Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1998, Qupperneq 11
MIÐYIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
11
Fréttir
. Róttækar hugmyndir á iðnþingi:
Utgerðin skili kvót-
anum á 20 árum
- ríkið leigi hann síðan út
í drögum að framtíðarstefnuskrá
fyrir Samtök iðnaðarins, sem lögð
voru fyrir nýafstaðið iðnþing, eru
lagðar til róttækar breytingar á
meðferð aflaheimilda í fiskveiði-
stjómunarkerfinu. Lagt er til að út-
gerðarmenn skili þeim aflaheimild-
um sem þeir nú ráða yfir til ríkisins
á 20 árum, eða 5% á ári. Ríkið leigi
síðan út kvótann sem þannig verður
innkallaður gegn breytilegu árgjaldi
sem ráðist af markaðsaðstæðum
hverju sinni. Leigutími verði 8-12
ár í senn.
Stefnuskrárdrögin eru samin af
stjóm, ráðgjafaráði, félögum og
stcirfsmönnum Samtaka iðnaðarins.
Um þessa róttæku hugmynd að ráð-
stöfun og meðferð aflaheimilda seg-
ir að leiga á aflaheimildum hafi það
fram yfir almenna skattlagningu að
hafa ekki áhrif á nýtingu fram-
leiðsluþáttanna i sjávarútveginum.
Leigan sé því hagkvæmari og virk-
ari leið til sveiflujöfhunar en al-
menn skattlagning.
í þeim kafla draganna að stefnu og
framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins þar
sem Qallað er um efnahagsstjómina
segir að stjóm efnahagsmála landsins
eigi fyrst og fremst að tryggja að raun-
gengi íslensku krónunnar haldist
stöðugt og hagstætt íslenskum iðnaði
og öðrum útflutnings- og samkeppnis-
greinum. Stöðugleiki í efhahagsmál-
um verði að vera homsteinn skyn-
samlegrar hagvaxtarstefnu.
Það sé mikilvægt að koma í veg fyr-
ir sveiflur í efnahagslífinu sem rætur
eiga að rekja til sjávarútvegarins og
stafa af sveiflum í aflabrögðum og af-
urðaverði. Slíkar sveiflur beri mark-
visst að jafha með tiltækum hag-
stjómartækjum eins og t.d. sjálfvirkri
sveiflujöfnun í skattkerfinu, hófsamri
peningastjómun og auðlindaleigu.
Til að þessi sveiflujöfnun í skatta-
kerfmu sé sem virkust segja höfund-
amir að það sé nauðsynlegt að skerpa
sambandið milli skatta og aflatekna
og innheimta skattinn áður en aukn-
ar aflatekjur fara að valda þenslu.
Þetta sé mögulegt að gera með því að
skattleggja hagnað af kvótasölu og að
bannað verði að afskrifa annan kvóta
en þann sem útgerðarmenn skila til
ríkisins. -SÁ
Skagafjöröur:
Lýsing í
Viðvík-
ursveit
DV, Fljótum:
Eftir áramót hefhr verið unnið
við uppsetningu ljósastaura við all-
ar heimreiðar í Viðvíkurhreppi i
Skagafirði, alls 17 talsins, og auk
þess að tveimur kirkjum í hreppn-
um.
Það er sveitarsjóður sem stendur
straum af kostnaði við framkvæmd-
ina - leggur til fjóra staura ásamt
jarðstreng á hvert heimili. Fólk get-
ur síðan bætt fleiri staurum við á
eigin kostnað ef ástæða þykir til
þess.
Haraldur Þór Jóhannsson, odd-
viti Viðvíkurhrepps, telur að fólk sé
nokkuð ánægt með þessa ffam-
kvæmd. Ekki sist á þeim heimilum
þar sem tamningar eru stundaðar
að ráöi. Þætti þetta mikil bót því
menn gætu nú verið á hestum fram
eftir kvöldi.
Haraldur sagði að heildarkostn-
aður við verkið lægi ekki fyrir en
bjóst við að hann væri nærri fjórum
milljónum króna. Það er rafmagns-
verkstæði Kaupfélags Skagfirðinga
sem sér um verkið en fyrr í vetur
annaðist það uppsetningu
ljósastaura við flesta bæi í Rípur-
hreppi í Skagafirði. -ÖÞ
Veriö er aö setja upp hljóömúr viö Sæbraut en hávaöamengun var hiuti af
ástæöunni fyrir því hve umdeild nýbygging ibúðarhúsa viö Laugarnesveg
var á sínum tíma. DV-mynd S
Sorpförgun
byggðasamlags-
ins Hulu
Skipulagsstofnun hefur lagt fram
ffummatsskýrslu vegna sorpförgun-
ar í A- og V-Eyjafjallahreppum,
Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi en
byggðasamlagið Hula er fram-
kvæmdaraðili verksins.
í fnunmatsskýrslu eru metin um-
hverfisáhrif sameiginlegrar urðun-
ar hreppanna á heimilissorpi á
Skógasandi; sorporkustöðvar á
Kirkjubæjarklaustri ásamt m-ðun-
arstöðum við Uxafótarlæk og á
Stjómarsandi. Gert er ráð fyrir að
heildarúrgangur, sem til fellur á
samlagssvæðinu, verði á bilinu 700
til 900 tonn. Almenningi gefast
fimm vikur til að kynna sér fram-
kvæmdir og gera athugasemdir sem
skulu berast Skipulagsstofnun eigi
síðar en 27. mars. Tillögur að
deiliskipulagi á Skógasandi, við
Uxafótarlæk og á Stjómarsandi, auk
breytinga á aðalskipulagi vegna
sorporkustöðvar á Kirkjubæjar-
klaustri, verða auglýstar um leið og
frummatsskýrslan. -sm
Stöðvarfjörður:
Loðnuúrgangur til
Sandgerðis
Nú hafa forsvarsmenn Gunn-
arstinds á Stöðvarfirði tekið upp þá
nýbreytni að láta sigla með loðnuúr-
gang til Sandgerðis til bræðslu.
Loðnuúrgangi var dælt um borð í
Dagfara og síðan fyllt í hann úr Sól-
fefli þeim afla sem ekki fór til fryst-
ingar hjá fyrirtækinu. Siðan var
siglt tl Sandgerðis en þar er verk-
smiðja sem er að hluta til í eigu
KEA eins og Gunnarstindur og
bæði umrædd skip. -GH
Fýrsta loðnan
til Eyja
DV, Vestmannaeyjum:
Heimaey VE kom með fyrsta
loðnufarminn eftir verkfall til Eyja í
gærmorgun. Skipið var með 700
tonn og fór helmingur aflans til
reynslu í nýjan tækjabúnað til
loðnuvinnslu í ísfélaginu.
Allt er tfl reiðu til að taka á móti
loðnu til frystingar í Vestmannaeyj-
um og hafa bæði ísfélagið og
Vinnslustöðin gert miklar endur-
bætur á flokkunarstöðvum og
vinnslulinum. Sameiginleg afkasta-
geta þeirra er nálægt 900 tonnum á
sólarhring. -ÓG
AEG
• -28. febrúcar
Afslattur af öllum AEG vörum í verslun okkar í 8 dagaí
Einnig afsláttur af:
Emile Henry leirvörum (+20%) • Brabantia eldhúsvörum, strauborð ofl. (+20%) • Tefal raftæki +20%
XlíTX
AEG | I-Jllilci lcillA
: ^brabantia'
Í~X_ BRÆÐURNIR
m OKMSSON
Lágmúla 8 • Sími 533 2800