Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1998, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR ia JANÚAR1998
Fréttir
Prófkjörsbarátta Reykjavíkurlistans að heQast:
Nýtt prófkjörsfyrirkomu-
lag gerir „plottin" erfið
Reykjavíkurlistinn hóf prófkjörs-
baráttuna meö sameiginlegum
fundi borgarstjóra og frambjóöend-
emna tuttugu og átta, sem haldinn
var í sameiginlegri kosningamið-
stöð að Pósthússtræti 13 sl. föstu-
dag. Margir líta svo á að komandi
prófkjörsbarátta sé það sem helst
gæti reynst R-listanum hættulegt í
komandi borgarstjómarkosningum.
Fari svo að barátta einstakra fram-
bjóðenda innan flokkanna verði
hörð og óvægin gætu myndast
sprungur í samstöðunni sem Sjálf-
stæðisflokkurinn gæti notafært sér
í sjálfri kosningabaráttunni.
Ónýtt tækifæri D-listans
Sjálfstæðisflokkurinn þykir
hafa notað tímann illa undanfarn-
ar vikur. Öll athyglin hefur beinst
að væntanlegri þátttöku Guðrúnar
JPétursdóttur á listanum. Niður-
staðan, þ.e. að Guðrún Pétursdótt-
ir setjist í 9. sætið, hefur vakið
nokkra undrun. Menn töldu víst
að kjörnefnd og Davíð vildu að
hún tæki baráttusætið og færi í
grjótharðan slag við Ingibjörgu
Sólrúnu um áttunda sætið. 1 skjóli
umræðunnar um Guðrúnu hefur
R-listanum aftur á móti gefist færi
á að samræma og skipuleggja sín
mál i friði. Spurningin er hvort
Innlent
fréttaljós
Páll Hannesson
samstaðan nær að halda fram að
kosningunum í prófkjöri sem fara
fram þann 31. janúar eða hvort
prófkjörið vekur deilur og sundr-
ung innan hópsins.
Alfreð Porsteinsson og Pétur Jónsson kynna prófkjörsreglur Reykjavíkur-
listans.
DV-mynd BG
Nýtt fyrirkomulag
Þegar menn íhuga hversu hvöss
prófkjörsbaráttan gæti orðið innan
samstarfsflokka Reykjavíkurlistans
verður að hafa í huga sjálft fyrir-
komulag kosninganna sem nú er
með nýju móti. Prófkjörið er opið
öllum Reykvíkingum og kjósendum
er í sjálfsvald sett hvort þeir merkja
aðeins við frambjóðendur eða
flokka eða hvort tveggja. Tveir kjör-
seðlar verða í gangi, á öðrum er
merkt við þann flokk sem kosinn er
en á hinum er frambjóðendum rað-
að í forgangsröð.
Kosning í fyrstu sjö sætin er
bindandi og um þau sæti bítast
flokkarnir fjórir, þrír þeirra fá tvö
sæti, en sá sem fæst atkvæðin fær
verður með einn mann á lista. Sá
flokkur sem flest atkvæðin fær,
fær fyrsta sætið og það flmmta,
næsti flokkur fær annað og sjötta
sætið, þriðji flokkurinn fær þaö
þriðja og sjöunda og fjórði flokkur-
inn í röðinni fær fjórða sætið.
Þegar kemur að kosningu ein-
stakra frambjóðenda gefur kjós-
andi hverjum og einum frambjóð-
anda mismunandi vægi eftir því
hvaða merkingu hann gefur við-
komandi. Frambjóðandi sem
merkt er við með raðtölunni 1. fær
8 stig, raðtalan 2. gefur 7 stig og
svo stig af stigi, en lægsta merk-
ingin er raðtalan 5. sem gefur fjög-
ur stig. Stig einstakra frambjóð-
anda eru svo talin saman og ræð-
ur heildartalan sæti hans innan
hans flokks. Atkvæðafjöldi ein-
stakra flokka ræður svo eins og
fyrr segir innbyrðis röð flokk-
anna.
Prófkjör án „plotta"?
Afleiðingamar af þessu kerfi
verða eftirfarandi: Þar sem kjósandi
veit að það munu aðeins tveir úr
hans flokki komast aö í kosning-
unni um fyrstu sjö sætin er líklegt
að hann velji frambjóöendur úr öðr-
um flokkum i næstu sæti þar fyrir
neðan. Frambjóðandi sem merktur
er með raðtölunni 3. fær hins vegar
heil 6 stig sem nýtast honum auðvit-
að vel þegar allt er talið saman.
Menn geta því illa „plottað" undir
þessum reglum, því ekki er verið að
kjósa menn í ákveðin sæti. Af þess-
um sökum er taliö líklegra að átök-
in verði ekki eins illvíg og oft vill
henda í hefðbundnum prófkjörsslag.
Að auki er prófkjörið opið öllum
Reykvikingum sem styðja vilja
Reykjavíkurlistann og eykur það
óvissuna enn frekar.
Fiskað í sama vatni
Þetta fyrirkomulag kemur hins
vegar ekki í veg fyrir að frambjóð-
endur innan sama flokks og sem
fiska í sama vatni eftir stuðnings-
fólki takist á. Einna mestar líkur
eru taldar á að þetta gerist innan
Framsóknarflokksins, þar sem
Óskar Bergsson og Guðjón Ólafur
Jónsson eru taldir liklegir til að
sækja að sitjandi borgarfulltrúum.
Auk þess sem heimildir telja að
slagur milli þeirra Alfreðs Þor-
steinssonar og Sigrúnar Magnús-
dóttur sé í uppsiglingu eftir kosn-
ingu fulltrúaráðsins milli próf-
kjörskandídata, þar sem Sigrún
fékk flest atkvæðin en Alfreð fæst.
Þeir Óskar og Guöjón sækja hins
vegar báðir fylgi til yngri fram-
sóknarmanna, auk þess sem talið
er að Guðjón, sem er fyrrum for- |
maður EÍJF, fái fylgi meðal
Röskvufólks, en hann starfaði í
þeim hópi lengi. Þvi eru taldar
nokkrar líkur á að breytingar
kunni að verða meðal framsóknar-
manna.
Yngra fólkið stendur saman
Almennt er talið að það yngra
fólk, sem starfað hefur í Birtingu
og Grósku, muni í grófum dráttum i
styðja hvort annað og eigi því
einna helst möguleika á að velta
eldri og þaulsætnum borgarfull-
trúum úr sessi. Sameiginlegar
hugmyndir um sameiningu félags-
hyggjuflokkanna, afstöðuna til
Evrópumála o.s.frv. muni verða til
að frambjóðendur eins og Helgi
Hjörvar og Hrannar Amarson fái
stuðning sömu kjósenda. Það verði
á grunni þessarar samstöðu sem I
möguleikar yngri frambjóðend-
anna byggist einna helst. Innan
Alþýðubandalags er Helgi Hjörvar '
talinn líklegastur til að velgja sitj-
andi fulltrúum, þeim Guðrúnu
Ágústsdóttur og Áma Þór Sigurðs-
syni undir uggum. Hrannar Björn
Arnarson og Helgi Pétm-sson eiga
möguleika á að komast að og eru
ekki taldir ólíklegri til þess en sitj-
andi borgarfulltrúi, Pétur Jóns-
son. Hjá Kvennalista eru þær j
Steinunn V. Óskarsdóttir og Sól-
veig Jónasdóttir taldar líklegir
keppinautar. í þessum bollalegg- |
ingum má ekki gleyma sameining-
arbandi kvenna. Fari svo að konur
verði álitnar standa halloka í bar-
áttunni kann það að leiða til að
konur kjósi kynsystur sínar innan
annarra flokka. í þessu nýja próf-
kjörskerfi kann það að ríða bagga-
muninn í einhverjum tilfella.
Dagfari
Guðrún siálf í níunda sætið
Þau pólitísku tíðindi hafa gerst
að Guðrún Pétursdóttir mun skipa
níunda sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík til næstu
borgarstjórnarkosninga. Það sem
þykir merkilegast í þessu er aö
Guðrún ákvaö þaö sjálf að setjast í
níunda sætið. Ekki þaö að aðrir
ákvæðu þaö fyrir hana, né heldur
að hún hafi verið kjörin í þetta
sæti, hvað þá að hún hafi veriö
neydd til að taka sæti á lista sjálf-
stæðismanna. Nei, Guörún ákvað
þetta sjálf.
Einhvern tímann fyrir áramót
efndi Sjálfstæðisflokkurinn til próf-
kosninga um skipan listans. Margt
gott fólk gaf kost á sér og enn þá
fleira fólk greiddi atkvæði í próf-
kjörinu um þá sem valið stóð um,
enda ekki boðið upp á annaö.
Guðrúnu Pétursdóttur mun hafa
verið boðiö að vera með i prófkjör-
inu en hún haföi ekki áhuga. Og
heldur ekki tíma. Haföi önnur og
verðugri verkefni til að fást viö.
En svo lágu úrslit prófkjörsins
fyrir og enginn haföi kosiö Guð-
rúnu af því hún var ekki með í
kjörinu og uppstillingamefnd sá
strax aö þetta var ómögulegur listi
og fór fram á það við Guðrúnu að
taka sæti á listanum vegna þess að
uppstillingarnefnd var sannfærð
um að Guðrún væri betri en þeir
sem voru með í kosningunni og
höfðu valist á listann. Prófkjör eru
einmitt til þess að fá úr þvi skorið
hverjir hafa fylgi og þegar þeir sem
hafa fylgi eru ekki með í kosning-
unni kemur í ljós að þeir sem eru
með í kosningunni hafa ekki nógu
mikið fylgi og að minnsta kosti
ekki eins mikið fylgi og þeir sem
ekki eru meö.
Guðrún léði strax máls á því að
taka sæti á listanum, en vildi þó
fyrst vita hvort forysta flokksins
vildi að hún væri með á listanum,
því hún vildi ekki taka sæti á list-
anum, ef forystan væri á móti
henni. Það var mat hennar að
óþægilegt gæti reynst að vera á
lista flokks, ef flokkurinn væri á
móti henni.
Forystan hélt fund með Guðrúnu
(rétt er að taka fram aö þegar talað
er um forystu, er átt við Davíð
Oddsson í eintölu, en þar sem fleiri
menn er ekki að finna í forystu
flokksins en Davíð einan, er hér
talað um Davíö í fleirtölu) og for-
ystan féllst á að Guðrún væri betri
kostur en þeir flokksmenn sem
höföu tekið þátt í prófkjörinu og þá
gerðist það að Guörún tók sjálf
ákvörðun um að setjast í níunda
sætið.
Það felst mikið pólitískt frum-
kvæöi og hugdirfska í þessari
ákvörðun Guðrúnar. Hún tók hana
ein og óstudd. Hún hugsaöi málið
mikið, enda gat hún sest í hvað
sæti listans sem var, eftir að foryst-
an hafði lagt blessun sína yfir hana
og einmitt þess vegna var það ekki
auðveld ákvörðun að taka níunda
sætið. Samt tók Guðrún niunda
sætið.
Ekki það að níunda sætið skipti
miklu máli, vegna þess að slagur-
inn stendur um áttunda sætið. En
þess heldur er þetta stór og merki-
leg ákvörðun hjá Guðrúnu aö taka
níunda sætið að þvi að það skiptir
ekki máli. Þess vegna skiptir það
máli að Guðrún hafi ekki tekiö það
sæti sem skipti máli, að því að það
skiptir máli hvar hún er á listan-
um, af því að það skiptir máli að
hafa hana á listanum og af því aö
hún heföi örugglega orðiö ofar en í
níunda sæti ef hún heföi tekið þátt
í prófkosningunum, sem nú skipta
sáralitlu máli. Og allt þetta gerði
Guðrún sjálf. ímyndið ykkur.
Dagfari
I
<
I
1
I
I