Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 Mannskaðaveður á írlandi, Wales og Englandi á jóladag: Sex fórust og fimm skipveria saknað Sex manns létu lífið í miklu óveðri sem gekk yfir írland, Wales og norðvesturhluta Englands á jóla- dag. Þá er fimm skipverja af frönsk- um togara, sem fórst í hafinu undan ströndum Suður-Wales, enn saknað. Brak fannst í hafinu en leit að mönnunum hafði engan árangur borið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Veður var afar slæmt á leitar- svæðinu á jóladag, öldur á hæð við há hús og mikill vindhraði. Varð að fresta leit í fyrrinótt en í gærmorg- un var haldið áfram. Vind hafði þá lægt eilitiö en þó var mjög hvasst. Meðal fómarlamba á landi vom maður, dóttir hans og tengdasonur sem fórast þegar tré féll á bíl sem þau vora í. Þá lést kona i bílslysi af völdum veðursins á hinni víðfrægu götu Penny Lane í Liverpool. Önnur fómarlömb létust einnig í bílslysum sem mátti rekja til óveðursins. Um 100 þúsund heimili á svæð- inu voru án rafmagns yfir hátíðarnar þar sem línumöstur hrundu og raflínur fóra í sundur. Urðu þúsundir fjölskyldna af hinum hefðbundna jólamat á þessum slóð- um, steiktum kalkún. Þá fuku þak- plötur eins og haustlauf um allt og ollu veralegu tjóni. Starfsmenn rafveitna unnu í gær hörðum höndum við að koma raf- magni á aftur en áttu sums staðar í vök að verjast vegna veðurs. Veður hafði þó víða lægt á Englandi í gær. Reuter Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Woody Allen, 62 ára, er hér á göngu í Feneyjum á aöfangadag ásamt eiginkonu sinni, Soon-Yi Previn, 27 ára. Pau giftu sig við borgaralega athöfn í Feneyjum á Þorláksmessu. Símamynd Reuter Woody Allen og Soon-Yi Previn giftu sig á Þorláksmessu: Eru yfir sig hamingju- söm og ástfangin „Viö erum yfir okkur hamingju- söm,“ sagði bandaríski leikstjórinn Woody Allen þar sem hann spásser- aði á götu í París í gær með nýrri eiginkonu sinni, hinni 27 ára gömlu Soon-Yi Previn. Allen og Soon-Yi voru gefin saman við borgaralega athöfn í Feneyjum á Þorláksmessu. Þau dvöldu þar fram á aðfangadag en héldu þá í brúðkaupsferð til Par- ísar. Þau dvelja á Ritz-hótelinu þar sem Díana prinsessa og Dodi Al- fayed nutu siðustu máltíðar sinnar. AÍlen lét ekkert uppi um hve lengi hann og Soon-Yi myndu dvelja i borg ljósanna. Soon-Yi er fyrrum fósturdóttir Allens og leikkonunnar Miu Far- row. Mia hafði þegar ættleitt Soon- Yi þegar hún og Allen giftu sig forð- um en hjónabandið sprakk með miklum látum þegar Miafann nekt- armyndir af Soon-Yi í fórum Allens. Allen og Soon-Yi höfðu þá fellt hugi saman, hún 21 árs og hann 56 ára. Ástarsambandið vakti mikla athygli og ekki síður skilnaðarmálið sem fylgdi í kjölfarið. Þar deildu þau Mia og Allen um forræði yfir synin- um Satchel og tveimur fósturböm- um sem þau ættleiddu saman, Moses og Dylan. Mia sakaði reynd- ar Allen um að hafa misnotað Dylan kynferðislega en hann var sýknaður af öllum slíkum ásökunum fyrir rétti. Reuter Jeltsín óánægður með árangurinn í efnahagsmálum: Lífsskilyrði milljóna Rússa hafa ekkert batnað á árinu ; stuttar fréttir Fögnuðu Verðbréfamiðlarar í Suður- Kóreu fognuðu því mjög að ílýta ' ætti láni ffá Alþjóða gjaldeyris- ; sjóðnum. Hittast á ný Yasser Arafat, forseti Palestínu, og Benjamín Netanyahu, for- sætisráðherra ísraels, munu hittast til við- ræðna í Washing- ton eftir áramót. Arafat hefur undirbúið áætlun um að koma 1 friðarferlinu í gang á ný. Hörð atlaga Stjórnarhermenn gerðu harða atlögu að fylgismönnum Rana- riddhs, fyrrum varaforsætis- j ráðherra Kambódíu. Nýnasistar Þýska vamarmálaráðuneytiö j svaraði gagnrýni um linkind gagnvart nýnasistum innan hersins, sagði að tekin hefðu verið ákveðin skref til að halda nýnasistum í skefjum. Drápu Kúrda Talsmenn öryggissveita í Tyrklandi sögöu herinn hafa drepið um 6 þúsund Kúrda í átökum á þessu ári. Vill stöðugleika Jiang Zemin, forseti Kína, hefur skipað lögreglu að tryggja fé- lagslegan stöðug- leika. Hann óttast óróleika á vinnu- markaði þegar efnahagsumbætur fara að skila sér í uppsögnum á ; næsta ári. Höfuðið af Maöur var hálshöggvinn í Sádi-Arabíu fyrir morð. Hafa 123 verið hálshöggnir þar syðra á i þessu ári. Hungurverkfall Kenneth Kunda, fymum forseti | Zambíu, er í hungurverkfalli eftir að hafa verið handtekinn án sýnilegrar ástæöu. Betra ár Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, spáir því að næsta ár verði mun betra í þýsku efnahagslífi en árið sem er að líða. Spáir hann því að atvinnulausum ! muni fækka umtalsvert. Heitur jóladagur Heitir vindar ollu því aö í Belgíu mældist mesti hiti á jóladag frá því mælingar hófust. ! Náði hitinn að fara í 13,6 gráður á celsíus. Svartsýnir En þrátt fyrir heitan jóladag era Belgar svartsýnir á fram- tíðina. Samkvæmt könnun óttast meirihluti Belga að verða at- vinnulaus í nánustu framtíö. Fuglaflensan Tvö ungböm í Hong Kong hafa smitast af fuglaflensunni sem þegar hefur dregið þrjá til dauða. Óttast er aö fuglaflensan verði að faraldri um allan heim. Bóluefni verður ekki komið á markað fyrr I en eftir hálft ár. Ekkert Ijós Ekkert hefur enn komið fram sem varpað getur ljósi á orsök Sflugslyssins í Indónesíu í síðustu viku. Ákærður ísraelar hafa ákært 26 ára Þjóðverja, sem tekið hefur j íslamska trú, fyrir aöild að Ífyrirhuguðu sjálfsmorðstilræði. Reuter líss^MMBnMMMMMMMMMMMMNHNMWMKKMMN Boris Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í sjónvarpsávarpi að á árinu sem er að líða hefðu lífsskilyrði milljóna Rússa ekkert batnað og gaf í skyn að hrókeringar í ríkisstjórn- inni væru mögulegar á næstunni. „Það er ljóst í augum margra að afskaplega rýrar efnahagsumbætur hafa átt sér stað. Lífið er mörgum Rússanum afar erfitt og fólk kvartar réttilega yfir ástandinu," sagði Jeltsín í siðasta vikulega sjónvarps- ávarpi sínu, því síðasta á þessu ári. Jeltsín fékk unga umbótamenn til liðs við sig fyrr á árinu til að blása lífi í staðnaðár efnahagsumbætur og stöðva hran í lífskjöram fólks. Nú gerði hann öllum ljóst að hann mundi kalla ríkisstjórnina til ábyrgðar. Árangurinn væri slakur. „Við munum leiðrétta mistök og draga nauðsynlegar ályktanir," sagði Jeltsín og endurómuðu þar yf- irlýsingar sem hann gaf um það leyti sem ráðherraskipti urðu í rík- isstjóminni í nóvember. Jeltsín, sem hefur náð sér að fullu eftir sýkingu í lungum, var sýnilega mjög óánægður með árangur ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmálum og þær leiðir sem famar hafa verið til að halda verðbólgu i skeíjum. Reuter Seinfeld að hætta Jerry Seinfeld, aðalstjarna og framleiðandi bandarísku gaman- þáttanna Sein- feld, hefur ákveðið að hætta gerð þáttanna í vor. Samkvæmt stórblaðinu The New York Times lýsti I Seinfeld þessu yfir á jóladag. Seinfeld neitar því | að hann ætli að hætta vegna spá- dóma um að vinsældir þáttanna mundu hrynja heldur vilji hann | hætta á hátindi frægðar sinnar. Seinfeld er aðalþáttur sjón- varpsstöðvarinnar NBC og hefur aflað stöðinni ómældra auglýs- ingatekna, tryggt methagnað og sigur í samkeppninni við CBS og ABC. Forráðamenn hennar vora því ekki seinir aö bjóða Seinfeld nýjan samning. Heimildir herma I að þeir hafi boðið honum 350 milljónir króna fyrir hvern þátt í | 22 þátta röð eða 7,7 milljarða alls. I Seinfeld er nú þegar ríkasti sjón- I varpsleikari sögunnar og hefði aldeilis bætt um betur hefði hann tekið boðinu. En svarið var ein- falt; Nei takk. IVistvæntar fjárfestingar Marit Amstad, orkumálaráð- herra Noregs, sagði á jóladag að Norðmenn ættu að setja 10 pró- sent af olíugróðanum í vistvænar fjárfestingar. Um áramót munu Norðmenn byrja að nota 40 pró- sent olíusjóðs síns til að fjárfesta í erlendum hlutabréfum. Hingað til hefur örugga leiðin verið farin og einungis fjárfest í ríkistryggð- um skuldabréfum. Amstad vísar á bug gagnrýni í þá veru að vist- vænar fjárfestingar séu ekki eins arðsamar en vildi þó ekki skýra nánar hvaða fjárfestingar hún hefði nákvæmlega i huga. Mótmæltu refa- veiðum Hundrað mótmælenda með kröfuspjöld reyndu að hindra refaveiðar sem fóra fram víða á Bretlandi í gær. Annar í jólum I eða Boxing day er einn anna- : samasti dagur breskra veiði- : manna sem safhast rauðklæddir f saman við sveitasetrin að göml- um sið og hleypa síðan hundun- um af stað með lúðrablæstri. Þingmaður verkamannaflokksins | hefur kynnt lagafrumvarp sem : bannar refaveiðar. Hins vegar eru margar hindranir í vegi framvarpsins í þinginu og útlit fyrir að veiðamar haldi áfram. Jólin hér og þar: Elísabet minntist Díönu í árlegri jólaræðu sinni þakk- - aði Elísabet Englandsdrottning Íalmenningi fyrir stuðning og þátttöku í sorg hennar vegna dauða Diönu prinsessu í ágúst. Hún sagði árið sem er að líða hafa verið ár andstæðna í lífi sínu. Díana hefði farist í bílslysi | og síðan hefðu hún og Filippus f: fagnað gullbrúðkaupi. Drottning- I in mælti með auknu sjálfstæði I Skotlands og Wales en ítrekaði i að Samveldið yrði áfram við lýði. Jóhannes Páll páfi var hálf- veikur þegar hann flutti jólapré- I dikun sína á jóladag. Þar bað hanh heimsbyggðina um að : styðja við bakiÖ á hinum fátæku. i í Betlehem fóru gyðingar og | palestínumenn í friðargöngu en í ÍMexíkó vora fómarlömb fiöldamorðanna á mánudag borin til grafar. Á Kúbu hringdu kirkjuklukk- umar jólin inn. Castró lýsti því yfir að jóladagur yrði opinber frídagur. Hafði það ekki gerst frá því 1969. Kaþólikkar á eynni hafa engu að síður haldið jól. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.