Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Blaðsíða 16
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998 IjV Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir SHMMMMHHHSB Hið mannlega og hið dýrslega Danski útvarpskórinn Minnt skal á að Kammerkór Danska út- : varpskórsins syngur í Hafnarborg í Hafn- arfirði í kvöld kl. 20.30 fyrir þá sem ekki Ífengu miöa á hátíðartónleikana í gær. Á efnisskrá verður kórtónlist eftir Ligeti, Dvorák, Kodaly, Jorgen Jersild, Per Norgaard og fleiri. Kórahátíð Kóraáhugamönnum skal líka bent á að 1 stóra Kórahátíðin í Tampere í Finnlandi | verður dagana 9.-13. júní 1999, það er að | segja eftir rúmt ár. Forsvarsmenn hátíðar- innai' hvetja nú kóra heimsins, af hvaða tagi sem þeir eru, til að ákveða prógramm og æfa sig vel og senda söngprufur til Tampere fyrir 8. mars 1999 ásamt efnisskrá og mynd af kórnum. Kórar geta ákveðið efnisskrána alveg sjálfir, þó vilja hátíðar- menn leggja áherslu á a capella tónlist, I það er að segja án undirleiks, og prógram- mið á ekki að vera meira en 15 mínútur að lengd. Einnig verður keppni milli söng- hópa, 3-8 manna, og geta slíkir sótt um að- ild með sömu skilyrðum. Verðlaun eru veitt í lok mótsins og allir | þátttakendur fá umsögn frá sérstakri dóm- nefnd. Upplýsingar og eyðublöð fást hjá Tampere Choir Festival, Tullikamarin- j j aukio 2, FIN- 33100 Tampere, Finland. Brotahöfuð í kilju Skáldsagan Brotahöfuð eftir Þórarin Eidjárn - sem nú er tilnefnd til evrópsku Aristeion-bókmenntaverð- launanna - kom nýlega út í kilju hjá Uglunni, Islenska kiljuklúbbnum. Hún kom fyrst út hjá Máli og menn- : ingu 1996. Brotahöfuð er söguleg skáldsaga. Haustið 1649 sit- ur Guðmundur Andrésson, ; íslenskur almúgamaður | fi'á Bjargi í Miðfirði, bak \r\F\ lóo r\ci eló ? V’oim. -- -o ----- - ----r mannahöfn. Hann er skólagenginn fræði- maður og skáld en hefur aldrei lært að bera tilhlýðilega virðingu fyrir yfirvöldum og það hefur komið honum í koll. í Blá- turni, einu illræmdasta fangelsi Danaveld- is, veltir hann fyrir sér lífshlaupi sínu og raðar saman brotunum. Þórarinn leggur sig sérstaklega eftir 17. aldar málfari i sögunni til að miðla betur lífssýn og hugarheimi söguhetju sinnar. Hainarhúsinu Hún er ófogur aldamótalýsingin í skáld- sögu Marie Darrieussecq, Gyltingu; harð- neskjulegt mannlíf, siðspillt stjómmál og kuldalegt um að litast. Sögumaður er gylta sem párar sögu sína í útbíaöa og illa fengna stílabók einhvers staðar í námunda við París árið 2000. Hún rifjar upp sögu sína frá því aö hún var ung stúlka í atvinnuleit nokkrum mánuðum áöur og var ráðin til starfa á vafa- sama nuddstofu og segir frá þeim atburðum sem valdið hafa þessum veigamiklu breyting- um á líkama hennar. Frásögnin af því hvernig svínsleg hegðun yfirmanna og viðskiptavina nuddstofunnar í hennar garð breytir henni smám saman í Bókmenntir Sigþrúður Gunnarsdóttir svín er einfold og blátt áfram. Bamsleg rödd- in segir frá breytingunum, andlegum og lík- amlegum, og því sem hinn síbreytilegi kropp- ur verður fyrir án allrar fordæmingar eða sjálfsvorkunnar, þannig að frásögnin sveifl- ast á milli þess að vera grótesk og fyndin og þess að vekja viðbjóð lesanda. Enda hefur bókin, sem er fyrsta skáldsaga Darrieussecq, verið túlkuð á afar ólíka máta eins og til dæmis kemur fram í viðtali við höfundinn í DV 2. maí. Þar hvetur hún les- endur til að taka söguna ekki of alvarlega en þessi gagnrýnandi getur þó ekki annað en les- ið úr henni snarpa ádeilu á samfélag samtím- Hreinn sýnir í Gall- 5 erí 20 fermctrum | Listahátíðardagana 16. maí I til 7- júní sýnir myndlistar- í maðurinn Hreinn Friðfinns- i son í smásýningarrýminu 20 fermetmm aö Vesturgötu 10, kjallara. Þar er opið miðviku- i daga til fimmtudaga kl. 15-18. klassískar konur úr listasög- unni. Ég hef ekki tilheyrt aðdá- endaklúbbi Errós hingað til og geri svosem ekki enn en viður- kenni fúslega að mér finnst þetta mjög glæsileg sýning. Húsið á sinn þátt í þvi, mynd- ir Errós hefur maður oftast séð á Kjarvalsstöðum þar sem þær njóta sín engan veginn. Jafnvel allrastærstu flekamir eru í „eðlilegri" stærð inni í Hafnar- húsinu í stað þess að keyra yfir áhorfandann. Magnið virkar vel, maður gengur rými úr rými og enginn endir virð- ist ætla að verða á málverka- flóðinu. Það er í fullkomnu samræmi við myndimar sjálf- ar sem flestar eru drekkhlaðn- ar. Persónulega er ég hrifriust af eldri myndunum, til dæmis arabísku konunum og japönsku klámmyndunum. Þær em margar mjög fallegar en það get ég t.d. ekki sagt um teiknimyndaverkin þó þau séu kraftmikil. í tengslum við sýninguna eru til sölu glæsilegar bækur með verkum Errós sem sýna vel hvemig hann nær betri og betri tökum á sínu eigin mynd- máli. Og ég dáist aö afköstum mannsins þótt gæðin séu ærið misjöfn. Húsið lofar mjög góðu og það er skemmtilegt að fá að koma inn í það á meðan það er enn svona hrátt. Það er lika gaman hvað fólk virðist vera áhugasamt en mér skilst að tæplega 2000 manns hafi kom- ið í húsið á fyrsta degi. Fram- kvæmdir em rétt hafnar, von- andi verður ekki gengið of langt í breytingunum. Það er alltaf skemmtilegra að horfa á myndlist i rými með sögu, hana má ekki útmá gjörsam- lega með marmara og látúni. Með tilkomu menningar- húss á þessum stað hefur hafn- arbakkinn og svæðið í kring fengið hlutverk sem útivistar- svæði. Ég óska Reykvíkingum til hamingju með Hafnarhúsið, Errósafh og Listahátíð! ans og nánustu framtíðar þar sem meiri virð- ing er borin fyrir velferð dýra en manna; komið er fram við menn eins og dýr og dýr eins og menn. En þessi ádeila er sett fram á snilldarlegan hátt. Með þvi að ramba ævinlega á barmi fáránleikans, vekja hlátur meðfram viðbjóönum, er frásögnin laus við hvers kyns fordæmingu og einfalda skiptingu heimsins í gott og vont. Sögukona er síður en svo hjartahreinni en fólkið í kringum hana og lætur lesanda alveg eftir aö finna orsakir þeirra misþyrm- inga sem hún verður fyrir. Gylting fjallar um það mannlega og það dýrslega - hvemig það rennur á stundum saman, myndar til skiptis hliðstæður og and- stæður. Gylting veitir lesendum sinum nýja sýn á samspil manna og dýra, á stöðu manns- ins í dýraríkinu og gefur orðunum „mannleg reisn“ nýja merkingu. Þýðing Adolfs Friðrikssonar skilar hinni naífu sögumannsrödd á sannfærandi hátt og kápumynd Guðjóns Ketilssonar af svínslegri kvenásjónu er frábær! Marie Darrieussecq: Gylting Adolf Friðriksson þýddi Mál og menning 1998 Krakkar, krakkar Emi er rúm fyrir nokkur börn á bók- menntasmiðju í Norræna húsinu 25. til 28. maí. Þau eiga að vera fædd á árunum 1987-8. Bókmemitasmiðjan er haldin í tengslum við Listahátíð í Reykjavik. Þar ætla rithöf- undar frá Suöur-Afriku og Norðurlöndum að semja bók meö íslenskum bömum. Unnið verður daglega frá 13.30-16. Smiðjan er liður í stóru samvinnuverkefhi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og Suður-Afríku. Hver Norðurlandaþjóðanna sér um einn þátt á listasviðinu og komu bókmenntim- ar í hlut íslands. Eftir að aðskilnaðarstefnan var aflögð í Suður-Afríku var komið á skólaskyldu . fyrir öll böm og eru barnabækur einn mikilvægasti þátturinn í að vinna bug á ólæsinu í landinu. Þetta er dýrmætt tækifæri fyrir islensk böm að leggja hönd á plóg því bókinni, sem búin verður til í Norræna húsinu, verður dreift meðal skólabama i Suöur- Afríku. Suður-afrisku rithöfundamir mimu koma fram sem sagnaþulir í klúbbi Listahátíðar í Iðnó 27. maí kl. 20.30, en norrænu höfundam- ir munu lesa úr verkum sínum í Norræna húsinu 26. maí. Tveir íslenskir höfundar taka þátt i bókmenntasmiðjunni, þau Sjón og Olga Guörún Árnadóttir. Listahátíð í Reykjavík 1998 var formlega sett á laugardaginn. Athöfn- in fór fram í porti Hafnarhússins sem verið er að breyta i listasafn og í beinu framhaldi af henni var opnuð stór sýning á málverkum eftir Erró í hluta hins tilvonandi safns. 1 flestum myndum Errós ríkir öng- þveiti. Allt er í einni þvögu, fólk, teiknimyndir, svipir úr listasögunni, stríðstól og hlutir úr öllum áttum frá ýmsum tímum. Hann teflir gjaman saman óskyldum heimum - vopnaður her veltur inn í japanska kynlífs- teikningu, geimfarar stilla sér upp með gyðjum aftanúr öldum. Erró hefur frábært vald á tækn- inni, bæði teikningunni og málverk- inu en það er erfiðara að átta sig á inntakinu. Hann er sögumálari; steypir saman öllum mögulegum sög- um. Sumt er auöskilið en til dæmis getur verið erfitt að átta sig á teikni- myndasögunutn fyrir þá sem ekki þekkja þær vel. Hitt veit maður þó að teiknimyndir segja einmitt sögur. Óreiðan er áhrifamikil og mann granar að málverk Errós fjalli aðal- lega um tvístringinn sem einkennir nútimann en segi ekki neina eina sögu. Yfirskriftin, Konur, er meira svona eitthvað-verður-sýningin-að-heita- yf- irskrift en að hún sé virkilega sann- færandi. Jú, vist em konur á mynd- unum en þær em fremur yfirborðs- Myndlist Áslaug Thorlacius legar og svo veður líka allt í körlum. Konurnar hafa ekkert meiri merk- ingu en annað í myndunum, merk- ingar er miklu fremur að leita í heild- inni en einstökum persómun. í nokkrum myndröðunum eru konur þó í aðalhlutverkum, til dæmis í Örlagakonunum, tuttugu mynda syrpu með ofurkvendum. Mest er um alls konar teikimynda- konur í áhættuhlutverkum - kaf- ara, lífverði, herkonur - og flestar erú mjög vel vopnum búnar. Þó eru lika Matissekonur, Picassokonur, austurlenskar konur með mildan svip, ítalskar postulínsbrúður og Ein af örlagakonum Errós í Hafnarhúsinu. menning Vfl Pomp og prakt í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.