Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Vel fór á með þeim Jeltsín og
Clinton í Birmingham.
Leiðtogafundi
líkt við helgarfrí
ríkra stráka
Fundur leiðtoga átta helstu
efnahagsvelda heimsins, sem lauk
í Birmingham á Englandi í gær,
var kallaður „helgarfrí ríku
strákanna" af skipuleggjendum
víðtækra mótmælaaðgerða gegn
samkomunni.
Um fimmtíu þúsund manns
héldust í hendur og mynduðu um
tíu kílómetra hring um fundar-
staðinn á laugardag. Mótmælend-
ur kröfðust þess meðal annars að
þróunarlöndin fengju gefnar eftir
skuldir sínar og að aukin áhersla
yröi lögð á umhverfismál.
Leiötogarnir tilkynntu við lok
fundarins að þeir hefðu komið sér
saman um áætlun sem miðar að
þvi að draga úr skuldabyrði ríkja
þriðja heimsins. Þá sögðust þeir
hafa trú á því að efnahagslíf Asíu-
ríkja ætti eftir að rétta úr kútnum
eftir erflðleikana undanfarið.
Lebed með örugga forustu í ríkisstjórakosningum:
Áfangi á leið í
forsetastólinn
Alexander Lebed, fyrrum hers-
höfðingi og stríðshetja, hafði öruggt
forskot á keppinaut sinn í kosning-
unum um ríkisstjóraembættið í
Krasnojarsk-héraði í Síberíu þegar
90 prósent atkvæða höfðu verið tal-
in i gærkvöld.
Að sögn rússnesku fréttastofunn-
ar Interfax hafði Lebed fengið 56
prósent atkvæðanna en Valerí Zú-
bov, fráfarandi ríkisstjóri sem nýt-
ur stuðnings stjómvalda í Moskvu,
hafði fengið 39 prósent atkvæðanna.
Kjörsókn var um 63 prósent.
Krasnojarsk er mjög víðlent hér-
að og þar era miklar náttúraauð-
lindir í jörðu. Héraðið nær frá
heimskautahéruðunum í norðri
allt til landamæranna að Mongól-
íu.
Lebed, sem alla jafna er harður í
hom að taka, var mjög öraggur með
sig og rólegur alla kosningabarátt-
Alexander Lebed í höfuðstöðvum
sínum í Krasnojarsk.
una þrátt fyrir að hann hefði engin
tengsl við Krasnojarsk. Hann vann
fyrstu umferð kosninganna í apríl
en þar sem hann fékk ekki meiri-
hluta atkvæða þurfti að kjósa aftur
milli efstu manna.
Lebed hefur verið mjög í mun að
eyða ótta kjósenda um að hann
hefði ekki áhuga á málefnum hér-
aðsins. Undanfarna daga hefur
hann sagt að hann ætli sér því að-
eins að keppa um forsetaembætti
Rússlands árið 2000 þegar Jeltsín
fer frá að hann hafi komið efnahag
Krasnojarsk aftur á réttan kjöl.
„Ég veit ekki hvort ég vil verða
forseti eður ei. Það veltur á því
hvernig mér gengur hér,“ sagði
Lebed við fréttamenn í höfuðstöðv-
um sínum. Lebed og menn hans
hafa verið sakaðir um að hafa brot-
ið kosningalög.
Hún Irene Saez kallar ekki allt ömmu sína. Þessi 36 ára gamla fyrrum alheimsfegurðardrottning frá Venesúela hefur
mikinn hug á að verða forseti lands síns eftir kosningarnar í desember næstkomandi. Hún nýtur mikillar hylli al-
mennings og hún hefur nú verið tilnefnd forsetaframbjóðandi kristilega flokksins Copei, næststærsta flokks Venes-
úela. Stjórnmálaskýrendur telja að hún muni geta nýtt sér flokksvélina til atkvæðaveiða.
Námsmenn boöa aögeröir í Indónesíu í dag:
Samherji Suhartos
forseta vill hann burt
Háttsettur félagi í flokki Suhartos
Indónesíuforseta og fyrrum ráðherra
í stjórn hans sagði í gær að tími væri
til kominn að hinn 76 ára gamli for-
seti léti völdin í hendur yfirmanns
hersins. Þar með virðist fengin stað-
festing á orðrómi um að djúpstæður
ágreiningur sé innan valdastéttar-
innar.
Allt var með kyrrum kjörum í
Indónesíu í gær. Gífurlegar óeirðir i
síðustu viku kostuðu meira en fimm
hundrað manns lífið.
Námsmenn sem hafa krafist af-
sagnar Suhartos mánuðum saman
sögðust mundu fara í kröfugöngu að
þinghúsinu í dag og krefjast þess að
Margir vilja að þessi maður,
yfirmaður hers Indónesíu, taki við af
Suharto forseta og bjargi landinu.
hafist væri handa við undirbúning
brottrekstrar forsetans í samræmi
við við gildandi lög og reglur.
Múslímaleiðtoginn Amien Rais
sagði að hann mundi kalla milljónir
manna út á götur borga Indónesíu á
miðvikudag og krefiast afsagnar for-
setans. Rais, sem vill koma í veg fyr-
ir frekara blóðbað, fer fyrir 28 millj-
óna manna samtökum múslíma.
Flestir 200 milljóna íbúa Indónesíu
eru íslamstrúar.
Ekki er vitað hver næstu skref
Suhartos verða. í gær bólaði ekkert á
uppstokkun í stjóm hans sem þing-
forsetinn lofaði og litið var á sem til-
raun til að blíðka almenning.
Dauðasveitir drepa
Óttast er að dauðasveit hægri-
manna hafi drepið þrjátíu manns
í helstu olíuvinnsluborg Kól-
umbíu.
Blaðamanni sleppt
Alsírskum blaðamanni, sem
var handtekinn þegar hann ætl-
aði til Genfar að ávarpa mann-
réttindaráðstefnu, hefur verið
sleppt úr fangelsi.
Kjósið friðinn
Niels Helveg Petersen, utanrík-
isráðherra Danmerkur, segir að
Amsterdamsátt-
máli Evrópu-
sambandsins sé
mikilvægur lið-
ur í að viðhalda
stöðugleika og
friði í Evrópu
til langframa og
því ættu Danir
að greiða honum atkvæði sitt í
þjóðaratkvæðagreiðslunni 28. maí
næstkomandi.
Mannfall í Kosovo
Þrír menn af albönsku bergi
brotnir féllu í átökum við
serbnesku lögregluna í
Kosovohéraði í gær.
Kjósið líka friðinn
Leiðtogar Bandaríkjanna, Bret-
lands og írlands hvöttu kjósendur
á Norður-írlandi í gær til að
greiða friðarsamkomulaginu, sem
gert var um páskana, atkvæði sitt
á föstudag.
Gúmmíkúlur í Hebron
ísraelskar hersveitir særðu
átta Palestínumenn í gær þegar
þær skutu gúmmíkúlum á hóp
mótmælenda í Vesturbakkaborg-
inni Hebron.
Sinatra minnst
Aðdáendur stórsöngvarans
Franks Sinatra, sem lést í síðustu
viku, héldu áfram að minnast
hans um helg-
ina. Þá var til-
kynnt í gær að
minningar-
guðsþjónusta
um hann yrði
á þriðjudags-
kvöld fyrir
vini og vanda-
menn. Ekki var vitað í gærkvöld
hvenær jarðsett verður.
Áhyggjur Netanyahus
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, segir að þjóðir
heims eigi að hafa jafn miklar
áhyggjur af kjarnorkuvopnum í
Mið-Austurlöndum og á Indlandi
og 1 Pakistan.
Hræðsluáróður blaða
Talsmaður Elísabetar Eng-
landsdrottningar kallaði
hræðsluáróður þær fréttir að
Margrét prinsessa, systir drottn-
ingar, íhugaði að hætta að koma
fram opinberlega vegna heilsu-
brests.
Burt með nasista
Norsk yfirvöld fyrirskipuðu í
gær, á þjóðhátíðardegi Noregs, að
níu sænskir nýnasistar skyldu
reknir úr landi.
Kohl tvíefldur
Helmut Kohl fór tvíefldur heim
af leiðtogafundi átta helstu iön-
ríkjanna á
sunnudag og
gerir sér vonir
um að honum
takist að blása
lífi í kosninga-
baráttu Kristi-
legra
demókrata.
Samkvæmt öllui
tapa þingkosningunum i haust.
Öllum sama um Kabila
Örfáir opinberir fánar vora það
eina sem minntu Kongóbúa á það
í gær að ár er liðið frá því Kabila
tók við völdum eftir sigur á her-
sveitum Mobutus. Lífið gekk sinn
vanagang í höfuðborginni en dát-
ar voru þó alls staðar.