Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1998, Qupperneq 20
.40
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1998
Árið 1941 leikstýrði Victor Fleming
einni vinsælustu útgáfunni á sögu
Stevensons og voru helstu stjömur
gullaldarára
Hollywood
k í að- .<rá§
kvikmyndir
Dr. Jekyll og hr. Hyde:
Hið undarlega mál dr. Jekylls og hr.
Hydes var fyrst gefið út árið 1886 og
heíúr sagan verið auðfáanleg síðan.
Höfundurinn, Robert Louis Stevenson,
sagði hugmynd bókarinnar sprottna
úr martröð og á sagan það sammerkt
með tveimur frægustu hrollvekjum 19.
aldar, Frankenstein (1818) og Dracula
(1897). Dr. Jekyll og hr. Hyde fjallar
um tvieðli mannsins; andstæður góðs
og ills. í sögunni tekst lækninum og
vísindamanninum Jekyll að útbúa
efnablöndu sem einangrar siðblint
villidýrið sem hann segir búa innra
með okkur öllum. Með því að prófa
efnablönduna á sjálfum sér skapar
hann Hyde sem kalla má myrka og
bælda hlið persónuleikans. Hyde ger-
ist sífellt fyrirferðarmeiri og svo fer að
siðlega hliðin, dr. Jekyll, fer hailoka i
baráttunni um þann líkama sem báðir
deila.
Hyde er ekki hefðbundið skrímsli og
eríítt að henda reiður á hvað skilur
hann svo rækilega frá venjulegu fólki.
Eftirfarandi lýsingu má fmna í upp-
hafl sögunnar: „Það er ekki auðvelt að
lýsa honum. Eitthvað er bogið við útlit
hans, eitthvað ógeðfellt, eitthvað bein-
línis viðbjóðslegt. Ég hef aldrei séð
mann sem mér féll jafn illa við, og
samt veit ég varla hvers vegna. Hann
hlýtur að vera vanskapaður einhvers
staðar, hann ber sterklega með sér ein-
hvers konar vansköpun, enda þótt ég
geti ekki bent nákvæmlega á hana.
Hann er óvenjulegur i útliti og samt
get ég ekki nefht neitt sérstakt sem er
afbrigðilegt. Nei, ég átta mig ekki á
því. Ég get ekki lýst honum. Og það er
ekki vegna þess að ég muni ekki eftir
honum, því að það get ég sagt þér að ég
sé hann ljóslifandi fyrir mér á þessari
stundu." Stevenson lýsir Hyde sem
unglegum, fjörmiklum manni og get-
gátur eru um að hann sé óskilgetinn
sonur Jekylls. Sumir greinendur vilja
þannig ekki líta á hann sem tvífara
I O P P 2 0
í Bandaríkjunum
- aösókn dagana 20.-22. febrúar. Tekjur í mllljónum dollara og helldartekjur
Emhverra hluta vegna sem erfitt er aö jljj
skýra, slæmt veöur eöa Olympíuleik-
myndahús í Bandaríkjunum niöur um
10% frá sömu helgi í fyrra og 25% frá
því helgina áður. Þaö kom samt ekki í veg fyrir aö Titanic var eina vikuna
enn meö langmestu aösókn og náöi því marki aö komast yfir 400 milljón
dollara í aögangstekjur. Nú fer aö styttast í Star Wars, sem er eina mynd-
in á þessum markaöi sem er meö meiri tekjur á bak viö sig eöa rúmar 460
milljónir dollara og telja þeir sem best vita aö þaö sé aöeins spuming um
tíma hvenær Titanic veröi mest sótta kvikmynd sem gerö hefur veriö og þá
er ekki bara átt viö Bandarikin, heldur allan heiminn því í hvaöa landi sem
Titanic hefur veriö sýnd þá hefur hún náö metaösókn. Hvaöa mynd þaö
veröur sem hrindir Titanic af toppnum er erfitt aö spá um en sumir segja
aö þaö veröi U.S. Marshalls sem er sjálfstætt framhald af The Fugitive, án
Harrison Fords aö vísu, eöa þá The Man in the Iron Mask. Ef sú kvikmynd
yröi til aö taka efsta sætiö af Titanic þá kæmi það f hlut Leonardo DiCaprio
aö leysa sjálfan sig af hólmi því hann leikur titilhlutverkiö.
HK
Tekjur Heildartekjur
1. (1) Titanlc 21.036 402.561
2. (2) The Wedding Slnger 12.228 37.652
3. (3) Sphere 7.684 26.86
4. (4) Good Will Huntlng 6.471 87.964
5- (-) Senseless 5.337 5.337
6. (5) As Good as It Gets 4.608 107.510
7.(6) The Borrowers 4.011 11.232
8. (-) Palmetto 2.876 2.876
9. (11) The Apostle 2.403 7.928
10. (10) L.A. Confidental 2.376 48.549
11- (7) The Replacement Klllers 1.658 17.228
12. (12) Wag the Dog 1.607 39.007
13. (8) Great Expectations 1.552 24.294
14. (9) Blues Brothers 2000 1.302 12.662
15. (18) The Full Monty 0.977 41.012
16. (13) Splce World 0.967 28.003
17. (16) Flubber 0.958 42.005
18. (17) Amlstad 0.412 42.606
19. (20) Wings of the Dove 0.383 11.116
20. (14) Desperate Measure 0.375 13.017
læknisins, heldur fremur sem bamið
sem okkur heíúr flestum tekist að
bæla.
Þöglar útgáfur
Sagan var fyrst kvikmynduð 1908 í
Bandaríkjunum en á næstu 5 árum
komu út þrjár aðrar útgáfúr; ein
þeirra framleidd í Danmörku 1910.
Árið 1912 leikstýrði Lucius
Henderson tæplega 12 mínútna
kvikmynd þar sem tveir leikar-
ar deila hlutverki Jekylls og
Hydes (James Cruze og Harry
Benham). í þessari merkilegu
mynd er áherslan fyrst og
fremst á baráttu góðs og ills innra
með Jekyll/Hyde. Hrollvekjan skipar
þar minna rúm en í mörgum síðari
gerðum sögunnar. Árið 1920 komu út
þrjár myndir byggðar á sögunni og
þeirra frægust er án efa sú sem John
S. Robertson leikstýrði en þar fer stór-
leikarinn John Barrymore með hlut-
verk Jekylls/Hydes. Túlkun Bar-
rymores vakti gríðarlega athygli og er
ekki sist merkileg fyrir þá sök að í um-
breytingin úr Jekyll í Hyde var aðeins
að takmörkuðu leyti náð fram með
hjálp tæknibrellna og fórðunar. Treyst
var á umtalsverða leikhæfileika
Barrymores sem var meistari svip-
brigða og sagan segir að leikarinn hafi
sveigt andlitið úr kjálkalið í túlkun
sinni á Hyde.
Fyrsta talmyndin
Ef Barrymore minnir á kónguló í
hlutverki sínu er Fredric March líkast-
ur Neanderdalsmanni í fyrstu tal-
myndinni, hyggðri á sögu Stevensons.
Myndinni leikstýrði Rouben Mamouli-
an (1931) og í henni eru eiginleikar
kvikmyndamyndmáls nýttir til hins
ýtrasta. Sú óræða lýsing sem dregin
var upp af Hyde í tilvitnunni hér að
ofan hefur nú vikið fyrir gervi sem
leggur áherslu á dýrslegt eðli. Svo
langt var gengið í lýsingum á kynferð-
islegum losta Hydes að kröfúr komu
upp um að kvikmyndaverin sýndu
meira siðferðislegt aðhald. Árið 1934
voru settar nákvæmar vinnureglur
sem gerðu það að verkum að jafn losta-
fulla og óhefta túlkun á sögunni er
ekki að finna næstu þrjá áratugina.
Andi næstu myndar er líka allt annar.
Árið 1941 leikstýrði
Áhuginn dofnar
Á næstu árum
var sem áhugi
á sögunni
dofnaði og
sést það
kannski
best á
því að
næsta
mynd
var
sjónvarpsmyndir verið
gerðar eftir sögunni.
Jack Palance lék
titilhlutverkið
1968, Kirk Dou-
glas 1973 og
Michael
Caine 1990.
í tilraun
til þess
að
hleypa
blóði
ísög-
una
leik-
alhlutverkum. Spencer Tracy lék Je-
kyll/Hyde en í helstu kvenhlutverkum
voru Ingrid Bergman og Lana Tumer.
Það sem sagt er berum orðum í
Mamoulian-gerðinni verður nú að um-
orða og þvi má halda fram að Flemm-
ing-útgáfan liggi nær þeim viktori-
anska anda sem litar hryllinginn í
sögu Stevensons. Báðar myndirnar
fjalla um óbeislaða kynhvöt Hydes en í
mynd Flemings liggur hún undir yfir-
borði frásagnarinnar og er hinn ósegj-
anlegi hryllingur sem drífur atburða-
rásina áfram.
John Malcovich er síöasti leikarinn
til aö spreyta sig á Dr. Jekyll and Mr.
Hyde, þaö var í Mary Reily.
skopstæling þeirra Abbotts og Costell-
os frá 1953 en þeir gerðu einnig grín að
Ifrankenstein-, Drakúlu-, múmíu- og
varúlfamyndum þriðja áratugarins.
Það er ekki fyrr en á sjöunda áratug-
inum sem raunverulegur áhugi á sög-
unni vaknar aftur en Hammer- kvik-
myndafélagið framleiddi tvær Jekyll-
og Hyde-myndir. Þeirri fyrri leikstýrði
Terence Fisher (1960) með þeim Paul
Massie, Christopher Lee og Oliver
Reed í aðalhlutverkum. Árið 1972 kom
síðan út hin sérkennilega Dr. Jekyll
and Sister Hyde (1972) þar sem Jekyll
skiptir ekki aðeins um ham við lyfja-
gjöfma heldur einnig um kyn. Hann
verður að hinni illu systur Hyde sem
skilur eftir sig blóðuga slóð um alla
Lundúnaborg í leit sinni af kvenhorm-
ónum. Með aðalhlutverk í myndinni
fara Ralph Bates og Martine Beswick.
Myndin var endurgerð árið 1995 sem
Dr. Jekyll and Ms. Hyde af David Price
en þar hefur hryllingurinn vikið fyrir
óvenju slakri kómedíu. Sean Young og
Timothy Daly fara með aðalhlutverk-
in.
Á síðustu þremur áratugum hafa þrjár
stýrði Stephen Frears Mary Reilly 1996
en þar er sagan sögð frá sjónarhomi
þjónustustúlku sem vinnur á heimili
Jekylls/Hydes. Endalaus vandræði við
framleiðslu myndarinnar, óagað hand-
rit og slæmt leikaraval drógu þó
myndina niður í hreina meðal-
mennsku. Með aðalhlutverk fara Julia
Roberts (Mary Reilly), John Malkovich
(Jekyll/Hyde), Michael Gambon og
Glenn Close. gg
Sam-bíóin - Seven Years in Tibet:
Sjálfsleit í skugga Himalajafjalla
★★■*
Heinrich Harrer var frægur fjallgöngumaður þeg-
ar hann tók þátt í leiðangri til Himalayaflalla til að
klífa einn hæsta tindinn, Nanga Parbat. Harrer var
einnig mikill hrokagikkur sem taldi sig æðri þeim
sem samferða honum voru. Þegar ferðin mistókst þá
kenndi hann öðrum en sjálfúm sér um. Heimsstyrj-
öldin síðari skall á meðan á leiðangrinum stóð og
leiðangursmenn, sem voru austurriskir, voru allir
hnepptir í fangabúðir. Þar einangraði Harrer sig enn
meir. Hann varð þó að lokum að treysta á leiðang-
ursstjórann Peter Aufschneider þegar kom að flótta,
hafði sjálfur verið búinn að gera mislukkaðar til-
raunir. Af flóttamönnunum voru það aðeins tveir sem
sluppu, Harrer og Aufschnaiter. í fyrri hluta Seven Ye-
ars in Tibet fylgjumst við með þrautagöngu þeirra í
tvö ár þar til þeir koma til hinnar helgu borgar Lhasa
þar sem þeir einir útlendinga fengu að búa.
Þessi fyrri hluti myndarinnar er frekar daufur
þegar á það er litið hversu atburðarásin er einstök
og mögnuð og segja má að hin stórkostlega náttúra
sé þaö sem hrífur mest. Ekki vantar að leikur þeirra
Brads Pitts og Davids Thewlis er vandaður og greini-
legt að þeir hafa mikið lagt á sig til að ná sannfær-
andi túlkun. Það verður því að setja á kostnað leik-
stjórans og handritshöfundarins að ekki tekst að rífa
söguna upp í það drama sem hún á skilið. Það er
ekki fyrr en komið er inn fyrir borgarmúrana í
Lhasa að áhugi á persónunum eykst. Þá kemur til
sögunnar hinn ungi Dcdai Lama sem er í ströngu
námi hjá
munkum og
hafinn upp
yfir aðra í
orðsins
fyllstu merk-
ingu. í Lhasa verður breyting á Harrer, sérstaklega
eftir að Aufschneiter tekst að vinna ástir ungrar inn-
fæddrar konu sem þeir báðir leggja snörur sínar fyr-
ir. Dalai Lama fær áhuga á „gullkollinum" og milli
þessara tveggja einstaklinga skapast einlæg vinátta
sem báðir hagnast á, sérstaklega þó Harrer, sem
fmnur sinn betri mann.
Jean-Jaques Annaud (Quest for Fire, Name of the
Rose, Bear) hefur ávallt verið stórhuga í sinni kvik-
myndagerð og víst er að fáir leikstjórar hafa lagt á sig
jafnmikið erfiði, líkamlegt sem andlegt, við gerð sinna
mynda og Seven Years in Tibet er þar engin undan-
tekning. Myndin ber það með sér að hvert einasta at-
riði er þrauthugsað og raunsæið látið ráða ferðinni,
kannski um of. Seven Years in Tibet verður af þeim
sökum aldrei þetta mikla og spennandi drama sem efn-
ið gefur tileftii til þótt einstaka atriði rísi hátt. Útlit
myndarinnar er óaðfmnanlegt, kvikmyndataka stór-
fengleg og leikur mjög góður en neistann vantar.
Leikstjóri: Jean-Jacques Annaud. Handrit: Becky
Johnston. Kvikmyndataka: Robert Fraisse. Tónlist:
John Williams. Aðalleikarar: Brad Pitt, David Thewl-
is B.D. Wong, Mako og Ingeborga Dapkunaite.
Hilmar Karlsson