Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Side 4
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 4 (fréttir Sölusamtök íslenskra hrossabænda á barmi gjaldþrots: Milljona abyrgð- ir yfirvofandi - kanadískur kaupandi brást - allt að þriggja milljóna ábyrgð einstaklings Sölusamtök íslenskra hrossabænda eru á barmi gjaldþrots vegna viðskipta sinna við kanadískan aðila, Amold Faber. Sá hefur lítið sem ekkert greitt vegna kaupa á íslenskum hestum þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir félagsins til innheimtu. Gjaldfallin skuld hins kanadíska aðila er um 15 milljónir króna þegar allt er talið. Faber mxm hafa haft himinháar hugmyndir um að selja Vestm--íslendingum hross. Hann boðaði islensk- um hrossabændum í upphafi að hann gæti selt allt að 500 hesta á mánuði án þess að blása úr nös. Faber kom vel fyrir og virtist eiga mikiö af peningum og ávann sér þannig traust hinna íslensku aðila. Þetta reyndist tálsýn ein og nú er komið í óefni há Sölusamtökum íslenskra hrossabænda. Verði félagið gjaldþrota munu ábyrgðir falla á einstaka hrossabænd- ur sem skrifað hafa upp á víxla sem ábyrgðarmenn vegna þessara viðskiota. Samkvæmt heimildum DV eru allt að 20 milljónir króna í uppnámi vegna þessa. Óvissa um örlög Halldór Gunnarsson í Holti tók við framkvæmdastjóm í félaginu, sem áður seldi undir merkjum EDDA-hesta, um síðustu áramót. Hann segist hafa tekið að sér fram- kvæmdastjómina í því skyni að reyna að lenda því án þess að til gjaldþrots kæmi. Hann sagði í sam- tali við DV að ástandiö væri mjög alvarlegt og ekki væri séð hver ör- lög félagsins yrðu. Á aöalfundi, sem haldinn var þann 19. desember sl„ gerði Halldór grein fyrir vandanum. Þar kom fram að tapiö árið 1996 nam 4,5 milljónum króna. Þá er yf- irdráttur í Landsbankanum löngu útrunninn en hann nemur rúmum 4 miUjónum króna. Loks era löngu fallnir víxlar. Halldór segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda fari félagið í gjaldþrot. EDDA-hestar vora stórtækir í hrossaútflutningi til Þýskalands og félagið stóð f miklum blóma. Síðar hóf fyrirtækið útflutning til Kanada og það var upphaflð að endalokunum. Kandíski aðilinn borgaði ekki og nú stefnir í gjaldþrot Sölusamtaka íslenskra hrossabænda. Þessl mynd er fró árinu 1996 þegar með seinustu hrossunum vora send til Kanada. Svo er að sjá sem hestunum hafi lítt hugnast það ferðalag sem fyrir höndum var og hefur nú valdið eigend- um þeirra efnahagstjóni. DV-myndir Ægir Már Hryllilegt mál „Þetta er hryllilegt mál ef illa fer. Þaö era bændur um allt land með óskaplegar baktryggingar vegna fé- lagsins. Þeir munu tapa stórapp- hæðum fari félagiö í gjaldþrot. Það er dæmi um aö einstaklingur sé í ábyrgðum fyrir þremur milljónum króna,“ segir Halldór. Hann segir að ekki sé við fyrri framkvæmdastjóra félagsins að sak- ast að svo illa er komið. Málið snú- ist einfaldlega um vanefndir Amold Faber. „Greiðsluerfiðleikamir era fyrst og fremst tengdir því að fyrir þrem- ur til fjóram áram var stærstum hluta viöskipta okkar beint til Kanada í stað Þýskalands áður. Þar var fyrst og fremst skipt við Amold Faber. Skuld hans nam um síðustu áramót 15 milljónum króna," segir hann. „Það var gerður við hann greiðslusamningur sem gaf mögu- leika á því að hægt væri að hætta starfsemi og greiöa á nokkrum áram út til þeirra sem áttu kvaðir á félag- ið. Verkefni mitt í stöðunni er að innheimta þennan samning og enda þetta. Vandamálið er að Amold hef- ur ekki staðið við samninginn og greiddi aöeins fyrstu afborgunina og síðan ekki söguna meir. Við eigum möguleika á að ganga aö honum ytra en það er ekki einfalt að ganga að jörð og hestum og fara að reka þann búskap í Kanada," segir Hall- dór. Mikil velta var hjá EDDA-hestum á gullaldarárum fyrirtækisins en um síöustu áramót var komið í óefni hjá félaginu. Félag íslenskra hrossabænda starfar undir sömu kennitölu og EDDA-hestar áður. Nafhið EDDA- hestar hefúr verið leigt öörum aðila og það félag starfar nú undir annarri kennitölu. Ekki tókst að ljúka aðalfundinum þann 19. desember og verður fram- haldsaðalfundur um miðjan janúar nk. þar sem enn verður reynt að finna leið til bjargar. -rt Forseti íslands: Veitir nýsköpunarverðlaun Þann 8. janúar næstkomandi verða nýsköpunarverðlaun forseta íslands afhent í þriðja sinn. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun afhenda þau við hátíðlega at- höfn að Bessastöðum. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi vinnu nemenda og nýsköpunargildi verk- efnis. Sérstök dómnefnd, skipuð full- trúum frá menntamálaráðuneyti, Reykjavíkurborg, Samtökum iðnað- arins og Rannsóknarráöi íslands, hefúr nú tilnefnt sex verkefni til Ný- sköpunarverðlauna forseta íslands. Verkefnin era: Samþætting heim- speki og eðlisfræði í elstu bekkjum grunnskóla,; Brynhildúr Sigurðar- dóttir; Hvemig eru biðlistar í heil- brigðisþjónustunni uppbyggðir?, Aöalheiður Sigursveinsdóttir; Menningararfúrinn í nútímanum, Andri Snær Magnason og Sverrir Jakobsson; Fáfnir, hugbúnaður fyr- ir flokkun hráefnis í fiskvinnslu, Gísli Reynisson og Hálfdán Guðni Gunnarsson; Prófun á efnum úr ís- lenskum fléttum, með tilliti til verk- unar á krabbameinsfrumur og bólguviðbrögð, Gunnar Már Zoéga; Rannsóknir á líffræðilega virkum efnum í sjávargróðri og öðra sjávar- fangi, Hans T. Bjömsson. Mathiesen fúll Þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins af landsbyggðinni era ekki kátir yfir því að Sólveig Péturs- dóttir kunni að koma inn í rík- isstjórnina í stað Þorsteins Pálsson- ar. Þeir telja nauð- synlegt að næsti maöur á eftir Geir H. Haarde verði úr þeirra hópi. Árni M. Mathiesen er einna fremstur í goggunarröö- inni. Konurnar í flokknum sætta sig hins vegar ekki við að gengið verði fram hjá þeim lengur. Til aö Sólveig teppi ekki ráðherrasæti til ffarn- búðar hafa því Mathiesenamfr afráðið að berjast gegn því að skipt verði út fleiri en einum að þessu sinni... Jólakveðja D-listans Mmnihlutafúlltrúar D-listans í ísafjarðarbæ sendu jólakveðju sína til íbúa í málgagni flokks- ins, Vesturlandi. Það vekur nokkra athygli aö undir jóla- kveðjuna rita aöeins þrír sjálf- stæöismenn en þeir era þó fimm í bæjar- stjóminni. Þau Magnea Guð- mundsdóttir, Þorsteinn Jóhannesson og Hall- dór Jónsson skrifa öll undir þar sem lögö er áhersla á að þar fari fulltrúar Sjálfstæöisflokks- ins af D-lista. Þá er í jólakveöj- unni talað um „hörmungar" sem Vestfirðingar hafi gengiö í gegnum á síðustu vikum. Þeir sem ekki er skráðir undir jóla- kveðjuna eru Jónas Ólafsson og Kolbrún Halldórsdóttir sem sifja nú í nýjum mefri- hluta. Samkvæmt þessu er búið að reka þau úr flokknum. Þaö mun nokkuö mörgum Vestfirð- ingum hafa bragðiö illa við jóla- boöskapinn ... Vinsæll leikhússtjóri Núverandi þjóðleikhússtjóri, Stefán Baldursson, þykir hafa staöið sig frábærlega og gott gengi leikhússins á sföustu árum er fyrst og ffernst þakkað honum. Sam- kvæmt gildandi lögum getur þjóðleikhússtjóri aöeins setið tvö fimm ára ráðn- ingartímabil og nú hallar í það síðara hjá Stef- áni. Margir kvíða þvi hins vegar að sjá á bak Stefáni. Nú hefur Bjöm Bjamason menntamálaráðherra lagt fram framvarp aö nýjum leiklistar- lögum þar sem lagt er til aö hægt sé að endurráða leikhús- stjóra eins oft og þurfa þykir. Talið er aö þetta sé fyrst og ffemst til að halda í frábæra starfskrafta Stefáns... Björkí jólafríi Björk er heima um þessa jólahátíð aö vanda. Hún var stödd á ónefridum veitingastað skömmu fyrir jól og fylgdi henni hirð vina og vandamanna. Hvert sæti var skipað en síðan tæmdist staöur- inn nánast á svipstundu. Ástæðan var sú að drottn- ing poppsins stóð upp o sagði að hana langaöi ffekar á annan ótilgreindan stað. Það var eins og við manninn mælt að skarinn stóð upp og fylgdi kalli drottningar sinnar... 8 . MmmmmmmmmmmammmmmmmBmamm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.