Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1998, Síða 32
vtntia
Sfréttaskotið
SlSÍMINNSEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað T DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ1998
Fíkniefnadómur:
Hollendingur fær
fimm og hálft ár
Veðrið á morgun:
Hvassviðri
og rigning
Á morgun verður vaxandi suð-
austanátt, hvassviðri og rigning
suðvestan- og vestanlands en
annars staðar heldur hægari í
fyrstu. Veður fer hlýnandi.
Veðrið í dag er á bls. 53.
Breytingartillaga viö frumvarp til sveitarstjórnarlaga:
Sveitarfélög
fái veiðileyfi
á neytendur
Antonius Gerardus Verborg, tæp-
lega fertugur karlmaður frá Hollandi,
var í gær dæmdur í fimm og hálfs árs
fangelsi fyrir að hafa flutt liðlega 900
e-töflur og 350 grömm af amfetamíni
til íslands í desember.
Mál Antoniusar hefur dregist tals-
vert í meðfórum rikissaksóknara
vegna gagnaöflunar erlendis frá. Bú-
ast má við að Hollendingurinn fari
fram á að fá að afþlána dóm sinn ytra.
Hann lét í Ijós mikla óánægju þegar
dómurinn var upp kveðinn í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Dómurinn er
engu að síður í samræmi við þá dóma-
hefð sem hefur verið að skapast á
undanfórnum misserum - að dæma
þá hart sem fLytja inn og hafa sterk
fíkniefni í fórum sínum. -Ótt
Eftir gagngerar endurbætur á lönó
veröur þaö opnaö á ný f kvöld meö
sýning á Únglíngnum í skoginum
sem er dagskrá sem sett er sérstak-
lega saman í tilefni endurreisnar
lönó. Er um aö ræöa texta og Ijóö
Halldórs Laxness í nýjum umbúö-
um. DV-mynd Hilmar Þór
- arður af lífsnauðsynjum til gæluverkefna, segir Jóhannes Gunnarsson
Vélsleðamenn á batavegi
Vélsleðamennimir tveir sem slös-
uðust sl. laugardag eru báðir á bata-
vegi.
Mennimir vom fluttir á gjör-
gæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum læknis þar
voru mennimir báðir á batavegi í
morgun og komnir af gjörgæslu.
Ungur maður liggur hins vegar
enn lífshættulega slasaður á gjör-
gæsludeild eftir umferðarslys í Kjós
sl. laugardag. Honum er enn haldið
sofandi.
-RR
Piltur í síbrotagæslu
Héraðsdómur Reykjavikur varð við
beiðni lögreglu í gær um að vista 16
ára pilt í síbrotagæslu.
Pilturinn var handtekinn í innbroti
i Þingholhmum sl. sunnudag. Hann
hefur ítrekað komið við sögu vegna
innbrota og annarra mála sem hafa
verið kærð. Pilturinn verður í mánuð
í síbrotagæslunni. -RR
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ ÞINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
5
uj
>
O
z
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
„Þama er verið að gefa sveitarfé-
lögum algjörlega frjálsar hendur til
að verðleggja í hagnaðarskyni þjón-
ustu sem er fólki í dag lífsnauðsyn-
leg. Þetta á t.d. við um rafmagn og
hita sem enginn maður getur verið
án,“ segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna, um
þá breytingartillögu sem lögð hefur
verið fram við frumvarp félagsmála-
ráðherra til sveitarstjómarlaga. í
breytingartillögunni, sem borin er
fram af meirihluta félagsmálanefnd-
ar, er gert ráð fyrir nýrri málsgrein
sem segir orðrétt: „Sveitarfélög
skulu setja sér stefnu um arð-
greiðslumarkmið í rekstri fyrir-
tækja sinna og stofnana og er heim-
ilt að ákveða sér
eðlilegan afrakst-
ur af því fjár-
magni sem bund-
ið er í rekstri
þeirra." Jóhannes
segir að verið sé i
raun að gefa
sveitarfélögum
veiðileyfi á neyt-
endur. Þetta þýði Jóhannes
að stjómmála- Gunnarsson.
menn geti notað
álagningu á þjónustu við íbúana til
að niðurgreiða erfiða liði í rekstri
sínum, svo sem grunnskólana sem
hafi verið vanmetnir í kostnaði við
yfirtöku sveitarfélaganna af ríkinu.
Þá sé einnig hægt að ímynda sér að
hiti og rafmagn skili af sér arði sem
notaður yrði til að reisa hallir eða í
hvaðeina sem þeim hugnist.
„Þessi breyting býður upp á að
stjómmálamenn finni sér glufu til
að niðurgreiða gæluverkefni með
hækkunum á nauðsynjar. Ég velti
fyrir mér hvort við verðum látin
niðurgreiða grunnskóla fyrir böm
okkar í gegnum hitaveitu- og raf-
magnsreikningana. Ég tel að fólk sé
ekki tilbúið til þess og menn skulu
athuga að hér er allt undir sem
sveitarfélögin sjá um rekstur á,“
segir Jóhannes. -rt
Uppbyggingu kirkjunnar veröur að Ijúka fyrir danska daga sem haldnir
veröa í Stykkishólmi í sumar. Þetta vita Siguröur Lárusson og Baldur Þor-
leifsson og halda sér því aö verki. DV-mynd Hilmar Þór
G REIÐIÐ
KEISARANUM ÞA0
SEM KEISARANS ER,
E.E, ALLTI,
i
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4