Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1998, Page 28
32
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
Sviðsljós
Leonardo undir
smasjanni
Hjartknúsarinn Leonardo
DiCaprio er nú undir smásjánni
hjá öllum slúöurblöðum sem fylgj-
ast grannt með ferðum hans.
Bandaríska dagblaðiö USA Today
þótti það fréttnæmt að í síðustu
viku sást til leikarans Leo á veit-
ingahúsinu Crustacean í Beverly
HUls, einum vinsælasta matsölu-
stað þar i bæ. Leo sat ekki einn að
snæðingi, en hann var heldur
ekki í för með neinni glæsipíu.
Það vakti sumsé athygli að leik-
stjórinn Oliver Stone spjallaði við
drenginn þar til staðnum var lok-
að. Lék blaðinu forvitni á að vita
hvað þar var skrafað.
Tommy Lee
í fangelsi
Bandaríski rokkarinn Tommy
Lee mun eyða næsta hálfa árinu í
fangelsi. Hann játaði í síöustu
viku aö hafa beitt konu sina,
strandvarðarpíuna Pamelu And-
erson, ofbeldi heima fyrir. Pamela
kærði Tommy Lee fyrir að ráðast
á hana meðan hún hélt á sjö
vikna gömlum syni þeirra í fang-
inu. Hún hefúr nú fengið nóg af
heimaboxinu og sótti um skilnað
í kjölfarið.
Danir fagna þrítugsafmæli krónprinsins en vilja fá krónprinsessu:
Friðrik prins heldur
einn upp á afmælið
Ólíkt Bretum eru Danir mjög
ánægðir með konungsfjölskyld-
una sína og kunna vel að meta
krónprinsinn Friðrik og bróður
hans Jóakim. Jóakim prins stal
heldur betur senunni frá eldri
bróður sínum áriö 1995 þegar
hann kvæntist Alexöndru
Manley, ættaðri frá Hong Kong,
sem þegar í stað vann hug og
hjörtu dönsku þjóðarinnar með
þvi að læra tungumál þeirra.
En árið 1998 er ár Friðriks
krónprins enda verður hann þrí-
tugur þann 26. maí. Og ekki er
ráð nema í tíma sé tekið. Dönsku
blöðin eru þegar farin að halda
upp á viðburðinn og gefa út
sérblöð um ævi prinsins.
Uppeldi Friðriks hefur dregið
að nokkru dám af því að hann er
arftaki dönsku krúnunnar. Hann
hefur engu að síður haft orð á
sér fyrir að kunna að meta hið
ljúfa líf, hraðskreiða bíla og fagr-
ar konur. Og það er í raun lítið
Friðrik krónprins heilsaöi upp á þegna sína ásamt móður sinni Margréti Þórhildi
Danadrottningu þegar hann varö myndugur árið 1986. Hann mun aö öllum líkindum
gera slíkt hið sama þegar hann verður þrítugur í maí.
annað sem Danir geta sett út á
drenginn, sumsé að hann sé nú
brátt þrítugur og hafi ekki enn
séð ástæðu til að festa ráð sitt.
Friðrik hefur alla tíð heillað
konur upp úr skónum og þær
eru ófáar kærustumar sem
hann hefur átt í gegnum tíðina.
Þess er skemmst að minnast
þegar krónprinsinn gerði stutt-
an stans hér á landi fyrir
nokkrum árum og ljósmyndar-
ar náðu að festa á filmu unga
blómarós sem hafði kastað sér í
fangið á honum. Fyrirsætur og
fegurðardísir hafa jafiian verið í
fyrirrúmi hjá Friðriki og nú er
hann í fostu sambandi við
dönsku söngkonuna Mariu
Montell. Danir bíða hins vegar í
ofvæni eftir þvl aö fá að vita
hvort prinsinn hafi nú loks
fundið prinsessuna sína og Mar-
ía verði því framtiðardrottning
Danaveldis.
Allar skotnar í
Vilhjálmi prins
Þegar Vilhjálmur prins var á ferð
með föður sínum Karli krónprinsi
Breta um Kanada í síðasta mánuði
átti hann fótum sínum fjör að launa
undan æstum ungmeyjum sem allar
vildu fá að berja hann augrnn. Vil-
hjálmur virðist njóta aðdáunar al-
mennings á móður hans Díönu
prinsessu og í aðdáendahópi hans
mátti sjá jafnvel eldri konur.
„Hann er svar Bretlands við Le-
onardo DiCaprio,“ sagði ein
Vancouvermær sem beið óþreyju-
full eftir að hylla prinsinn.
Vilhjálmur var hins vegar hvergi
nærri undir þessa aðdáun búinn.
Fjölmiðlar bentu á að þó prinsinn,
sem er um 1,90 m á hæð, líti út fyr-
ir að vera fulvaxta maöur sé hann
einungis 15 ára gamall og það beri
að virða.
Hins vegar má ekki gleyma því að
allir karlmenn í móðurætt hans,
Spencer-jarlamir, hafa haft orð á
sér fyrir kvenhylli og einungis tím-
inn mun leiða í ljós hvort hann
hefúr fallið langt frá þeirri eik.
Aukablað um
Miðvikudaginn 22. apríl nk. mun aukablað um
sumarbústaði fylgja DV.
Fjallað verður um ýmislegt sem viðkemur sumar-
bústöðum, byggingu þeirra, viðhaldþ tryggingum,
umhverfi og frágangi innan og utanhúss.
Umsjón efnis er í höndum Jóhönnu Á.H. Jóhanns-
dóttur blaðamanns, í síma 550-5000
Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu auka-
blaði vinsamlegast hafi samband við Guðna
Geir Einarsson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í
sírna 550-5722.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er föstudagurinn 17. apríl
Svona hugsar búlgarski framúrstefnutískuhönnuöurinn Elena Belova sér
fallegan og hentugan sumarkjol.
-■
Mel Gibson ríkastur
Það ætti sosum ekki að koma
nokkrum manni á óvart að fjöl-
skyldufaðirinn Mel Gibson er hæst
launaði skemmtikraftur Ástralíu. í
fyrra rakaði hann saman hvorki
meira né minna en 2,8 milljörðum
íslenskra króna.
Næstur á eftir Mel á listanum er
þekktur sjónvarpsmaður í and-
fætlingalandi en í þriðja sæti eru
tveir bananar sem ganga undir
nafninu B1 og B2.
Leikarinn Geoffrey Rush, sem fór
svo eftirminnilega með hlutverk pí-
anóleikarans Helfgotts í myndinni
Shine, þénaði hátt í 300 milijónir
króna sem dugði honum í fimmta
sætið. Nicole Kidman var í sjöunda
sæti með rétt rúmar 200 milljónir
króna.
Mel Gibson þarf ekki að horfa f aur-
inn, blessaður drengurinn.