Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1998, Blaðsíða 32
n&viniM
Frjáls fjölmiðlun:
Á hlutabréfa-
markað
Búnaðarbankinn hefur umsjón
með allsherjar endurfjármögnun
Frjálsrar fjölmiðlunar sem verður
gerð í framhaldi af kaupum Sveins
R. Eyjólfssonar, stjómarformanns
fyrirtækisins, og Eyjólfs Sveinsson-
ar framkvæmdastjóra á 35% hluta-
bréfa sem áður voru í eigu íslenska
útvarpsfélagsins.
Viðskiptablaðið greinir frá þessu
í morgun og segir að Búnaðarbank-
inn fjármagni um helming
kaupanna á bréfum íslenska út-
varpsfélagsins með láni til að brúa
bilið frá kaupum á bréfunum og þar
til þau, eða hluti þeirra, verða seld
að nýju. Búnaðarbankinn muni
einnig undirbúa skráningu félags-
ins á hlutabréfamarkað. Fjárfestar
hafi þegar skráð sig fyrir tilutum í
Frjálsri fjölmiðlun. -SÁ
Engar fréttir
af loðnunni
Þaö var napurt í höfuðborginni í morgun þegar Vetur konungur geröi vart viö sig. Af því tilefni sátu strákarnir i Austurbæjarskólanum fyrir stelpunum og
leyföu þeim aö finna hvaö fyrsti snjórinn væri kaldur. DV-mynd S
DV, Akureyri:
„Það hefur ekkert borið til tið-
inda,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson,
leiðangursstjóri á
Árna Friðrikssyni,
í morgun en skipið
fór í loðnuleit í
fyrrakvöld.
Hjálmar sagði
að þeir hefðu feng-
ið brælu það sem
af væri. 1 morgun
hélt skipið kyrru
fyrir í Lónvík og
sagði Hjálmar að þeir myndu ekkert
hreyfa sig fyrr en lægði. -gk
Hraðbankamálið:
Tveir til viðbótar
handteknir
Tveir menn á fertugsaldri voru
handteknir í gærkvöld vegna gruns
um aðild að hraðbankaþjófnaðinum
um síðustu helgi.
Lögregla mun fara fram á kröfu
um gæsluvarðhald yfir mönnunum
í dag. 25 ára karlmaður er fyrir í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar-
innar. -RR
Minjasafnið
skemmdist
Húsnæði Verslunarminjasafnsins á
Hvammstanga skemmdist mikið þeg-
ar flutningabíll skall á húsið í gær.
Talsvert af safnmunum eyðilögð-
ust. Ökumaður bifreiðarinnar missti
stjóm á bílnum í mikilii hálku. -RR
Háöldruð ekkja Svavars Guðnasonar kærð fyrir að selja falsað verk:
Eg er alsaklaus
segir Asta Eiríksdóttir, málið er hjá ríkislögreglustjóra
„Ég er alsaklaus. Þetta er róg-
burður. Ef að þessi mynd hefur ver-
ið seld á sýningunni í Árósum þá sá
ég ekki sjálf um söluna heldur gall-
eríið. Þeir á galleríinu í Árósum
sendu mér yfirlit yfir þau verk sem
þeir seldu og greiðslu fyrir. Hins
vegar finnst mér skrítið hve margar
myndir eftir Svavar hafa verið í
umferö í Danmörku. Ég tel að marg-
ar þessar myndir, sem eru eignaðar
Svavari, séu falsaðar," sagði Ásta
Eiríksdóttir, 85 ára ekkja Svavars
Guðnasonar listmálara við DV í
gærkvöld.
Jónas Freydal Thorsteinsson, for-
stjóri í Kaupmannahöfn, hefur lagt
fyrir að hafa selt falsað málverk og
sagt það vera eftir Svavar. Kæran
barst ríkislögreglustjóraembættinu
í gær. Myndin sem um ræðir er
svart hvít og gerð í blek. Mótíf
myndarinnar er naut og tvö
svokölluð „fabeldýr".
Dæmt falsaö
„Ólafur Ingi Jónsson forvörður
hefur dæmt nefnt málverk eftir Sva-
var falsað. Ég keypti málverkið af
Gallerí Profilen í Árósum. Seljandi
þar var Ásta Eiríksdóttir. Eigandi
Gallerí Profilen hefur endurstaðfest
kaup mín í síma en mun senda mér
ljósrit af hans pappírum varðandi
söluna á næstu dögum. Ég hef beðið
Ólaf Inga um að senda hlutaðeig-
andi aðilum ljósrit af rannsókn
þeirri er hann byggir dóm sinn á að
málverkið sé falsað. Myndina
keypti íslendingurinn Eysteinn
Jónsson sem býr í Holte í Dan-
mörku af Galleri Leif Jensen. Ég
seldi Pétri Gunnarssyni í Gallerí
Borg myndina og hef boðið honum
fulla endurgreiðslu þessara kaupa,“
segir Jónas Freydal við DV.
Jónas Freydal hefur komið við
sögu í rannsókn ríkislögreglunnar
þar sem hann seldi Pétri 5 málverk
sem eru til rannsóknar vegna
meintrar fólsunar. Jónas Freydal
hefur vísað því á bug að hann hafi
verið með réttarstöðu grunaðs
manns í rannsókn lögreglunnar,
heldur hafi hann verið með réttar-
stöðu vitnis. Hann segist mjög
ánægður með að dómsmálaráðherra
hafi komið fram og sagst líta málið
alvarlegum augum.
-RR
Algjört verkfallsbrot Smáeyjar
„Þetta er algjört verkfalls- nBBnMBj LÍÚ og útvegsbændur al-
brot. Sá sem á þetta skip og ^Hpflpflflj|l| mennt á námskeið og
stýrir þessum aðgerðum er kenna þeim mannleg sam-
formaður útvegsbændafé- H skipti," sagði Sævar
lags Vestmannaeyja. En H f. "'** ffH Gunnarsson, formaður
þetta er bara eins og LÍÚ- Mk Sjómannasambands ís-
forystan hefur hagað sér. |H lands, í morgun, mjög
Þeir virða ekki lög og þeir il'' 'xJBfl ósáttur við að Smáey frá
Ég held að það veitti ekki af IHl_^_^^B Vestmannaeyjum fór í
því að setja forystumenn Sævar Gunnarsson. róður í gærkvöldi með
fimm manna áhöfn, allt yfirmenn.
„Ég er alveg viss um hvað ég ætla
að leggja til um aðgerðir við samn-
inganefndina á eftir - ef við sjáum
þá yfirhöfuð ástæðu til að fara til
samninga við menn sem ekki geta
farið eftir nokkrum lögum. Við eig-
um að hittast klukkan tvö hjá sátta-
semjara en ég reikna með að sjá
mína menn fyrr,“ sagði Sævar.
Aðspurður hvort lögskráningar
verði framkvæmdar biðji fleiri um
slíkt sagði Georg Lárusson, sýslu-
maður í Vestmannaeyjum, i morg-
un:
„Við munum lögskrá þá sjómenn
sem skipstjórar óska eftir að verði
lögskráðir svo framarlega sem við-
komandi hafa réttindi." -Ótt
Veðrið á morgun:
Víða
snjókoma
Á morgun verður vaxandi suð-
austan- og austanátt sunnan- og
vestanlands, víða allhvasst eða
hvasst um hádegi. Snjókoma í
fyrstu en rigning síðdegis vestan-
og sunnanlands. Fremur hæg
breytileg átt og úrkomulítið aust-
antil en snýst í suðaustan kalda
eða stinningskalda og viða snjó-
koma seinna.
Veðrið í dag er á bls. 29
ÓDÝRASTI
EINKAÞJÓNNINN
rmrm
BÍLSKÚRSHURÐA-
OPNARI
Verð kr. 18.950,-
AFPOR'
ýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i