Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1998, Síða 2
2
MIÐVKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
Fréttir
Stuttar fréttir dv
Kolbrún Sverrisdóttir hyggur á málaferli vegna Æsuslyssins:
Krefst bóta vegna
barnanna sinna
- gjafsóknar líklega krafist - segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hæstaréttarlögmaður undirbýr nú
málarekstur vegna Æsuslyssins.
Hann hefur tekið málið að sér fyrir
hönd bama Kolbrúnar Sverrisdótt-
ur sem misstu foður sinn og afa í
sjóslysinu þegar Æsa ÍS fórst í blíö-
skaparveðri í Amarfirði þann 25.
júlí 1996.
Engin skýring
Engin skýring hefur enn fengist
á slysinu þrátt fyrir að um 30 millj-
ónum króna hafi verið varið til
rannsóknar á því. Flakið hefur ver-
ið myndað með neðansjávarmynda-
vélum og breskt kafaragengi var
fengiö til að fara niður að skipinu
með þeim árangri einum að lík
Harðar Bjamasonar skipstjóra
fannst. Sjóslysanefnd hefur enn
ekki skilaö áliti vegna slyssins þrátt
fyrir að í sumar verða liðin tvö ár
frá atburðinum. Samkvæmt heim-
ildum DV er vandi nefndarinnar sá
að upplýsingar
sem til era varð-
andi slysið eru af
skomum skammti
og nægja ekki til
að skera úr um það
með óyggjandi
hætti hvað hafi
valdið því að skip-
iö sökk. Niður-
staða nefndarinnar
verður því væntan-
lega sú að líkur séu
til þess að skipið
hafi farið niður
vegna lélegs stöð-
ugleika.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður hefur tekið að sér að at-
huga um málarekstur fyrir hönd barna Kolbrúnar Sverrisdóttur vegna
Upplýsingum
safnað
Vilhjálmur segist vera að safna
gögnum um slysið og hann vænti
niðurstöðu Rannsóknamefndar sjó-
slysa á næstu vikum.
Kolbrún Sverrisdóttir.
Æsuslyssins.
„Ég er að skoða
gögn málsins og bíð
eftir niðurstöðu
Rannsóknamefndar
sjóslysa. Framhald
málsins ræðst þegar
sú skýrsla liggur
fyrir,“ segir Vil-
hjálmur.
Hann segist
skoða málið sér-
staklega út frá hags-
munum þriggja
barna Kolbrúnar
sem misstu foður
sinn og fyrirvinnu í
slysinu. Vilhjálmur
segir að ljóst sé að
Kolbrún hafi ekki
fjárráð til málarekstursins.
„Ég reikna með að farið verði
fram á gjafsókn komi til málshöfð-
unar,“ segir Vilhjálmur.
DV-mynd Ægir Már
inu hafi verið breytt í nokkrum
veigamiklum atriðum án þess að
lögboðið samþykki yfirvalda hafi
komið til. Þar er um að ræða stækk-
að stýri og þyngri búnað á þilfari.
Settur hafði verið á það nýr og
þyngri spilbúnaður, auk svokallaðs
sílós ofandekks. Þetta er talið hafa
rýrt stöðugleika skipsins, auk þess
að öflugra stýri ber í sér háska fyr-
ir skip með skertan stöðugleika.
DV leitaði eftir upplýsingum hjá
Siglingamálastofnun um samþykkt-
ar og skráðar breytingar á skipinu.
Þar er hvergi að flnna áðumefndar
breytingar og aðeins til gögn um að
lestarlúgur skipsins hafi verið
lækkaðar.
„Það er kominn tími til að þetta
mál verði rannsakað að fullu. Allt
sem gert hefur verið hingað til ber
ekki vott um annað en hálfkák og
yfirklór. Ég mun því sækja rétt
minn og bama minna til bóta með
tilstilli dómstóla. Það er nauðsyn-
Kúffiskbáturinn Æsa sem fórst í blíðviðri á Arnarfirði.
Samkvæmt heimOdum DV mun
málshöfðunin einkum beinast að
þáttum útgerðar Æsu og Siglinga-
málastofhunar. Ljóst þykir að skip-
legt fyrir okkur, sem og alla sjó-
mannastéttina, að úr því fáist
skorist hvað olli þessu slysi,“ segir
Kolbrún. -rt
Hitasótt herjar á hesta:
Veikin að
breiðast út
- héraðsdýralæknir telur um að ræða vírus
„Hitasóttin er enn að breiðast út.
Við vitum um tilfelli á Akranesi, í
Sandvík hjá Selfossi og Keflavík. Ég
get ímyndaö mér aö það sé á sjötta
tug hesta sem hefur fengið hitasótt-
ina. Nokkrir þessara veiku hesta
hafa náð sér að fullu," segir Steinn
Steinsson, héraðsdýralæknir í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, aðspurður
um hitasótt sem hefur komið upp í
hestum á höfuðborgarsvæðinu og
er nú að breiöast út víðar.
Yfírdýralæknir hefur beint þeim
tilmælum til hestafólks að allir
flutningar hesta milli hesthúsa,
hesthúsahverfa og landshluta verði
stöðvaðir. Nokkur ný tilfelli komu
upp í gær, að sögn Steins.
Að öllum líkindum vírus
„Maður býst við að veikin breið-
ist út því allir hestar eru eiginlega
berskjaldaðir fyrir þessu. Sérfræð-
ingar okkar telja næsta víst að
þama sé vírus á ferðinni. Blóðsýni
úr veikum hestum eru til rannsókn-
ar í Svíþjóð og við bíðum eftir nið-
urstööum úr þeim. Við höfum veriö
að reyna ná einhverju út úr saur-
sýnum en það hefur ekki gefið okk-
ur ömggar niðurstöður. Við ætlum
að sjá hvort lyfjagjöf sé í raun nauð-
synleg og hvort hestamir komist
ekki bara yfir þetta sjálfir. Það væri
að sjálfsögðu langbesta lausnin.
Hestar sem fá þennan sjúkdóm
verða lystarlausir og slappir,“ segir
Steinn.
Hann segir að það sé mikilvægt
að sem minnstur umgangur manna
og dýra sé um hesthúsin. Steinn
segir að erfitt sé að segja til um á
þessari stundu hversu alvarlegar
afleiðingar sjúkdómurinn getur
haft í for með sér. „Það er ekki
hægt þar sem við þekkjum ekki
sjúkdóminn," segir Steinn.
Líney Jónsdóttir dýralæknir
sagði við DV í morgun að fjögur ný
tilfelli hefðu komið upp á höfuð-
borgarsvæðinu í nótt. Líney sagði
að ljóst væri að veikin væri að
breiðast út og ekki búin að ná
hámarki enn. -RR
Steinn Steinsson héraðsdýralæknir var aö huga að hestinum Mána í gær.
Máni, sem er 9 vetra, hefur veikst af hitasótt sem herjað hefur á hesta á höf-
uðborgarsvæðinu og er að breiðast út um nágrannabyggðariög. Ivon
Leitner er eigandi Mána en hún er dýrahjúkrunarkona við Dýraspítalann í
Víðidal. DV-mynd S
111 milljaröa velta VISA
Heildarvelta greiðslukorta VISA
var 110,7 mihjarðar á síðasta ári.
Kreditkortaviðskipti erlendis
námu 9,3 milljörðum. Þar af tóku
korthafar á ferðalögum ytra út
reiðufé upp á 2,8 milljarða.
Rekstur SH hf.
Hagnaður
eftir fyrsta
rekstrarár
Sölumiðstöðv-
ar hraðfrysti-
húsanna sem
hlutafélags
varð 277 millj-
ónir króna eft-
ir skatta.
Heildartekjur SH hf. og 11 dótturfé-
laga þess urðu 29,5 milljarðar
króna. Heildareignir eru virði
10,27 milljaröa og eiginfjárhlutfall
er 17,3%. Forstjóri er Friðrik Páls-
son
Nýtt samkirkjuráð
Trúfélögin Vegurinn, Hjálpræð-
isherinn, Fíladelfía o.fl. hafa stofn-
að Nýja samkirkjuráðið tO að efla
og móta tengsl og samskipti sín í
milli auk þess að verða spámann-
leg rödd tO þjóðarinnar í heOd, að
því er segir í frétt frá ráðinu.
Fækkar í þjóðkirkjunni
Brottskráðir úr þjóðkirkjunni
umfram nýskráða urðu 912 á síð-
asta ári, en 1.056 gengu úr kirkj-
unni meðan 144 vom nýskráðir.
329 af J)eim burtgengnu voru
skráðir í bókhaldsflokk Hagstof-
unnar sem nefiiist - Utan trúfé-
laga.
Skrapað upp í olíugjaldið
Lendingar-
gjöld í innan-
landsflugi
verða hækkuð
og gjaldskrá á
Keflavfrurflug-
vefli breytt til
að vega upp á
móti minni
innheimtu
gjalds af flugvélaeldsneyti. Halldór
Blöndal samgönguráðherra hefúr
kynnt lagafriunvarp um málið í
rikisstjóminni.
Lögmenn of dýrir
Breskur framkvæmdastjóri evr-
ópsks mnheimtufyrirtækis segir
við Viðskiptablaðið að þóknun ís-
lenskra lögmanna sé allt of liá.
Fimm eiga helminginn
Fimm stærstu hluthafar I Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna eiga
um helming félagsins. Hluthafar
era alls 302 en 20 stærstu hluthaf-
amir eiga 92,7% hlutafjárins. Við-
skiptablaðið sagði frá.
Umbi skattborgara
Fjármála-
ráðuneytið
kannar nú
stofnun emb-
ættis umboðs-
manns skatt-
greiðenda. Auk
þess kannar
ráðuneytið
ýmsa aðra
þætti sem gætu bætt réttarstöðu
fólks gagnvart skattayfirvöldum,
m.a. stöðu yfirskattanefiidar. RÚV
sagði frá.
56.800 fluttu
Einstaklingar fluttu búferlum
56.797 sinnum á árinu 1997. 30.298
fluttu innan sama sveitarfélags,
18.588 milli sveitarfélaga, 3.990 tíl
landsins og 3.921 frá landinu. Þetta
er í fyrsta sinn frá árinu 1991 að
fleiri flytjast tO landsins en frá því.
574 fleiri íslendingar fluttu frá
landinu en tO landsins en 643 fleiri
útlendingar fluttu tO landsins en
frá því.
Tíöindalitið í Asíu
Tíðindalítið var á peningamörk-
uðum Asíu í gær og nótt. Gengi
helstu gjaldmiðla hækkaði lítOs
háttar nema á ringitinu í Malasíu
sem lækkaði um 0,01% og
Singapúrdollamum sem lækkaði
um 0,06%. HeOdargengisfafl rúpí-
unnar í Indónesíu hefur fallið um
74,07% síðan í júlí í sumar, batið í
Tailandi um 39,34% og pesinn á
Filippseyjum um 33,58%. -SÁ