Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 24. JANUAR 1998
iróttir
Pele, hinn eini og
sanni, óskar Sig-
uröi Ragnari Eyj-
ólfssyni til ham-
ingju með útnefn-
inguna. Siguröur
Ragnar var á dög-
unum valinn í úr-
valslið bandarísku
háskólanna.
DV-myndir
íris Eysteinsdóttir
Sigurður Ragnar í bandarísku úrvalsliði:
Gaman að
Otsein
íQKa Heimilistæki
Ein öflugasta heimilisþvottavélin
sem völ er á í dag.
Vinduhraði
stillanlegur stiglaust
allt að 1200 sn.
Stiglaus hitastilling.
15 þvottakerfi.
Forþvottur.
Tekur 5 kg af þvotti.
2 þvottahraðar.
Vatnsinntaksöryggi
Sparnaðarrofi
Barnalæsing á loki
Regnúðakerfi.
Hleðslujafnari.
2 legur og 2 öxlar =
lengri ending.
1200 sn.
Aðeins
40 cm
breið,
tilvalin þar
VERSLUN FYRIR ALLA !
Vib Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
FMiniiiy
hitta Pele
- sem afhenti honum verðlaunin
DV, Cinncinnati:
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, leik-
maður ÍA í knattspyrnu, tók á dög-
unum við viðurkenningu fyrir að
komast í lið ársins í fyrstu deild
bandarísku háskólaknattspymunn-
ar (All-American). Hann leikur með
Norður-Karólínu-háskóla í Greens-
boro og er fyrsti leikmaður skólans
til að hljóta þessa viðurkenningu.
Einn mesti knattspyrnumaður alira
tíma, hinn brasilíski Pele, afhenti
Sigurði viðurkenninguna á um 6.000
manna þjálfararáðstefnu sem var
haldin i Cincinnati í Ohio í Band-
aríkjunum.
Þjálfarasamtök Bandaríkjanna
velja lið ársins, sem alls eru þrjú, A,
B, og C-lið. í fyrra var Sigurður í B-
liði ársins en bætti nú um betur og
komst í A-liðið.
„Þetta er að sjálfsögðu mikill
heiður fyrir mig og það var mjög
gaman að hitta Pele i eigin persónu,
enda hlýtur hann að vera átrúnað-
argoð flestra sem eru í knatt-
spyrnu,“ sagði Sigurður.
Hann var sjötti markahæsti leik-
maður deildarinnar ásamt því að
eiga fjölda stoðsendinga. Hann
stundar nú nám í íþróttasálfræði og
á einn vetur eftir til að útskrifast.
Sigurður kemur heim í maí og spil-
ar með Skagamönnum i úrvalsdeild-
inni í sumar.
Knattspyrna er á mikilli uppleið í
Bandarikjunum og er um þessar
mundir sú íþróttagrein sem er mest
stunduð meðal barna. Landsliðið er
einnig komið í úrslitakeppni heims-
meistaramótsins í Frakkiandi og at-
vinnumannadeildin (MLS), sem var
endurvakin fyrir tveimur árum,
gengur mjög vel.
Pele spilaði fyrir 21 ári í fyrrum
atvinnumannadeild Bandaríkjanna
með New York Cosmos. Á fyrr-
nefndri ráðstefnu hrósaði hann
Bandaríkjamönnum í hástert fyrir
gott framtak í knattspyrnunni.
Hann sagði að mikilvægt væri að
þeir sem hættu keppni í greininni
héldu áfram að gefa af sér til knatt-
spymunnar. Hann ferðast um heim-
inn og hvetur börn til að stunda
knattspyrnu.
Hann gaf ungum knattspyrnu-
mönnum og konum gott ráð: „Æfið
alltaf með það að markmiði að
verða best en haldið aldrei að þið
séuð best.“ -ÍE
Síðasti skiladagur
nýskráninga og/eða
breytinga vegna
símaskrár 1998 er
Nánari upplýsingar
veitir skráningadeild
Landssímans
í síma