Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Side 21
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998 21 DV Fréttir Rannsóknar- og menningar- setur á Kirkjubæjarklaustri Á Kirkjubæjarklaustri er rann- sóknar- og menningarsetrið Kirkju- bæjarstofa sem var formlega opnuð 4. september 1997. Hún var stofnuð að frumkvæði dugmikilla heima- manna með dyggum stuðningi nokkurra áhugasamra vísinda- manna sem hafa stundað hluta af rannsóknum sínum á vettvangi í héraðinu. Þeir sem stóðu að þvi að koma Kirkjubæjarstofu á fót töldu að nátt- úra og saga héraðsins væri um svo margt sérstæð að full ástæða væri til að hafa þar aðstöðu til að tengja störf vísindamanna héraðinu enn sterkari böndum og jafnframt að skapa betri aðstöðu til að kynna gestum og heimafólki hina sérstæðu náttúru og sögu héraðsins. Sjálfseignarstofnun stendur að baki Kirkjubæjarstofu og hefur hún fengið gamla gistihúsið á Kirkju- bæjarklaustri til afnota undir starf- semina. Þar hafa verið gerðar mikl- ar endurbætur en þess þó gætt að láta húsið halda sér að utan. Innan- dyra er búið að innrétta sýningarsal og skrifstofur en þrátt fyrir breyt- ingarnar er húsið með virðuleik þess gamla húss sem það er í. Markmið Kirkjubæjarstofu er að Helga Guðmundsdóttir forstöðumaður á tröppum Kirkjubæjarstofu. vera jöfnum höndum þjónustu- og stjómsýslumiðstöð vegna vettvangs- rannsókna í héraðinu og menning- arsetur þar sem gestir héraðsins geta sótt sér skemmtilegan og áhugaverðan fróðleik um héraðið. Áætlað er að hvert starfsár hafi ákveðið viðfangsefni (þema) og er þema þessa árs „Eldgos undir vest- anverðum Vatnajökli og tengsl við Skaftáreldasvæðið“. í mars var haldin tveggja daga ráðstefna sem bar yfirskriftina „Eldgos í vestanverðum Vatnajökli og afleiðingar þeirra". í tengslum við komu forsetahjónanna í V- Skaftafelssýslu var opnuð sýning í sýningarýminu sem tengist þema starfsársins. Sú sýning er tvíþætt. Annars vegar er ítarleg kynning á stórhlaupinu á Skeiðarársandi 1996 þar sem sýndar eru myndir og kort af jöklinum, sandinum og frá hlaup- inu. Hins vegar er umfjöllun um Skaftárelda. Þungamiðja þessarar sýningar og það sem tengir þessa tvo megin- þætti hennar saman er lifandi líkan af vestanverðum Vatnajökli þar sem dregin er upp á myndrænan og lif- andi hátt skýring á ferli kvikunnar undir yfirboröi við eldgos. Á næsta ári er ráðgert að þemað verði „Kirkju- og kristnisaga" en á því sviði á héraðið sér langa og sér- stæða sögu. Til dæmis voru tvö klaustur innan þess fyrir siðaskipt- in, annað var nunnuklaustur á Kirkjubæjarklaustri en hitt munka- klaustur í Þykkvabæ í Álftaveri. Næsta starfsár mun einnig hefjast með ráðstefnu í mars 1999. For- stöðumaður Kirkjubæjarstofu er Helga Guðmundsdóttir. -NH Skagafjörður: Verulegur bati hjá Fiskiðjunni DV, Fljótum: Fiskiðan Skagfirðingur hf. var gerð upp með 11,6 milljóna króna hagnaði árið 1997. Verulegur við- snúningur til hins betra varð á rekstrinum frá árinu á undan en þá tapaði fyrirtækið 262 millj. króna. Veltan varð tæpir tveir milljarðar, lækkaði um 800 þúsund frá 1996. Skuldir í árslok námu 2,3 milljörð- um og lækkuðu nokkuð á árinu. Segja má að fyrirtækið sé nú að rétta úr kútnum eftir erfiðleika- tímabil. Liður í endurskipulagn- ingu þess var að hætta bolfisk- vinnslu á Sauðárkróki síðla árs 1996 en á henni hafði þá verið verulegt tap um nokkurn tíma. Fiskiðjan Skagfirðingur gerir nú út fimm skip, frystitogarann Málm- ey og ísfisktogarana Hegranes, Skagfirðing, Skafta og Klakk. Alls nema aflaheimildir fyrirtækisins liðlega 14 þúsund tonnum. Framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings síðan um mitt ár 1996 er Jón Friðriksson. -ÖÞ DV, Breiðdalsvík: Deildir SVFÍ á Austurlandi héldu árlegan vorfund sinn um helgina á Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík. Fjallað var um sameiginleg mál deildanna, svo sem fjarskiptamál, ungliðanám- skeiðin í Hamraborg við Beruíjörð og hvort unglingarnir ættu að taka þátt i samæfmgum SVFÍ. Margir voru því fylgjandi því hvað ungur nemur, gamall temur. Einnig voru rædd slysavamarmál almennt. Reynir Amórsson frá Djúpavogi var kosinn landshlutafulltrúi SVFÍ i stað Baldurs Pálssonar á Egilsstöð- um sem hefur setið mjög lengi í stjórninni og til vara Halla Ósk Óskarsdóttir. Þátttaka var mjög góð, eða milli 60 og 70 manns, og ánægjulegt hver mikið var af ungu fólki. -H.I. Utilegukindur DV, Hólmavík: Starfsmaður Orkubús Vest- fjarða, Helgi Ingimundarson, sá til þriggja kinda skammt frá stöðvarhúsi Þverárvirkjunar þeg- ar hann var á leið til vinnu sinn- ar nýverið. Útlit kindanna benti ekki til þess að bóndinn á bænum Hnitbjörgum væri farinn að sleppa fé á fjall enda nær augljóst að kindur þessar höfðu gengið úti í vetur. Þær voru ekki auðteknar og þurfti einn fótfráasta mann í Strandasýslu, Birki Þór Stefáns- son í Tröllatungu, og góðan hund með honum til að ná þeim í að- hald. Þær voru vel á sig komnar að sögn Birkis og Helga, ull farin að losna frá kjálkum og útlitið frísklegt. Líklega ganga þær lamblausar um haga sumarsins því enginn hrútur var með. Þær voru allar í eigu Tómasar Sigur- geirssonar, Mávatúni í Reykhóla- hreppi, og var strax komið til síns heima. -GF Reynir Arnórsson frá Djúpavogi, Halla Ósk Óskarsdóttir frá Eskifirði og Baldur Pálsson frá Egilsstöðum. Fjölmenni á vorfundi SVFÍ Gormarí flestar gerðir bíla. Gott verð !! 535 9000 Mán.-fös. 8-21 Lau. 8-19 Sun. 10-19 Húsasmiðjan Fossaleyni 2 Grafarvogi S: 586 2000 HÚSASMIÐJAN Komdu í skoðun TOYOTA Nýbýlavegi 4-8 QEEEBZ3 S. 563 4400 Volvo 850 station 2000, 5 cyl., ssk. ‘95, rauöbr. ek. 48. þ. km, leður, krókur, 7.manna, o.fl o.fl. V. 2.400.000 VW Golf 2000, 4 d. ‘96, svartur, ek. 33. þ. km a/c. o.fl V. 1.200.000 Renault Méganc Coupe 1600, 3 d. '97, vfnr. ek. 24. þ. km, auka álfelgur o.fl. V. 1.380.000 Honda CRV 2000 4x4, ssk, ‘98, blár ek. 12. þ. km, ABS o.fl. V. 2.350.000 VW Golf GL 1400, 5. d. ‘97, silfur, ek. 12. þ. km.V. 1.160.000 Suzuki Sidekick JXI, ssk, 5. d. '95, dökkblár, ek. 43. þ. km. V. 1.430.000 MIKIL SALA VANTAR BÍLA Á SKRÁ OG Á STAÐINN STRAX fnÍLASAUNNj nöldur ehf. BÍLASALA Tryggvabraut 14 600 Akureyri 461 3020-461 3019 MMC Galant 4x4 GLSI, 2000, 4 d., ‘96, vinr. ek. 11. þ. km. V. 1.850.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.