Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998
11
DV
Fréttir
Hér má sjá rjómann af frambjóöendum Reykjavíkurlistans. Kratar eru ekki alis kostar sáttir viö sinn hlut.
Eftirmál prófkjörs R-listans:
Óánægja innan Alþýðuflokksins
- nýir fulltrúar ekki kratar í hefðbundnum skilningi, segir Pétur Jónsson
„Það er rétt að nokkur óánægja er
til staðar innan Alþýðuflokksins í
kjölfar prófkjörsins og ég hef orðið
mjög var við hana. Ég segi hins vegar
að Alþýðuflokkurinn stóð svona að
þessu prófkjöri og vissi hvað hann
var að gera og menn verða að taka
niðurstöðunum," sagði Pétur Jóns-
son, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, í
samtali við DV. Eins og kunnugt er
féll Pétur í prófkjöri og nýir menn,
Hrannar Arnarsson og Helgi Péturs-
son, komu inn. Óánægjan innan
flokksins nú er vegna þess að menn
telja að „Alþýðuflokkurinn" eigi eng-
an fulltrúa lengur í borgarstjórn.
Hrannar bauð sig fram sem óháður
og Helgi gekk inn í Alþýðuflokkinn
skömmu fyrir prófkjör en hefur
lengst af tengst Framsóknarflokki. En
lítur Pétur ekki á þá félaga sem al-
þýðuflokksmenn? „Nei, þeir eru góðir
og gegnir vinstrimenn en þeir eru
ekki alþýðuflokksmenn í þeim skiln-
ingi að þeir hafa ekki starfað fyrir
flokkinn og eru nýgengnir inn í
hann.“ - En telur þú að þessi óánægja
innan Alþýðuflokksins, sem er nú í
gerjun, muni hugsanlega skapa erfið-
leika í samstarfi flokksins við Reykja-
víkurlistann? „Ég veit það ekki, það
gæti verið hætta á því en ég skal ekk-
ert fullyrða um það.“ Hvort listinn
væri sterkari nú en fyrir prófkjör
sagðist Pétur ekkert geta fullyrt um.
„Það eru tveir ungir menn sem koma
þarna inn í forystu og ég veit ekki
hvort þeir koma tO með að draga bet-
ur en þeir sem fyrir voru. En ég held
að staða listans sé ekki verri en áð-
ur.“ Nú hefur Árni Sigfússon, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn,
lagt áherslu á að nú sé Alþýðubanda-
lagið í forystu Reykjavíkurlistans.
Telur þú að það breyti einhverju?
„Nei, það breytir engu því forystan
var og er hjá borgarstjóra, Ingibjörgu
Sólrúnu." Nú hlaustu ágæta kosningu
þótt það hafi ekki dugað í eitt af sjö
efstu sætunum. Munt þú taka sæti
sem varaborgarfulltrúi? „Það gæti
farið svo ef boðið yrði upp á það, við
verðum bara að sjá til ef og þegar,“
sagði Pétur Jónsson. -phh
✓
Ibúð óskast
3-4 herbergja íbúð óskast á leigu frá 1. mars til
1. okt. 3 fullorðnir í heimili.
Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma 557-3469 e. kl. 18 á kvöldin.
Guðrún Ágústsdóttir, önnur í prófkjöri R-listans:
Þarf að breyta
prófkjörsreglunum
- engin eftirmál af Guðrúnarmálum
B ORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚNI3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Landspítalalóð, barnaspítali
Auglýst er til kynningar verðlaunatillaga að
nýjum bamaspítala á Landspítalalóð. Kynning-
in fer fram í sal Borgarskipulags og Bygging-
arfulltrúa, Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10.00 - 16.15 og stendur til 4. mars 1998.
„Ég tel aðalatriði að borgarbúar
hafa valið mjög sigurstranglega
sveit sem mun sækja sigur í kosn-
ingunum í vor. Og ég er þakklát fyr-
ir þá glæsilegu kosningu sem ég
fékk. Ég vildi hins vegar útskýra
daginn eftir prófkjörið fyrir þeim
sem ekki höfðu skilið það hvemig
þessar reglur í prófkjörinu virkuðu
og af hverju ég tel þetta kerfi ekki
gott,“ sagði Guðrún Ágústdóttir, en
hún lenti í öðm sæti í prófkjöri
Reykjavíkur-listans nú á laugardag.
Það hefur vakið athygli aö hún hef-
ur gagnrýnt fyrirkomulag prófkjörs-
ins eftir að það fór fram, sem og að
hún hefur lýst yfir að Guðrún Jóns-
dóttir, frambjóð-
andi Framsókn-
ar, hafi unnið
gegn sér í skrif-
um fyrir próf-
kjörið.
„Ég tel það
mjög djarft að
hafa ekki meiri
stigamun á milli
sæta og held að
bilið hefði þurft
Guörún Ágústs-
dóttir er ósátt.
að vera meira.
Fólk er vant því
að efstu sætin hafi meira vægi og
þannig hefði það þurft að vera.
Helgi Hjörvar fékk glæsilega kosn-
ingu og er ótvíræður sigurvegari
kosninganna og í þessari kosningu
fékk ég langflest atkvæði í fyrsta
sætið. En ég bjóst við þessari niður-
stöðu af því kerfíð bauð upp á þetta.
Hvað varðar Guðrúnu Jónsdóttur
þá hefur hún ekki óskað eftir því að
ég útskýri þetta frekar. Ég vií bíða
með það þangað til og ef slík ósk
kemur fram og gera það þá á vett-
vangi Reykjavíkurlistans. Ég tel aö
það verði engin eftirmál af þessu,
nú þurfum við að horfa til framtíð-
ar því nú er mikið í húfi að sigra á
nýjan leik i kosningunum i vor,“
sagði Guðrún.
-phh
SJÁÚFSVÖKN FYKItt KON\JK
HeigarnámsVeid - bárnarV 20 i Vióp
HELGINA *7. TIL B. FEBRÚAR
FRÁ KLUKKAN 1 D : □ 1 2 : □ □
Farið í grunnatriði
sjálfsvarnar: hugarfar,
BRÖGÐ OC3 TÆKNI.
SkrÁning í síma 55 1 -4D□ 3
MÆTING KL 9:30 Á LAUGARD.
VERÐ KR. 3.500
Karatefélagid
ÞÓRSHAMAR
Brautarhotti 22 Simi 551 4003
Framkvæmdastjóri Sæplasts á Dalvík:
Hætti að eig-
in fumkvæði
DV, Akureyri:
Kristján Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts hf. á Dalvík,
hefur sagt starfi sínu lausu og látið
af störfúm.
Valdimar Snorrason, stjórnarfor-
maður fyrirtækisins, segir að Krist-
ján hafi hætt að eigin ósk og hann
kannast ekki við að um neinn þrýst-
ing hafi verið að ræða á Kristján af
stjómarinnar hálfu um að hann
segði upp.
„Ég lít alls ekki þannig á að um
ágreining hafi verið að ræða milli
stjómarinnar og Kristjáns. Hins
vegar hefur fyrirtækið ekki náð
markmiðum sem við höfum sett
okkur undanfarin ár og á því
byggir Kristján ákvörðun sína,“
segir Valdimar.
-gk
Kristján Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts hf.
Undirstöðunámskeið um dulfrœði
og þróunarheimspeki
Námskeiðið verður haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á miðvikudagskvöld-
um kl. 20.00 til 22.20 og hefst 11. febrúar.
Áætlað er að námskeiðið standi til loka aprílmánaðar.
Þátttökugjald er 2.000 kr. á mánuði.
Bókakynning er á erlendum fræðirimm samhliða námskeiðinu. Stuðst verður við efn-
isatriði bóka Trans-Himalaya skólans.
Sérstaklega má nefna tvær bækur sem eru til á íslensku, bækumar: Vitundarvígsla
manns og sólar og Bréf um dulfræðilega hugleiðingu eftir tíbetska ábótann Djwhal
Khul, skrásettar af ritara hans, A.B.
Upplýsingar og innritun í síma 557 9763.
Ahugamenn um þróunarheimspeki
Pósthólf 4124, 124 Reykjavík, sími 557 9763
Áhugamenn um þróunarheimspeki starfa ekki í ágóðaskyni.