Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Page 33
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 íþróttir íslenski landsliðshópurinn í handknattleik,sem staddur er í Kumamoto í Japan. Slagurinn er strangur en vel hefur gengið hingað til. Ljóst er að islendingar komast í 16 liða úrslit á mótinu og mæta þar að öllum líkindum liði Norðmanna. Einnig er möguleiki á að ítalir verði andstæðingar okkar. Það þykir mönnum verri kostur enda vitum við mun minna um ítali en Norðmenn. DV-mynd ÆMK íslenski landsliðshópurinn á HM í Kumamoto: - unriir öruggri forystu Þorbjörns og Geirs BOSCH Handverkfæri GWS 21-180 J Slípirokkur 2100w 45.591,- GBM Borvé 1050w GWS 9-125 Slípirokkur 900w GFZ16-35 AC Trésverðsög __ Lofthöggborvél | GSR 12 VES-2 ' Borvél í tösku með hleðslutæki BOSC umboðiö aðkeyrsla frá Háaleitisbraut R Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820 Frammistaða íslenska landsliðs- ins í handknattleik á HM í Kumamoto í Japan er á góðri leið með að verða betri en bjartsýnir menn þorðu að vona fyrir keppnina. Þegar þetta er skrifað er leikur- inn við Litháen að skella á og menn vonandi að lenda eftir sigurgleðina í kjölfar leiksins við Júgóslavíu. Að baki eru sem sagt þrír leikir ís- lenska liðsins og okkar menn í efsta sæti riðilsins. Islenska liðið stóðst prófið gegn Japan í opnunarleiknum sl. laugar- dag. Það er mjög erfitt að leika opnunarleik á stórmóti sem HM og ávallt erfitt að mæta gestgjöfum sem gjarnan hafa á sínu bandi fullt stórhýsi af stuðningsmönnum. Jafnteflið ásættanlegt þegar á allt er litið Vitað var að leikurinn gegn Alsír yrði erfiður. Lið Alsírbúa leikur ekki hefðbundinn handknattleik og margar þekktar handknattleiksþjóð- ir hafa magalent gegn þessu sterka liði. Ég segi ekki skemmtilega liði vegna þess að leikur liðsins er einfaldlega ekki skemmtilegur. Hins vegar skilar undarlegur vamarleikur liðsins oft árangri og nú ber svo við að Alsír hefur eign- ast skyttur í fremstu röð. Þessu fengu okkar menn að kynnast og niðurstaðan varð jafiitefli. Ásættan- leg niðurstaða þegar á allt er litið. Einstakt næði og væntingar í lágmarki Það er óþarfi að hafa mörg orð um leik okkar manna gegn Júgóslavíu. Betri handknattleik er vart hægt að sýna. Sannkallaður toppleikur hvar sem á hann er litið. Þessi úrslit komu mörgum á óvart. Einhverra hluta vegna hafa vænt- ingar verið i hófi fyrir HM að þessu sinni. Fjölmiðlar hafa farið rólega í sakirnar og leikmenn landsliðsins og þjálfari hafa getað unnið að und- irbúningi liðsins fyrir keppnina í einstöku næði. Betri en Danaleikurinn í Sviss 1986 Sigur íslands á Júgóslavíu, þess- ari miklu handboltaþjóð, er sá stærsti frá upphafi. Leikurinn í heild er sá besti sem íslenskt lands- lið hefur leikið í fjölmörg ár og líklega besti landsleikur okkar í handbolta frá upphafi. Eftir að hafa skoðað leikinn í þrígang er það mín niðurstaða. Ég sá leikinn gegn Dönum á HM 1986 í Sviss og hélt að þess yrði langt að bíða að landslið okkar gæti sýnt betri leik. Það gerð- ist hins vegar gegn Júgóslavíu svo að um munaði. Fram undan eru hins vegar erfið- ir leikir. Litháen hefur sterku liði á að skipa, betra liði en margir reikna með. Leikurinn gegn Sádi-Arabíu á hins vegar að skila tveimur stigum í hús. Allt annað er stórt slys. Á meðal þeirra bestu og verða það áfram í handboltanum erum við á með- al þeirra allra bestu og höfum verið það lengi. Því er ekki að heilsa í öðrum boltagreinum. Allt of snemmt er aö spá fyrir um endanlega útkomu Islands á HM en sem stendur virðast möguleikamir fleiri og betri en oft áður. Eftir sig- urinn gegn Júgóslavíu jókst áhug- inn á HM í Japan til muna. Nú er svo komið að allt er að verða vit- laust hér á landi og hámarki nær áhuginn væntanlega næsta þriðju- dag er ísland leikur í 16-liða úrslit- unum, vonandi gegn Noregi. Það er ekki skrýtið að almenning- ur hér á landi skuli vakna um miðj- ar nætur til að fylgjast með leik ís- lenska liðsins. I gegnum tíðina hafa landslið okkar í handbolta náð slík- um árangri að auðvelt hefur verið að hrífast meö og vakna fyrir allar aldir. Þá er ekki spurt að því hve margar þjóðir heimsins stundi íþróttina. Spurt er um árangur gegn liðum annarra þjóða á stórmótum. Þar standa handboltamenn okkar framar öllum öðrum sem henda eða sparka bolta hér á landi. Landsliöshópurinn, sem nú stend- ur í ströngu í Japan, er vel skipað- ur, ekki bara frá handboltanum séð heldur eru í hópnum íþróttamenn sem eru til fyrirmyndar í alla staði. Fyrir hópnum fer þjáifari sem að mörgu leyti er einstakur „karakt- er“. Þorbjöm Jensson er sigursæll þjálfari. Hann er jarðbundinn í öll- um yfirlýsingum sínum, hefur yfir að ráða ótrúlega mikilli þekkingu á íþróttinni og sigurviljinn er slíkur að víða myndi það hálfa nægja. Þorbjörn er, hvemig sem allt fer í Japan, frábær þjálfari og ekki und- arlegt að forysta HSÍ vildi fá nafn hans undir nýjan samning áður en haldið var til Kumamoto. Til fyrirmyndar eins og venjulega Fyrirliði liðsins, Geir Sveinsson, hefur þegar skipað sér á bekk með- al fremstu íþróttamanna sem við höfum átt. Landsleikimir eru orðn- ir á fjórða hundrað sem er eins- dæmi í íslenskri íþróttasögu. Geir er vel til forystu fallinn. I heild er landsliðshópurinn æsku landsins og íþróttamönnum framtíðarinnar til fyrirmyndar. Þetta er og hefur ver- ið einstakur hópur sem hefur borið hróður íslands um nær alla heims- byggðina. -SK Söluaðilar: Málningarþjonustan, Akranesi (Handverkfæri). GH verkstæðið Borgarnesi (Bílavara- hlutirog fl). Póllinn, isafirði (Handverkfæri). KEA, Akureyri (Handverkfæri og fl). Þórshamar, Akureyri (Bílavarahlutir og fl). KÞ Húsavík (Handverkfæri og bílavarahlutir). Víkingur, Egilsstöðum (Handverkfæri, bílavarahlutir og (hlutir).Vélsmiðja Hornafjarðar, Hornafirði (Handverkfæri, bílavarahlutir og fl). Byggingavörur Steinars Árnasonar hf., Selfossi (Handverkfæri). Nýtt farartæki fyrir kr. 96.900.- stgr. í vinnuna allð vikuna fyrir 200.- kr. í bensín (20 km á dag) VISA og Euro raðgreiðslur VÍL4UÓL OC ilíOflJí Stórhöföa 16 • sími: 587 1135 Hönnun: Gunny Steinþórsson / BOSCH / 06. 96-001 b

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.