Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 18
LAUGARDAGUR 24. MAI1997 „ dagur í lífi Dagur í lífi sr. Huldu Hrannar M. Helgadóttur, sóknarprests í Hríseyjarprestakalli: Annar í hvítasunnu var mjög fallegur „Annar í hvítasunnu var ein- staklega fallegur dagur. Eftir óvenjulega kaldan maímánuð birti upp og hlýnaði. Því var þessi hvíta- sunna eins og mynd af sigri og mætti lífsins sem brýtur af sér vetrarfjötrana. Úr prestbústaðnum í Hrísey er undurfallegt útsýni þar sem Krossafjall og Kötlufjall blasa við og Þorvaldsdalurinn teygir úr sér á milli þeirra. Ég byrjaði dag- inn á að njóta fegurðar hans og lofa Guö fyrir undur sköpunar hans um leið og ég lagði daginn í hans hendur. Kveðjur ferjumanna um friðsælan dag Klukkan 9 var ég mætt um borð í ferjuna og þáði kaffi hjá ferjumönnunum í stýrishúsinu. í land fylgdu mér hlýjar kveðjur um góðan og friðsælan dag. Síðan ók ég sem leið liggur frá Árskógs- sandi til Möðruvallaklausturs- kirkju og naut þess um leið að horfa á spegilsléttan ijörðinn og tignarleg austurfjöllin skarta sínu fegursta. Þegar til kirkju var komið tók meðhjálparinn Berta Bruvík á móti mér og uppi á kirkjulofti heilsaði ég organistanum, Birgi Helgasyni, og kirkjukórnum sem er karlakór. Þaðan lá leið mín að Mörðruvöllum II þar sem ég og fermingarbörnin skrýddust. Áður en við lögðum af stað til kirkju fórum við með bæn fyrir athöfn- inni og deginum eins og venja er. Athöfnin gekk vel Athöfnin var falleg og gekk vel fyrir sig. Góður sem fyrr var söngur kirkjukórsins. Kirkjugest- ir tóku vel undir sönginn og fermingarbörnin 6 fluttu jáyrði sín og versin skýrt og fallega. Þetta var fallegur og skemmtileg- ur hópur sem hafði staðið sig vel í fermingarfræðslunni og verið dugleg að nema gildi kristinnar trúar. Deilur lagðar til hliðar Allir lögðu sitt af mörkum til að dagurinn gæti orðið sem ánægju- legastur fyrir alla og allar deilur innan prestakallsins lagðar til hlið- ar. Kirkjubekkimir voru þéttsetnir og kirkjugestir komu til að njóta athafnarinnar með þá bæn í brjósti aö hún mætti í alla staði fara frið- samlega fram. Fólk kom með frið í huga til kirkju vitandi að rétt hafi verið að málum staðið og lögunum um „Leysing á sóknarbandi" verið rétt framfylgt. Eftir athöfnina var kirkjugest- um óskað til hamingju með daginn og myndir teknar af hópnum. Á eftir var afskrýðst og gengiö frá í kirkju. Síðan var haldið strax til fermingarveislu á Möðruvöllum. Veisla á Akureyri Næsta fermingarveisla var á Ak- ureyri og áður en ég mætti þangað brá ég mér á vorsýningu Myndlist- arskólans á Akureyri. Þar var m.a. fýrrverandi nábúi minn og einn af þátttakendunum í saumaklúbb- num sem ég er í, Ólafur Sveinsson, að sýna lokaverkefni sitt. Eftir málverkasýninguna tóku fermingarveislumar við hver af annarri, Akureyri, Þelamörk, Hjalteyri og sveitin. Mér var hug- leikin sú innri gleði og hamingja sem skein úr augum fermingar- bamanna, innri og ytri fegurð sem umfaðmaði alla nærstadda. Dagur- inn var auðsjáanlega í alla staði hinn ánægjulegasti fyrir þau og okkur öll. Sofnaði þreytt eftir góðan dag Á heimleiðinni blasti við frá Hagaásnum eitt það fallegasta sól- arlag sem ég hef augum litið, þar sem dimmrauð sólin settist á sjó- inn milli Hríseyjar og Ólafsfjarðar- múla. Ég kom heim á miðnætti og sofnaði stuttu síðar þreytt eftir góðan dag.“ Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir lýsir fyrir okkur 2. í hvítasunnu, deginum sem hún fermdi m.a. í Mööru- vallakirkju. DV-mynd Ásgeir Hall- dórsson Finnur þú fimm breytingar? 412 Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur haná ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti 3.995 kr. Hafiö þér ennþá engan áhuga á aö kaupa bremsuútbúnaöinn hjá mér? Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sjötugustu og sjöundu getraun reyndust vera: Jenný Magnúsdóttir, Ásdís Erla Erlingsdóttir, Blöndubakka 6, Gauksrima 11, 109 Reykjvaík. 800 Selfossi 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 412 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.