Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1998, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
13
I>V
Fréttir
Réttarhöld 1 máli Tálknfirðinganna sem era ákærðir fyrir að sökkva Þrym BA 7:
Verjendur segja ákæru
vald skorta sannanir
- rannsókn og köfun niður að flakinu sýni ekki fram á ásetning um að sökkva skipinu
Verjendur tveggja Tálknfirðinga,
sem era ákærðir fyrir að sökkva
hinum 200 tonna Þrym BA 7 í
Tálknafirði að kvöldi 15. nóvember
á síðasta ári, héldu því fram við
réttarhöld í gær að ákæruvaldinu
hefði ekki tekist að sanna ásetning
mannanna um að hafa ætlað að
sökkva skipinu.
Tálknfirðingamir hafa haldið þvi
fram að óútskýrður leki hafi komið
að skipinu og það einfaldlega sokk-
ið þegar verið var að færa það á
milli staða.
Lögmennirnir segja að rannsókn
og köfun niður að skipinu í Tálkna-
firði hafi ekki beinst að því að upp-
lýsa með hvaða hætti skipið sökk.
Þeir krefjast alfarið sýknu af meint-
um brotum mannanna á mengun
sjávar og gera enga varakröfu.
Ákæruvaldið hélt því fram við
réttarhöldin að mennirnir hefðu
ætlað að komast hjá forgunarkostn-
aði upp á vart minna en 2 milljónir
króna með því að sigla Þrym í skjóli
myrkurs út í Tálknafjörð og sökkva
honum þar.
I réttarhöldunum, sem hafa farið
fram á Patreksfirði og í Reykjavík,
hafa sakbomingamir í raun viður-
kennt ýmsa háttsemi sem þeir hafa
ekki verið ákærðir fyrir, s.s. van-
rækslu á tilkynningaskyldu og það
atvik að tilkynna ekki þegar skipið
sökk.
Lögmenn sem DV hefur rætt við
hafa einnig rætt um að það atriði að
hafa ætlað að draga skipið á milli
tveggja staða án heimildar sé sömu-
leiðis brot á lögum um náttúru-
vernd. Tálknfirðingamir voru held-
ur ekki ákærðir fyrir það.
Annar ákærðu hefur viðurkennt
á sig brot á lögum um lögskráningu
með þvi að láta undir höfuð leggjast
að skrá áhöfn á þann skemmtibát
sem dró Þrym út í fjörð þegar hann
sökk.
Búist er við að fjölskipaður Hér-
aðsdómur Vestfjarða kveði upp dóm
í málinu á næstu vikum. -Ótt
Þrymur BA lá í fjörunni á Tálknafirði um árabil en hvarf í skjóli nætur. Flakið liggur nú á botni Tálknafjarðar.
Varðandi samskipti Fisk-
veiðisjóðs íslands og FBA
Vegna fréttaflutnings af málum
varðandi samskipti Fiskveiðisjóðs
íslands (FÍ) og Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins hf. (FBA) undanfarið
skal eftirfarandi tekið fram:
Endurskoðun Fiskveiðisjóðs ís-
lands heyrði undir Ríkisendurskoð-
un og hefur Jón Tryggvi Kristjáns-
son, Endurskoðendaþjónustunni,
endurskoðað sjóðinn i umboði ríkis-
endurskoðenda í yfir heilan áratug.
Jón Tryggvi verður því að teljast
hluti af þvi eftirliti sem Ríkisendur-
skoðun er. Endurskoðun FBA heyr-
ir einnig undir Ríkisendurskoðun.
Það skal tekið skýrt frarn að rekstur
og endurskoðun FÍ hefur aldrei ver-
ið með þeim hætti að afskipti Ríkis-
endurskoðunar á málefnum sjóðs-
ins hafi komið til álita.
Stjómendur FBA reyndu með
beinum hætti að hlutast til um mál-
efni er varðaði uppgjör FÍ fyrir
rekstrarárið 1997 og af því tilefni
var þess óskað af Jóni Tryggva að
hann skilaði inn greinargerð um at-
hugasemdir FBA, sem hann og
gerði, en fyrrgreindur fréttaflutn-
ingur byggir á innihaldi greinar-
gerðarinnar.
Erindi FBA ásamt greinargerð
Jóns Tryggva var lagt fyrir stjóm FÍ
11. mars sl. þar sem það fékk mál-
efnalega meðferð en síðan hafnað af
stjórn FÍ enda var erindi FBA ekki
stutt neinum efnislegum rökum.
Jón Tryggvi hefur í störfum sín-
um fyrir sjóðinn reynst traustur og
ábyrgur endurskoðandi sem gætti
hagsmuna sjóðsins af einurð og
ákveðni auk þess að bera hag starfs-
manna sjóðsins ætíð fyrir brjósti.
Þetta er sett hér fram til að taka af
öll tvímæli um það að Jón Tryggvi
naut fulls trausts forsvarsmanna
sjóðsins við störf sín.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 18. útdráttur
4. flokki 1994 - 11. útdráttur
2. flokki 1995 - 9. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 1998.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa-
fyrirtækjum.
C8&] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 6900
AÐALFUNDUR
verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl 1998, kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi.
Nýja sundlaugin í Borgarnesi:
Þrjú alvarleg slys á
fjórum mánuðum
Þrjú alvarleg slys hafa orðið á síð-
astliðnum fjórum mánuðum í nýju
sundlauginni í Borgamesi. Tveir
hinna slösuðu fótbrotnuðu en einn
handleggs- og rifbeinsbrotnaði á
dögunum.
„Það hafa staðið yfir miklar við-
gerðir og framkvæmdir við laugina.
Síðasta slysið má rekja til breytinga
sem gerðar voru þar sem dyr voru
settar upp á milli innilaugar og
pottasvæðisins. Maðurinn rann til í
ísingu á tröppum við dyrnar og slas-
aðist. Tvö fyrri slysin tel ég vera
frekar óheppni. í þeim tilfellum slös-
uðust maður sem er fastagestur hér
og starfskona hjá mér. Það er að
sjálfsögðu mjög leiðinlegt þegar
svona kemur fyrir. Framkvæmdum
er nú lokið við laugina og aðstaðan
hefúr aldrei verið betri hér í Borgar-
nesi. Ég vona að við séum lausir við
alvarleg slys sem þessi,“ segir Ingi-
mundur Ingimundarson, forstöðu-
maður sundlaugarinnar í Borgar-
nesi, aðspurður um málið. -RR
HLUTABRÉFA
SJOÐURINN
Dagskrá aðalfundar Hlutabréfasjóðsins hf.:
1. Venjuleg aðalfundarstörf, sbr. 14. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga til breytinga á 3. gr. samþykkta félagsins. Tillagan felur í sér rýmkun
fjárfestingaheimilda.
3. Heimild til stjórnar um kaup á hlutabréfum félagsins á næstu átján
mánuðum, sbr. lög nr. 2/1995 um hlutafélög.
4. Onnur mál, löglega upp borin.
Erindi: Hvernig fóta íslenskir fjárfestar sig á erlendum hlutabréfamörkuðum?
Sigurður B. Stefánsson framkvæmdastjóri VÍB.
Dagskrá, tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins að Kirkjusandi, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Hluthafar eru hvattir til að mœta1.
REKSTRARAÐILI:
Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands,
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910.