Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Síða 8
sælkerinn________________ Jón Daníel Jónsson, yfirmatreiðslumaður á Fjörukránni: Áramótakalkúnninn Jón Daníel Jónsson á Fjörukránni töfrar fram gómsæta kalkúnauppskrift fyrir gamlárskvöldið. DV-mynd S Jón Daníel Jónsson, yfirmatreiðslu- maður á Fjörukránni í Hafnarfirði, er sælkeri okkar að þessu sinni. Hann sagði það við hæfi að gefa okkur upp- skrift að gómsætum og fylltum áramó- takalkún með trönuberjasultu og gratíneruðum kartöflum. Gott er að undirbúa sultuna með a.m.k. sólar- hringsfyrirvara. Kalkúnninn má vera 4-6 kíló að þyngd. Hann er kryddaður með með salti og pipar og kalkúnakryddi frá Pottagöldrum. Fyrst er það fyllingin: 300 g svínahakk 100 g brauðteningar 1 stk saxaður laukur 3 stk saxaðir sellerístilkar 150 g grófsaxaðar pecan- eða kast- aníuhnetur 1 tsk salvía 1 bolli rúsínur 2 stk egg 1 dl rjómi 2 msk smjör 1 msk salt Grænmetið er fyrst svissað í potti í smjörinu og hnetum og brauði bætt út i. Að síðustu er rjóma hellt yfir og soð- ið upp, tekið af hita og kælt. Hakkinu er næst bætt út í blönduna í köldum pottinum og brætt saman. Þá er eggjum, rúsínum og kryddi bætt út í og allt hrært vel. Þurrkið fuglinn vel og snyrtið til. Skerið óskabeinið burtu og fyllið fugl- inn með fyllingunni. Saumið fyrir göt- in á fuglinum og bindið saman lærin. Steikið kalkúninn á 140° C í 40 mín- útur á hvert kíló. Þegar búið er að steikja fuglinn í 30 mínútur er gott að leggja yfir hann viskustykki, vætt í bráðnu smjöri. Trönuberjasulta 350 g trönuber (fást í stórmörkuð- um) 1 appelsína 12 sítróna 1 bolli púðursykur 12 bolli appelsínulíkjör, t.d. Grand Mariner Skerið appelsínu og sítrónu í bita með berki og öllu nema munið að hreinsa steinana úr. Setjið allt í mat- vinnsluvél og blandið í mauk. Látið standa í kæli í u.þ.b. sólarhring. Kartöflugratín 6 stk stórar bökunarkartöflur 2 msk ólífuolía 1-2 stk hvítlauksgeirar 2 dl ijómi salt og pipar 100 g rifinn ostur Byijið að sjálfsögðu á að skræla kartöflurnar og sneiðið þær síðan í þunnar sneiðar. Smyrjið eldfast form með ólífuoliunni og merjið hvítlauk- inn og dreifið honum í botninn. Raðið helmingnum af kartöflunum í fatið og kryddið með salti og pipar og stráiö helmingnum af ostinum yfir. Þá er hinn helmingurinn af kartöflunum settur yfir, kryddað og afgangurinn af ostinum. Rjóma er loks hellt yfir allt saman. Þetta er bakað í ofni í 60-80 mínút- ur við 140° C. Jón Daníel segir gott að bera fram með kalkúninum soðið grænmeti, eft- ir smekk hvers og eins, og eplasalat eða ferskt salat. -bjb Melóna með jarðarberjum Þennan rétt má hæði nota sem forétt og eftirétt, nú eða bara sem gúmmelaði með sjónvarpinu. Ekki skemmir að auk þess að vera bragðgóður er hann afskaplega hollur. í réttinn þarf: 1 melónu örlítinn flórsykur 350 g lítil jarðarber 2 msk. Cointreau eða Grand Mamier safa úr hálfri sítrónu. Aðferð Skerið örlítinn hatt ofan af melónunni og geymið til hliðar. Skeriö kjötið úr melónunni, fjarlægið fræin og skerið litlar kúlur úr kjötinu. Geymiö skelina. Stráið flórsykri yfir melónukjötiö, hyljið og kælið þar til bera á réttinn fram. Helliö líkjörnum og sítrónusafanum yfir jarðarberin. Stráið flórsykri yfir til aö , brægöbæta. Geymið í j kæli. Rétt áður en bera á ' réttinn fram á að blanda jarðarberjunum og melónuboltunum (sjá mynd) saman. Setjið ofan í melónuskelina og setjið hattinn á. Berið fram á muldum ís skreyttum með blómum. -sv • ,j'rr-—v ,. matgæðingur vikunnar Tristan Elizabeth Gribbin leikkona leitaði til ömmu sinnar: Skosk smábrauð „Uppskriftin er upphaflega frá ömmu minni, Ruth Woolman, sem er af skoskum ættum en hefur lengst af búið í Bandaríkjunum. Hún er minn uppáhaldskokkur og ég stend í þeirri trú að ég hafi erft eitthvað af hennar hæfileikum í gegnum móður mína, sem erfði þá alla,“ segir Tristan Eliza- beth Gribbin, leikkona og dagskrár- gerðarmaður, sem ætlar að gefa okkur uppskrift að smábrauði, ættuðu frá Skotlandi. Uppskriftin varð þó til i kolanámubænum Gebo í Wyoming í Bandaríkjunum, þangaö sem Skotar fluttu i unnvörpum um síðustu alda- mót og þar sem amma hennar Tristan fæddist. Tristan hefur verið búsett hér á landi um skeið og er gift Ingvari Þórðarsyni, Loftkastalamanni og tón- leikahaldara með meiru. Uppskriftin aö smábrauðinu, sem Tristan segir eiga sér samlíkingu í mörgum öðrum löndum sem smákök- ur, t.d. í Mexíkó og Þýskalandi, hljóð- ar svo: 2 bollar smjör 2 bollar sykur 5 bollar hveiti V2 tsk salt sykur til skrauts Tristan mælir með að smjöri og sykri sé blandað saman í mat- vinnsluvél. Það sé þægilegra en að gera það í höndunum. Einum bolla af hveiti er síðan bætt út í og deigið því næst tekið úr matvinnsluvélinni og lagt á borð. Þar er afgangnum af hveitinu bætt smám saman við og deigið hnoðað vandlega. Deigið er flatt út þar til það er orðið um lV^ cm á þykkt. Tristan segir enga reglu á lögun brauðanna, það megi skera deigið út eftir smekk hvers og eins. Að þvi loknu er það sett á bökun- arplötu, pínulítið af sykri stráð yfir og deigið haft í kæli í u.þ.b. klukkustund. Kveikið á bakaraofninum og hitið hann upp í 130° C. Setjið brauðið inn og bakið í allt að 50 mínútur, eða þar til það fer að dökkna lítillega. Slökkvið þá á ofninum og leyfið brauðinu að standa þar um stund. núna býr í Kalifomíu, var hún einmitt að baka brauðið. Skemmtileg tilviljun þar sem hún bakar þetta nú bara einu sinni á ári,“ segir Tristan. Hún ætlar að skora á vinkonu sína, Disu Anderiman, til að vera næsta matgæðing, þann fyrsta á nýju ári. Þær ræktuðu saman líflrænt grænmeti síðasta sumar í Mosfellsdalnum þannig að aldrei að vita nema að Dísa verði á heilsunótunum. -bjb Tristan Elizabeth Gribb- in er af skoskum ætt- um Ifkt og uppskriftin. DV-mynd E.ÓI. að man gja frá ð þegar 'ingdi í Hrísgijónasalat Nú þegar fólk er búið að belgja sig út af kjöti síðustu dagana vill það án efa prófa eitthvað léttara áður en áramótaátið byrjar. Ágætt er að hvíla nú magann og friða samviskuna með vænum salat- disk. Fyrst kemur uppskrift að ítölsku hrísgrjónasalati. í það þarf: Hráefni 250 g fljótsoöin ítölsk hi'ísgrjón 2 tsk. salt 600 ml kalt vatn 4 msk. ólífuolía 1 msk. vínedik 2 fint saxaðir vorlaukar 1 litil græn paprika, söxuð smátt salt og pipar 1/4 agúrka, sneidd 2 msk. söxuð steinselja stökk salatblöð Aðferð Setjið hrísgrjónin, salt og vatn á pönnu og látið sjóða. Hrærið, látið lok á pönnuna og látið malla við vægan hita í 15 mínútur. Takið lokið af og látið sjóða í 1 til 2 mínútur eða þar til allt vatn er gufað upp af hrísgrjónunum. Blandið saman olíu, vínedikinu, vorlaukunum, grænu paprikunni og töluverðu af salti og pipar i skál. Setjið hrísgrjónin út á og blandið vel saman. Setjið lok á skálina og látið kólna. Rétt áður en salatið er borið fram á aö hræra agúrku og steinselju út í. Setjið salatblöð í botninn á grunnri skál, hellið hrísgrjónasalatinu yfir og berið fram strax. Þessi uppskrift miðast viö 4 til 6 manns. Fylltar ferskjur Hér er mælt með léttum ávaxtarétti, fylltum ferskjum með möndlum. í hann þarf: 4 stórar ferskjur, skomar í tvennt og steinhreinsaðar 75 g muldar makkarónur 50 g sykur 40 g mjúkt smjör 1 eggjarauða 1/2 tsk. sítrónubörkur, rifinn smátt möndluflögur til skrauts (má sleppa) Skerið örlítið af ferskjukjöti úr hverjum helmingi og setjið í skál. Bætið makkarónumuln- ingnum, sykrinum, 25 g af smjörinu, eggjarauðunni og sítrónuberkinum og þeytið vel saman. Skiptið blöndunni á milli ferskjuhelminganna og gerið snyrtilega kúlu. Ofan á má setja möndluflögur og örlítið af smjöri. Bakið í ofni við 180 gráður á C (350 F). Berið fram heitt eða kalt með rjóma. ft -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.