Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1998, Blaðsíða 42
' 50
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 DV
brídge
★ ; ,
Einvígi um Reykjavíkurmeistara-
titilinn í sveitakeppni verður spilað
í Bridgehöliinni við Þönglabakka
um helgina. Eigast þar við sveitir
Landsbréfa og Amar Arnþórssonar.
Um síðustu helgi voru fjórð-
' ungsúrslit og undanúrslit spiluð og
stóðu þessar tvær sveitir einar uppi
eftir spilamennsku helgarinnar.
Sveit Landsbréfa vann sína leiki
létt, andstæðingarnir voru sveit
Granda og sveit Marvins, meðan
sveit Arnar vann sveit Hjálmars
Pálssonar með yflrburðum en átti í
mestu vandræðum með sveit Still-
ingar. Þegar leik lauk skildu 10 imp-
ar sveitimar að, en sveit Stillingar
taldi sig hafa beðið skaða í einu
spili undanúrslitanna og kærði úr-
slit í því. Keppnisstjóri lét úrslit
spilsins standa óbreytt og var úr-
skurði hans áfrýjað til dómnefndar
Reykjavíkurmótsins, sem staðfesti
úrskurð keppnisstjóra, en áminnti
norður fyrir að gefa austri ekki upp-
lýsingar um hugsanlegan misskiln-
ing í sögnum n-s.
Þessum úrskurði var áfrýjað til
dómnefndar BSÍ, sem staðfesti úr-
skurð dómnefndar Reykjavíkur-
mótsins en dæmdi sveit Arnar i 3ja
impa sekt. Var sveit Arnar þar með
sigurvegari leiksins með 7 impa
mun.
En skoðum þetta örlagaríka spil.
N/a-v
♦ G94
W10
♦ ÁK987
♦ ÁD83
* ÁK5
VÁK93
D10
* G1065
♦ D
»G764
♦ G6532
4 K74
í lokaða salnum sátu n-s Guð-
mundur Sveinsson og Valur Sig-
urðsson, en a-v Ásmundur Pálsson
og Aðalsteinn Jörgensen. Þar gengu
sagnir á þessa leið:
4 1087632
VD852
♦ 4
4 92
Norður
1 4
pass
dbl
Austur
dbl
4 4
pass
Suður
1
pass
pass
Vestur
3 4
pass
pass
N-s fengu sína augljósu 4 slagi
og fengu 200 í sinn dálk.
í opna salnum sátu n-s Sigurður
Sverrisson og Jakob Kristinsson,
en a-v Erlendur Jónsson og Sigurð-
ur Vilhjálmsson. N-s spila ekki að
staðaldri saman, en voru samt að
spila ICE-RELAY, frekar flókiö
sagnkerfi. Sagnröðin var þannig:
Norður Austur Suöur Vestur
1 ♦* dbl 2 *** 2 *
3 * 3 ♦ pass 3 *
pass 3* pass 4 ♦
4 G dbl 5 ♦ pass
pass pass dbl pass pass
Nú til dags eru helstu mót spiluð
með spjöldum sem koma i veg fyrir
að spilarar geti séð spilafélaga sína.
Sitja n-a saman öðrum megin við
spjaldið og s-v hinum megin. Opnun
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
á einum tígli í
ICE-RELAY hefur ekkert með tígul
að gera og tvö lauf eftir doblið voru
útskýrð á mismunandi hátt fyrir a-
v. Jakob útskýrði sína sögn fyrir
vestri, sem stuðning við annan eða
báða lágliti og ekki krafa, en Sigurð-
ur útskýrði sögnina sem kröfu með
lauflit. Kerfiskort þeirra sýnir að
Sigurður hafði á réttu að standa því
dobl austurs breytti merkingu
tveggja laufa sagnarinnar.
Hvað um það, þá var engin leið að
tapa 5 tiglum og Sigurður fékk 550 í
sinn dálk.
Fimm tíglar eru óskasamningur í
n-s og margir myndu segja að n-s
ættu hrós skilið fyrir að ná þeim
samningi. En nútímabridge er ekki
þannig. Gefum a-v orðið: „N meldar
ekki í samræmi við útskýringar
sína. N hefir enga ástæðu til þess að
leita að nýjum tromplit með tilliti
til sagnar suðurs og útskýringa
sinna á henni. Gerum kröfu um að
n meldi eðlilega fimm lauf og n-s
spili þau dobluð a.m.k. tvo niður.“
Úrskurður dómnefndana var hins
vegar þessi: „Úrskurður keppni-
stjóra stendur(+550). Dómnefnd tel-
ur ekki að a-v hafi skaðast í sögn-
um. Norður áminntur fyrir að gefa
austri ekki upplýsingar upp hugsan-
legan misskilning í sögnum n-s.“
Það má til sanns vegar færa, að a-
v hafi ekki skaðast í sögnum. En að
þeirra áliti snýst málið ekki um
það. Heldur hvað n-s er heimilt að
gera, eða óheimilt, þegar þeir telja
misskilning vera í sögnum.
skák
- Karpov og Anand sestir að tafli í Wijk aan Zee
Jóhann Hjartarson stórmeistari
hefur náð 37. sæti yfir sterkustu skák-
menn heims á nýjum skákstigalista
Alþjóðaskáksambandsins. Frábær ár-
angur Jóhanns á nýliðnu ári skilaði
honum 25 Elo-stiga hækkun. Hann
hefur nú 2630 stig ásamt fimm öðrum
stórmeisturum, m.a. baráttujöxlunum
kunnu Viktor Kortsnoj og Artur Jusu-
pov. Neðar en Jóhann á listanum eru
nöfn sem íslenskum skákunnendum
eru að góðu kunn, eins og Yasser
Seirawan (2625), Jan Timman (2620),
Jaan Ehlvest (2610), John Nunn (2610),
Jonathan Speelman (2605), Lajos
Portisch (2600), Tony Miles (2595) og
Boris Gulko (2585). Jóhann er efstur
^ Norðurlandabúa - næstir honum
koma Svínn Ferdinand Hellars (2605)
og Daninn Curt Hansen (2595).
Jóhann var ofar á listanum eftir
einvígið við Viktor Kortsnoj í Saint
John fyrir tíu árum en þegar mest var
hafði hann þó tíu stigum minna en
nú. Árið eftir Kortsnoj beið Jóhann
lægri hlut í einvígi við Karpov í
Seattle og þá tók við tímabil sem Jó-
hann vill eflaust gleyma sem fyrst. Jó-
hann tók þá þátt í hverju mótinu á
fætur öðru en hreinlega „tefldi yfir
sig“ og á einu ári hafði stigatalan
lækkað um 65 stig. Síðan hefur Jó-
hann oft náð góðum árangri en aldrei
þó sem á síðasta ári sem var nánast
samfelld sigurganga.
Umsjón
Jón LÁrnason
1 ljósi þessa hljóta skákunnendur
að vera harmi slegnir vegna yfirlýs-
inga Jóhanns í vikunni, um að hann
hyggist láta af atvinnumennsku.
Veigamikil ástæða fyrir ákvörðun Jó-
hanns er sú, að eftir að Breznev sálugi
féll frá hefur ofgnótt sterkra skák-
manna streymt vestur fyrir jámtjald-
ið og þeir sem staðið hafa að skákmót-
um hafa auðveldlega fengið frambæri-
legt „vinnuafl" fyrir lítið. Þetta hafa
skákmenn frá Vesturlöndum ekki get-
að keppt við á jafnréttisgrundvelli.
Skákforystan hér innan lands hefur
heldur ekki haldið vöku sinni og ís-
lensku stórmeistararnir hafa því
meira og minna þurft að sækja verðug
verkefni til annarra landa með til-
heyrandi herkosínaði. Grunnlaun
lektora, sem stórmeistaralaun taka
mið af, hrökkva ekki til. Tvennt fer
þar saman, að kjör hérlendra háskóla-
kennara hafa verið aðhlátursefni víða
um heim og að skákútgerð á fjarlæg
mið er óhjákvæmilega kostnaðarsöm.
Við eigum marga unga og efnilega
skákmenn, sem gætu hæglega freistað
þess að feta i fótspor Jóhanns, en þeir
eiga enn margt ólært. Og hvað skyldi
nú bærast í ungum hjörtum, sem fram
að þessu hafa fetað skákbrautina full
vonar?
Alls eru sextíu íslendingar á stiga-
lista FIDE en af þeim hefur einungis
liðlega helmingur teflt reiknaðár
skákir síðasta hálfa árið. Mesta at-
hygli vekur að Jón Viktor Gunnars-
son er kominn í 10. sæti yfir sterkustu
skákmenn þjóðarinnar. Kannski verð-
ur hann arftaki Jóhanns. Efstu menn
eru þessir:
1. Jóhann Hjartarson 2630
2. Margeir Pétursson 2555
3. Hannes Hlífar Stefánsson 2540
4. Jón L. Ámason 2535
5. Helgi Ólafsson 2505
6. Karl Þorsteins 2495
7. Þröstur Þórhallsson 2480
8. Helgi Áss Grétarsson 2475
9. Friðrik Ólafson 2460
10. Jón Viktor Gunnarsson 2390
Þeir sem hafa teflt skákir frá 1.
júlí sem reiknaðar hafa verið til al-
þjóðlegra stiga em að auki þessir:
Jón Garðar Viðarsson (2380), Þor-
steinn Þorsteinsson (2310), Ágúst
Sindri Karlsson (2305), Sævar
Bjamason (2300), Bragi Halldórsson
(2285), Arnar Þorsteinsson (2285),
Gylfi Þórhallsson (2280), Áskell Örn
Kárason (2260), Stefán Kristjánsson
(2255), Rúnar Sigupálsson (2250),
Bragi Þorfinnson (2250), Björn
Freyr Björnsson (2240), Matthías
Kormáksson (2235), Júlíus Friðjóns-
son (2215), Sigurður Daði Sigfússon
(2215), Bergsteinn Einarssón (2210),
Kristján Eðvarðsson (2205), Einar
Hjalti Jensson (2205), Arnar E.
Gunnarsson (2195), Jón Árni Hall-
dórsson (2185), Matthías Kjeld
(2110), Jóhann H. Ragnarsson (2110),
Páll Agnar Þórarinsson (2105), Dav-
íð Kjartansson (2100), Björn Þor-
finnsson (2100), Hrannar Björn Arn-
arsson (2035) og Þorvarður Örnólfs-
son (2015).
Sá sem hefur hækkað mest allra á
heimslistanum er Babakuli Ann-
akov, 25 ára gamall alþjóðlegur
meistari frá Túrkmenistan. Hann
hefur hækkað um 205 stig, sem er
afrek út af fyrir sig en öllu meira af-
rek býr þó að baki árangri hans.
Hann hefur nefnilega gert sér lítið
fyrir og teflt 212 skákir á hálfu ári,
sem allar eru reiknaðar til stiga.
Forráðamenn FIDE hafa staðfest að
þetta eigi við rök að styðjast en sé
ekki prentvilla í stigatöflunni.
Garrí Kasparov trónir efstur og
hefur hækkað um 5 stig en Karpov
- heimsmeistari - verður að láta sér
vel lika 6. sætið. Tíu efstu menn eru
þessir:
1. Garrí Kasparov (Rússlandi) 2825
2. Vladimir Kramnik (Rússlandi) 2790
3. Viswanathan Anand (Indlandi) 2770
4. Vassily Ivantsjúk (Úkraínu) 2740
5. Veselin Topalov (Búlgaríu) 2740
6. Anatoly Karpov (Rússlandi) 2735
7. Gata Kamsky (Bandaríkin) 2720
8. Alexei Sirov (Spáni) 2710
9. Peter Svidler (Rússlandi) 2690
10. Alexander Beljavskí (Slóveníu) 2690
Fyrsta stórmót ársins
Anatoly Karpov og Viswanathan
Anand eru báðir meðal þátttakenda
á fyrsta stórmóti ársins, sem hófst í
Wijk aan Zee í Hollandi í síðustu
viku. Á morgun, sunnudag, tefla
þeir saman og hefur Karpov hvítt.
Mótið er af 17. styrkleikaflokki
FIDE, meðalstig eru 2670.
Vladimir Kramnik, sem var fjarri
góðu gamni á heimsmeistaramót-
inu, ætlar sér bersýnilega stóra
hluti og eftir sex umferðir var hann
einn efstur. Hann vann fyrstu fjórar
skákir sinar en í fimmtu umferð
stöðvaði Sírov sigurgöngu hans.
Hann hefur hlotið 4,5 vinninga en
Anand kemur næstur með 4 vinn-
inga. Síðan koma Adams, Gelfand,
Polgar og Timman með 3,5 v., en
Karpov, Sírov, Topalov og van der
Sterren hafa 3 v., Piket hefur 2,5 og
Nijboer 2 v. Öllum skákum Karpovs
fram að þessu hefur lyktað með
jafntefli.
Anand virðist ekkert hafa látið óf-
arimar gegn Karpov hafa áhrif á
sig. I fimmtu umferð lagði hann
Topalov skemmtilega að velli.
Hvítt: Viswanathan Anand
Svart: Veselin Topalov
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 b5 6. Bb3 Bc5 7. a4
Hb8 8. c3 d6 9. d4 Bb6 11. axb5
axb5 12. Hel He8 13. Ra3 b4 14.
Rc4 bxc3 15. bxc3 exd4 16. Rxb6
Hxb6 17. cxd4 Rxe4 18. Bxf7+
Kxf7 19. Hxe4 Hxe4 20. Rg5+ Kg8
21. Rxe4 Bf5?!
Eftir 21. - De8 virðist svartur hafa
frambærileg stöðu.
22. Rg5! Re7?
Best er 22. - Hb8 en hins vegar
hefði 22. - h6 23. Df3! verið óþægi-
legt, t.d. 23. - Re7 24. Ha8 Hb8 25.
Db3+! Hxb3 26. Hxd8 mát.
23. g4! Bg6 24. Re6 Dc8 25. d5
Bf7
26. Rxg7! Kxg7 27. Dd4+ Kf8
Ekki 27. - Kg8 28. Bh6 og mát eða
drottningartap blasir við og 27. -
Kg6 28. De4+ Rf5 29. Ha3 gefur
einnig vinningsstöðu.
28. Bh6+ Ke8 29. Hel!
Rólyndislegur en eitraður leikur.
Topalov sá þann kost vænstan að
gefast upp í þessari stöðu. Hvítur
hótar 30. Dh8+ eða 30. Bg5. Ef 29. -
Kd7 gæti teflst 30. Hxe7+! Kxe7 31.
De4+ Be6 (ef 31. - Kd7 32. Df5+ Kd8
33. Bg5+ og vinnur drottninguna og
engu betra er 31. - Kffi 32. g5 mát!)
32. Dxh7+ BÍ7 33. De4+ Be6 34. Bg5+
Kffi 35. dxe6 De8 36. DÍ5+ Kg8 37.
Bh6 og vinnur.