Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Side 2
2 MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998 Fréttir Gunnar I. Birgisson sagður kalla félagsmiðstöðvar gróðrarstíu fíkniefnasala: Undrun og reiði meðal starfsmanna - segir forstöðumaður, lét ummælin aldrei falla, segir Gunnar Mikil reiði er meðal starfsfólks fé- lagsmiðstöðvarinnar Ekkó og fleiri í Kópavogi vegna meintra ummæla Gunnars I. Birgissonar, oddvita sjálfstæðismanna, á borgarafundi á fimmtudag, þess efnis að félagsmið- stöðvár væru gróðrarstía fikniefna- sala. Gunnar þvertekur hins vegar fyrir að hafa látið slík ummæli falla. „í fyrstu varð ég afar undrandi en síðar reið, eins og reyndar allir starfs- menn félagsmiðstöðvarinnar sem voru á fundinum. Það er mjög alvar- legur hlutur að láta svona orð falla á opinberum vettvangi," sagði Hrafn- hildur Ástþórsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Ekkó, við DV. „Á fundinum spurði ég i hverju sú stefna meirihlutans væri fólgin að taka upp stóraukna baráttu gegn flkniefnum og spurði síðan alla hver stefna þeirra í málefnum ung- linga væri. Mér fannst svör Gunn- ars ekki nógu greinargóð og spurði ítrekað um þetta. Þá slengdi hann þeirri órökstuddu fullyrðingu fram aö félagsmiðstöðvar væru gróðrar- stía fíkniefnasala. Þetta er mjög al- varleg fullyrðing. Þegar ég spurði hvernig Gunnar gæti fullyrt svona lagað sagðist hann hafa þetta eftir lögreglumanni í Kópavogi og að þetta væri vitað mál, á allra vörum. Ég get hins vegar fullyrt að fíkni- efnasalar forðast félagsmiðstöðvar því þar er virkt eftirlit með öllu sem fram fer innandyra og utan.“ Hrafnhildur segir ummæli Gunnars hafa fall- ið undir lok fund- arins og engin um- ræða orðið um þau að ráði. Hún hefði síðan oröið hissa þegar Gunn- ar brást reiður við þegar Flosi Eiríks- son hermdi um- mælin upp á hann í sjónvarpsumræðum á laugardag. Makalaus vitleysa „Þetta er makalaus vitleysa. Ég lét þessi orð ekki falla. Ég svaraði Hrafnhildi á þann veg að félagsmið- stöðvar væru engin allsherjarlausn í málefnum unglinga. Þar þyrftu margir aðilar að vinna saman, eins og skólar, íþróttafélög, fjölskyldur og félagsmiðstövðar. Þar væri fræðsla aðalatriði og síðan aðhald og agi. Hvort sem fólki líkar betur eða verr er staðreyndin hins vegar sú að dópsalar stunda sina iðju alls staðar þar sem unglingar koma saman, þ.e. við skóla, félgsmiðstöðvar og sjopp- ur. Þetta ræddi ég á almennum nót- um og var alls ekki að fullyrða neitt um félagsmiðstöðina í Kópavogi, enda ekkert undan henni að kvarta. Það er afskaplega dapurt þegar um- ræðan er dregin á þetta plan. Þarna er einungis verið að reyna að klekkja á mér pólitískt. Megi þeir sem að því standa hafa skömm fyr- ir,“ sagði Gunnar við DV. -hlh Gunnar I. Birg- isson. Gunnlaugur Sigmundsson, alþingismaöur og framkvæmdastjóri Kögunar: Bið Sverri afsökunar - orðin ekki sæmandi og hugur fylgdi ekki máli í skrifum um málefni Kögunar hefur komið fram að Gunnlaugur Sigmundsson, alþingismaður og framkvæmdastjóri, hafí á árinu 1985 reiðst Sverri Hermannsyni „fyrir af- skiptasemi" og hafi látið bera Sverri þau skilaboð að „hann skyldi fara til helvítis og það í láréttri stöðu". Þetta kemur fram í bréfi sem Gunnlaugur sendi öllum al- þingismönnum í byrjun þessa mán- aðar og þar tekur hann fram að hann sé „enn á því að þau orð hafi verið réttmæt". í viðtali við DV bið- ur Gunnlaugur Sverri og fjöl- skyldu hans afsök- unar á þessum orð- um. Er það sæmandi þér að óska manni, sem á við þig við- skiptaerindi eða annað erindi, dauða og helvítis- vistar eins og þú óskaðir Sverri Hermannssyni 1985 og áréttaðir í Morgunblaðinu nú 13 árum síðar? „Þessi orð eru ekki sæmandi og ég harma þau. í fyrsta lagi er þetta tekið án leyfis, bréf sem ég sendi ákveðnum einstaklingum." - Þú átt við alla alþingismenn? „Já, þar sem ég er sjálfur að leita skýringa á því af hverju Sverrir er að ráðast að mér.“ - En þú áréttar þetta engu að síð- ur? „Já, en ég vil taka þaö fram, og þakka þér fyrir aö gefa mér tæki- færi til þess, að ég harma það að hafa sagt þetta bæði í dentid og núna og ég get sagt það að hugur fylgir ekki máli í þessu. Ég harma þessi orð og bið Sverri og fjölskyldu hans afsökunar á að þessi orð hafi hrotið af mínum vörum. Ég vildi gjarnan, þegar um hægist, fá að- stöðu til að hitta Sverri og biðja hann afsökunar á þessum orðum. Mér hefur alltaf þótt Sverrir litrík- ur persónuleiki og heldur hafa lífg- að upp á umhverfi sitt heldur en hitt,“ sagði Gunnlaugur Sigmunds- son, alþingismaður og fram- kvæmdastjóri Kögunar. -phh Góð aðsókn að Listahátíð fyrstu dagana: Fiskisúpa kitlaði afríska dansara Dansari úr afríska Amlima-hópnum sýnir listir sínar við Reykjavíkurhöfn á laugardag. DV-mynd Hari Mikil aðsókn hefur verið að atrið- um Listahátiðar fyrstu daga hátíð- arinnar. Svanhildur Konráðsdóttir, talsmaður hátíðarinnar, segir miða- söluna ganga mjög vel og vart verði við mikinn almennan áhuga. „Enda er dagskráin fjölbreytt og fjöl- skylduvæn,“ sagði hún við DV. Mikill manníjöldi var samankom- inn við höfnina á laugardag, opnun- ardag Listahátíðar. Um það leyti sem hátíðin var sett geröi mikið él. Veltu sumir gestir því fyrir sér hvort afrískir listamenn hefðu beitt göldrum eða hvort þarna væru á ferð hefðbundnir dyntir í íslenskum Sultartangi: Slys við bygg- ingarkrana Vinnuslys varð við Sult- artangavirkjun síðastliðið laugardagskvöld. Slysiö vildi þannig til að starfsmenn voru að gera við byggingarkrana á svæðinu þegar svokallaður „hlaupaköttur“ á krananum slóst í einn starfsmanninn. Maðurinn slasaðist á fæti en meiðsl hans munu ekki vera mjög alvarleg. -glm veðurguðum. Vindasamt veður féll í það minnsta í góðan jarðveg hjá kínverskum og innlendum flug- drekameisturum. Gestir við höfnina fengu reyndar sýnishorn af alls kyns veðri og höfðu á orði að ein- kennisorð Listahátíðar, þar sem straumar mætast, ættu vel við. Gríðarleg aðsókn hefur verið aö sýningu Errós í Hafnarhúsinu. Er talið að um tvö þúsund manns hafi skoöað sýninguna um helgina. í gærkvöld voru hátíðartónleikar í Þjóðleikhúsinu þar sem fram komu Caput og Danski útvarpskór- inn. Voru Margrét Þórhildur, drottning Dana, og Henrik prins meöal gesta. Klúbbur Listahátíðar var opnað- ur í Iðnó á laugardagskvöld. Þangað komu afrísku listamennirnir í Am- lima og fengu sér fiskisúpu að hætti Rúnars Marvinssonar. Kitlaði súp- an fætur þeirra svo mjög að þeir skunduðu óvænt upp á svið og döns- uðu lengi við góðar undirtektir gesta. -hlh Stuttar fréttir :dv Senn á leiðarenda íslenskú konurnar fjórar á Grænlandsjökli áætla að komast á leiöarenda í Syðri-Straumsfirði á vesturströnd Grænlands í síð- asta lagi næsta fimmtudags- kvöld. Þær höfðu í gærkvöld gengið 414 km á jöklinum síðan ferðin hófst fyrir þremur vikum. R-listinn með 54,6% Samkvæmt Gallupkönnun fyr- ir RÚV, sem birt var í gær, fengi R-listinn 54,6% atkvæða en D-listi 43,6%. Samkvæmt þessu fengi R- listinn 8 borgar- fulltrúa kjörna en D-listinn 7. Mjótt er þó á mun- unum milli 7. manns D-lista og 9. manns R-lista. RÚV sagði frá. Neikvæð áhrif 31% þátttakenda í skoðana- könnun sem Markaðssamskipti geröu fyrir Stöð 2 á fylgi fram- boðslistanna í Reykjavík telur að umræða um fjármál tveggja frambjóðenda R-lista hafi haft neikvæð áhrif á fylgi listans. Tveir stuðningsmenn D-lista á móti hverjum einum stuðnings- manni R-lista eru þessarar skoð- unar. Meirihlutinn tæpur Samkvæmt Gallupkönnun fyr- ir RÚV myndi Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði tapa um þriðjungi núverandi fylgis og sjálfstæðis- menn tapa öðrum af tveimur bæjarfulltrúum sinum. Núver- andi meirihluti félli ef þetta væru úrslit kosninga. 20 milljaröa virði Verö hlutabréfa í Eimskip hækkaði um 5,5% í vikunni og er markaðs- verð hlutabréfa í fyrirtækinu nú 20,4 millj- arðar króna. Eimskip er langverð- mætasta fyrirtækið á Veröbréfa- þingi íslands. Næstur kemur ís- landsbanki. Hann er 12,8 millj- arða virði. Viðey RE seld Grandi hf. hefur selt togarann Viðey RE-6. Kaupandi er Sjóla- skip hf. í Hafnarfirði. Skipið er selt án aflaheimilda og verður af- hent 25. maí. Viðskiptavefur Vis- is sagði frá. 2% í Flugleiðum seld Burðarás hf., fjárfestingarfé- lag Eimskips, hefur selt 2% hlutabréfa í Flugleiðum. Bréfin voru seld á genginu 3,5 og kaup- andi er Kaupþing. Gengi á Flug- leiðabréfum var síðast 3,29. Við- skiptavefur Vísis sagði frá. Tekjuhækkun RARIK Arið 1997 var hagstætt fyrir Rafmagnsveitm- ríkisins. Saman fór í rekstrinum mikil orkusala og metframleiðsla var hjá eigin virkjunum RARIKS. Hagnaður varð á rekstrarreikningi í fyrsta sinn í langan tíma. Ekkert Útflutningsráð Samtök verslunarinnar vilja leggja Útflutn- ingsráð niður. Þetta kemur fram í blaða- grein eftir Jón Ásbjörnsson stórkaupmann og Stefán Guðjohnsen, framkvæmdastjóra Félags ísl. stórkaupmanna. Káskólakennsla Kennsla í hjúkrunarfræði á há- skólastigi hefst á ísafirði næsta haust. Háskólinn á Akureyri legg- ur kennsluna til en hún fer fram á Netinu með hjálp fullkomins fjar- fundabúnaðar. RÚV sagði frá. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.