Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 14
14
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 JjV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLT111,105
RVÍK, SIMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: httpV/www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: (SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
Olíuleit við ísland
Þeirri tækni sem beitt er til að leita að og vinna olíu úr
iðrum jarðar hefur fleygt fram síðustu ár og áratugi. Olíu
og gasi er nú dælt upp á svæðum þar sem enginn hefði
talið slíkt mögulegt fyrir aðeins fáum árum. Þetta hefur
gjörbreytt Qárhagslegri stöðu sumra nágrannaþjóða okkar
íslendinga við Norður-Atlantshaf, einkum Norðmanna, og
margir telja líklegt að það sé tiltölulega skammt í að arð-
ur af olíuvinnslu fari að hafa hliðstæð áhrif á efnahag
Færeyinga.
Enn hefur lítt verið kannað hvort olía leynist á íslenska
landgrunninu. Árið 1971 fékk þó alþjóðlega olíufyrirtækið
Shell leyfi til að gera jarðeðlisfræðilegar mælingar á land-
grunninu. Þær fóru fram vestur af íslandi það sama ár og
bentu ekki til þess að á þeim slóðum væru líkur á olíu-
lindum. Frummælingar sem rannsóknarfyrirtækið
Western Geophysical gerði á svæðinu út af Eyjafirði og
Skjálfandaflóa fyrir um tuttugu árum gáfu hins vegar
betri raun. Þær athuganir leiddu i ljós að þar væru allt að
fjögurra kílómetra þykk setlög, en setlög af því tagi eru
forsenda þess að olía eða gas sé til staðar á tilteknu svæði.
Tilvist setlaganna var staðfest með borun í Flatey á
Skjálfanda fyrir um fimmtán árum. Borholan varð hins
vegar aðeins 554 metra djúp, en til að ganga úr skugga um
tilvist kolvetna í setlögum þarf að bora miklu dýpra - jafn-
vel um 2000 metra. Það hefur ekki enn verið gert.
Vísbendingar hafa fundist um olíumyndun á jarðhita-
svæði í Öxarfirði. Heimamenn hafa lengi unnið að því að
fá frekari rannsóknir á svæðinu. Tilraunahola, sem boruð
var árið 1991 og átti að leiða í ljós hvort olíugasmyndun-
in ætti sér stað í efstu setlögunum, eða hvort hún væri
ættuð úr neðri jarðlögum, misheppnaðist. Svör liggja því
ekki enn fyrir.
Nokkrir þingmenn hafa lagt fyrir Alþingi tillögu um að
þegar verði hafnar markvissar rannsóknir á því hvort
olía eða gas finnist á landgrunninu. Vísindamenn við
Orkustofnun eru meðal þeirra sem ritað hafa forvitnileg-
ar kjallaragreinar í DV að undanförnu um málið. Einn
þeirra fullyrðir að olíu og gas sé að finna hér í ungum set-
lögum: „Spurningin er ekki hvort olía og gas hafi mynd-
ast heldur hvort það finnst einhvers staðar í vinnanlegu
magni. Um það ríkir mikil óvissa,“ segir Guðmundur
Ómar Friðleifsson, jarðfræðingur, í grein sinni.
Stjórnvöld virðast ekki hafa mikinn áhuga á að eyða
þeirri óvissu með frekari rannsóknum og bera því við að
vonin um að olia eða gas leynist í hafsbotninum norður af
landinu sé „ákaflega veik“ svo vitnað sé til ummæla að-
stoðarmanns iðnaðarráðherra. Ljóst er af grein orkumála-
stjóra í DV í vikunni að olíuleit er mjög aftarlega á óska-
lista Orkustofnunar. Hann vísar til þess að erlend olíufé-
lög og rannsóknarstofnanir hafi sýnt málinu lítinn áhuga
undanfarin ár. Það endurspeglar líklega áhugaleysi ís-
lenskra stjómvalda sjálfra.
Þetta sinnuleysi í málinu er illskiljanlegt með tilliti til
þess hversu mikið gæti verið í húfi fyrir íslenskt þjóð-
arbú. Auðvitað er nauðsynlegt að fá botn í málið. Bent
hefur verið á að mikilla upplýsinga megi afla með því
einu að dýpka borholuna í Flatey niður í 2000 metra, eða
þá að bora niður á um 1000 metra dýpi í Grímsey sem er
úrvals borpallur, að mati jarðfræðinga.
Það ætti ekki að vera íslenskum stjómvöldum ofviða að
fá alþjóðlega aðila til samstarfs um slíkar rannsóknir -
annaðhvort ijársterk fyrirtæki eða rannsóknarstofnanir.
Vilji er allt sem þarf til að koma málinu á hreyfingu.
Elías Snæland Jónsson
Kosið um vöid
en ekki stefnu
Fyrri umferð frönsku þingkosn-
inganna er á morgun, sunnudag-
inn 25. maí. Það ræöst þó ekki fyrr
en eftir síðari umferðina, 1. júní,
hver veröur skipan franska þings-
ins. Hin tvíþætta kosning í Frakk-
landi á að tryggja kjósendum vald
til að ráða með atkvæði sínu, hver
stjómar landinu. Fyrirkomulagið
er því annað en hér, þar sem kos-
ið er hlutfaílskosningu, sem kallar
síðan á samninga milli flokka að
loknum kjördegi um það, hvaða
meirihluti myndast á þingi til að
styðja ríkisstjórn.
Að ætla sér að fylgjast náið með
frönskum stjórnmálum krefst
mikils tíma, því aö atburðarásin
verður oft flókin og snýst um per-
sónur með þeim hætti, að erfitt er
að greina þróunina á grundvelli
flokkaskipunar. Sumir stjórn-
málaleiötogar em næsta einir á
báti en njóta viðurkenningar, sem
gengur þvert á hefðbundin flokks-
bönd, eins og Raymond Barre,
sem á sínum tíma var forsætisráð-
herra í ríkisstjóm mið- og hægri-
manna.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, rauf þing og boðaði til kosn-
inga í þeim tilgangi einum að
styrkja pólitíska stöðu sína. For-
setinn vifl, að hægrimenn haldi
meirihluta sínum á þingi. Barre
hefur sagt, að nái forsetinn ekki
því takmarki sínu beri honum að
segja af sér. Hann hafi með þing-
rofinu lagt pólitíska framtíð sína
að veði og verði að haga sér eftir
því. Vorið 1969 boðaði Charles de
Gaulle, Frakklandsforseti og
stofnandi fimmta franska lýðveld-
isins árið 1958, til þjóðaratkvæða-
greiðslu um breytingar á stjóm-
skipun Frakklands. Sjónarmið for-
setans varö undir og hann sagði af
sér. Raunar missti de Gaulle tökin
á stjóm landsins í stúdentaóeirð-
unum sumarið 1968.
Forsætisráðherrann en
ekki forsetinn
Þótt Chirac eigi jafnmikið und-
ir úrslitum kosninganna og hér
hefur verið lýst, er alls ekki lík-
legt, að hann segi af sér, ef hægri-
menn tapa hinum gífurlega mikla
meirihluta, sem þeir hafa á
franska þinginu. Tapi Chirac
kosningunni verður hann að fela
forystumanni úr hópi sósíalista að
mynda ríkisstjóm, því að stjórnin
styðst við meirihluta á þingi, þótt
hún starfi í umboði hins pólitíska
forseta landsins.
Forsetinn hefur ekki tekið bein-
an þátt í kosningabaráttunni.
Hann hefur hins vegar notað tím-
ann til að draga að sér athygli,
meðal annars með ferðalagi til
Kína. Einnig verður hann gest-
Erlend tíðindi
Björn Bjarnason
gjafi í næstu viku, hinn 27. maí,
þegar leiðtogar NATO-ríkjanna
koma til Parísar til að undirrita
samkomulagið við Boris Jeltsín,
forseta Rússlands, sem á að
tryggja sæmilega sátt við rúss-
nesk stjómvöld um stækkun
NATO.
Það er því forsætisráðherrann,
sem á aflt undir í þingkosningun-
um. Hann er foringi kosningabar-
áttunnar af hálfu hægrimanna.
Hið sérkennilega er hins vegar, að
Alain Juppé, sem gegnt hefur
embætti forsætisráðherra síðan
Chirac varð forseti, hefur gefið tfl
kynna, aö líklega verði skipt um
forsætisráðherra að kosningum
loknum, jafnvel þótt hægrimönn-
um takist að halda meirihluta á
þingi, eins og spáð er. Ástæðan
fyrir þessari yfirlýsingu em hinar
miklu óvinsældir ráðherrans.
Juppé hefur því talið sigurstrang-
legt í baráttunni að boða eigin af-
sögn, vinni stjórnarflokkarnir
undir hans forystu sigur!
Höfðað til miðjunnar
Við blasir, að franskur almenn-
ingur hefur ekki mikinn áhuga á
kosningunum. Baráttan er ekki
mjög hörð, þegar að málefnum
kemur. Sósíalistar vilja afla sér
trausts að nýju með framgöngu,
sem sýnir, að þeir geti starfað með
Jacques Chirac að hinum stóra
pólitísku úrlausnarefhum.
Hver sem tekur við stjómartau-
munum í París er bundinn af hin-
um sameiginlegu ákvörðunum
innan Evrópusambandsins um að
halda sér við skuldbindingar
Maastricht-samkomulagsins varð-
andi Evrópumyntina. Samkvæmt
þeim verða Frakkar að draga úr
ríkisútgjöldum og minnka fjár-
hagslega velferðarþjónustu ríkis-
ins.
Á sama tíma og stóra flokkam-
ir höfða þannig til miðjunnar með
keimlíkri stefnu, þróast minni
flokksfylkingar í kringum ein-
staklinga eða þröng stefnumál
eins og þau, sem setja svip sinn á
þjóðernisfylkinguna, sem Jean-
Marie le Pen stjómar. Spumingin
er sú, hvort þessir flokkar draga
að sér fleiri atkvæði en áður og
megni að komast að í annarri um-
ferð kosninganna 1. júní. Le Pen á
engan mann á þingi núna.
Frönsk stjórnmál era í spennu,
ekki vegna átaka milli flokka,
heldur hins, að stjómkerfið kallar
á mótmæli þrýstihópa til að ná
fram kröfum sínum. Hafi Chirac
ætlað að losa um þá spennu með
því að boða til kosninga, nær
hann því markmiði ekki. Spurn-
ing er, hvort fimmta lýðveldið,
sem de Gaulle stofnaði fyrir 39
áram, sé að ganga sér til húðar.
Frambjóöendur fyrir þingkosningarnar hafa fariö viöa í vikunni. Hér eru
Alain Juppe og Francois Leotard viö vínsmökkun í Pommiers sl. fimmtu-
dag. Símamynd Reuter
ur ástand mannréttindamála í Kína versnað. Að því
er utanríkisráðuneytið segir, hefur ekki einn ein-
asti kinverskur andófsmaður komist hjá því að fara
í fangelsi eða útlegð. Meira að segja KGB tókst ekki
svo vel upp á valdatíma Leoníds Brezhnevs.“
Úr forystugrein Washington Post 22. maí.
Jákvæð „vinátta"
„Eftir þijú stríð og fimm áratuga fjandskap þaif
miklu meira en persónulega jákvæðni til að brjóta
múrinn sem skilur að Indland og Pakistan. Samt
sem áður má skynja breytingar þegar forsætisráð-
herra Indlands, Inder Kumal Gujral, kallar starfs-
bróður sinn i Pakistan „persónulegan vin sinn“.
Breytingar má einnig skynja þegar Nawaz Sharif
segir um 10. forsætisráðherra Nýju Delhí: „Mér
geðjast mjög vel að þessum manni." Á fyrsta fundi
leiðtoganna á átta árum samþykktu þeir að hefja
viðræður um Kasmír. Það, ásamt öðrum aögerðum,
getur lægt öldumar og jafhvel leyst erfiðasta málið
sem ríkin tvö greinir á um.“
Úr forystugrein New York Times 21. maí.
oðanir annarra
Blair lofar góðu
„(Tony) Blair (forsætisráðherra Bretlands) hefur
þegar sýnt og sannað að hann er slyngur stjórn-
málamaður. Með því að leggja til að Englandsbanki
fái vald til að ákvarða vexti til að vernda stöðug-
leika gjaldmiðilsins, býöur hann upp á róttækar
breytingar sem geta firrt stjórn hans allri ábyrgð ef
hægir á hjólum efnahagslífsins. Á sama hátt eru
orð stjórnarinnar um myntbandalag ESB og önnur
erlend málefni vísvitandi sefandi til aö gera henni
i kleift að einbeita sér að innanlandsmálum."
Úr forystugrein New York Times 22. maí.
Mannréttindi og kaupskapur
„Þegar Clinton kom til valda hét hann því að
; tengja ástand mannréttindamála við bestu við-
j skiptakjör til handa „slátruranum í Peking“ svo
! þeir mættu bæta ráð sitt. Árið 1994 kúventi hann og
hafði uppi þau rök að Bandaríkjunum yrði betur
ágengt þegar til lengri tíma væri litið ef ekki væru
j sett skilyröi fyrir viöskiptakjörunum. Síðan þá hef-
wasssssmsmmisss