Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Blaðsíða 34
'<» íþróttir je t Iffi EH6HHP ~ Úrvalsdeild: Arsenal-Leicester ..........2-1 1-0 Platt (36.), 2-0 Walsh sjálfsmark (56.), 2-1 Lennon (77.) Aston Villa-Tottenham ......4-1 1- 0 Draper (38.), 1-1 Calderwood (59.), 2- 1 Draper (68.), 3-1 Collymore (82.), 4-1 Collymore (89.) Bolton-Bamsley..............1-1 0-1 Hristov (20.), 1-1 Guðni Bergsson (38.) Chelsea-Wimbledon...........1-1 1-0 Vialli (8.), 1-1 Hughes (31.) Cr.Palace-Southampton......1-1 0-1 Oakley (39.), 1-1 Shipperley (62.) Derby-Newcastle.............1-0 1-0 Eranio (4.) Liverpool-Leeds.............3-0 1-0 Owen (47.), 2-0 Fowler (79), 3-0 Fowler (83.), 3-1 Háland (85.) Man.Utd-Everton.............2-0 1-0 Berg (14.), 2-0 Cole (34.) Sheff.Wednesday-Blackbum . 0-0 West Ham-Coventry...........1-0 1-0 Kitson (17.) Man.Utd 20 14 4 2 47-13 46 Blackburn .20 11 7 2 36-19 40 Chelsea 20 12 3 5 46-20 39 Liverpool 19 10 4 5 34-18 34 Leeds 20 10 4 6 29-22 34 Arsenal 19 9 6 4 34-22 33 Derby 20 9 5 6 34-27 32 West Ham 20 9 1 10 26-31 28 Leicester 20 7 6 7 24-20 27 Newcastle 19 7 5 7 20-23 26 Aston Villa 20 7 4 9 24-26 25 Wimbledon 19 6 6 7 20-22 24 Cr.Palace 20 5 7 8 18-26 22 Sheff.Wed 20 6 4 10 31-43 22 Southampt 20 6 3 11 24-30 21 Bolton 20 4 9 7 17-30 21 Coventry 20 4 8 8 17-26 20 Tottenham 20 5 4 11 18-36 19 Everton 20 4 5 11 17-29 17 Barnsley 20 4 3 13 18-51 15 1. deild: Charlton-Norwich..............2-1 Crewe-Man.City................1-0 Huddersfield-Middlesbr........0-1 Ipswich-Bimringham............0-1 Nott.Forest-Swindon ..........3-0 Portsmouth-QPR................3-1 Reading-WBA ..................2-1 Stockport-Port Vale...........3-0 Stoke-Sheff.Utd ..............2-2 Sunderland-Bradford...........2-0 Tranmere-Bury.................0-0 Wolves-Oxford.................1-0 Middlesbr 24 14 6 4 40-19 48 Nott.Forest 24 14 6 4 40-21 48 Charlton 24 13 5 6 45-30 44 Sheff.Utd 24 11 10 3 36-24 43 Sunderland 23 12 6 5 37-21 42 WBA 24 12 4 8 26-23 40 Wolves 24 11 6 7 30-26 39 Stockport 24 11 5 8 42-32 38 Swindon 24 11 5 8 32-34 38 Birmingham 24 9 8 7 25-19 35 Bradford 24 8 9 7 22-24 33 QPR 24 8 6 10 29-39 30 Norwich 24 8 6 10 24-34 30 Stoke 24 7 . 7 10 26-32 28 Reading 24 7 7 10 23-26 28 Ipswich 23 6 9 8 27-26 27 Oxford 24 7 5 12 29-34 26 Port Vale 24 7 5 12 26-33 26 Crewe 24 7 3 14 27-39 24 Man.City 24 6 6 12 26-28 24 Portsmouth 23 6 5 12 29-37 23 Tranmere 23 6 5 12 28-34 23 Huddersf 24 6 5 13 24-38 23 Bury 24 4 11 9 22-32 23 Guðni Bergsson: Stóð við loforðið „Það var auðvitað gaman að skora en það var verst að það skyldi ekki duga til sigurs. Ég lét vaða af löngu færi, 35-40 metrum, smellhitti boltann og hann steinlá í markinu. Þeir voru annars betri í fyrri hálf- leik en í þeim síðari vorum við mun sterkari og áttum að vinna leikinn sem hefði verið mjög þýðingarmikið fyrir okkur. Við áttum góð færi og stangarskot að auki,“ sagði Guðni en hann lék allan leikinn. * Foreldrar Guðna og bræður voru á leiknum og fyrir hann lofaði Guðni marki en eins og Guðni sagöi við DV í gær var það loforð ekki tekið alvarlega af fjöldskyldunni enda hann ekki að skora á hverjum degi. Amar Gunnlaugsson lék síðustu 25 mínútumar í leiknum og var v.íriskur að sögn Guðna. -GH LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997 31"V ítalinn Gianluca Villa er hér að skora mark Chelsea gegn Wimbledon I gær. Reuter Ævintýramark Guðna - Man.Utd með sex stiga forskot eftir leiki gærdagsins Guðni Bergsson opnaði marka- reikning sinn með Bolton á þessari leiktíð þegar hann jafnaði metin gegn Bamsley í miklum fallbaráttu- leik á Reebock-leikvanginum í Bolton í gær. Búlgarinn Hristov kom Barnsley yfir á 20. mínútu en Guðni jafnaði metin á 38. mínútu með skoti af um 35 metra færi. Manchester United er komið með sex stiga forskot eftir leiki gærdags- ins. United lagði Everton á Old Traf- ford á meðan Chelsea og Blackbum gerðu jafntefli í sínum leikjum. United gerði út um leikinn á fyrstu 35. mínútunum. Norðmaðurinn Henning Berg skoraði fyrra markið og um leið sitt fyrsta mark fyrir fé- lagið og Andy Cole skoraði 14. mark sitt í síðustu 14 leikjum þegar hann skoraði síðara markið. United hafði alla burði til að skora fleiri mörk en liðið fékk mörg góð færi sem ekki nýttust. Alex Ferguson gat leyft sér að vera með Ryan Giggs og Teddy Sheringham á bekknum og Peter Schmeichel lá heima með flensu. Chelsea tapaði mikilvægum stig- um í toppbaráttunni þegar liðið náði aðeins jöfnu á heimavelli gegn Wimbledon. ítalinn Gianluca Vialii kom heimamönnum yfir á upphafs- mínútunum þegar hann skoraði af stuttu færi en Michael Hughes jafn- aði fyrir Wimbledon þegar hann komst inn í lélega sendingu Frank Sinclairs aftur til markvarðar. Eftir að Arsenal hafði náð tveggja marka forystu gegn Leicester um miðjan seinni hálfleik sótti Leicest- er í sig veðrið. Gestirnir minnkuðu muninn 13 mín. fyrir leikslok þegar David Seaman mistókst að hreinsa frá marki sínu og á lokamínútunum gerðu leikmenn Leicester oft harða hríð að marki Arsenal. „Þetta var kannski heldur of mik- il spenna undir lokin. Mínir menn slökuðu of mikið á og með smá heppni hefði Leicester getað jafnað metin,“ sagði Wenger, stjóri ArsenaL Paul Kitson tryggði West Ham öll þrjú stigin gegn Coventry og um leið 8. heimasigurinn í níu leikjum. Mark Kitsons kom á 17. mínútu og í upphafi síðari háifleiks fékk Goerge Boateng að líta rauða spjaldið í sín- um fyrsta leik fyrir Coventry. Liverpool setti allt á fulla ferð í síðari hálfleik gegn Leeds og inn- byrti öruggan sigur eftir markalaus- an fyrri hálfleik. Michael Owen og Robbie Fowler gerðu Leedsvörninni lífið leitt og þeir félagar sáu um að skora mörk liðsins sem hefðu getað orðið mun fleiri. Newcastle sígur hægt og bítandi niður töfluna og 1-0 tap gegn Derby í gær færði liðið i 10 sætið. Stafano Eranio skoraði markið úr víti og til að auka á vandræði þeirra röndóttu fékk David Batty að líta rauða spjaldið snemma í síðari hálfleik. Crystal Palace fékk gullið færi til að ná sigri gegn Southampton en vítaspyrna ísraelsmannsins Itzik Zohar undir lokin misfórst. Hermann Hreiðarsson lék allan tímann í vöm Palace sem hefur enn ekki unnið heimaleik á tímabilinu. -GH Ron Harper og félagar I Chicago hafa nú unniö sjö leiki I röö í NBA. Hér er Harper aö skora gegn Clippers í leik liöanna á Þorláksmessu. Slmamynd Reuter NBA um jólin: Phil Jackson, þjálfari Chicago Bulls, setti nýtt glæsi- legt met í NBA-deildinni um jólin er Chicago vann LA Clippers á Þorláksmessu. Jackson vann þá 500. sigur sinn í deildinni í aðeins 682 leikjum. Enginn þjálfari í deildinni hefur náð 500 sigrum í svo fáum leikjum. Eldra metið átti Pat Riley en hann vann 500 sigra í 684 leikjum. „Ég óskaði hon- um til hamingju með árangurinn. Ég sagði honum að ég væri stoltur af honum og svo væri um marga fleiri,“ sagði Bill Fitch, þjálfari Clippers eftir leikinn. „Við lékum illa en sigruðum samt. Jackson verðskuldar þetta svo sannarlega enda hefur hann unnið frábært starf,“ sagði Michael Jordan eftir leikinn. Dennis Rod- man hirti 25 fráköst í leiknum sem er það mesta hjá honum á leiktíðinni. Chicago vann síðan sjöunda sigur sinn í röð gegn Miami á jóladag og liðið virðist óstöðvandi um þessar mundir. John Stockton er kominn á fúllt hjá Utah og munar um minna. Hann tryggði Utah sigurinn gegn Houston með því að skora fjögur stig á síðustu fimmtíu sekúnd- um leiksins. Jerry Sloan, þjálfari Utah, vann þama sinn 500. sigur með Utah en hann vantar nú aðeins 6 sigra til að ná 600 sigra markinu. Hann þjálfaði lið Chicago á árunum 1979-1982. -SK Finnur í Hameln Finnur Jóhannsson hand- knattleiksmaður, fyrrum leik- maður Vals og Selfoss, er geng- inn í raðir þýska 1. deildarliðs- ins Hameln, hðs Alfreðs Gíslasonar. Finnur, sem er sterkur vam- armaður og línumaður, hefur ekkert spilað síðustu tvö árin en hann var dæmdur í tveggja ára keppnisbann þegar ólögleg lyf fundust í þvagi hans eftir hann gekkst undir lyfjapróf á f'rjáls- íþróttamóti sumarið 1995. Hameln hefur gengið illa í síð- ustu leikjum og er á meðal neðstu liða en mikil meiðsli hafa herjað á lærisveina Alflæðs Gisla- sonar í vetur. -GH Bland í poka Stan Collymore, Aston Villa, átti ekki náðuga daga um jólin. Hann var handtekinn á aöfangadag eftir að hafa ráðist á fyrrverandi kærustu sína á skemmtistað. Collymore var látinn laus gegn trygg- ingu en þarf að svara til saka og gæti átt yfír höfði sér mjög háa sekt í það minnsta. Collymore lét þetta ekki hafa áhrif á sig i gær en hann skoraði tvö mörk gegn Tottenham. Allt lið Aberdeen i skoska fótboltan- um er til sölu ef einhver hefur áhuga. Alex Miller, stjóri liðsins, ákvað þetta dtir a6r slakt gengi liðsins að undanfomu Rúmenski landsliðsmaðurinn Viorel Moldovan hefur skrifað undir samn- ing við Coventry til rúmlega fjögurra ára. Hann lék áður með Grasshopp- ers í Sviss. Shaquille O’Neal, miðherji LA Lakers í NBA-deildinni, verður enn frá í 'tvær vikur vegna meiðsla á hendi. Hann hefur þegar misst úr 17 leiki á leiktíðinni. -SK Haukur Inni Guðnason: Kaupverðiá 18 milljónir Breska dagblaðio Daily Mail skýrði frá því í vikunni að kaup- verð Liverpool á Keflvíkingnum Hauki Inga Guðnasyni hefði verið 18 milljónir króna. Þá var einnig sagt í frétt blaðsins að ef Haukur Ingi spilaði tiltekin fjölda leikja í aðalliði Liverpool yrði félagið að reiða fram 60 milljónir króna til við- bótar. -GH NBA-DEILDIN Leikir á Þorláksmessu: Cleveland-Dallas ........99-85 Anderson 24, Henderson 20, Kemp 14, Knight 14, - Finley 29, Reeves 18. Boston-Charlotte ........102-96 Mercer 28, Barros 18, McCarty 13, Billups 13, - Rice 23, Phills 22, Divac 12, Wesley 12. Chicago-LA Clippers ........... Jordan 27, Kerr 13, Longley 11, Kukoc 9, Rodman 9, - Rogers 20, Martin 19. SA Spurs-Indiana..........91-79 Robinson 39, Duncan 18, Elliott 12 Johnson 8, - Miller 25, Smits 14. Portland-Sacramento.......93-82 Sabonis 19, Grant 17, Anderson 17, Trent 14, Wallace 10, - Richmond 30, Owens 18, Williamson 18, Polynice 8. Seattle-Minnesota.......103-112 Payton 27, Ellis 22, Baker 19, Schrempf 15, - Marbury 35, Gugliotta 22, Gamett 12, Carr 12. Golden State-Denver ......87-75 Smith 22, Marshail 20, Coles 13, Delk 8. - Fortson 22, Ellis 15, Newman 10. Leikir á jóladag: Utah-Houston............107-103 Stockton 24, Malone 20, Homacek 20, Eisley 12 - Willis 25, Elie 15, Drexler 15, Barkley 11. Chicago-Miami.............90-80 Jordan 24, Kukoc 19, Harper 10, Rodman 8, Longley 8 - Mashbum 20, Hardaway 18, Mouming 16, Austin 11, Brown 9.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.