Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 DV
» fréttaljós
Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir follum vér. Þetta gamla
slagorð er enn i fullu gildi og í því
liggur mótsögnin fyrir prófkjörs-
frambjóðendur Reykjavíkurlistans,
nú þegar vika er til kosningadags.
Sigurmöguleikar R-listans byggja á
að ímynd sameiningar og sam-
heldni bresti ekki og á sama tíma
þurfa frambjóðendur listans að
takast á í slag þar sem „allir eru á
móti öllum“. Þessa stöðu má auðvit-
að heimfæra upp á prófkjörsslagi í
hvaöa flokki sem er, þar sem ein-
staklingar innan flokks takast á, en
hættan fyrir R-listann er sú að þeir
fjórir flokkar sem að listanum
standa fari að reisa flokksmerkin á
síðustu stundu. Freistingin er mikil
þar sem atkvæðamagn hvers flokks
ræður innbyrðisröö borgarfulltrú-
anna, en ekki síst þar sem sá flokk-
urinn sem slakasta kosningu hlýtm-
fær aðeins einn borgarfulltrúa í
staö tveggja. Menn renna nokkuð
blint í sjóinn þegar kemur að ágisk-
unum um þátttöku í prófkjörinu en
telja að fjöldi kjósenda gæti legið á
bilinu fjögur til sjö þúsund. Gróf-
lega talið eru nöfn á útsendingarlist-
um flokkanna um 400 hjá Kvenna-
listanum, 700 hjá Alþýðubandalag-
inu, 1100 hjá Alþýðuflokki og 1500
hjá Framsóknarflokki eða um 3700
einstaklingar alls. Árangur flokk-
anna í þessari innanhússmölun get-
ur því skipt verulegu máli fyrir ár-
angur í kosningunum í heild.
Að hringja eða hringja
ekki
Það er þvi mikið í húfi, sérstak-
lega fyrir þann listann sem skoð-
anakannanir hafa gefið til kynna að
standi verst að vígi, Kvennalistann.
Enda hefur skrifstofa Kvennalistans
verið virkjuð og þaðan er hringt í
miklum móð í skráöa félaga og aðra
stuðningsmenn og þeir minntir á aö
merkja við réttan flokksbókstaf.
Hinn flokkurinn sem hefur látið
undan þessari freistingu er Fram-
sóknarflokkurinn. Alþýðuflokkur-
inn ætlar ekki að standa í slíkum
hringinginn, en mun þess í stað gefa
út Alþýðublaðið og senda það til
flokksfélaga, en aðalefni þess eru
framboöskynningar fulltrúa flokks-
ins. Þá hefur Alþýðuflokkurinn boö-
ið frambjóðendum sínum upp á
vinnuaðstöðu í húsakynnum sínum.
Skrifstofa Alþýðubandalagsins ætl-
ar hins vegar ekki aö standa í nein-
um hringingum eða leggja út í ann-
an kostnað fyrir frambjóðendur
sína. Hvort þaö er til marks um
reynsluleysi flokksins af opnum
prófkjörum skal ósagt látið. Það
sem er sérkennilegt við þetta próf-
kjör er auðvitað að hér er ekki ein-
vörðungu verið að kjósa einstakl-
inga inn á R-listann, heldur er þetta
flokkakosning á sama tíma. Þaö má
því telja að ákveðin viðbrögð flokk-
anna af þessu tagi sé eölileg, meðan
ekki er blásið til orrustu í nafni
flokkanna. Þaö má því segja að það
sé eðlilegt að kraumi í pottinum en
að flokkarnir verði að gæta vel að
því að ekki sjóði upp úr.
Framsókn
Þótt óvissa einkenni þetta próf-
kjör öðru fremur, vegna hins nýja
kosningafyrirkomulags og sökum
þess að það er opið öllum Reykvík-
ingum, eru línumar aðeins famar
aö skýrast. Innan Framsóknar-
flokksins eru þó fimm frambjóðend-
ur af sjö taldir geta blandað sér í
baráttuna um tvö efstu sætin. Sitj-
andi borgarfulltrúar, þau Alfreð
Þorsteinsson og Sigrún Magnúsdótt-
ir, njóta ákveðins forskots sem slík-
ir og smölun flokksskrifstofunnar
meðal flokksbundinna framsóknar-
manna er talin vinna með þessum
langreyndu flokkshestum. Sigrún
hefur fyrir nokkru opnað kosninga-
skrifstofu, hefur Skúla Oddsson sem
kosningastjóra og hefur þegar kom-
ið upp hópi stuðningsmanna sem
sitja við símann og reyna að krækja
í stuðningsmenn með öllum ráðum.
Innlent
fréttaljós
Páll Hannesson
Að auki vilja sumir meina að yfir-
kosningastjóri hennar sé bóndi
hennar Páll á Höllustöðum og að-
stoðaryfirkosningastjóri sé aðstoð-
armaður hans, Ámi Gunnarsson.
Sigrún sækir sitt fylgi fyrst og
fremst inn í flokkinn, auk þess sem
hún væntir umbunar meðal al-
mennra kjósenda fyrir vel unnin
störf á kjörtímabilinu. Rétt eins og
allir aðrir borgarfulltrúar telja sig
eiga heimtingu á. Alfreð Þorsteins-
son hefur hins vegar farið sér hægt
hingað til en væntir stuðnings
flokksins og hefðbundinna stuðn-
ingsmanna úr íþróttafélaginu Fram
og annars staðar úr íþróttahreyfing-
unni. Óskar Bergsson, Guðjón Ólaf-
ur Jónsson og Sigfús Ægir Ámason
eiga einnig nokkra möguleika og
vinna ötullega að framboðum sín-
um. Óskar sækir stuðning í flokk-
inn, fjölskylduna sem er af Hánefs-
staðakyni, Trésmíðafélag Reykja-
víkur og Hestamannafélagið Fák.
Sigfús Ægir herjar mikið á flokksfé-
laga sem og Guðjón Ólafur. Sá síð-
astnefndi sækir einnig fylgi í Há-
skólann.
Alþýðuflokkur
Innan Alþýðuflokks eru helstu
vonbiðlamir taldir vera Pétur Jóns-
son, Hrannar Björn Arnarsson,
Helgi Pétursson og Stefán Jóhann
Stefánsson. Pétur er formaður full-
trúaráðs Alþýðuflokksins og gróinn
í flokksstarfi. Eftir að Gunnar Levy
Gissurarson hvarf af vettvangi seg-
ir sagan að flokkurinn hafi þjappað
sér betur um Pétur til að tryggja sér
„sinn mann“ í borgarstjóm. Pétur
hefur þegar hafið kosningabaráttu
sína og býst við að halda háum pró-
fil í komandi viku. Hrannar Bjöm
er helst þekktur sem mikill áhuga-
maður um sameiningu A-flokkanna
og reiknar með fulltingi yngra fólks
og sameiningarsinna. Hann hefur
þegar hafið mikla hringingaherferð
og nafnasöfnun með um hundrað
manna stuðningssveit en hefur lítið
sótt inn í flokkinn eftir stuðningi.
Helgi Pétursson treystir mest á sitt
þjóðkunna andlit og hefur uppi
fremur lítinn viðbúnað í barátt-
unni. Hann er nýr í Alþýðuflokkn-
um og hefur lengur verið félagi í
Framsókn. Hvort það vinni með
honum eða móti er erfitt um að
segja en flestir reikna með hann nái
a.m.k. þokkalegum árangri. Stefán
Jóhann fékk flest atkvæði þegar
kosið var um frambjóðendur flokks-
ins í fulltrúaráðinu og þó að það
dúgi honum sennilega skammt þeg-
ar út á vígvöllinn er komið eru ýms-
ir sem telja að hann gæti komið á
óvart.
Alþýðubandalag
Borgarfulltrúar Alþýðubandalags-
ins, þau Ámi Þór Sigurðsson og
Guðrún Ágústsdóttir, eru ekki talin
örugg með sin sæti. Að þeim sækja
fyrst og fremst Helgi Hjörvar og Sig-
rún Elsa Smáradóttir. Margir við-
mælendur blaðsins telja þó Áma
vera á mikilli siglingu, enda hefur
hann lagt mikið í baráttuna, vinnu,
fé og skipulagningu. Eitthvað er þó
talið skorta á pólitískan sjarma hans
og spurning hversu mjög hann höfð-
ar til hins almenna kjósanda. Staða
Guðrúnar er hins vegar talin fremur
óömgg en vika er langur tími í póli-
tík. Stuðningsmenn Helga vilja líta á
þau Áma og Guðrúnu sem fulltrúa
fyrir áffamhaldandi flokksveldi ög
að sigur þeirra gæfi til kynna lítinn
áhuga flokksins í sameiningarmál-
um vinstri flokkanna. Að sama skapi
yrði sigur fyrir Helga og Sigrúnu
Elsu túlkaður sem sigur fyrir sam-
einingaröflin í flokknum. Þessi til-
raun til að skerpa linurnar með þess-
um hætti er skiljanleg, enda sækja
þau Helgi fylgi sitt fyrst og fremst í
„Röskvukynslóðina".
Kvennalistinn
Þar sem almennt er talið að
Kvennalistinn komi aðeins einum
fulltrúa að í fyrstu sjö sætin má
leiða að því líkum að baráttan á
þeim bænum sé jafnvel enn harðari
en í öðrum flokkum. Steinunn Val-
dis Óskarsdóttir er sögð standa
sterk að vígi en helsti keppinautur
hennar mun vera Sólveig Jónasdótt-
ir. Sólveig hefur öflugan hóp stuðn-
ingsmanna sem stendur i hefð-
bundnum símhringingum, en notar
jafnframt nýstárlegri aðferðir.
Þannig hélt Sólveig framboðsfúnd á
irkinu á Netinu og sóttu þann fund
40 manns. Sólveig hefur starfað í
Grósku, Félagi bókagerðarmanna
og vonast m.a. eftir fylgi þaðan.