Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1998, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1998
47
I>V
Sviðsljós
Ekki er allt gull sem glóir:
Hutchence gjald-
þrota við andlátið
Paula Yates ríður
ekki feitum hesti frá
dánarbúi elskhugans.
Nú hefur sem sé komið
í ljós að elskhuginn,
ástralski popparinn
Michael Hutchence
,var gjaldþrota þegar
hann svipti sig lífi fyr-
ir eigi alllöngu.
„Hann var gjald-
þrota,“ segja fjármála-
sérfræðingar í Ástral-
íu,
í fyrstu var talið að
eignir popparans
hefðu numið sem svar-
ar þremur milljörðum
íslenskra króna. Þar var talað um
fasteignir í Ástralíu, glæsivillu í
Suðurfrans og fullt af
flottum bílum, svo sem
Bentley og Aston Mart-
in. En þegar allt var
talið, lagt saman og frá-
dregið reyndust eigur
kappans ekki vera
meiri en sem nemur
um áttaíu milljón kalli
íslenskum.
Siðustu daga hefur
svo komið fram að
Hutchence var skuld-
ugur upp fyrir haus við
andlátið. Hann skuld-
aði tugi milljóna, með-
al annars lögfræðing-
unum sem sáu um
skilnað Paulu við hungurpopparann
Bob Geldof á sínum tíma.
Paula Yates.
Ný bók um forsetafrú Bandaríkjanna og fjölda elskhuga hennar:
Jackie Kennedy Onassis.
í nýrri bók um fyrrverandi for-
setafrú Bandaríkjanna, Jackie
Kennedy Onassis, er fullyrt að Mar-
lon Brando, Robert Kennedy, Frank
Sinatra og Warren Beatty hafl allir
verið elskhugar hennar. Höfundar
bókarinnar, Christopher Andersen,
segir að Jackie hafi verið ýmsu
vön. Hún hafi alist upp við aðstæð-
ur þar sem hún hafi sífellt orðið vör
við framhjáhald. Faðir hennar
skipti stöðugt um ástkonur.
Þegar John F. Kennedy, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, var
myrtur 1963 var Jackie 34 ára. Hún
varð eftirsóttasta ekkja í heiminum
í augum valdamikilla manna.
í bókinni er fullyrt að strax eftir
morðið á John F. Kennedy hafi
Jackie og Robert Kennedy, bróðir
Johns, tekið upp leynilegt ástar-
samband. „Þau voru sálufélagar.
Bæði elskuðu þau John. Strax eftir
morðið límdust þau saman,“ segir
höfundurinn. Parið fór oft í frí sam-
an. „Þau bjuggu alltaf í tveggja
manna herbergi. Leyniþjónustunni
var fullljóst að þau voru annað og
meira en vinir.“ Sambandið hélst
meira og minna þar tU Robert var
myrtur 1968.
Fjórum árum eftir morðið á eig-
inmanni sínum hittust Jackie og
Marlon Brando til þess að snæða
saman hádegisverð í New York. Frá
því augnabliki varð Jackie óð í
Brando. Hún bauð honum tU svítu
sinnar og þau elskuðust þar.
Frank Sinatra og Warren Beatty
eru meðal þeirra frægu manna sem
Brando
fuUyrt er að hafi verið elskhugar
forsetafrúarinnar fyrrverandi.
„Jackie var mjög hrifm af frægum
mönnum," segir bókarhöfundur.
Hún á að hafa hitt Sinatra í leyni
fram tU ársins 1976. Samband
Jackie og glaumgosans Beattys
hófst 1978. Meðal annarra frægra
manna sem sagðir eru hafa verið
elskhugar Jackie eru Robert
McNamara, Adlai Stevenson og
Peter Lawford.
í bókinni kemur fram að það
hafi fyrst verið í hjónabandinu með
gríska skipakóngnum Ari Onassis
sem Jackie hafi notið kynlífsins.
John F. Kennedy var elskhugi sem
var mjög upptekinn af sjálfum sér.
Onassis varð að kenna Jackie aUt
um kynlíf, fullyrðir Andersen.
Hárgreiðslu- og föröunarmeistarar úr öllum Eystrasaltslöndunum þremur
eru samankomnir í Vilníus, höfuðborg Litháens, þar sem þeir taka þátt í al-
þjóölegri keppni. Hér má sjá eitt meistarapariö skreyta forkunnarfagra fyrir-
sætu. Símamynd Reuter
Elísabet vill ekki
aðla Sean Connery
Elísabet Englandsdrottning hef-
ur neitað að aðla skoska kvik-
myndaleikarann Sean Connery
sem var hinnn fyrsti og eini rétti
James Bond að margra mati.
Connery, sem er orðinn 67 ára,
hefur látið til sin taka í sjálfstæð-
isbaráttu Skota. Landa hans
dreymir um að hann verði fyrsti
forsætisráðherrann þegar að því
kemur að land þeirra hljóti sjálf-
stæði.
Annað sem setur strik í reikn-
inginn er að Connery er búsettur í
MarbeUa á Spáni tU þess að sleppa
við að greiða skatt í Bretlandi af
tekjum sínum. Tekjumar hafa ver-
ið dágóðar hjá þessari Hollywood-
stjörnu og því er ekki að undra að
Bretum sárni að fá ekki að njóta
hluta þeirra.
Kappinn verður því sennUega
ekki sleginn til riddara á meðan
hann greiðir ekki skatt og á meðan
hann berst fyrir sjálfstæði
Skotlands.
Aukablað um hljómtæki mun fylgja DV
miðvikudaginn 4. mars.
Fjallað verður um allt það
nyjasta á hljómtækjamark-
aðinum í dag.
Umsjón efnis: Haukur Lárus Hauksson
í síma 550-5000
Umsjón auglýsinga: Sigurður
Hannesson í síma 550-5000 /550-5728
Síðasti pöntunardagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 26. febrúar.
Madonna á
hóteli Kofis
Poppstjarnan Madonna er í
París og dvelur á sama glæsihót-
elinu og Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, gisti í þegar
hann hafði viðkomu á leiðinni
frá Bagdad tU New York. Bæði
eru þau mikUvægar persónur,
Madonna iviö mikUvægari ef
marka má það að lífverðir henn-
ar voru bæði fleiri og stærri en
lífverðir Kofis.
Gwyneth þreytt
á engilsímynd
Leikkonan Gwyneth Paltrow,
sem einu sinni var með Brad
okkar Pitt, er orðin svo þreytt á
að leika eintómar englapíkur að
hún kastar af sér hverri spjör í
nýjustu myndinni sinni, Great
Expectations. Þá fær Brad tæki-
færi tU að sjá enn einu sinni þaö
sem hann missir af. Að sögn
erlendra blaða er Gwyneth afgar
straumlínuleg þótt grönn sé.
Pabbi neitar að sjá myndina.
Jackie varð bandóð
í Marlon