Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Síða 27
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
27
Söngskólinn í Reykjavík er í óða-
önn að útskrifa nemendur sína eftir
veturinn. Ungir og efnilegir söngv-
arar luku 8. stiginu í vikunni með
því að halda útskriftartónleika í ís-
lensku óperunni. Náminu er hvergi
nærri lokið. Við tekur framhalds-
menntun annað hvort í kennslu eða
söng, hér á landi sem erlendis.
Að þessu sinni kláruðu 8. stigið
nemendur sem eiga stórsöngvara
fyrir nána ættingja. Nægir að nefna
menn eins og Kristján Jóhannsson,
Garðar Cortes og Magnús Jónsson.
Fyrra kvöldið sungu þau Andrés
Narfi Andrésson, Lovísa Sigfúsdótt-
ir, Davíð Ólafsson og Jóna Fanney
Svavarsdóttir. Sú síðasttalda er
bróðurdóttir Kristjáns, dóttir Sva-
vars Jóhannssonar, bónda í Húna-
þingi. Ekki þarf að fjölyrða um
sönghæfileika þeirrar ættar langt
aftur í öldina, af mörgum nefnd
„Konnarnir". Magnús Jónsson á
Mel er sömuleiðis náskyldur Jónu
Fanney en þess má geta að hann
kenndi við Söngskólann í 20 ár. Þó
ekki frænku sinni efnilegu.
Seinna útskriftarkvöld Söngskól-
ans stigu á svið í Óperunni þau El-
ísabet Hermundardóttir, Þórunn
Elva Stefánsdóttir og systkinin
Garðar Thor og Nanna María
Cortes. Þau síðastnefhdu eru, eins
og nöfhin gefur til kynna, böm
Garðars Cortes söngvara og
Krystynu Cortes, kennara og pianó-
leikara.
DV heyrði hljóðið í stoltum feðr-
um þeirra að tónleikum loknum,
þeim Garðari og Svavari. Afrakstur
þess spjalls kemur hér að neðan.
-bjb
Eg er afskaplega stoltur
segir Svavar Jóhannsson
„Eg var afskaplega stoltur af
henni og fannst hún gera þetta vel.
Sviðsframkoma og söngur komu
mjög vel út. Það er gaman að söng-
urinn virðist ætla að tolla eitthvað
| áfram í fjölskyldunni,"
sagði Svavar Jóhanns-
son um frammistöðu
dóttur sinnar í Óper-
unni á þriðjudags-
kvöldið. Hann tók sér
frí frá bústörfunum í
; Húnaþingi þann dag-
E inn til að vera Jónu
! Fanneyju til halds og
trausts.
Svavar er líkt og
i aðrir „Konnarar" góð-
ur söngmaður, hefur
til margra ára sungið
einsöng með Karlakór
Bólstaðarhlíðar-
hrepps og við ýmis
önnur tækifæri. Til
gamans má geta að
: innan skamms kemur
út ný hljómplata með
kórnum. Þar syngja
þau saman feðginin
og Jóna er einnig með
einsöng. Þau hafa
víða komið fram sam-
an við góðar undir-
tektir.
Það er ekki bara í
fóðurlegg sem Jóna stoltið leynir
virðist hafa fengið
sönghæfileikana í arf því mamman,
Sigurbjörg Þ. Jónsdóttir, er komin
af miklu söngfólki. Þannig þótti
Þóra, amma Sigurbjargar, söngkona
góð og kom m.a. nokkrum sinnum
fram með Páli ísólfssyni á árum
áður.
Svavar segir Jónu Fanneyju hafa
sungiö frá barnæsku en hún er 22 ára
í dag. Strax í leikskóla hafí hún sung-
sér ekki á svip Svavars sem hér er ásamt dóttur sinni að tónleikum loknum í Óperunni.
DV-mynd S
ið hástöfum og varla stoppað siðan!
„Við höfum ekki þuift að halda
henni við efnið. Hún hefur ráðið
ferðinni sjálf en ævinlega fengið
okkar stuðning. Það er ekki afráðið
hvað tekur við hjá
henni. Hún er að
skoða ýmsa mögu-
leika,“ sagði Svavar og
taldi aðspurður ekkert
útilokað að einhvem
tímann færi Jóna
Fanney til söngnáms
erlendis. Hvort „litli
bróðir“ á Ítalíu gæti
ekki hjálpað þar til
sagðist Svavar reikna
með að Kristján hefði
vilja til þess og að-
stöðu ef til hans yrði
leitað.
Svavar og Sigur-
björg eiga tvo yngri
stráka. Hann sagðist
ekki reikna með að sá
eldri yrði söngmaður
en sá yngri, 12 ára,
hefði „ágæt hljóð".
„Hann er stundum
að æra heimilisfólkið
með hávaða. Hann hef-
ur mikla breidd í tón-
listinni, allt frá klassík
til þungarokks, þannig
að kofrnn titrar stund-
um,“ sagði Svavar og
kímdi. -bjb
Tákn heilagrar
þrenningar
Núfáanlfígur sem bindisnœla.
Til styrktar
blindum.
Fœst um aUt land.
Dreifingaraáiti:
BUndrafélagið
SAMTÖK M.INDKA OC SJÓNSKUITItA Á ÍSI.ANM
Hanirahlíd 17, Reykjavík
S. 525-0000
mmsim
Skínandi fögur
tœkifærisgjöf
Smáauglýslngar
Geta bæði orðið söngvarar
- segir Garðar Cortes
„Þetta var yndislegt. Mér fannst
þau standa sig framar vonum. Við
foreldramir emm bæði mjög hreyk-
in,“ sagði Garðar Cortes við DV að
loknum tónleikunum í Ópemnni.
Móðirin er Krystyna Cortes, sem
um langt skeið hefur starfað sem
tónlistarkennari og píanóleikari.
Elsta barnið, Sigrún Cortes, söng
mikið á sínum yngri árum en
starfar í dag sem smíðakennari á
Blönduósi. Tónlistin er því fjöl-
skyldunni í blóð borin.
Garðar sagði námið langt því frá
búið hjá þeim Garðari Thor og
Nönnu Maríu. í rauninni væri það
rétt að byrja. Að hans sögn ætlar
Nanna líklega að fara í framhalds-
nám í Söngskólanum en Garðar
yngri er að spá í nám erlendis.
Aðspurður hvort hanri væri stöð-
ugt að styðja þau og hvetja sagði
Garðar að Krystyna gerði miklu
meira af slíku en hann.
„Hún hvetur þau daglega og ég
reyni eftir bestu getu að gera það
líka meðfram mínu starfi. Við sjá-
um að þau búa yfir hæfileikum.
Spumingin er bara hvemig þau
vinna úr þeim og hvort þau sjálf
vildu stefna hærra. Þau eru bæði
full af áhuga þannig að við hvetjum
þau til að halda áfram. Þau geta
bæði orðið söngvarar," sagði Garð-
ar en Nanna María er messósópran
og Garðar Thor tenór líkt og pabb-
inn.
Um það hvort sönghæfileikar
erfðust sagðist Garðar ekki getað
neitað því að rödd sonarins minnti
Garðar Thor og Nanna María ásamt föður sínum að útskriftartónleikum lokn-
um í Óperunni sl. miðvikudagskvöld. DV-mynd S
1
Framleiðum brettakanta.
sólskyggni og boddíhluti
á flestar gerðir jeppa,
einnig boddíhluti á
vörubíla og van—bíla.
Sérsmíði og viðgerðir.
Æ (D
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740