Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1997, Blaðsíða 50
58 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 Jt^"V kvikmyndir Regnboginn - Öskrið: Wes öskrar á hryllmgsmyndaiðnaðinn svo hann hrekkur upp af þymirósarsvefhi. Scream er ein alflottasta og skemmti- legasta hryllingsmynd sem komið hefur fram lengi og sýnir vel þá möguleika sem búa í hrolivekjunni. Craven tekur upp þráðinn frá lokainnlegginu til „Nightmare on Elmstreet“ seríunnar, sem hann átti upphafiö að, og gengur hér enn lengra í því að spila á sjálfsmeðvitund hrollvekjunnar. Sagan er kunnugleg, samansett úr plottum fjölda vel- þekktra mynda svo sem „Halloween", „Friday the 13th“ og „When a Stranger Caills“ auk „Nightmare on Elm- street“ sjálfrar (hér er meira að segja Johnny Depp klóni (Skeet Urich)!) og segir frá ungri stúlku (Neve Campbell) í smábæ sem er ofsótt af sálsjúkum morðingja. Milli þess sem hann hreflir stúlkuna slægir hann önnur fómarlömb, líkt og formið krefst. En Cra- ven býður ekki upp á neina einfalda parodíu á gamalkunnugar breflur. Hann sýnir full- komna þekkingu og næmi á hrollvekjuna og tekst að skapa úr þessum kunnuglegu for- múlum hressandi og hrellandi hryllingsmynd. Húmorinn og hryllingurinn spila saman en ekki hvor gegn öðrum, líkt og í frábærri senu þegar öskureiður skólastjóri sveiflar skærum framan í skelfda nemendur. Craven leikur sér með umræður um þátt fjölmiðla í ofbeldi, en líkt og í formúluleiknum býður hann ekki upp á neinar einfaldar lausnir, og hefur hvorki þörf fyrir að hreinsa sjálfan sig af áburði né skapa blóraböggla. Þó mætti fufltrúinn fyrir fjölmiðlar-geta-líka-verið-góðir (Courteney Cox) verið meira sannfærandi og einnig fannst mér hinum frábæra handritshöfundi Kevin Williamson fatast flugið í þunglamalegum lífið-er-allt-ein-kvikmynd athugasemdum sem yfirþyrma seinni hlutann. Það hefði líka verið gaman að fá fastari tök á formúluklofbragðinu undir lokin, en þegar allt kemur til alls eru þetta smáatriði sem koma ekki í veg fyrir að þessi mynd hleypi nýju blóði í kvikmyndategund sem margir höfðu spáð ótímabærum dauða. Leikstjóri: Wes Craven. Handrit: Kevin Wiiiiamson. Kvikmyndataka: Mark Irwin. Tónlist: Marco Beltrami. Aðallleikarar: David Arquette, Neve Campbell, Courtney Cox og Drew Barrymore. Úlfhildur Dagsdóttir Háskólabíó/Bíóhöllin - Dante s Peak: Úr öskunni í eldinn Ef ykkur þykir titillinn minn frumlegur mun myndin koma ykkur á óvart. Ég er á þeirri skoðun að hann sé jafn klisjukenndur og Dante’s Peak. Þar reyna eldfiáfla- fræðingurinn Harry Dalton (Pierce Brosnan) og bæjar- stjórinn Rachel Wando (Linda Hamilton) að koma starfsbræðrum sínum í skilning um að tölvuteiknaða fiallið í bakgrunni bæjarins sé í þann mund aö gjósa. Ráðamenn draga að lýsa yfir neyðarástandi og engin furða. Það kallast kapítalísk krísa þegar hagvöxtur og almannaheill fara ekki saman. Dante’s Peak er úr flokki stórslysamynda en þær voru vinsælar á miðjum áttunda áratugnum. Almenningur fékk þó fljótlega nóg og þegar Sankti Helena gaus 1980 þótti framleiðendum í Hollywood lítil peningalykt af gosinu. Nú er öldin önnur. í Volcano, sem nýbúið er að frumsýna i Bandaríkjunum, gýs miðborg Los Angeles og söguþráðurinn 1 sjónvarpsmyndinni Volcano: Fire on the Mountain er sá sami og í Dante’s Peak. Dalton er piparsveinn með fortíð og eignast fiölskyldu undir eldfialli. Hann er bráðgáfað- ur, fiaflmyndarlegur og skiptir ekki skapi. Hann sýnir yfirmanni sínum jafiiaðargeð og fyrirgefur ömmu Wando þótt hún neiti að koma niður úr fiallinu sínu. Jafnvel hundur- inn Rufify (Voffi á íslensku) er umborinn þótt hann hlaupi burt á örlagastundu. Áhorf- endur gætu talið ömmu og voffa beitt harðræði af hálfu handritshöfunda. Slíkt ber þó vott um óþarfa kaldhæðni. í Dante’s Peak rignir eldi og eimyiju. Hús hrynja í öflugum skjálftakippum og síðasta brúin út úr bænum er rifin burt af flóðöldu. Á flóttanum aka aðalhetjumar á jeppa yfir bráðið hraun og hápunkti er náð þegar þau fara á kænu yfir vatn sem eldgosið hefur breytt í sýru. Á meðan sýran étur sig smám saman í gegnum botninn á bátnum syngja þau bandarísku útgáfúna af Kátir voru karlar i máttvana tilraun til að halda geðheilsu. Þetta er ágætis afþreying með glæsilegum brellum. Uppbyggingin er hæg sem kemur ekki að sök en myndin dettur þó niður í lokin. Eftir að hafa séð Dante’s Peak gerir maö- ur sér grein fyrir því hvers konar prump íslensk eldgos eru. Hraunkvikan silast áfram og nóg er að sprauta á hana vatni eins og Vestmannaeyingar gerðu. Slík eldfiöll eru ekki útlendingum bjóðandi. Leikstjóri: Roger Donaldson. Aðalleikarar: Pierce Brosnan, Linda Hamilton, Jamie Renée Smith, Jeremy Foley og Charles Hallahan. Guðni Elísson Sambíóin - Private Parts Misskilningur? Ég vara ykkur við, kæru lesendur: mjög líklega hef ég misskiliö þessa mynd. Þetta hef ég beint frá Howard, sem byrjar og endar mynd sína á því að kvarta yfir að hann hafi alltaf verið misskilinn (og kemur þannig snyrtilega í veg tyrir alla neikvæða gagnrýni; hún er byggð á mis- skilningi). Enda get ég alls ekki skilið hvað þessi sér- bandaríska kvikmynd um alameríska útvarpsstjömu er að gera utan landamæra USA. Howard Stem er útvarps- maður sem byggir frægð sína á þvi að láta allt flakka hlustendum sínum til óbærilegrar hneykslunar. Hvað eftir annað er hamrað á því að hann hafi eitthvað mikilvægt fram að færa um bandarískt þjóðfélag og menningu en ef svo er þá hef ég misskilið það allt saman því ég fann ekkert. Skilaboðin virtust fyrst og fremst birtast í brjóstaberum konum og brandaramir í kringum þær vora jafhleiðigjam- ir og þeir era lítið hneykslandi. Myndin fellur í fríðan flokk amerískra kvikmynda sem upphefia andlega fötlun sem merki um sakleysi og snifli. Kona Sterns vinnur með andlega vanhefla og fellur Stem vel í þann flokk, enda virðist hún umbera hann fyrst og fremst sem slíkan. En fyrir utan sjálft innihaldið tekst handritshöfundunum Len Blum og Michael Kalesniko og leikstjóra Betty Thomas að skapa dálitið skemmtilegan ramma þar sem sjálfsævisaga Stems er sett upp sem hálfgert heimavídeó, með tilheyrandi samrana persóna og leikenda, en þama leika flestir sjálfa sig. Út á þetta og eins og einar tvær til þrjár sniðugar senur (splatter- mynd Stems ffá háskólaáranum var frábær, útvarpsfullnægingin fyndin og leðurklædda- veður-dómínatrixan æðisleg) úthluta ég Howard Stem einni stjörnu. En það, eins og ann- að, er sjálfsagt á misskilningi byggt. Leikstjóri: Betty Thomas. Handrit: Len Blum og Michael Kalesniko. Kvikmyndtaka: Walt Lloyd. Aöalleikarar: Howard Stern, Robin Quivers og Mary McCormack. Úlfhildur Dagsdóttil’ irk k k k l yrfriCK an. Presturinn kemur og gefur þau saman en þá hættir Wally við að gefast upp og lætur umsátr- ið halda áfram í sex daga í viðbót með ýmsum skondnum uppákomum. Með hveijum deginum verða það fleiri sem snúast á band með honum og brátt er farið að tala um hann sem alþýðu- hetju. Þekktir ástralskir leikarar eru í aðalhlutverk- um: Colin Friels, sem leikur Wally, er talinn meðal bestu leikara í Ástralíu í dag. Hann er kvæntur Judy Davis og hafa þau leikið saman í nokkrum kvikmyndum, meðal annars Hood- wink, Kangeroo og High Tide. Hann hlaut ástr- alska „óskarinn" árið 1986 fyrir leik sinn í Malcolm sem leikstýrt var af Nadia Tass, leik- stjóra Umsátursins. Friels hefur einnig leikið í Bandaríkjunum og meðal mynda sem hann hefur leikið í þar era Class Action, A Good Man in Africa og Eve of Destraction. Jacqueline Mac- Kenzie, sem leikur Beryl, eiginkonu Wallys, er ekki síður þekkt í Ástralíu og hefur leikið í mörgum verð- launamynd- og Þær fáu kvikmyndir sem hingað berast frá Ástralíu hafa nær undantekningarlaust verið gæðakvikmyndir. Háskólabíó hefur nú hafið sýningar á nýrri ástralskri kvikmynd, Umsátr- inu (Mr. Reliable), þar sem era raktir ótrúlegir atburðir sem gerðust í raunveruleikanum þegar smákrimminn Wally Mellish varð frægur i Ástr- alíu og víðar þegar haft var umsátm- i átta daga um hús sem hann var í ásamt unnustu sinni rétt fyrir utan Sidney. Lögreglan hafði komið til að spyrja hann og handtaka jafnvel fyrir smá- brot. Wally tekur upp á því að fara að skjóta skotum út um einn glugganna og þar með er kominn upp sá orðrúmur að hann sé hættulegur glæpamaður og sér- sveitir lögreglunnar og mikill liðsafli kemur að húsinu. Wally til imdrunar hagar lög- reglan sér eins og meiri hátt- ar skærahemaður sé í gangi. Þegar Wafly hefur fengið leiða á leiknum segist hann munu gefast upp ef hann fái prest til sín til að gefa Fjölskyldan sem umsátriö mikla var um, Colin Friels og Jacqueline MacKenzie í hlutverkum sínum. Stjömubíó hefur hafið sýningar á Blóð og vín (Blood and Wine), þar sem þeir Bob Rafelson og Jack Nicholson taka höndum saman enn eina ferðina, en fyrsta kvikmyndin sem þeir gerðu saman var Five Easy Pieces, sem gerð var árið 1970. í Blóð og vín leikur Nicholson vínkaup- manninn Alex Gates, sem lifir lífi hinna nýríku, rekur ábatasamt fyrirtæki, á aðlaðandi eigin- konu, kynþokkafulla hjákonu, ekur um á rauðum BMW og er sjálfúr með dýran smekk á víni. En ekki er aflt sem sýnist, hann hefur reist sér hurðarás um öxl, fyrirtækið er illa statt fjárhagslega, hjóna- bandið er í rúst og sam- band hans við stjúpsoninn er afar stirt svo ekki sé meira sagt. Hann hefur því ákveðið í samráði við spilafélaga sinn að stela mifljón dollara hálsmeni og á þessi þjófnaður að hjálpa hon- um til að halda áfram að lifa því lifi sem hann hef- ur lifað hingað til. I stað þess að svo verði er þjófn- aðurinn byijuninn á endin- um fyrir Alex Gates. Fritt lið leikara er mótleikarar Nicholsons. Judy Davis leikur eiginkonu hans, nýstimið Jenni fer Lopez leikur ástkonu hans, Stephen Dorf leikur stjúpson- inn og Michael Caine leik- ur spilafélagann. Bob Rafelson hefur átt mis- jöfiiu gengi að fagna á þeim tæpum þremur árar- tugum sem hann hefur starfað í kvikmynda- bransanum. Hann gerði sína bestu kvikmynd, Five Easy Pieces, snemma á sínum starfsferli, klassíska kvikmynd sem hann hefur átt í erfið- leikum með að fylgja eftir. Rafelson fylgdi Five Easy Pieces eftir með ágætri mynd, The King of Marvin Gardens, þar sem Jack Nicholson lék að- alhlutverkið. Næstu myndar hans, Stay Hungry, er eingöngu minnst fyrir það að þar stigu sín fyrstu skref í kvikmynd- um Sally Field og Arnold Schwarzenegger. Hann náði sér aftur á strik í The Postman always Rings Twice og aftur var það Jack Nicholson sem lék aðalhlutverkið, nú á móti Jessicu Lange, sem í þessari kvikmynd skaust upp á stjörnuhimininn. Af síðar myndum Rafelsons er vert að minnast saka- *•> málamyndarinnar Black Widow, þar sem þær Debra Winger og Theresa Russell fara á kostum, og Mountains of the Moon, sem fiallaði um leitina að uppruna Nílar. Jack Nicholson leikur vínkaupmanninn Alex Gates sem er meö allt niðrum sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.