Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1998, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 199ö
Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 2. mars með
íbúum Seljahverfis, Efra- og Neðra Breiðholts
í Gerðubergi kl. 20.00
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
heldur hverfafund með íbúum í
Túnum, *
Holtum, |
,8
Norðurmýri og |
Hlíðum. I
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn
26. febrúar á Kjarvalsstöðum kl. 20.00.
Á fundunum mun borgarstjóri m.a. kynna áætlanir og
framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og
fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna
borgarinnar. Sýndar verða teikningar og myndir af
fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru
fróðlegu og myndrænu efni.
Sjá hverfafundi á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.
s+aögreiöslu-
og greiöslukor+aafslát+ur a\\t rnlll/ hlrri/ns
og s+ighcekkandi ** ^ ^ ^ Smaauglyslngar
bir+ingarafslá++ur 550 5000
Fréttir
Sjúkrahús Akraness:
Kona stjórnar-
formaður
DV, Akranesi:
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur skipað Eimýju Vals
rekstrarfræðing formann stjómar
Sjúkrahúss Akraness og heilsu-
gæslustöðvarinnar. Eimý tekur við
formennskunni af Ríkharði Jóns-
syni sem hefur verið stjómarfor-
maður í fjöldamörg ár.
Eimý útskrifaðist frá Samvinnu-
háskólanum á Bifröst 1990. Hún var
aðalféhirðir Akraneskaupstaðar
1990-1997 og á síðasta ári tók hún
við starfi þjónustustjóra og stað-
gengils útibússtjóra við útibú ís-
landsbanka á Akranesi.
„Þetta er spennandi starf og það
tekur mikinn tíma að komast inn í
málin. Ég vona að reynsla mín komi
að góðum notum fyrir sjúkrahúsið
og heilsugæslustöðina. Mér þykir
vænt xun að vera treyst fyrir þessu
og mun leggja mig alla fram til að
skila góðu starfi. Það var ánægju-
legt hvað yfirboðarar mínir vom já-
Eirný Vals. DV-mynd Daníel
kvæðir gagnvart þessu. Ég er reglu-
lega þakklát fyrir það,“ sagði Eimý
Vals. -DVÓ
Hannes Sigmarsson læknir ásamt hjúkrunarfræ&ingunum, töldum frá vinstri, Hafdfsi Eddu Eggertsdóttur, Gu&nýju
Ragnarsdóttur og Sigrí&i Björgvinsdóttur.
Þeir sem hafa áhuga á að koma á framfæri efni í þetta
blað eru beðnir að hafa samband við Guðrúnu Gyðu í
síma 897 0995 sem allra fyrst.
Auglýsendum er bent á að hafa samband við
Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, í
síma 550 5720 milli kl. 9 og 14 hið fyrsta, svo
unnt reynist að veita öllum sem besta þjónustu.
Ath. Skilafrestur á vinnsluauglýsingum er til 13. mars.
Miðvikudaginn 25. mars
fylgir hin sívinsæla ferm-
ingargjafahandbók DV.
Þessi handbók hefur þótt nauð-
synleg upplýsinga- og innkaupabók
fyrir alla þá sem eru í leit að fermingargjöfum.
Austurland:
Nýjung í heil-
brigðisþjónustu
DV, Seyðisfiröi:
Fyrir tveimur áram var könnuð
þörfin á sérdeild fyrir heilabilað
fólk á Austurlandi og ætlunin var
að hún yrði á Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað. Þörfin var stað-
reynd en ekki reyndist vera hentugt
húsrými fyrir deildina þar.
í heilbrigðisstofnuninni á Seyðis-
firði stóð aftur á móti mjög hentugt
húsnæði til boða og þar var undir-
búningur hafinn. Hannes Sigmars-
son læknir hefur verið forystumað-
ur í málinu og segir hann að árleg
þörf nú sé rúm fyrir 2-8 sjúklinga.
Stefha Öldrunarráðs íslands er að
slík hjúkrunardeild verði í hverjum
landsfiórðungi. Þessi sjúkradeild
hér er raunverulega þáttur á starfs-
samningi við heilbrigðisráðuneytið
sem styrkir stöðu stofhunarinnar og
veitir síst af því.
Leiðbeiningaraðstoð hefur
Sjúkrahús Reykjavíkur veitt og hef-
ur Hannes læknir átt gott og gagn-
legt samstarf við Jón Snædal öldr-
unarlækni og Pálma Jónsson yfir-
lækni. Hjúkmnarfræðingar þaðan
munu veita aðstoð verði eftir henni
leitað.
Deildin heitir legudeild fyrir
heilabilað fólk og er tekin til starfa.
Hefur hún verið kynnt fyrir lækn-
um og öðm heilbrigðisstarfsfólki á
Austurlandi. -J.J.
Ólafsfjörður:
Múlinn hættir
DV, Ólaísfiröi.
Bæjarblaöið Múli á Ólafsfirði er
hætt að koma út en á þessu ári em
tiu ár liðin frá því fyrsta tölublaö-
ið birtist.
Það var fyrirtækið Stuðlaprent
sem gaf blaðið út en ein helsta
starfsemi fyrirtækisins felst í
prentvinnu.
Eigendur blaösins segja að ekki
sé lengur grundvöllur fyrir rekstri
svo lítils vikublaðs, því í vaxandi
samkeppni eigi vikuleg fréttablöð
ekki möguleika sem fréttamiðlar
nema á takmarkaðan hátt. -HJ