Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1998, Síða 26
50
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
Afmæli
Sverrir Ólafsson
Sverrir Ólafsson myndhöggvari,
Kirkjuvegi llb, Hafnarfirði, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sverrir fæddist á Bíldudal en ólst
upp í Stykkishólmi.
Hann tók kennarapróf frá handa-
vinnudeild KÍ 1969, lauk námi frá
myndhöggvaradeild Myndlista- og
handíðaskóla Islands 1976, stundaði
- nám í málmtækni, m.a. við Iðn-
tæknistofnun íslands, 1976-78, var
við nám í glerskurðarskúlptúr í
Cambridge á Englandi og gestalista-
maður þar 1980-83, hefur stundað
nám í stjómun og markaðssetningu
menningarstofnana við HÍ og hefur
auk þess sótt ýmis myndlistar- og
tækninámskeið hér á landi og farið
námsferðir til Bandarikjanna,
Frakklands, Ítalíu, Þýskalands og
Norðurlandanna.
Sverrir kenndi mynd- og hand-
mennt við Víðistaðaskóla og Lækj-
arskóla í Hafnarfirði 1969-73,
kenndi við Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1984-85, stofnaði Lista-
miðstöðina Straum í Hafnarfirði
1988 og hefur verið forstöðumaður
hennar síðan. Hann hefur verið for-
stöðumaður Alþjóðlega höggmynda-
garðsins í Hafnarfirði frá 1991.
Sverrir hefur helgað sig myndlist
og höggmyndalist síðastliðin tutt-
ugu ár. Frá 1979 hefur
hann haldið tuttugu
einkasýningar í Reykja-
vík, á Akureyri, í Hafnar-
firði en einkum erlendis,
s.s. í Þýskalandi, á Ítalíu,
í Mexíkó, Skotlandi og
Englandi. Auk þess hef-
ur hann tekið þátt í
fjölda samsýninga hér á
landi og víða um heim.
Verk Sverris eru í opin-
berri eigu fjölda stofnana
og fyrirtækja.
Sverrir hefur ritað
fjölda blaðagreina á íslandi um
menningarmál, stjómmál o.fl., ílutt
fyrirlestra i háskólum víða um ver-
öldina og hefur tekið þátt í fjölda út-
varps- og sjónvarpsþátta um menn-
ingarmál, bæði hér heima og er-
lendis.
Sverrir hlaut starfslaun íslenska
ríkisins 1984,1988,1990 og 1993, sýn-
ingarstyrk menntamálaráðuneytis-
ins 1990, ferðastyrk Hafnarfjarðar-
bæjar 1991, heiðursviðurkenningu,
The Arts Counsil of North West
Florida, fyrir störf að menningar-
málum á alþjóðlegum vettvangi,
1991, menningarviðurkenningu Rík-
isútvarpsins 1991, viðurkenningu
frá American Airlines í Bandaríkj-
unum „Artist of the World Lect-
ures“ 1991, sýningarstyrk frá utan-
rikisráðuneyti Islands 1992 og heið-
ursorðu Monterrey-borg-
ar í Mexíkó fyrir störf að
menningarmálum á al-
þjóðlegum vettvangi 1992.
Fjölskylda
Sverrir kvæntist þann
22.12.1971 Camille Rainer
Ólafsson, f. 20.7. 1946,
íþróttakennara. Hún er
dóttir Julius Edwards
Daniels og k.h., Camille
T. Patterson.
Börn Sverris og Camille
eru Ólafur Ragnar, f.
26.10. 1969, skipasmiður. Unnusta
hans er Anna María Karlsdóttir;
Hákon Sverrir, f. 1.10. 1974, kvik-
myndagerðarmaður; Erik Edward,
f. 9.7. 1978, nemi; Katrín Nicola, f.
9.7. 1981, nemi, og Jón Ferdinand, f.
1.1. 1993.
Systkini Sverris eru Steinunn
Ólafsdóttir, f. 27.1. 1934, hjúkrunar-
fræðingur; Björn Ólafsson, f. 30.11.
1936, skólastjóri; Bergljót Ólafsdótt-
ir, f. 2.12. 1938; Baldur Ólafsson, f.
14.5. 1940, bankamaður; Ragnheiður
Ólafsdóttir, f. 8.10. 1942, framkvstj.,
og Jón Ólafsson, f. 23.3. 1945, húsa-
smíðameistari.
Foreldrar Sverris voru Ólafur
Páll Jónsson, f. 5.10. 1899, d. 1.12.
1965, héraðslæknir, og Ásta Guð-
mundsdóttir, f. 24.8. 1908, d. 8.3.
1995, húsmóðir.
Ætt
Ólafur var sonur Jóns, b. á
Hrafnseyrarhúsum, Guðmundsson-
ar, á Hrafnseyri, Jónssonar, pr. á
Hrafnseyri, Ásgeirssonar, prófasts í
Holti í Önudnarfirði, Jónssonar,
bróður Þórdísar, móður Jóns Sig-
urðssonar forseta. Móðir Jóns á
Hrafnseyri var Rannveig Matthias-
dóttir, stúdents á Eyri, bróður
Markúsar, langafa Ásgeirs Ásgeirs-
sonar forseta. Matthías var sonur
Þórðar, ættföður Vigurættarinnar,
Ólafssonar.
Móðir Ólafs var Bjömfríður ljós-
móðir Benjamínsdóttir, b. í Lamba-
nesi í Saurbæ, Hjálmarssonar,
skálds í Bólu, Jónssonar. Móðir
Jóns var Lovisa Jónsdóttir, b. í Bæ
í Súgandafirði, Magnússonar, b. í
Bæ, Guðmundssonar, b. í Neðri-
Arnardal, Bárðarsonar, ættfóður
Amcirdalsættarinnar, Illugasonar.
Ásta er dóttir Guðmundar, nudd-
læknis á Eskifirði, Péturssonar og
k.h., Steinunnar Dórótheu.
Sverrir mun taka á móti gestum
í Listamiðstöðinni í Straumi frá kl.
19-22 miðvikud 13.5.
I tilefni þessara tímamóta opnar
Sverrir yfirlitssýningu á nokkrum
verka sinna á sama stað. Sýningin
mun standa til 17.5. og verður opin
daglega frá kl. 14.00-17.00.
Sverrir Ólafsson.
Þorsteinn S. Jónsson
Þorsteinn S. Jónsson, Fannafold
133, Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Þorsteinn Sigurbjörn fæddist í
Ólafsfirði. Hann stundaði nám við
Héraðsskólann í Reykholti 1943-44,
lauk prófi frá Iðnskóla Ólafsfjarðar
1947, tók minna mótorvélstjórapróf
Fiskifélags tslands 1948, öðlaðist
sveinsbréf í vélsmíði 1948 og meist-
araréttindi 1951. Þá stundaði hann
nám í niðursetningu dísilvéla við
vélaverksmiðju í Þýskalandi
1955-56, 1964, 1967 og 1970.
Þorsteinn var vélsmiður og vél-
gæslumaður í Ólafsfirði. Hann rak
þar vélsmiðjuna Nonna ásamt föður
sínum og hefur starfrækt vélsmiöj-
una Nonna hf. í Reykjavík frá 1974.
Þorsteinn var formaður íþróttafé-
lagsins Leifturs 1946-60, formaður
Iðnaðarmannafélags Ólafsfjarðar
1950- 60, sat i rafveitunefnd Ólafs-
fjarðar 1948-52, var formaður
1951- 53 og formaður vatns- og hita-
veitunefndar Ólafsfjarðar 1958-74,
sat í stjórn Karlakórs Ólafsfjarðar,
og söng einnig í Kirkjukór Ólafs-
fjarðarkirkju, var formaður Leikfé-
lags Ólafsfjarðar á sjöunda
áratugnum, var einn af stofnendum
Félags ungra sjálfstæðismanna i
Ólafsfirði, var bæjarfulltrúi þar
1962-70, var einn af stofnendum
Golfklúbbs Ólafsfjaröar og fyrsti
formaður hans.
Þorsteinn var formaður hand-
knattleiksdeildar Þróttar 1979-81,
varafulltrúi í sveitarstjóm Bessa-
staðahrepps um tíma, formaður at-
vinnumálanefndar Bessastaða-
hrepps, sat í hitaveitunefnd hrepps-
ins og í atvinnumálanefnd höfuð-
borgarsvæðisins um tíma. Hann var
varaformaður Sjálfstæðisfélags
Bessastaðahrepps.
Fjölskylda
Þorsteinn kvæntist 16.4. 1949
Hólmfríði Sigurrós Jakobsdóttur, f.
20.11. 1929, húsmóður. Foreldrar
hennar voru Jakob Einarsson, hús-
gagnabólstrari á Siglu-
firði, og k.h., Þórunn El-
ísabet Sveinsdóttir leik-
kona.
Böm Þorsteins og
Hólmfríðar eru Berg-
þóra, f. 20.9. 1949, sér-
kennari, gift Jóhanni
Runólfssyni banka-
manni og á soninn Þor-
stein Kristjánsson; Jón,
f. 11.10. 1951, einsöngv-
ari en sambýlismaður
hans er Gerrit Schuil, pí-
anóleikari og hljómsveit-
arstjórnandi; Þorsteinn, f. 17.1.1953,
framkvæmdastjóri Nonna í Reykja-
vík, kvæntur Sigríði Þórðardóttur
leikskólastjóra og eru böm þeirra
Jón Steindór, Páll Arnar, Þórður og
Ólöf Kristín; Þyri Emma, f. 6.8.1957,
sölustjóri í Reykjavík, gift Karli
Geirssyni véliðnfræðingi og eru
böm þeirra Amhildur Lily og Daní-
el Kristvin; Ragnhildur Fanney, f.
14. 3. 1961, sérkennari MA í Banda-
ríkjunum; Kristín, f. 20. 8. 1962,
einkaritari í Reykjavík,
gift Pálmari K. Magnús-
syni og eru böm þeirra
Hólmfríður Hulda, Sig-
fríður Arna og Jóhanna
Wium; Amheiður, f. 6.2.
1965, gjaldkeri í Reykja-
vík, gift Gunnlaugi Magn-
ússyni en dóttir þeirra er
Hólmfríður.
Systur Þorsteins eru
Fanney, f. 30.11. 1925,
húsmóðir á Akureyri, gift
Rafni Magnússyni húsa-
smið; Sigurveig, f. 10.1.
1931, leikkona i Reykjavík, var gift
Valdimar Pálssyni húsgagnabólstr-
ara, sem er látinn.
Foreldrar Þorsteins voru Jón
Steindór Frímannsson, jámsmiður í
Ólafsfirði, og k.h., Emma Jónsdóttir
húsmóðir.
Þorsteinn verður að heiman á
afmælisdaginn.
Þorsteinn S.
Jónsson.
Sigurbjörg Reimarsdóttir
-> Sigurbjörg Reimars-
dóttir húsmóðir, til heim-
ilis að Krummahólum 2,
Reykjavík, er sextug í
dag.
Starfsferill
Sigurbjörg fæddist í
Víðinesi í Fossárdal í
Bemneshreppi og bjó þar
til sex ára aldurs. Þá bjó
hún að Núpi í tvö ár en
flutti síðan að Kelduskóg-
um á Berufjarðarströnd.
Sigurbjörg lauk bama-
skólaprófi frá Þiljuvöllum í Bera-
neshreppi 1952 og flutti ári síöar til
Keflavíkur þar sem hún vann við
fiskvinnslu og í þvottahúsi Kefla-
víkurflugvallar.
Sigurbjörg flutti til Egilsstaða
1956 og hóf störf á gistihúsinu Eg-
ilsstöðum. Þar kynntist
hún fyrrv. manni sínum
en þau hófu búskap í
Vestmannaeyjum og
störfuðu þar í nokkra
mánuði. Þá fóru Þau að
Dölum þar sem þau
bjuggu hjá Ingvari og
Helgu, foreldrum Sigur-
jóns, til ársins 1962. Á
þeim áram höfðu þau
ræktað jörð og byggt sitt
býli að Hjarðarhvoli og
hófu þar sauðfjárbúskap.
Þau bragðu búi árið 1982
og fluttu til Reyðarfjarð-
ar. Þau slitu samvistum rúmu ári
síðar. Sigurjón flutti tU Reykjavík-
ur og lést þar árið 1987.
Sigurbjörg starfaði í Gunnarsbak-
aríi á Reyöarfirði i sex ár og hlaut
þar titilinn „Rúgbrauðsuppsláttar-
meistari” en árið 1988 flutti hún til
Reykjavíkur þar sem hún vann
lengst af hjá Myllunni. Sigurbjörg
hefur nú látið af störfum.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigurbjargar var Sig-
urjón Sævar Ingvarsson, f. 17.12.
1934, d. 18.1. 1987. Hann var sonur
Ingvars Guðjónssonar, f. 8.4. 1902,
og Helgu Magnúsdóttur, f. 6.9. 1906,
d. 12.2. 1993.
Börn Sigurbjargar og Ingvars era
Víöir, f. 19.12. 1957, verkamaður á
Egilsstöðum; Arnheiður Ásdís, f.
5.10. 1965, leikskólakennari í
Reykjavík, en maður hennar er Að-
alsteinn Gunnarsson trésmiður og
eiga þau þrjú böm: Svan, f. 11.9.
1989, Söndra, f. 31.7. 1991, og
Signýju, f. 27.4. 1997; Sigríður Lauf-
ey, f. 11.9. 1989, verkakona í Grand-
arfirði en sambýlismaður hennar
er Ingvar Þ. Hrólfsson vélsmiður og
eiga þau tvær dætur: Helgu, f. 19.9.
1989, og Sigurbjörgu, f. 23.5. 1995;
Smári, f. 16.8.1969, bifreiðasali á Eg-
ilsstöðum.
Sigurbjörg eignaðist sextán al-
systkini. Þau era: Garöar, f. 1923,
Aðalsteinn, f. 1924, Gunnlaugur, f.
1925, María, f. 1926, d. 1988, Ámý, f.
1927, Ingólfur, f. 1929, Hjalti, f. 1930,
Ingimundur, f. 1931, Hólmfríður, f.
1933, Margrét, f. 1934, Sigríður, f.
1935, Guðbjörg, f. 1937, Gestur, f.
1940, Jóna, f. 1941, Vilborg, f. 1942,
Reynir, f. 1944.
Foreldrar Sigurbjargar voru
Reimar Magnússon, f. 13.9. 1894, d.
22.6. 1982, og Stefanía Jónsdóttir,
f. 16.4. 1900, d. 28.11. 1995, bændur
að Kelduskógum i Beruneshreppi.
Sigurborg er að heiman í dag.
Sigurbjörg
Reimarsdottir.
Til hamingju
með afmælið
13. maí
85 ára
Ámi Jónsson,
Fífuhvammi 17, Kópavogi.
Hann tekur á móti ættingjum
og vinum að heimili sínu, í
dag milli kl. 16.00 og 19.00.
Sigurður B. Halldórsson,
Akurbraut 11, Njarðvík.
75 ára
Þorsteinn Guðmundsson,
Þorragötu 9, Reykjavík.
Ólafur Sverrisson,
Grænuhlíð 14, Reykjavik.
Ingunn Eiríksdóttir,
Suðurvangi 4, Hafnarfirði.
70 ára
Gísli Bryngeirsson
úrsmiður,
Brimhólabraut 24,
Vestmannaeyjum.
Kona hans er Gréta Þorsteins-
dóttir húsmóðir.
Þau verða að heiman í dag.
Þorsteinn Jónsson,
Fannafold 133, Reykjavík.
60 ára
Unnar Jónsson,
Hólabraut 4A, Hafnarfirði.
Birna Þórhallsdóttir,
Víkurbraut 29, Grindavík.
Sigurbirna Baldursdóttir,
Garðarsbraut 69, Húsavík.
50 ára
Elínborg Bárðardóttir,
Flétturima 15, Reykjavík.
Stefán R. Einarsson,
Fornuströnd 13,
Seltjamamesi.
Þorbjörg Finnsdóttir,
Melabraut 44, Seltjamamesi.
Karl O. Karlsson,
Hamraborg 34, Kópavogi.
Sverrir Marinósson,
Miðvangi 112, Hafnarfirði.
Áslaug Kristinsdóttir,
Ránargötu 20, Akureyri.
Haukur Óskarsson,
Akurgerði 3, Kópaskeri.
Siginrdís Björk
Baldursdóttir,
Miðkrika 1, Hvolsvelli.
40 ára
Láras Björnsson,
Reykjavíkurvegi 34,
Reykjavík.
Pétur Steinn Guðmmidsson,
Fellsmúla 11, Reykjavík.
Margrét Guðjónsdóttir,
Víkurströnd 7, Seltjamarnesi.
Sigmar Þór Ingason,
Skólagerði 3, Kópavogi.
Sigurður Þórarinsson,
Hellubraut 1, Hafnarfirði.
Jón Júlíus Tómasson,
Vallarbarði 7, Hafnarfirði.
Bergljót Vilhjálmsdóttir,
Reykjaskóla, Brú.
Hróðmar I. Sigurbjörnsson,
Austurbyggð 1, Akureyri.
Gunnar Rúnar Leifsson,
Grashaga 7, Selfossi.