Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1998, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
13
Spurt á Egilsstöðum
Hver veröa úrslit sveitar-
stjórnarkosninganna í
sameinuðum sveitarfélög-
um austan Lagarfljóts?
Berglind Steingrímsdóttir af-
greiðslukona: Ég spái Fram-
sóknarflokknum sigri. Þeir ná
jafhvel hreinum meirihluta.
Páll Pétursson húsasmiður:
Ég vona að Framsóknarflokkur-
inn fái 4 menn, Sjálfstæðisflokk-
urinn fái 3 menn og F-listinn 2
menn.
Gimnlaugur Hafsteinsson sjó-
maður: Ég hef ekki leitt hugann
mikið að kosningunum. Ég set
algjört spumingamerki við D-
listann, þar er alveg nýtt fólk.
Þetta verður jafnt.
Magnús Áskelsson nemi: B-
listinn vinnur. Hann fær meiri-
hluta.
Gunnlaugur Axelsson af-
greiðslumaður: B-listinn hefúr
þaö. Hann fær 5 menn kjöma.
Sigurbjörg Óskarsdóttir hús-
móðir: Ég held að D- og B-listam-
ir verði hlutskarpastir. F-listinn
fær einn eða tvo menn kjörna.
Sveitarstjórnarkosningar 1998
Sveitarstjórnarkosningar í sameinuðum sveitarfélögum austan Fljóts:
Aðalatriðið er að
virkja sameininguna
Samfara sveitarstjómarkosning-
unum nú í vor munu fimm sveitar-
félög sameinast á Héraði: Egilsstað-
ir, Vallahreppur, Skriðdalur, Eiða-
þinghá og Hjaltastaðaþinghá, svæði
sem gjaman hefur verið nefiit Hér-
að og síðan Austm'hérað en sam-
staða hefur ekki náðst um nafn enn-
þá.
Bæjarstjómarfulltrúar verða nú
níu. Til samanburðar vora sjö áður
á Egilsstöðum. í síðustu kosningum
fengu sjálfstæðismenn, framsóknar-
menn og Alþýðubandalag tvo menn
kjöma hver en H-listinn einn.
Meirihluta mynduðu síðan sjálf-
stæðismenn og Alþýðubandalag. Nú
EGILSSTAÐIR
B: 33% G: 26,4%
0:27,9% H: 12,8%
Egilsstaðir, Eiðaþinghá, Vallahreppur, Skriðdalur og Hjaltastaöaþinghá hafa sameinast. Kosið veröur um níu sveit-
arstjórnarfulltrúa.
býður Alþýðubandalag ekki lengin-
fram, ekki heldur H-listinn en F-list-
inn, Félagshyggja við Fljót, býður
fram, listi sem talinn er vinstra
megin.
Það sem fólk telur greinilega að
skipti miklu máli á Austurhéraði á
næsta kjörtímabili er að sameining-
in „gangi upp“ - að fólkið finni að
það hafi verið gæfuspor að samein-
ast. Menn telja einnig að aðrir Hér-
aðsbúar, og jafnvel einnig íbúar á
Borgarfirði Eystra, muni fylgjast
grannt með hver framvinda „sam-
einingarmála“ verður.
Það sem væntanlega verður for-
gangsverkefni hinnar nýju sveitar-
stjómar á fyrri hluta komandi kjör-
tímabils á Austurhéraði verður
sameiningin. Menn era því varkár-_
ir. Yflrlýsingar oddvita listanna era
ekki róttækar hvað varðar nýsköp-
un og framkvæmdir. Fyrst vilja þeir
láta nýja kerfið virka, sérstaklega
með hliðsjón af skólamálum. Þegar
er búið að ákveða fjárfrekar fram-
kvæmdir sem haldið verður áfram
með við stækkun grunnskólans á
Egilsstöðum.
-Ótt
Forgangsröðun
verkefna brýn
„Ég legg áherslu á að við mvrnum
virkilega þurfa að sýna og sanna að
sameiningin hafi verið rétt. Við
verðum sérstak-
lega að hafa hug-
ann við það. Hér
hefur verið
sameiningar-
nefnd. Við þurfum
að nota sérstak-
lega þau atriði
sem komið hafa
ffarn hjá henni,“
segir Broddi Broddi Bjamason,
Bjamason, efsti oddviti
maður á B-listanum.
„Varðandi ffamkvæmdir liggur
fyrir að við þurfum að halda áfram
við grunnskólann á Egilsstöðum.
Það era fjárfrekustu framkvæmd-
imar sem við ráöumst í. Einnig þarf
að ljúka við íþróttahúsið sem er
hálfbyggt. Þetta mun þarfiiast mik-
ils fjármagns. Við höfum kannski
ekki mikið svigrúm því að í upphafi
næsta kjörtímabils munum við ekki
taka við sérstaklega góðu búi - í það
minnsta tók fráfarandi bæjarstjóm
við betra búi en næsta stjóm mun
gera. Skuldir hafa aukist mikið.
Við þurfum að skipuleggja land
því brýn þörf er á slíku fyrir hesta-
menn og atvinnurekstur. Málefni
Tónskólans, sem blómstrar, era
brýn því hann er í húsnæðishraki.
í sveitarstjómarmálum þarf að
forgangsraða. Við höfum ekki
óþijótandi sjóð til að tæma. Um það
snýst pólitíkin. Sveitarfélögunum er
falið að starfa samkvæmt lögum,
samanber grunnskólakerfiö. Menn
verða að standa sig samkvæmt því.
Við erum nýbúin að taka við grunn-
skólanum frá ríkinu. Það á aö skapa
samkeppni milli sveitarfélaga um
hann. Þama viljum við standa okkur.
Það er hægt að gagnrýna forgangs-
röðun þeirra sem verið hafa í meiri-
hluta. Menn rifú upp skipulagsmál
sem búið var að ná samstöðu um án
þess að hafa getið þess sérstaklega á
stefnuskránni. Það fór 2ja ára ferli í
brúarmál á Eyvindará. En meirihlut-
inn klofnaði sem betur fer og sátt
náðist um það sem áður hafði verið
ákveðið. Einnig hefúr staðsetning á
nýju hóteli verið gagnrýnd og fleira
mætti nefna. Skuldastaðan er heldur
ekkert til að hrópa húrra fyrir.“
Nýting nýrra
möguleika eftir
sameiningu
„Stærsta verkefiúð á næsta kjör-
tímabili er að ganga frá málefnum
sem tengjast sameinuðum sveitarfé-
lögum. Það hefur orðið gjörbylting -
nýtt samfélag hefur myndast sem
samanstendur af dreifbýli og þéttbýli.
Það þarf að útfæra skólamál og finna
leið þannig að hver skóli fái að njóta
sín. Einnig þarf að samnýta skólana
og byggja upp sameiginlega félags-
þjónustu. Á okkar stefiiuskrá stendur
til að gera hana
virka og aðgengi-
lega. Þetta finnst
mér brýnustu mál-
in,“ segir Sigrún
Harðardtóttfr, efsti
maður á D-listan-
rnn.
„Aðalatriðið
núna er að það era
nú komnir nýir
möguleikar sem
ekki voru til staðar áður. Fjölbreytn-
in og tækifærin verða fleiri. Eitt
sterkt samfélag mun, held ég, skila
miklu. Sameining og skólamál era
mikilvægust en atvinnu- og skipulags-
mál þarf einnig að hyggja að. Bærinn
er orðinn landlaus þannig að svæði
vantar bæði fyrir atvinnustarfsemi og
íbúðabyggð. Atvinnumálin era í
B-listi
1. Broddi B. Bjarnason
pípulagningameistari.
2. Katrín Ásgreímsdóttir
garðyrkjufræðingur.
3. Halldór Sigurðsson bóndi.
4. Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir
kennari.
5. Eyþór Elíasson
fjármálastjóri.
6. Bjöm Ármann Ólafsson
framkvæmdastjóri.
7. Stefán Sveinsson bóndi.
8. Sólveig Dagmar Bergsteins-
dóttir húsmóðir.
9. Ástvaldur Anton Erlingsson
verkfræðingur.
þokkalegu standi en auðvitað þarf að
bæta þar við með nýjum atvinnutæki-
færúm. Það þarf að fá ný og öflug fyr-
irtæki. Við ætlum að reyna að gera
jarðveginn þannig að eftirsóknavert
verði fyrir fyrirtæki að leita hingað.
Þetta er láglaunasvæði. Við viljum fá
hátæknifyrirtæki hingað, fá hingað
fólk og skapa vel launuð og áhugaverð
störf. Einnig viljum við gera stjóm-
sýsluna virkari og láta fólk fa meiri
völd. Þannig yrði bæjarstjómarvinn-
an í raun ekki eins mikil og fólk í
stjómsýslunni yrði gert meira ábyrgt
fýrir sinum sviðum."
Almenn velferð
íbúanna verði
tryggð
„Við leggjum áherslu á að megin-
hlutverk sveitarfélagsins er að
tryggja almenna velferð íbúanna.
Skólamál, umhverfismál, félags-
þjónustu, æskulýðs- og íþróttamál
era grandvöllur fyrir uppbyggingu
fyrir málaflokki eins og atvinnu-
málum. Það verður að vera gott að
búa á viðkomandi stað. Það er gott
að búa á Egilsstöðum en við viljum
gera betur,“ segir Jón Kr. Amarson,
oddviti F-listans.
„Helstu áhersluratriðin era skóla-
málin. Þar sem sveitarfélagið er ný-
sameinað, með þremur grunnskól-
um og í raun þremur leikskólum,
D-listi
1. Sigrun Harðardóttir
forstöðumaður.
2. Soffla Lárusdóttir
framkvæmdastjóri.
3. Ágústa Bjömsdóttir
skrifstofustjóri.
4. Bemhard Nils Bogason
héraðsdómslögmaður.
5. Hannes Snorri Helgason
framkvæmdastjóri.
6. Magnús Ástþór Jónasson
matsfulltrúi.
7. Kjartan Benediktsson bakari.
8. Jökull Hlöðversson
stöðvarstjóri.
9. Hildigunnur Sigþórsdóttir
bóndi.
eram við þeirrar
skoðunar að þess-
ir skólar eigi að
fá að halda sjálf-
stæði sínu. Við
viljum þó alls
ekki útiloka þann
möguleika að ein-
hver samnýting
verði á skólahús-
næði og skólan-
efnd fyrir hvert
skólastig verði sameiginleg. Varð-
andi umhverfismálin hafa Egils-
staðir mjög mikla sérstöðu. Hér höf-
um við skóg, náttúrulegan birki-
skóg, og hér er mjög öflug skógrækt-
arstarfsemi. Það er mjög mikilvægt
að nýta þetta sem best og þróa land-
búnað samhliða skógræktinni. Eins
er svæðið mikil gullnáma varðandi
ferðaþjónustu. Auk þess hefúr Egils-
staðabær verið með umhverfisverk-
efni í gangi sem við viljum styðja og
halda áfram með.
Við leggjum einnig áherslu á hér-
aðsheimilið Valaskjálf og félags-
heimilin í hreppunum. Það er mik-
ilvægt að gera vel við þau og halda
þeim starfandi. Varðandi æskulýðs-
og íþróttamál þarf að ljúka við hálf-
klárað íþróttahús. Auk þess þarf að
efla hér félagsstarf fyrir unglinga.
Hér hefur einnig verið öflugt og
virkt félagsstarf eldri borgara, í
raun mjög merkilegt starf. Því þarf
að hlúa að.“ -Ótt
F-listi
1. Jón Kr. Arnarson
framkvæmdastjóri.
2. Skúli Björnsson
skógarvörður.
3. Helga Kolbrún Hreinsdóttir
heilbrigðisfúlltrúi.
4. Emil Björnsson
aðstoðarskólameistari.
5. Þórhildur G. Kristjánsdóttir
þroskaþjálfi.
6. Sigríður Ruth Magnúsdóttir
kennari.
7. Ámi Ólason íþróttakennari.
8. Þorsteinn Bergsson bóndi.
9. Óli Grétar Methúsalemsson
verkfræðingur.
Framboðslistar á Egilsstööum