykið af
eldri myndum
hans og þeim gef-
ið nýtt líf.
Supercop er ein
af nýrri myndum
kappans, gerð í
Hong Kong og
þar er við stjórn-
völinn Stanley
Tong sem leik-
stýrði honum í
Rumble in the
Bronx. Kryddið í myndinni er svo mótleikari Chan, Michelle Khan, ókrýnd drottning
hasarkvikmynda í Hong Kong. Þegar þau Chan og Khan snúa bökum saman eru þau
ekki árennileg, bæði fimaflínk í slagsmálum og veigra ekki fyrir sér að taka áhættu,
leika bæði öll sín áhættuhlutverk. Það sem veitir mesta ánægju við að horfa á Supercop
er einmitt þegar þetta einstaka par tekur til við að lemja á tugum manna á nokkrum
sekúndum.
Sagan er ekki merkileg en ber þó með sér að þiða er í samskiptum Kína og Hong Kong.
Chan leikur súperlöggu frá Hong Kong sem fengin er til að aðstoða Kínverja við að koma
höndum yfir eiturlyfjakónga. Satt best að segja held ég að allar Kung Fu-myndir frá
Hong Kong hafi eiturlyfjabaróna sem vondu kallana og eru þeir eins og steyptir i sama
formið og eru þeir sem prýða Supercop engar undantekningar. Það er því ekki söguþráð-
urinn eöa handritið sem gerir Supercop að sæmilegustu afþreyingu heldur útgeislun
Chan og Khan og hæfileikar þeirra i sjálfsvarnaríþróttum og svo hæfileikar Stanley
Tong til að láta hlutina ganga upp hversu vitlausir sem þeir eru. Þetta gerir hann með
útsjónarsamri klippinu og áflogaatriðum sem oft minna á vel æfðan ballett. Á móti kem-
ur að myndin er ákaflega illa döbbuð yfir á ensku og fær sérstaklega Chan að kenna á
hroðvirknislegum vinnubrögðum við talsetningu.
Leikstjóri: Stanley Tong. Handrit: Edward Tang, Fibe Ma, Lee Wai Yee. Kvik-
myndataka Ardy Lam. Tónlist Joel McNeely.
Aoalleikarar: Jackie Chan, Michelie Khan, Maggie Cheung, ken Tsang og Bill Tung.
Hilmar Karlsson
Lefty Ruggiero (Al Pacino) þykir mikiö til koma að Donnie Brasco (Johnny Depp) skuli líta upp til hans.
Donnie Brasco
Sam-bíóin frumsýna i dag sakamálamyndina
Donnie Brasco, en mynd þessi hefur fengið góð-
ar vitökur og þykir eiga heima í flokki með
GoodFellas- og Godfather- myndunum. Donnie
Brasco er síðust í röð margra mynda sem fjalla
um mafiusfarfsemi og er hún byggð á sönnum
atburðum. í myndinni segir frá FBI- löggunni
Joe Pistone, sem tekur sér nafnið Donnie
Brasco þegar hann kemur sér bakdyramegin
inn í mafiuna. Pistone nær að vinna sig í álit
og nær trúnaði tortrygginna mafíuglæpona.
Uppljóstranir hans urðu til þess að einhver
stærsta herferð sem farin hefúr verið gegn maf-
íunni heppnaðist.
Það sem gerði för Pistones jafn árangursríka og
raun ber vitni var fyrst og fremst að hann
vann sér traust Lefty Ruggiero, sem var virtur
atvinnumorðingi innan mafíunnar en hafði
aldrei náð á toppinn. Lefty hafði aldrei gert
nein mistök í starfi en þegar hann hóf að
treysta Donnie Brasco þá gerði hann stærstu
mistök lífs síns.
Donnie Brasco er gerð eftir bókinni Donnie
Brasco, My Undercover Life in the Mafia, eftfr
Joe Pistone. í hlutverki Pistone er Johnny
Depp og í hlutverki Lefty Ruggiero er A1 Pac-
ino, sem er vel sjóaður í mafíuhlutverkum.
Einn munur er þó á Lefty og öðrum mafíósum
sem Pacino hefur túlkað, Lefty náði aldrei að
slá í gegn innan mafíunnar, hefur stöðu en hef-
ur alltaf verið utangarðs hjá mafíuforingjunum
þegar myndin hefst en önnur mafíuhlutverk
Pacino hafa yffrleitt verið menn á toppn-
um.
Bókin sem handritið er gert eftir
kom út 1989 og þá strax tryggði
framleiðandinn, Louis DiGiaimo,
sér kvikmyndaréttinn. Það var
engin tilviljun að hann hafði
áhuga á sögunni. Hann þekkti
Joe Pistone og höfðu þeir ver-
ið félagar í mörg ár og DiGi-
aimo var í nánu sambandi
við hann þegar Pistone lifði
tvöföldu lífi. DiGiaimo grun-
aði þó aldrei hvemig í pott-
inn var búið hjá félaga sínum
og var jafn undrandi og aðrir
sem þekktu Pistone þegar
fréttir um handtökm- mafíósa
fóra að berast og hvemir þær
höföu komið til.
Mike Newell
Leikstjóri Donnie Brasco er
Mike Newell, sem þekktastur
er fyrir að hafa leikstýrt
Four Weddings and the
Funeral og er
Donnie Brasco
fyrsta kvik-
myndin
sem hann
gerir í
Bandaríkjunum. Kemur það dálítið á óvart að
Mike Newell skyldi vera fenginn til að leik-
stýra jafh ameriskri sögu og Donnie Brasco er,
en hann stóðst prófið.
Newell lagði ekki upp í kvikmyndanám þegar
hann kaus sér lífsstarf. Hann þótti góður náms-
maður og innritaðist í Cambridge-háskólann
þar sem hann lauk mastersprófi í ensku. Fór
hann að kenna að námi loknu, en kennsla átti
ekki við hann svo hann fékk sér vinnu sem að-
stoðarmaður í myndaveri Granada-sjónvarps-
stöðvarinnar. Þar var hann fljótur að vinna sig
i álit og var farinn að leikstýra sjónvarpsmynd-
um tveimur árum síðar.
Fyrsta kvikmynd Newells var endurgerð klass-
ískrar ævintýramyndar, The Man in the Iron
Mask og voru leikarar í myndinni Richard
Chamberlain, Louis Jordan, Ralph Richardson
og Jenny Agutter. Hann fylgdi henni eftir með
ágætri spennumynd, The Awakening, þar sem
Charlton Heston <?g Susannah York fóru með
aðalhlutverkin. Árið 1984 leikstýrði hann
Dance with a Stranger, sakamálamynd með
Mirinda Richardson, sem vakti verðskuldaða
athygli og fékk góða dóma. Var myndin verð-
launuð á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Næst
kom The Good Father með Anthony Hopkins í
aðalhlutverki.
1991 gerði hann hina dramatísku kvikmynd
Enchanted April og var hún tilnefnd til þriggja
óskarsverðlauna og fengu leikkonumar í
myndinni, Mirinda Richardson
og Joan Plowright,
Golden Globe-verð-
launin fyrir leik
smn. Áður en
hann gerði
Four Wedd-
ings and a
Funeral fór
Newell til
írlands og
leikstýrði
Gabriel
Byme og
Ellen Bark-
in í Into
the West. I
fyrra gerði
hann svo An
Awfully Big
Adventure
með Hugh Gr-
og Alan Rick-
i. Fékk sú mynd
óblíðar viðtökur og
fór nánast beint á
myndbanda-
markaðinn.
-HK
Johnny Depp leikur Joe Pistone sem tekur sér nafniö Donnie Brasco
þegar hann gengur á mála hjá mafíunni.