Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Side 6
6 ,f:r - - • r»- -•;> ■ ; • Fréttir ■ -*. >''..;í í4.k-:;'--'■• MÁNUDAGUR 18. MAÍ Í99í Starfsmenn íslenskra sjávarafurða hf. á Kamtsjatka: Höfða mál vegna vanefnda Starfsmenn verkefnis íslenskra sjávarafurða hf. á Kamtsjatka á árun- um 1995 og 1996 hafa ákveðið að höfða mál á hendur ÍS vegna samnings milli fyrirtækisins og þeirra um skatt- frjálsa dagpeninga. Segja starfsmenn- imir að þessi samningur hafi ekki haldið. Á fundi sem þeir efndu til í gær skrifuðu þeir undir skjal þess efnis að þeir myndu taka þátt í málarekstri gegn ÍS vegna þessa. Þar segir m.a. að embætti rikisskattstjóra hafi sent skattstjórum allra umdæma bréf þar sem farið sé fram á að umræddar dag- peningagreiðslur verði meðhöndlaðar í skattalegu tilliti eins og rnn tekjur sé að ræða. Því verði höfðað mál á hend- AMLIMA Afrískir dans- og tónlistarmenn í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20, örfá sæti laus, og su. kl. 14 og 20, örfá sæti laus. HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Danski útvarpskórinn og Caput. Frumflutt nýtt tónverk eftir Hauk Tómasson í Þjóðleikhúsinu á morgun kl. 20, nrf á ctptl I unc LE CERCLE INVISIBLE Victoria Chaplin og Jean-Babtiste Thierrée. Þjóðleikhúsinu þri. 19., mi. 20., fi. 21. og fö. 22/5 kl. 20 og fi. 21/5 kl. 15. Örfá sæti laus á allar sýningar. STRAUMAR Tríó Reykjavíkur, Martial Nardeau og félagar. Frumflutt nýtt tónverk eftir Jón Nordal. Iðnó mi. 20/5 kl. 23 og su. 24/5 kl. 17. CAPUT og Sigrún Eðvaldsdóttir. Iðnó fö. 22/5 kl. 20. IRINAS NYA LIV Leikstjóri Suzanne Osten. Unga Klara. Borgarleikhúsinu su. 24. uppselt, má. 25. og þri. 26.5. kl. 20. JORDISAVALL, Montserrat Figueras og Rolf Lislevand. Hallgrímskirkju má. 25/5 kl. 20. CHILINGIRIAN STRING QUARTET og Einar Jóhannesson. íslensku óperunni mi. 27/5 kl. 20, örfá sæti laus. NEDERLANDS DANS THEATER II og III. Borgarleikhúsinu fi. 28. og fö. 29/5. kl. 20. VOCES THULES: Þorlákstíðir. Kristskirkju, Landakoti su. 31/5 kl. 18 og 24. Má. 16. kl. 12,18 og20. GALINA GORCHAKOVA, sópran. Háskólabíói þri. 2/6. kl. 20. örfá sæti laus. SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS. Hljómsveitarstjóri Yan Pascal Tortelier. Fiðluleikari Viviane Hagner. Háskólabíói fö. 5/6 kl. 20. SEIÐUR INDLANDS. Indverskir dans- og tónlistarmenn. Iðnó lau. 6. og su. 7/6 kl. 20. KLÚBBUR LISTAHÁTÍÐAR í IÐNÓ í kvöld: Opnun kl. 20. Kuran Swing leikur kl. 22. Sunnudag: Mósambískir myndlistamenn og fulltrúi Þróunarsamvinnustofnunarinnar kl. 17. Wang Tian Ming sýnir örskrift kl. 17. Skárr'en ekkert kl. 21. Mánudag: Opið frá kl. 17. POPP í REYKJAVÍK í og við Loftkastalann 4.-6. júní. Miðasala í Loftkastalanum, s. 5523000. CARMEN NEGRA og ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN (sjá sérauglýsingar). MIIIASALA í llpplÝsingamidstiii) lcnlamála í Rcykjavík. Bankastra'ti 2. Sími 552 8588. Opið alla (laga li á kl. 8.5(1—19.00 oi! á sýnincarslað klnkknlima lyrir sýningu. (>rcii)slukoila|)jónusla. Ilcililai ilagskrá liguur Irammi í miOasiilii. ur ÍS til að tryggja að þeir starfsmenn Kamtsjatka-verkefnisins sem taki þátt í málarekstrinum fái að njóta um- ræddra dagpeningagreiðslna óskertra, eins og yfirlýsingar yfir- manna ÍS hafi staðið um þegar starfs- menn voru ráðnir til verkefnisins. ÍS hafi talið sig hafa samið sig frá skyld- um sínum gagnvart skattayfirvöldum með ráðningarsamningum í lok árs 1996. „24 starfsmenn munu standa að þessum málaferlum," sagði Örn Gunnlaugsson, talsmaður hópsins. „ÍS-menn gáfu yfirlýsingar um skatt- frjálsa dagpeninga munnlega í starfs- viðtölum og á kynningarfundum. Nú liggur það fyrir að sanna að þessar yf- irlýsingar hafi verið gefhar. Við höf- um launaseðla í höndunum sem sýna að fyrirtækið greiddi ekki skatt af dagpeningagreiðslum til okkar, sem styður mál okkar. En við ættum ekki að þurfa að standa í þessu núna held- ur ætti ÍS að leysa þetta mál við skattayfirvöld. En við erum ekki einungis að ýta á ÍS að standa við orð sín heldur er- um við einnig að stuðla að þvi að menn sitji við sama borð og séu jafn- ir fyrir lögum hvað varðar skatta- greiðslur af dagpeningum. Við mun- um hamast á skattayfirvöldum og fjármálaráðuneytinu þar til allir sitja við sama borð í þessu tilliti, ekki bara flugliðar, sem fá nú skattfrjálsa dagpeninga, heldur einnig æðstu menn þjóðfélagsins." Á fundi sem starfsmenn Kamtsjatka-verkefnis ÍS efndu til í gær skrifuöu allflestir þeirra undir skjal um aö þeir myndu taka þátt í málarekstri á hendur ÍS. DV-mynd S. Rauði kross íslands þjálfar sendifulltrúa: Stríðsástand í Saltvík Rauði kross íslands hélt nú um helgina námskeið fyrir sendifulltrúa sína til þjálfunar fyrir störf þeirra erlendis. Sett var á svið umsátursá- stand skæruliða sem náð höfðu land- svæði í nágrenni Saltvíkur á sitt vald og var það hlutverk sendifull- trúanna að ferðast um átakasvæðin til að koma vistum og hjálpargögn- um til flóttamannabúða á herteknu svæðunum. Rauði krossinn fékk m.a. til liðs við sig sérsveitir lögreglunnar til að bregða sér í hlutverk stjórnarher- manna og skæruliða til að gera ástandið eins raunverulegt og hægt var. Viðbrögð sendifulltrúanna voru könnuð við hinar ýmsu aðstæður og eftir æfinguna var farið yfir hvemig hver hópur stóð sig í þrekraununum sem lagðar voru fyrir þá. Þetta var fyrsta námskeið af þessu tagi sem Alþjóðaskrifstofa Rauða krossins gengst fyrir en ætlunin er að halda það árlega til að búa sendi- fulltrúana undir raunverulegar að- stæður sem kunna að koma upp við störf þeirra á átakasvæðum erlendis. Æfingin þótti takast mjög vel og var ekki hægt að segja annað en að sérsveit lögreglunnar hefði verið mjög sannfærandi í hlutverki her- manna og skæruliða. Hins vegar fer engum sögum af því hvort vegfar- andi sem átti leið hjá og lenti í miðju jarðsprengjusvæði og í átökum við skæruliða hafi áttað sig á hvað var þar raunverulega á ferð. -Sól. Sendifulltrúar Rauöa krossins huga aö særðum skæruliöa meöan félagai hans ógna þeim meö byssum á æfingu sem sviösett var ( Saltvík nú urr helgina til aö þjálfa þá í störfum á erlendri grund. DV- mynd Bjarn Vísir.is eykur enn þjónustu við notendur: Nýjungar í hverri viku Skemmdarverk á Hólmavík Skemmdarverk voru unnin á tveimur sumarbústöðum rétt fyrir ofan Hólmavík um helgina. Brotist var inn í bústaðina en aöaltilgangur innbrotanna virð- ist ekki hafa verið að finna ein- hver verðmæti heldur einungis að vinna skemmdarverk. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík er máliö enn óupplýst og þiggur hún gjaman allar upp- lýsingar um mannaferðir við bú- staðina. -glm Frá og með deginum í dag verður notendum Vísis boðið upp á eina nýjung í viku hverri. í dag fá gestir Vísis, sem er að finna á slóðinni www.visir.is, að sjá nýtt og endurbætt útlit. Markmið breyting- anna er að létta síðumar þannig að efni miðilsins komi fyrr upp á skjáinn. Einnig er leiðarkerfið bætt og einfaldað og er nú auðveldara en áður að fara fljótt á milli hinna sautján fjölbreyttu vefja sem mynda Vísi. Auk breytinganna á útliti hefst íþróttagetraun i Vísi á morgun. Á hverjum degi birtist ný spurning og þeir sem svara henni rétt komast í pott sem dregið er úr vikulega. í vinning eru vörur frá NIKE-búðinni Frísport. Vísir hefur nú verið starfræktur í rúmar sex vikur og hefur aðsóknin að honum farið langt fram úr vonum. Yfir 400 þúsund gestir hafa frá upphafi farið inn á slóðina www.visir.is. Vísir hefur á þessum tíma náð að festa rætur sem lifandi og ferskur fréttamiðill en á Vísi eru þrír fréttavefir - almennar fréttir, íþróttir og viðskipti. Öll helstu tiðindi í íslensku þjóðlífi eru birt og oftar en ekki hefur Vísir verið fyrstur með fréttirnar. Auk þess er að finna á Vísi fjölbreytilega vefi á borð við Ættfræðivef DV, Endurbætt útlit mætir nú gestum Vísis á slóðinni visir.is Bílavefinn, Netferðir, Smáauglýs- ingar DV og margvíslega leiki og þrautir. Um mánaðamótin síðustu var opnaður endurbættur kosninga- vefur Vísis í tilefni sveitarstjómar- kosninganna. Þar má finna flest það sem telst til tíðinda í aðdraganda kosninganna á lauf dag, auk upplýsinga um frambc lista, úrslit síðustu kosninga niðurstöður skoðanakannanana sem þær hafa verið gerðar. Slóð Vísis er www.visir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.