Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1998, Qupperneq 50
62 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 Páll Pampichler Pálsson Páll Pamphichler Pálsson, hljóm- sveitarstjóri og tónskáld, Bragagötu 22, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Páll fæddist í Graz i Austurríki og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Tónlistarskólann í Graz frá niu ára aldri í hljóðfæraieik með píanó, fiðlu og trompett sem aðalhljóðfæri, brautskráðist 1945, stundaði nám í tónlistarsögu hjá dr. Franz Mixa, var í einkatímum í tónsmiðum hjá prófessor Michl og stundaði síðar framhaldsnám í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann i Hamborg 1959-60. Páll var trompetleikari við fil- harmóníumhljómsveitina í Graz 1945-49 er hann var ráðinn trompet- leikari og stjómandi Lúðrasveitar Reykjavíkur. Hann var trompetleikari við Sin- fóníuhljómsveit ís- lands frá stofnun 1950-62, var falið að stjórna Sinfóníu- hljómsveitinni á tón- leikum og við hljóð- ritanir frá 1952, varð síðan fastráðinn hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands og jafnframt ráðinn stjórnandi Karlakórs Reykjavík- ur. Auk þess stundaði hann tónlistar- kennslu og tónsmíðar. Páll lét af stjórnandastörfum fyrir tveimur árum og helgar sig nú tón- smíðum eingöngu. Páll var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín að tónlistarmálum hér á landi og sæmdur heiðursprófessors- nafnbót af austurríska menntamála- ráðuneytinu fyrir störf sín að kynningu og útbreiðslu tónlistar frá Austurríki. Fjölskylda Fyrri kona Páls er Ástríð- ur Lóa Eyjólfsdóttir, f. 8.12. 1930, tannsmiður í Reykja- vik. Hún er dóttir Eyjólfs Ólafssonar, stýrimanns í Reykjavík. Börn Páls og Ástríðar eru Helene, f. 1953, starfsmaður hjá gleraugnaversluninni Optik í Reykjavík, gift Jóni Ólafs- syni verslunarmanni og eiga þau tvö böm, Lindu Björk og Ólaf Pál; Páll, f. 1956, deildarstjóri hjá Sam- skip en kona hans er Stella og eru börn þeirra Tina Ásta, Páll og Hel- ene Ósk; Stefán, f. 1966, starfsmaður hjá Samskipum. Seinni kona Páls er Kristín S. Kristjánsdóttir, f. 11.9. 1950, sýning- arstjóri hjá íslensku óperunni. Hún er dóttir Kristjáns Jóhannessonar, sjómanns á Patreksfirði, og Erlu Hafliðadóttur húsmóður. Systur Páls eru Gerlinde, f. 1924, húsmóðir í Bretlandi; Erika, f. 1926, en hún starfrækir dansskóla í Graz í Austurríki. Foreldrar Páls voru Paul Pampichler, f. 1897, d. 1966, yfirbók- ari og hljóðfæraleikari í Graz í Austurríki, og k.h., Nanda Pampichler, f. Wiesler 1899, d. 1979, húsmóðir. Nanda var systir Helmut Wiesler, kvikmyndagerðarmanns í Vínar- borg, föður Manuelu Wiesler flautuleikara sem er íslendingum af góðu kunn. Karlakór Reykjavíkur heldur tón- leika, afmælisbarninu til heiðurs, í Langholtskirkju, laugard. 9.5. kl. 16.00. Páll Pampichler Pálsson. Gunnlaugur Finnsson Gunnlaugur Finnsson, kennari bóndi í Hvilft í Önundarfirði, verður sjö- tugur á mánudaginn. Starfsferill Gunnlaugur fæddist í Hvilft og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1949 og hefur sótt ýmis kennaranámskeið. Gunnlaugur er bóndi í Hvilft frá 1950, var kenn- ari við Héraðsskólann á Núpi 1953-54, farkennari í Breiðadal 1954-55, kennari við Barna- og unglingaskólann á Flat- eyri 1959-74, við Grunnskólann á Flateyri 1978-80 og frá 1988, alþm. í Vestfjarðak. 1974-78 og kaupfélags- sfjóri KÖ á Flateyri 1980-88. Gunnlaugur sat í stjómum og á landsþingum hinna ýmsu félaga- samtaka, sat í hreppsnefnd Flateyj- arhrepps 1954-58 og 1962-78, var oddviti 1966-70 og 1974-78, formaður Fjórðungssambands Vestfjarða 1970-74, er kirkjuþingsmaður frá 1970 og kirkjuráðsmaður frá 1976, sat í sýslunefnd Vestur-ísafjaröar- sýslu 1974-78, hefur verið formaður og setið í ýmsum stjórnskipuðum nefndum, sat í stjórn Hjálparstofn- unar kirkjunnar 1983-88 og var þingkjörinn skoðunarmaður reikn- inga Búnaðarbanka Islands frá 1981 og þar til starfið var lagt niður. Fjölskylda Gunnlaugur kvæntist 14.6. 1952 Sigríði Jóhönnu Bjamadóttur, f. 19.3. 1926, húsfreyju. Þau slitu sam- vistum. Hún er dóttir Bjarna Einars Einars- sonar, bátsformanns og fisktökumanns, og k.h., Halldóra Sæmundsdótt- ur, húsfreyju. Börn Gunnlaugs og Sigriðar Jóhönnu eru Sigurlaug, f. 1.4. 1953, BA í sagnfræði, búsett í Reykjavík, gift Gylfa Páli Hersir jarðeðlis- fræðingi og er sonur þeirra Kári; Halldóra Valgerður, f. 6.2. 1955, mynd- og handíðakennari og er dóttir hennar Helga Rakel; María, f. 27.3. 1956, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík en maður hennar er Júlí- us Halldórsson sálfræðingur og em börn þeirra Katrín, Hákon og Sunn- eva; Finnur Magnús, f. 8.1. 1958, cand.mag. í leikhúsfræðum á Akra- nesi en kona hans er Jónína Kristín Laxdal fulltrúi og er sonur hans Máni; Bergljót, f. 3.2. 1960, bóka- safnsfræðingur í Toronto í Kanada en maður hennar er Alfreð Tulinius skipatæknifræðingur og era böm þeirra Arnar Þór og Steinar Þorri; Birna, f. 23.7. 1961, BA í mannfræði og kennari á Akranesi en maður hennar er Vignir Bjarkarson raf- virki og eru böm þeirra Regína Björk og Matthías Finnur; Einar Þór, f. 2.8. 1964, kvikmyndagerðar- maður og rithöfundur í Reykjavík. Systkini Gunnlaugs: Sveinbjöm, f. 21.7. 1911, d. 1.4. 1993, hagfræðing- ur og kennari í Reykjavík; Ragn- heiður, f. 25.6. 1913, fyrrv. skóla- stjóri í Reykjavík; Hjálmar, f. 15.1. 1915, fyrrv. forstjóri Áburðarverk- smiðjunnar; Sigríður, f. 17.1. 1918, hjúkrunarfræðingur í Bandaríkjun- um; Jakob, f. 30.7. 1919, d. 1.7. 1941, lyfiafræðinemi í Reykjavík; Sveinn, f. 23.11. 1920, d. 7.6. 1993, lögmaður og framkvæmdastjóri í Reykjavík; Jóhann, f. 23.11. 1920, d. 2.6. 1973, tannlæknir í Reykjavík; María, f. 18.8. 1922, BA í hjúkrunarfræði í Reykjavík; Málfríður, f. 22.11. 1923, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík; Kristín, f. 30.10. 1925, sjúkraþjálfari i Reykjavík. Fósturbróðir Gunnlaugs er Leif- ur, f. 23.12. 1935, fyrrv. fulltrúi hjá Dagsbrún í Reykjavík. Foreldrar Gunnlaugs vora Finn- ur Finnsson, f. 29.12. 1876, d. 14.8. 1956, bóndi í Hvilft, og k.h., Guðlaug Jakobína Sveinsdóttir, f. 28.2. 1885, d. 20.2. 1981, húsfreyja. Ætt Finnur var sonur Finns, b. í Hvilft, Magnússonar, b. í Hvilft, bróður Ásgeirs, alþm. á Þingeyram, föður Jóns, skálds á Þingeyrum og afa Ásgeirs, rithöfundar frá Gott- orp. Annar bróðir Magnúsar var Torfi, alþm. á Kleifum. Systir Magn- úsar var Ragnheiður, móðir Guð- laugar, ömmu Torfa Ásgeirssonar hagfræðings og Torfa rikissátta- semjara og Snorra skálds, Hjartar- sona. Magnús var sonur Einars, dbrm. í Kollafjarðarnesi, Jónssonar, b. í Miðdalsgröf, Brynjólfssonar, af ætt Einars, prófasts og skálds í Hey- dölum. Móðir Magnúsar var Þórdís Guðmundsdóttir, smiðs að Seljum, Torfasonar. Móðir Finns yngra í Hvilft var Sigríður Þórarinsdóttir, b. á Vöðlum, Jónssonar, b. í Unaðs- dal. Guðlaug Jakobina var dóttir Sveins, b. og skipstjóra í Hvilft, bróður Rósinkranz, fóður Guðlaugs Þjóðleikhússstjóra og Júlíusar, kaupfélagsstjóra á Flateyri, fóður Jóns, deildarstjóra í viðskiptaráðu- neytinu. Annar bróðir Sveins var Páll, faðir Skúla á Laxalóni og afi Páls og Kjartans hjá P. Stefánsson. Þriðji bróðir Sveins var Bergur, afi Konráðs Adolfssonar skólastjóra. Systir Sveins var Kristín, föður- amma Kristjáns Ragnarssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ. Sveinn var sonur Rósinkranz, b. í Tröð í Ön- undarfirði, Kjartanssonar, b. í Tröð, Ólafssonar, frá Eyri við Önundar- fjörð. Móðir Guðlaugar Jakobínu var Sigríður, systir Jóhanns Lúthers, afa Einars Odds Krisjánssonar alþm. Jóhann var einnig faðir Torfa, fyrrv. bæjarfógeta í Vest- mannaeyjum, föður Kristjáns, bæj- arfógeta í Vestmannaeyjum. Þá var Jóhann faðir Björns skrifstofu- stjóra, föður Ingibjargar, skólastjóra Ballettskóla Þjóðleikhússins. Sigríð- ur var dóttir Sveinbjörns, b. í Skál- eyjum, bróður Sigríðar „stórráðu". Sveinbjörn var sonur Magnúsar, b. í Skáleyjum og Hvallátrum, Einars- sonar, bróður Eyjólfs eyjajarls. Móðir Sigríðar var María Jónsdótt- ir, systir Sesselju, móður Herdísar og Ólínu Andrésdætra og systir Sig- ríðar, móður Bjöms Jónssonar ráð- herra, föður Sveins Björnssonar for- seta. Gunnlaugur Finnsson. Theodór Frímann Einarsson Theodór Frímann Einarsson, Vallarbraut 3, Akranesi, er níræður Starfsferill Theodór fæddist í Eystri-Leirár- görðum i Leirársveit og ólst þar upp. Hann flutti til Akraness 1936 og hefur búið þar síðan. Theodór vann fyrst hjá Haraldi Böðvarssyni & Co en réðst síðan sem verslunarmaður til Kaupfélags Borgfirðinga. Hann starfaöi siðan hjá Sláturfélagi Suðurlands á Akra- nesi. Þá starfrækti hann eigin versl- un um árabil, barnafataverslunina Lind á Akranesi. í lok starfsferils síns var hann afgreiðslumaður hjá Skeljungi hf. á Akranesi. Theodór er landsþekktur hagyrð- ingur og textahöfundur. Meðal þekktra dægurlagatexta hans má nefna textann við lagið Angelía sem hljómsveitin Dúmbó og Steini gerði að vörumerki sínu á sjöunda ára- tugnum; lagið og textann Kata rokk- ar frá upphafsáram rokksins, og textan við lagið Á hörpunnar óma. Hann vann til fyrstu verðlauna í danslagakeppni SKT 1956 og til þriðju verðlauna í sömu keppni 1952. Hann samdi fjölda þekktra gamanvísna fyrir grinara og gam- anþætti til flutnings á ýmsum mannamótum. Þá samdi hann 1945 revíuna, Allt er fertugum fært, sem sló í gegn á Akranesi. Gefnar hafa verið út bækur með textum og gamanvísum Theodórs. Fjölskylda Theodór var kvæntur Guðrúnu E. Ólafsdóttur, f. 11.10. 1917, d. 18.6. 1990, húsmóður. Böm Theodórs og Guðrúnar: Ragnhildur, f. 27.7. 1940, hjúkrunar- fræðingur en börn hennar er Jakob Halldórsson, f. 7.8.1966, kvikmynda- gerðarm. en sonur hans er Sindri Þór, f. 24.9. 1991, og Anna Halldórsdóttir, f. 21.4. 1970, BS í sagnfræði; Ólaf- ur Bragi, f. 20.8. 1943, verslimarm., kvæntur Júl- íu Baldursdóttur verslun- arm. og era börn þeirra Baldur Ragnar, f. 28.1. 1964, verslunarm. en son- ur hans er Óli Dór, f. 1.6. 1990 en sambýliskona Baldurs er Auður Sig- marsdóttir, Guðrún Ellen, f. 21.7.1965, verslunarmað- ur en maður hennar er Guðjón Theodórsson sjómaður og eru synir þeirra Jökull, f. 18.10.1984 og Birkir, f. 23.7. 1987, Ragnhildur ísleifs, f. 20.8. 1977, nemi; Ester Lind, f. 26.12. 1950, sjúkraliði, gift Hervar Gunnarssyni, formanni verkalýðsfélags Akraness og fyrsta varaforseta ASÍ og eru synir þeirra Theodór Freyr, f. 15.5. 1970, nemi í veðurfræði, kvæntur Kristrúnu Dögg Marteinsdóttur en dóttir þeirra er Ester Lind, f. 27.3. 1996, Gunn- ar Sturla, f. 15.12. 1974, nemi við KHÍ en kona hans er Christel Rud- olfsdóttir og er dóttir þeirra Margrét Saga, f. 2.6.1994, Daði Már, f. 5.3. 1984, nemi. Hálfsystkini Theo- dórs, samfeðra: Óskar, nú látinn; Guðfinna, f. 13.2. 1916, húsmóðir í Reykjavík; Jóhannes, nú látinn; Guðrún, f. 9.9.1923, húsmóð- ir í Reykjavík; Guðmundur Hannes og Gústaf Adolf, f. 20.2. 1920, b. í Eystri-Leirárgörðum; Guðríður, f. 13.6. 1929, húsmóðir í Lyngholti. Foreldrar Theodórs voru Einar Gislason, f. 6.2. 1876, d. 16.7. 1951, bóndi í Eystri-Leirárgörðum, og Ragnhildur Jónsdóttir, f. 13.9. 1863, d. 8.3. 1924. Theodór Frímann Einarsson. lil hamingju með afmælið 9. maí 90 ára Borghildur Hinriksdóttir, Tómasarhaga 29, Reykjavík. 85 ára Guðrún Sigmundsdóttir, Faxabraut 13, Keflavík. 70 ára Pálína Sigurðardóttir, Gnoðavogi 78, Reykjavík. Bjarni Þórarinsson, Staðarhrauni 1, Grindavík. Hallbera G. Leósdóttir, Heiðarbraut 53, Akranesi. Kristján Ólafsson, Kjartansgötu 18, Borgarnesi. Hulda Magnúsdóttir, Hamraborg, Svalbarðsstrandarhreppi. Guðbjörg Tyrfingsdóttir, Smáratúni 16, Selfossi. Skúli M. Öfjörð, Borgarhrauni 21, Hveragerði. 60 ára María Þórdís Sigurðardóttir, Dvergholti 12, Mosfellsbæ. 50 ára Jónína Erla Valgarðsdóttir, Snorrabraut 27, Reykjavik. Sveinn Theodór Magnússon, Háaleitisbraut 37, Reykjavík. Jón Ingi Guðjónsson, Klyfiaseli 6, Reykjavík. Guðjón Sólmundarson, Brekkubraut 5, Akranesi. Inga Harðardóttir, Mánabraut 21, Akranesi. Sólveig Stefanía Kristinsdóttir, Vesturgötu 68, Akranesi. Halldóra J. Jónasdóttir, Borgarvík 3, Borgamesi. Svanborg Kristjánsdóttir, Ártröð 10, Egilsstöðum. 40 ára Sigurborg Oddsdóttir, Hraunteigi 19, Reykjavík. Jón Þrándur Steinsson, Blesugróf 16, Reykjavík. Guðni Halldór Guðnason, Látraseli 8, Reykjavik. Guðný Edda Gísladóttir, Þingási 49, Reykjavík. Sigurlína Gísladóttir, Hverfisgötu 8, Hafnarfirði. Pétur Pétursson, Lindarbyggð 5, Mosfellsbæ. Bergdis Hrönn Kristinsdóttir, Túngötu 27, Grenivík. Hörður Sigurðsson, Garðarsbraut 63, Húsavík. Kristín A. Sigurðardóttir, Birkihlíð 8, Reykjahlíð. Óskar Amar Hilmarsson, Skálabrekku, Þingvallahreppi. Marjolyn Tiepen, Árbæjarhjáleigu II, Holta- og Landsveit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.