Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1997, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 1997
------------------------
lyndbönd
&
Harrison Ford leikur lögreglumanninn Tom O’Meara sem tekur hryðjuverka-
mann inn á heimili sitt.
The Devils Own:
Hryðjuverkamaður.
heimsókn
í myndinni The Devils Own er
teflt saman tveimur stórleikurum,
hvorum af sinni kynslóðinni, í hlut-
verkum tveggja manna með ólikan
bakgrunn. EVankie McGuire (Brad
Pitt) er einn af hryðjuverkamönn-
um IRA-samtakanna á Norður-ír-
landi. Hann trúir því að hann sé að
berjast fyrir göfugum málstað og að-
ferðir hans eru ofbeldisfullar. Þegar
hann neyðist til að flýja land er
hann sendur til Bandaríkjanna til
að reyna að kaupa Stinger-eldflaug-
ar. Hann tekur sér nafhið Rory
Devaney og þykist vera að flýja of-
beldið í heimalandi sínu. Honum
tekst þannig að komast í mjúkinn
hjá írskættaða lögreglumanninum
Tom O’Meara og fjölskyldu hans, og
fær m.a.s. að búa á heimili hans.
Tom O’Meara er rólyndur fjöl-
skyldumaður og að mörgu leiti and-
stæða Frankies McGuires. Hann
reynir í starfi sínu að forðast of-
beldi og gripur helst aldrei til byss-
unnar. McGuire siglir undir fólsku
flaggi en tengist þó OMeara sterk-
um böndum. Viðskipti hans við
vopnasala ganga ekki að óskum og
leysast upp í átök sem fjölskylda
OMeara dregst inn í.
Alan J. Pakula leikstýrir stór-
stjörnunum tveimur og meðleikur-
um þeirra, þeim Margaret Colin
(Terminal Velocity, Independence
Day), Ruben Blades (Mo Better Blu-
es, The Color of Night), Treat Will-
iams (Hair, Mulholland Falls,
Things to Do in Denver When Youre
Dead), George Heam (The Vanis-
hing, Sneakers) og Natascha McEl-
hone (Surviving Picasso).
Deilur um handrit
Miklar sögusagnir höfðu gengið í
blöðum um erfiðleika við gerð
myndarinnar og margir voru farnir
að búast við miklum skelli þegar
liða tók að frumsýningu hennar.
Aðstandendur myndarinnar voru
því fegnir þegar hún fékk ágætar
viðtökur hjá áhorfendum. Brad Pitt
fékk áhuga á handritinu árið 1992
(þá var hann ekki enn orðinn stór-
stjama) og samþykkti að leika í
myndinni. Universal sat á handrit-
inu í þrjú ár en þegar Columbia
náði í það fóru hjólin að snúast og
Brad Pitt stakk upp á Harrison Ford
í hitt aðalhlutverkið. Ford sam-
þykkti og hann og Pitt urðu ásáttir
um að fá Alan J. Pakula til að leik-
stýra. Nýir menn vom fengnir til að
flikka upp á handritið og á meðan
Brad Pitt var upptekinn við tökur á
Sleepers sat Harrison Ford daglega
fundi með handritshöfúndunum og
miklar breytingar vom gerðar.
Þegar Brad Pitt mætti til leiks og
fékk að sjá nýjustu útgáfuna af
handritinu brá honum í brún og í
hönd fóm langir og erfiðir samn-
ingafundir. Hámarki náðu deilum-
ar þegar Brad Pitt hótaði að hætta
við myndina viku áður en tökur
áttu að hefjast. Hvort sem þakka má
sannfæringarkrafti Ford og Pakula
eða hótun Columbia um að lögsækja
hamn og krefjast 63 milljón dollara í
skaðabætur ákvað Brad Pitt að
þrauka. Deilumar héldu áfram með-
an á tökum stóð og stöðugt var ver-
ið að endurskrifa handritið. Tökum
lauk loks í júlí 1996 en nýr endir var
síðan kvikmyndaður i febrúar 1997.
Þá hafði Brad Pitt gefið stóryrtar
yfirlýsingar í Newsweek en dró
reyndar í land síðar meir og talaði
um misskilning.
Stjörnurnar
Harrison Ford er einn af stærstu
stjömum sinnar kynslóðar í Holly-
wood. Árið 1994 var hann útnefndur
stjama aldarinnar af landssamtökum
kvikmyndahúsaeigenda, hann hlaut
óskarsverðlaunatilnefningu fyrir leik
sinn í Witness og hefur skapað tvær
gríðarlega vinsælar persónur; Han
Solo og Indiana Jones. Fyrstu árin
hans sem kvikmyndaleikari voru
fremur mögur og hann vann fyrir sér
sem trésmiður til að hafa í sig og á en
sást þó til dæmis í American Graffiti
árið 1973 áður en stóra tækifærið
kom þegar hann fékk hlutverk Han
Solo í Star Wars. Meðal mynda hans
má nefna Blade Runner, The
Mosquito Coast, Clear and Present
Danger, Working Girl, Patriot Games
og Air Force One.
Brad Pitt vakti fyrst athygli í
smáhlutverki í Thelma & Louise og
lék næstu árin m.a. i A River Runs
Through It, Johnny Suede, True
Romance og Kalifomia. Árið 1994
komst hann í stórstjömuflokkinn
með leik sínum í Legends of the Fall
og Interview With the Vampire. Síð-
ustu árin hefur hann m.a. leikið í 12
Monkeys, Seven, Sleepers og Seven
Years in Tibet.
Leikstjórinn Alan J. Pakula hefur
tvisvar unnið til óskarsverðlauna,
fyrir All the Presidents Men og Sop-
hies Choice. Hann hóf feril sinn sem
framleiðandi og framleiddi m.a. ósk-
arsverðlaunamyndina To Kill a
Mockingbird áður en hann hóf leik-
stjómarferil sinn. Meðal eldri
mynda hans er t.d. Klute, sem aflaði
Jane Fonda óskarsverðlauna fyrir
besta leik í aðalhlutverki, en af nýj-
ustu myndum hans má nefha The
Pelican Brief, Consenting Adults og
Presumed Innocent. -PJ
0HÞ 0** sW *
51
wv/w.dv.i
www.dv.iswww.dv.is www.dv.i
www.dv.is v/wvv.dv.is www.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.isjl
Aðgangur ókeypis fyrst um sinn
Frá því ættfræðisíða DV hóf göngu sína 20. júlí 1987 hafa ættfræðingar og
blaðamenn DV rakið ættir og æviágrip um 11.000 íslendinga á síðum blaðsins.
Alls koma vel á annað hundrað þúsund manns við sögu í ættrakningum DV
á vefnum. Frá deginum í dag eru ættfræðigreinar DV aðgengilegar almenningi
á Netinu. Á Ættfræðivef DV er hægt að fletta upp nöfnum fólks
í stafrófsröð eða leita að því með öftugri leitarvél í þessum hafsjó fróðleiks.
Fyrst um sinn verður aðgangur ókeypis
kynningar.
V I